Eintak - 21.04.1994, Síða 11
fjöldi stofnfélaga það.“
Fulltrúar á flokksþingi eru ná-
lægt 280 talsins. Hver um sig hefur
að baki sér tuttugu manns í ein-
hverju þeirra félaga sem eiga aðild
að Alþýðuflokknum. Ekki er við því
að búast að Jafnaðarmannafélagið
eigi þar mörgum fulltrúum á að
skipa. Útilokað er að félagaijöldinn
margfaldist fyrir þingið og svo er á
það að líta að meirihluti félags-
manna í dag eru þegar í öðrum al-
þýðuflokksfélögum og teljast til
þeirra þegar fúlltrúar á flokksþingið
verða valdir. Því er erfitt að sjá að
stofnun þessa félags breyti ein-
hverju um valdahlutföllin á þing-
inu, Jóhönnu í vil.
Forsvarsmenn félagsins hafa hins
vegar fuUan hug á því að koma því
til áhrifa innan flokksins ef marka
má orð eins þeirra:
„Þetta félag gæti bjargað Jóni
sem formanni ef hann sér mögu-
leikana í stöðunni og ber gæfu til að
hlusta á flokksmennina og taka
undir með okkur. Þá gæti hann átt
sex til átta ár eftir sem formaður. Ég
hef trú á grasrótinni og að hug-
myndirnar eigi að leita upp en ekki
að koma ofan frá. Ef Jón Baldvin
tekur ekki mark á henni flosnar
hann upp.“
Sighvatur kannar
jarðveginn
Þrátt fyrir að svo virðist vera að
Jón njóti umtalsvert meiri stuðn-
ings innan flokksins en Jóhanna
verða þær raddir sífellt háværari að
hann einangrist æ meir.
„Jón er að einangrast með
nokkrum mönnum sem
vaxa eins og illgresi í
kringum hann þannig að
það kemst ekkert súrefni
að honum,“ sagði áhrifa-
maður í flokknum.
„Hann virðist ekki eiga
marga ráðholla ráðgjafa
enda eru viðhlæjendur
ekki alltaf vinir.“ Það er
mál manna að Jón halli
sér helst að Sighvati
Björgvinssyni, iðnaðar-
ráðherra, eftir að Jón
Sigurðsson hætti af-
skiptum af stjórnmálum.
Samband þeirra Össurar
Skarphéðinssonar er
einnig sagt gott. Að öðru
leyti safnast að honum
minni spámenn sem sum-
ir kalla varðhundana
hans.
Rannveig Gumunds-
dóttir var gagnrýnd af
sumum stuðningsmanna
Jóhönnu þegar hún gaf
kost á sér sem varafor-
maður eftir að Jóhanna
sagði af sér til að mót-
mæla því að Rannveig
fékk ekki ráðherrastól við
hrókeringarnar í fyrra.
„Það er sorglegt að horfa upp á
hana ganga í gegnum nákvæmlega
það sama og Jóhanna,“ sagði einn
þeirra. „Jón virðir hana ekki við-
lits.“
Stuðningsmaður Jóns sagði þetta
tóman þvætting og annar sagði Jó-
hönnu síst vera minni einfara en
Jón.
Fram hafa komið vangaveltur í
fjölmiðlum um að Sighvatur Björg-
vinsson væri hugsanlegur kandídat
í formannsembættið ef Jón Baldvin
kysi að víkja af vettvangi. Og nú
heyrast þær raddir að Jón myndi
frekar víkja af vettvangi og styðja
Sighvat ef hann teldi að hann sjálf-
ur myndi bíða lægri hlut fyrir Jó-
hönnu í formannsslag. Heimildir
innan flokksins herma að Sighvatur
sé farinn að undirbúa jarðveginn ef
þessi staða kæmi upp.
„Jón kýs allt fremur en að Jó-
hanna verði formaður," sagði
stuðningsmaður Jóhönnu. „Hann
myndi frekar tefla fram Sighvati
sem einhvers konar málamiðlun og
draga sig í hlé ef hann teldi að það
kæmi í veg fyrir að Jóhanna yrði
kjörin.“ Þessi kenning þykir þó afar
langsótt.
Yfirgnæfandi líkur eru á því að
flokksstjórn Alþýðuflokksins verði
við beiðni Jóns Baldvins um að
flokksþingið verði haldið í sumar
en ekki haust. Armarnir tveir í
flokknum, hægrikratarnir sem
flestir eru á bandi Jóns og þeir til
vinstri sem Jóhanna sækir sitt fýlgi
til, reyna á meðan að styrkja stöðu
sína og gera liðskönnun. Og allir
bíðá eftir Jóhönnu. ©
Atök í uppsiglingu á aðalfundi Islandsbanka
Pétur H. Btöndal í
baráttu wið Orra
Vjgfússon um
bankaráðssæti
að sinni
Vérð hefur hækkað
um 50 prósent
Hörpuskelsmarkaðurinn í
Frakklandi hefur rétt úr kútnum
eftir að hann hrundi fyrir ári síðan.
