Eintak - 07.04.1994, Page 30
SAQAN M í N
Blððeiður Stríðsmynd með Ratni Geirdal.
Stranglega bönnuð börnum 05.25 Dagskrár-
lok.
SÝH 17.00 Ameríska atvinnumannakeilan
Fjórði þátturinn afnítján um keilu. Eruð þið í
00/718.30 Neðanjarðarlestir stórborga Endur-
sýning á tjórða þætti af tuttugu og sex um stræt-
óana ofan f jörðinni. Krúsi heíði kannski frekar
átt að berjast fyrir því en að hætta.
FYRIR ,
ATHYGUSSJUKA
Sendið blómvöns til
Hemma Gunn, hugljúft bréf
með skjalli um Hemma, lát-
ið fylgja með mynd af ykkur
sjálfum og byðjíö Hemma
um að árita myndina. Takið
upp næsta þátt og horfið á
hann á vídeóinu. Setjið á
kyrrmynd þegar Hemma
leggur frá sér blómin og
sýnir áhorfendum myndina
af ykkur. Þá sjáið þið það.
Þið í sjónvarpinu.
SUNNUDAGUH
P O P P
Maus, Strigaskór nr. 42 og Wool leika á
neðanjarðarrokkkvöldi á Tveimur vinum í kvöld.
Má búasl við mikilli keyrslu og gauragangi.
BAKGRUNNSTÓNUST
Olafur B. Oiafsson kreistir gömlu góðu lögin
úr nikkunni á Kringlukránni.
Haraltfur Reynisson trúbadorast á Fógetan-
um I kvöld.
Sveinn Óli leikur píanótónlist á Sólon Islandus
milli kl. 15:00-18:00.
L E I K H Ú S
Elektra leiklesin kl. 16:00 í Borgarleikhúsinu.
Valgerður Dan er í aðalhlutverki. Aðrir leikarar
eru meöal annarra Sigrún Edda Björnsdóttir,
Sigurður Karlsson og Margrét Helga Jóhanns-
dóttir.
Gauragangur á Stóra sviði Þjóðleikhússins kl.
20:00. Nýdönsk ætlar í pásu þegar sýningum
lýkur í vor. Björn Jörundur er netnilega að pæla
í að gera sólóplötu.
Eva Luna kl. 20:00 á Stóra sviði Borgarleik-
hússins. Edda Heiðrún er greinilega fæddur
klæðskiptingur.
Skilaboðaskjóðan ettir Þorvald Þorsteinsson
er sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins kl. 14:00.
Sýningarnar eru orðnar 26 talsins.
F U N P I R
Torben Rasmussen torstjóri Norræna hússins
heldur fyrirlestur um fagurfræði þar sem Erik
Satie og Kasimir Malevitj koma við sögu.
í Þ R Ó T T I R
Fótbolti Víkingur og Fram leika í A-deild
Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu (kvöld. Leik-
urinn er á gervigrasvellinum i Laugardal og
FYRIR ÁSTSJÚKA
Stefnumótalínan. Þar er
hægt að fá flest fyrir þá
sem vilja elska allt og alla.
Kalla fyrir kalla. Konur fyrir
kalla. Kalla fyrir konur.
Konur fyrir konur. Konur
fyrir konur og kalla. Kalla
fyrir tvær konur. Tvær kon-
ur fyrír einn kall. Eigin-
mann fyrir nýjan ískáp.
RÚNAR GUÐBRANDSSON LEIKARI
Afstörum og oktorum í Bombay
1976 Bombay á Indlandi.
Ég sat ásamt áströlskum heims-
hornaflakkara í indverska sumr-
inu og sleikti sólina og rykið, þeg-
ar slánalegur Dravídadrengur
varpaði skyndilega skugga sínum
á okkur: „Hello, sirs. You want to
participate in the world’s famous
indian filmindustry and get occu-
pation as actors in very exciting
featurelength film?“
Ha!
„My name is Shiram.“
Já, því ekki það? Athyglisvert.
Dravídólinn bauð daglaun sem
dygðu til framfærslu í nokkrar
vikur á Indlandi - lot of money in
the movie business. Við slógum
til og gerðumst actors.
