Eintak

Tölublað

Eintak - 07.04.1994, Blaðsíða 23

Eintak - 07.04.1994, Blaðsíða 23
0 BONNI fyrir bata. (Ég tek vítamín eins og extra B complex og zink, það virð- ist flýta fyrir.) Á húðflúrinu myndast húð (hreistur) sem fellur síðan af hægt og rólega. Þér kemur til með að klæja en þú mátt alls ekki klóra eða plokka í það. Haltu höndunum og öðrum líkamspörtum frá húðflúr- inu, nema þá til að hreinsa það og bera á það krern. Það verður full- gróið á 10-14 dögum. Þú getur farið í sturtu en haltu flúrinu frá bun- unni (það er gott að bera vel af kremi á það áður en farið er í sturtu). Þú skalt ekki fara í sund í að minnsta kosti tvær vikur og farðu ekki í sólböð. Þú verður að gefa húflúrinu tíma til að gróa og setjast í skinnið með eins litlu áreiti og hægt er. Nýtt húðflúr er sem op- ið sár og hugsaðu um það á heil- brigðan og skynsaman hátt. Viltu losna við húðflúríð? Ef þú ert með einhverja ógurlega mynd sem runnið hefur til með ár- unum eða nafn kærustunnar/kær- astans sem hljópst á brott með besta vini þínum, þá ættir þú að fara að hugsa um að láta fjarlægja það. Þá eru nokkrar leiðir færar eins og að láta flúra yfir gamla verkið með nýrri mynd. Þá þarft þú að hafa í huga, eins og svo oft áður, að láta húðflúrmeistara sem þú treyst- ir, um verkið. Til er önnur leið og er það leisermeðferð. Sú meðferð getur losað þig við næstum öll húð- flúr án þess að skilja eftir ör og er að öllu sársaukalaus, en því miður er þessi meðferð mjög dýr. Eins er hægt að láta slípa það af, en það er bæði tímafrekt og sárt. En að sjálfsögðu skalt þú muna það að hugsa áður en þú fram- kvæmir. Og síðast en ekki sist, er þetta sárt? Þessari spurningu er mjög erfitt að svara, það er mjög persónu- bundið. Kvenmenn eru þó yfirleitt harðari af sér en karlmenn. Sárs- aukaþröskuldurinn er mishár hjá fólki og það eru sumir staðir sem eru sárari en aðrir, til dæmis þar sem grunnt liggur að beini og taug- um. Svo að síðustu er sársaukinn ekki það ógurlegur að ekki sé hægt að lifa við hann í ákveðna stund. Ég hefði til dæmis ekki farið aftur og aftur og affur ef mér þætti þetta svo ógurlegt. Sársaukinn er hluti af ferl- inu og gleymist hann fljótt þegar við tekur stoltið og gleðin sem fylg- ir nýja húðflúrinu. Verði ykkur svo að góðu.© Þýtt og endurbætt af Finni Jóhannssyni úr „The Best of Outlaw Biker's Tattoo Revue". L FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994 23

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.