Um 90% af allri hörpuskel héðan,
eða um 1.000 tonn, fór á þennan
markað en hrunið kom í kjölfar
þess að Kínverjar settu mikið magn
af ódýrri hörpuskel á markaðinn
með þeim afleiðingum að verðið
hrapaði úr tæplega 60 frönkum
kílóið, fyrir meðalstærð af hörpu-
skel, niður í 30-35 franka. I dag er
verðið komið upp í tæplega 50
franka og hefur því hækkað um 50
prósént. Þótt Kínverjar haldi sínu
verði áfram eru gæði íslensku fram-
leiðslunnar það mikil að Frakkar
vilja frekar kaupa hann á þetta
hærra verði.
Jóhann Þorsteinsson hjá SH
segir að verðhrunið í fyrra hafi þýtt
að þeir voru um tíma aftur á upp-
hafspunkti á Frakklandsmarkaðin-
um, þ.e. verðið datt niður í hið
sama og það var á árunum 1988-89.
„Nú hefur þessi verðsveifla jafnast
út og Frakkar kaupa ekki kínversku
framleiðsluna á því verði sem hún
er nú. Þeir telja að verð á kínversku
hörpuskelinni verði að vera enn
lægra sökum þess hve gæði hennar
eru minni,“ segir Jóhann.
Er Frakklandsmarkaðurinn
hrundi, beindu íslensku framleið-
endurnir vöru sinni í auknum mæli
inn á Bandaríkjamarkað þar sem
verð var hagstæðara. Þar hefur það
rokkað á milli 3-4 dollara fyrir kíló-
ið en Jóhann segir að Kínverjar hafi
einnig dælt töluverðu magni inn á
þann markað á síðustu mánuðum
þannig að verð hafi lækkað. Hins
vegar er hið sama uppi á teningn-
um þar og í Frakklandi, Banda-
ríkjamenn vilja frekar kaúpa ís-
lensku hörpuskelina sökum þess
hve gæði hennar eru meiri og hún
því hagstæðari í vinnslu.
Hvað varðar nánustu framtíð
segir Jóhann að erfitt sé að spá fyrir
um þróunina á þessum tveimur
mörkuðum, Frakldandi og Banda-
ríkjunum. Veiðar hérlendis hefjast
ekki aftur fyrr en á seinni hluta árs-
ins og sem stendur séu engar birgð-
ir til í landinu, öll framleiðslan sé
seld og raunar hafi ekki allir kaup-
endur fengið það magn sem þeir
vildu héðan. ©
Ríkisendurskoðun mun ekki
birta skýrslu sína um söluna á
SR-mjöli fyrr en að loknum mál-
flutningi í einkamáli Haraldar
A. Haraldssonar fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Sigurður
Þórðarson, ríkisendurskoð-
andi, átti fund með fjárlaga-
nefnd Alþingis í hádeginu í gær-
dag og varð þetta niðurstaða
fundarins.
Eins og kunnugt er hefúr mál
þetta verið mjög til umræðu í
fjölmiðlum að undanförnu enda
hefur ríkisendurskoðandi staðið
fast á þeirri skoðun sinni að ekki
beri að birta skýrsluna strax
þrátt fýrir mikinn þrýsting frá
Alþingi. Þingmenn munu ekki
hafa kveikt á perunni með að
skýrslan væri tilbúin frá Ríkis-
endurskoðun fyrr en EINTAK
birti frétt þess efnis í síðasta
tölublaði. ©
ÍSLANDSBANKI
Búast má við átakafundi er hluthafar íslandsbanka koma saman á
aðalfundi í næstu viku.
Átök eru í uppsiglingu á aðal-
fundi íslandsbanka í næstu viku
þar sem Pétur H. Blöndal hefur
ákveðið að gefa kost á sér til setu í
bankaráði bankans. Pétur segir að
hann vilji að hluthafar hafi eitthvað
um kosningar í bankaráðið að segja
og ótækt sé að sjálfkjörið verði í
ráðið miðað við núverandi stöðu í
rekstri bankans. Hann mun berjast
við Orra Vigfússon um þetta sæti
en Orri var kosinn með stuðningi
ýmissa almennra hluthafa á síðasta
aðalfúndi. Samkvæmt heimildum
EINTAKS mun Bent Sch. Thor-
steinsson, einn stærsti hluthafinn
sem studdi Orra á síðasta aðal-
fundi, hafa hvatt til þess að þeir
tveir, Orri og Pétur, fýndu grund-
völl til samstarfs fyrir aðalfundinn.