Búningageymslan var nokkrir
hektarar að stærð og hátt til lofts.
Mýgrútur Indverja þvældist þar
hver um annan þveran með
miklu pati og látum. Litskrúðug
klæði héngu í rám í ótal röðum
frá gólfi upp í rjáfur og gamlar
konur fiskuðu flíkur niður til sín
með löngum stöngum.
Við biðum átekta. Loks kom
ein með stöng.
„Two bobbies,“ sagði Shiram.
Og fyrr en varði vorum við
komnir í breska lögreglubúninga
úr hnausþykku ullarefni með allt
of stóra plasthjálma reyrða undir
kverkarnar. Og Shiram fór með
okkur upp í þak kvikmyndavers-
ins.
„You wait here!“
Hann hvarf en kom að vörmu
spori með tebrúsa og nokkrar
jónur. „You drink this, and
smoke this,“ sagði hann og bætti
við með áhersluþunga: „And be
ready.“ Svo var hann horfmn.
Við gerðum eins og fyrir okkur
var lagt og hímdum þarna á þak-
inu í óbærilegum hitanum en
þorðum ekki fyrir okkar litla líf
að fækka fötum. Be ready.
Dagurinn leið, veitingarnar
þraut og plasthjálmarnir byrjuðu
að bráðna. Indian summer. Be
ready. Og sólin settist. Við vorum
löngu búnir að gleyma hvað við
vorum að gera I þessum bobbía-
búningum uppi á húsþaki í
Bombay, þegar Shiram birtist
með fangið fullt af seðlum,
greiddi okkur umsamin laun og
sagði: „Sorry, við reynum aftur á
morgun.“
Næsta dag fór allt á sama veg.
Sólin aðeins heitari. En á þriðja
degi leiddi Shiram okkur inn í
helgidóminn. Indverjar búa til
margar bíómyndir í einu. Leik-
stjórar, leikarar og tökulið þeytast
milli leikmynda sem standa hlið
við hlið eins og básarnir í Ikea í
Kringlunni. Við vorum leiddir
inn í einn básinn, þar sem búið
var að mála skærbleika húsaröð á
maskinupappír, - hver múrsteinn
dreginn skýrum dráttum og af
mikilli kostgæfni, en fjarvíddir
víðs fjarri. Maður með tréfót kom
með nokkrar plastplöntur í hjól-
börum og stillti þeim framan við
málverkið, brosti svo stoltur:
„This is London.“ Síðan hreytti
hann nokkrum dagblöðum á
gólfið og bar eld að. Dró inn á
sviðið afgamla Nilfisk-ryksugu
sem blés í stað þess að sjúga og
beindi stútnum að bálinu: „This
is London fog.“
Vélarvana Land Rover jeppa
var allt í einu ýtt inn í leikmynd-
ina af æstum múg, og allsherjar
ringulreið braust út þarna í
Lundúnarþokunni. Þá æpti ein-
hver: „The stars are coming!“ Og
allt datt í dúnalogn. Menn drógu
sig auðmjúkir í hlé. Spenna í lofti
og löng bið.
Loks birtist fylking manna í
austri og mannhafið sópaðist frá
eins og Rauða hafið forðum.
Hópurinn nam staðar í London,
þar sem við stóðum utangátta og
álappalegir í bobbíabúningunum.
Þessi fylking var skjaldborg um
aðalstarið sem nú sté fram,
klæddur skósíð-
um loðfeldi, lítill
og feitur með
blásvart hár og
velsmurt yfir-
skegg, ekki
ósvipaður Hauki
Morthens í and-
liti. Fjöldi þjóna
hjálpaði honum
úr pelsinum, lag-
aði brotin í bux-
unum, burstuðu
yfir skóna, og
dustuðu flösu af
öxlunum. Svo
hurfu allir á
braut og hann
stóð þarna einn í
öllu sínu veldi í
hvítum jakkaföt-
um og skær-
bleikri skyrtu í
stíl við húsaröð-
ina á maskínu-
pappírnum, með
gullkeðju um
hálsinn og hring
á hverjum fingri.
Hitt starið
kom úr vestur-
átt. Rauðbirkinn
renglulegur Breti
með íjólubláar
varir og stálgrá
augu, íklæddur
pólópeysu og
pokabuxum.
Hans eina fylgd-
arlið voru tvær
dömur. Þeir
nikkuðu hvor til annars, en
ræddust ekki frekar við. Sá ind-
verski hafði slegið um sig galdra-
hring og stóð þar í upphöfnum
trans. Bretinn var órólegur og leit
oft á klukkuna. Klóraði sér í ból-
unum. Það var verið að bíða eftir
leikstjóranum sem var að vinna
að annarri mynd í öðrum bás.
Tíminn leið, og þetta var að
verða vandræðalegt þegar Bret-
inn braut odd af oflæti sínu, gerð-
ist alþjóðlegur og gaf sig á tal við
okkur. Undrunarkliður fór um
allt stúdíóið. Hann sagðist vera
fæddur og uppalinn á Indlandi og
því altalandi á hindi: „Hindi is
the key. Ef þú ert hvítur og talar
hindi geturðu orðið star. Það
vantar alltaf hvítar stjörnur til að
leika skúrka. Hvít stör fá enn þá
hærri laun en innfædd. Ég á fimm
hús og sex bíla. Þú þarft bara að
geta leikið á hindi, - og svo sakar
ekki að vera handsome,“ sagði
þessi bleiki maður og brosti svo
skein í skakkan tanngarðinn.
Svo kom leikstjórinn. Stuttur
helgileikur var fluttur þegar stör-
in tvö heilsuðu honum, og svo
var atriðið skotið. Bretinn settist
inn í bílinn, maðurinn með tré-
fótinn fyllti allt af Lundúnaþoku,
og við bobbíarnir hlupum að
bílnum og æptum: „Open the do-
or. This is the police!“ Við opn-
uðum sjálfir dyrnar og drógum
manninn út. Á meðan hafði ind-
verska starið skýlt sér bak við eina
plastplöntuna
og hellt ein-
hverri ólyfjan
upp í augun á
sér með þeim
afleiðingum að
rauðar æðar
sprungu fram í
hvítunni og tár-
in flóðu niður
kinnar hans.
Hann upphóf
nú mikla ræðu
yfir þeim breska
og þóttist vera
grátandi. Svo
slepptum við
Bretanum og
þeir féllust í
faðma. Cut. The
end.
Aldrei hef ég
séð þessa ágætu
bíómynd en oft
koma orð bleika
starsins upp í
hugann: „Éf þú
ert hvítur og tal-
ar hindi geturðu
orðið star.“ Og
nú naga ég mig í
handarbökin yf-
ir að hafa ekki
ílengst á Ind-
landi og lært
hindi því „hindi
is the key“.
Það voru
stóru mistökin í
lífi mínu og þau
láta mig ekki í
friði. Sérstaklega á nóttu sem
þessari þegar ég sit einn með
synjunarbréfið frá úthlutunar-
nefnd listamannalauna og cen-
súrinn á DV nýbúinn að úthrópa
mig sem pervert á prívatflippi. Æ,
mig auman. Ég gæti verið á leið-
inni í höllina mína á Rollsinum
eða Bensinum íklæddur skósíð-
um pels í 40 stiga hita og sól.
Rúnar skorar á
Eirík Stefánsson að segja
sögu í nœsta EINTAKI.
Ari Gísli
Bragason
skáld og þattagerðarmaður
áfengi,
kynlífOC
truarbrögð
hefst klukkan 20.00.
SJÓNVARP
RIKISSJONVARP 09.00 Morgunsjónvarp
barnanna 11.00 Hlé 11.40 Konan sem vildi
breyta heiminum Heimildarmynd um skóla Póru
Einarsdóttur fyr/r holdsveikar slútkur á Indlandi,
endursýning 12.30 Umskipti atvinnulífsins 1:6
endursýning. 13.00 Ljósbrot Þarlur þáttur þar
sem Dagsljósþættir vikunnar eru rifjaðir upp.