Þannig að annar yrði aðalmaður en
hinn varamaður í bankaráðinu.
Hópur smærri hluthafa sem áður
studdu Orra, aðallega kaupmenn
úr Verslunarbankagreiranum,
munu styðja Pétur á fúndinum en
Magnús Finnsson framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtakanna er í
forsvari fýrir þann hóp. Aðrir
bankaráðsmenn óttast nú að sæti
þeirra séu í hættu og þannig hefúr
EINTAK heimildir fyrir því að
Sveinn Valfells hafi sent öðrum
stórum hluthöfum bréf þar sem
hann óskar eftir stuðningi þeirra til
áffamhaldandi stjórnarsetu.
Orri Vigfússon
hefur fundað reglulega með
stuðningsmönnum sínum.
Reglulegir fundir
Orri Vigfússon hefur haldið
reglulega fundi með stuðnings-
mannahópi sínum frá því að hann
tók sæti í bankaráði íslandsbanka.
Á síðasta fundi sem haldinn var nú
í vikunni greindi hann þessum
hópi frá framboði Péturs og mun
framboðið hafa komið öllum sem á
fundinum voru verulega á óvart.
Einn úr hópnum segir í samtali við
EINTAK að framboð Péturs hafi
komið þeim í opna skjöldu þar sem
stefna Péturs í málefnum bankans
sé nær sú sama og stefna Orra hefúr
verið, það er að fækka silkihúfúm í
stjórn bankans og gera rekstur hans
skilvirkari. „Menn áttuðu sig ekki
alveg á hvað til bragðs skyldi taka,
né hvaða stuðning Pétur hefði á
bak við sig í þetta framboð.“
Meðal þeirra sem mynda stuðn-
ingsmannahóp Orra eru Bent Sch.
Thorsteinsson, Gísli V. Einarsson
í Mata og Helgi Magnússon í
Hörpu, Ulfur Sigurmundsson
fýrrum framkvæmdastjóri Útflutn-
ingsráðs, Steinar J. Lúðvíksson
auk nokkurs fjölda manna af lands-
byggðinni sem kynnst hafa Orra í
gegnum vinnu hans í laxveiðimál-
um. Þá mun Víglundur Þor-
steinsson, BM Vallá, einnig hafa
setið á nokkrum fundum.
Meðal þeirra hugmynda sem til
umræðu komu á síðasta fundi
þessa hóps var að Orri myndi styðja
Pétur í bankaráðskosningu á næsta
ári ef hann á móti hlyti stuðning
Péturs í ár.
Orri efstur í
síðustu kosningum
Staða Orra Vigfússonar í síðustu
bankaráðskosningum var mjög
sterk og hlaut hann þá flest atkvæði
þeirra sem í kjöri voru eða 13,6 pró-
sent. Næstur honum kom Sveinn
Valfells með 11,17% atkvæða og í
þriðja sæti varð Magnús Geirsson
með 11,16% atkvæða. Bankaráðið er
að öðru leyti skipað þeim Guð-
mundi H. Garðarssyni, Einari
Sveinssyni, Kristjáni Ragnars-
syni og Erni Friðrikssyni. Mæting
á fundinn var mjög góð, fulltrúar
fýrir 90 prósenta hlutafjár mættu.
Ekki sjálfkjörið
Pétur H. Blöndal segir í samtali
við EINTAK að framboð sitt til
bankaráðsins sé aðallega til komið
svo ekki verði sjálfkjörið í ráðið.
„Ég vil að hluthafarnir hafi eitthvað
um kjör bankaráðsins að segja. Það
er alveg ótækt að sjálfkjörið verði í
ráðið miðað við þá stöðu sem
bankinn er í og rekstur hans á síð-
asta ári,“ segir Pétur. „Ég tel óeðli-
legt að bankinn sé rekinn með tapi
og sem hluthafi tel ég að bankinn
ætti að skila 500 milljóna króna
hagnaði á ári sem er um 10% arð-
semi af eiginfé. Að mínu mati er
það hið minnsta sem hægt er að
sætta sig við. Það er fyrir neðan all-
ar hellur að gengi hlutabréfa í
bankanum er fallið niður í 0,80.“ ©
SR-mjöl
skýrslan
ekki birt
Pétur Blöndal
býður sig fram í bankaráðið svo ekki verði sjálfkjörið í ráðið.
Hörpuskelsmarkaðurinn í Frakklandi réttir úr kútnum
FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
11