13.45 Síðdegisumræöan 15.00 Steini og
Olli Gög og Gokke ístríðinutS.55 Lifi frelsið
Dönsk Ijölskyldumynd um mann sem flýr af
elliheimili 16.50 Listaskáldin vondu 17.50
Táknmálsfréttir 18.00 Stundin okkar 18.30
SPK 18.55 Fréttaskeyti 19.00 Litli trúðurinn
19.25 Töfraskórnir 20.00 Fréttir og fþróttir
20.35 Veður 20.40 Draumalandið Þáttagubb
um Ijölskyldu sem vill vera kabbojar 21.30
Gestir og gjörningar ÍKántrfbæ 22.15 Skógarn-
ir okkar Er hægt að ganga lengra í minnimáttar-
kenndinni? Heiðmörk. 22.25 Kontrapunktur
Undanúrslit. 23.45 Dagskrárlok.
STÖÐ TVÖ 09.00 Barnaefni 12.00 Meira popp
og meira kók. 13.00 NBA köriuboltinn 13.55
Italski boltinn 15.50 Nissan-deildin 16.10
Munið 220 metrana
Keila 16.20 Gollskóli Samvinnuterða-Landsýn-
ar Gollkennarinn Arnar Már Úlalsson leiðbeinir
byrjendum og lengra komnum. 16.35 Imbakas-
sinn endurtekinn. Finnst einhverjum hann fynd-
inn? 17.00 Húsið á sléttunni Yndislegir þættir.
18.00 í sviðljósinu 18.45 Mörk dagsins í
itölsku knattspyrnunni Karlaþáttur sem bara er
hafður á þessum líma svo þeir geti þósl ekki
gela undirbúið kvöldmalinn. 19.19 19.19
20.00 Hercule Poirot Nýr myndaffokkur um
spæjarann víðfræga. 21.00 Sporðaköst 2 Þriðji
þáttur afsex um lax, tax, lax og altur lax. Rennt í
Víðidalsá. 21.35 Réttlætinu fullnægt Fyrri
hállleíkur aí spennumynd í Iveimur hlutum.
23.05 Kokkteill Tom Cruise blandar Iglas.
00.45 Dagskrárlok.
SÝN 17.00 Hafntirsk sjónvarpssyrpa II. Litið er
á Hafnar/jarðarbæ og bæjarbúa I fortíð, núlfð og
framlíð. 17.30 Verslun í 200 ár Dflað í Hafnar-
firði 18.00 Kúba - Að hrökkva eða slökkva Þátt-
urumKúbu.
M Y N P L I S T
Hulda Hákon opnar sýningu á Kjarvalsstöðum
á laugardaginn í öllum vestursalnum. Hulda
sýnir málverk og skúlptúra.
Ólafur Gíslason opnar einnig sýningu á Kjar-
valsstöðum á laugardaginn. Sýningin saman-
stendur af rauövínsglösum sem Ólafur er búinn
að drekka úr.
Inga Sólveig heldur Ijósmyndasýningu í
Stöðlakoti þar sem getur aö líta myndir úr
kirkiugörðum. Hún er með algera maníu fyrir
slíkum görðum. Sýningin stendur til 17. apríl.
Franska listakonan Dominique Ambroise
sýnir myndir unnar með oilulitastiltum í Gallerl
Umbru. Þar má sjá afstrakt landslag sem sýnt er
á mjög tilfinningaríkan hátt. Þetta er fyrsta
einkasýning Dominique á íslandi en hún helur
Björn Kristinn Sveinbjörnsson
sigurvegari herramódelkeppninnar.
Sigraði í hevra-
módelkeppni
Ætlar jafnvel að reyna fyrir sér í útlönd-
um einhvern tímann á næstunni.
„Jú, sigurinn kom á óvart, er það
ekki klassískt svar?“ segir Björn
Kristinn Sveinbjörnsson sem
vann fyrirsætukeppni herra sem
haldin var á Hótel Islandi í síðustu
viku. Þar kepptu til úrslita tíu ungir
og spengilegir karlmenn. En hvern-
ig skyldi það hafa borið til að Björn
var einn afþeim?
„Það var Jóna Lárusdóttir hjá
Módel 79 sem hringdi og spurði
hvort ég væri ekki til í að taka þátt í
keppninni. Mér leist ágætlega á það
og sló bara til.“
Keppendur voru kallaðir saman
mánuð fyrir keppni. Segir Björn að
undirbúningurinn hafi ekki verið
mjög stífur, menn hafi stundað lík-
amsrækt þegar tími gafst en ekki
hafi verið skipulagðir æfingatímar
eins og tíðkast til dæmis þegar
stúlkurnar undirbúa sig fyrir feg-
urðarsamkeppni Islands. Síðustu
dagarnir fyrir keppnina voru samt
nokkuð strembnir en þá var æfð
framkoma og sýningaratriði fyrir
sjálft úrslitakvöldið.
Að eigin sögn hafði Björn litla
sem enga reynslu af sýningar- og
fyrirsætustörfum áður en hann tók
þátt í keppninni, en þar sem hluti af
sigurlaununum er samningur við
Módel 79 bíða hans eflaust ýmis
verkefni þannig að þar verður ör-
ugglega fljótlega breyting á. Og svo
freista útlöndin alltaf. „Það eru ein-
hverjar auglýsingar framundan, en
þetta er nú svo nýtilkomið að það
er ekki búið að festa neitt og það er
eftir að skoða ýmislegt. Svo væri
auðvitað gaman að leggja land
undir fót og reyna fyrir sér erlendis
einhvern tímann í framtíðinni."
Hvernig skyldu vinir og kunn-
ingjar hafa tekið því þegar Björn
sagði þeim að hann ætlaði að taka
þátt í herramódelkeppninni?
„Þetta skiptist nokkuð jafnt,
helmingur af þeim sem maður um-
gengst var mjög jákvæður og fannst
þetta spennandi en frá hinum
helmingnum mátti maður þola
ýmsar glósur. Þær raddir þögnuðu
reyndar snögglega eftir að ég sigr-
aði. Þessar keppnir eru enn þá litn-
ar dálitlu hornauga þegar um karl-
menn er að ræða, ætli það þurfi
ekki nokkrar keppnir til að venja
fólk við þetta.“
Hversdags er Björn verslunar-
stjóri í Bónusversluninni á Seltjarn-
arnesi svo aðdáendur geta farið
þangað og barið hann augum en
látið sem tilgangurinn sé að kaupa
inn til heimilisins.
meðal annars sýnt I Kanada og Frakklandi.
Ásdís Sigurþórsdóttir sýnir akrýlmálverk á
pappir og tré I Sverrissalnum í Hafnarborg. Bak
við verk Ásdlsar liggja pælingar um krossinn á
löstu og páskum. Daninn Henrik Vagn Jens-
en sýnir líka I Halnarborg. Henrik er aðallega
sagður vera teiknari og formalisti.
Þrjár sýningar opna I Nýlistasalninu á laugar-
dag. Listahreylingin The Guerilla Girls Irá
New York sýnir veggspjöld. Þetta er hópur
kvenna sem ekki vill láta natn síns getið og
kemur fram I þröngum kjólum og með górillu-
grímur. Þær Svala Sigurleifsdóttir og Inga
Svaia Þórsdóttir sýna jafnframt eigin verk I
Nýló. Eitt verka Ingu Svölu er reyndar gert með
Kínverjanum Wu Shan Zhuan I efri salnum
eru svo verk úr eigu safnsins.
Dröfn Friðfinnsdóttir opnar sýningu IASÍ.
Þar sýnir hún stórar tréristur.
Margrét Sveinsdðttir opnar sýningu I Galleri
11 áSkólavörðustlg.
Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson sýnir
litljósritaða minnismiða á Mokka en miðana
rakst hann á I biblíu Stefaníu Georgsdóttur.
Þetta hlýtur að vera með frumlegri sýningunum
I bænum um þessar mundir.
Þðr Ludwig Stiefel sýnir fáein málverk á
Laugavegi 22. Þetta er önnur sýning Þórs á ár-
inu en hann sýndi vatnslitamyndir I andyri Nor-
ræna hússins I janúar. Myndirnar á 22 eru meö-
al annars af átakanlegum andlitum sem Þór het-
30
FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994