Eintak

Tölublað

Eintak - 21.04.1994, Blaðsíða 19

Eintak - 21.04.1994, Blaðsíða 19
PERSÓNULEIKINN greind, töffheit, framkoma, gredda konan er smátt og smátt að hafa manninn undir í rúminu. Þótt trúboðstellingin hafi verið mest notuð af fólki í sambandi og hinum einhleypu og af báðum kynjum þá mátti greina að þessi stelling missir sess sinn þegar í sam- bandið er komið. Á meðan 80 pró- sent einhleypra kvenna sögðu þetta algengustu stellinguna í sínu kynlífi sögðu aðeins þriðjungur kvenna í sambandi það sama. Og meðal þeirra rétt nær trúboðsstellingin vinningnum af því þegar konan er ofan á. Sama er að segja um karla í sambúð. Trúboðsstellingin var í fyrsta sæti en þar rétt á eftir kom konan ofan á. Um fimmtungur fólks í sam- bandi og einhleypra karla sögðu síðan að engin sérstök stelling væri ráðandi í sínu kynlífi. Einhleypu konurnar skáru sig dálítið úr hvað þetta varðar. Þær eru fastar í trú- boðinu. Einhleypír karlar hafa trú á rökræðum Með greininni fylgja gröf sem sýna afstöðu fólks til hinna og þess- ara þátta í kynlífi. Meðal annars til þess hvort rétt sé að spyrja viðkom- andi hvort sá vilji sofa hjá manni áður en maður reynir við hann og hvort réttlætanlegt sé að hella ein- hvern fullan til að fá þann til við sig. En auk þess voru þátttakendur spurðir hvort það væri í lagi að suða, ljúga, grátbiðja eða rökræða við fólk til að fá það til að sofa hjá sér. Meirihluti beggja kynja sögðu nei og meirihluti bæði einhleypra og þeirra sem eru í sambandi. En af þeim sem svöruðu einhverju af þessu játandi er nokkur greinar- munur á milli flokka. Skoðuin það: Það sem einkenndi karla í sam- bandi var að þeir voru helst á því að það væri í lagi að suða pínulítið og fáeinir þeirra sögðu að það væri í lagi að grátbiðja. Konur í sambandi töldu frekar að það væri í lagi að ljúga en einhleypar konur voru eig- inlega undantekningalaust á því að ekkert af þessu væri í lagi. Ein- hleypu karlarnir skáru sig hins veg- ar úr. Stór hluti þeirra hefur trölla- trú á rökræðum og telja í lagi að rökræða einhvern í rúmið til sín. Aðeins færri þeirra töldu í lagi að ljúga sig í rúmið til einhvers en þeir höíðu minni trú á að grátbiðja ein- hvern um greiðann og minni en karlar í sambúð. Fáir beita þvingunum Þrátt fyrir að fólk í samböndum grátbiðji hvort annað í rúminu og einhleypir karlmenn beiti enda- lausum rökræðum telja fáir sig hafa hreint og beint þvingað einhvern til samræðis. Engin kona og aðeins 12 prósent karlanna. Þær eiga að vera stórar ANDLIT Eyru BRJOSTIN Magi PERSONULEIKINN heimska, talsmáti, tala of mikið, óhefluð framkoma, leiðinlegheit, hroki Of litlar Ófríðleiki OLVUN STERK SVITAFYLA Beislitaðar dragtir ANDFYLA Of mikil förðun LJÓT BRJOST Anorexía OF FEIT PJATT Gyllt dinglum-dangl FATNAÐUR Mikið sukk í rúminu Hendur Einhverjum kann að þykja slá- andi sú drykkja og vímuefnanotk- un sem það fólk sem tók þáttt í könnuninni viðurkennir upp Rök Skaut á sig. Næstum allir höfðu gert það undir áhrifum áfengis. Og réttir tveir þriðju hlutar karla í sambúð, 61 prósent einhleypra karla, 46 prósent kvenna í sambúð og 33 prósent einhleypra kvenna sem svöruðu þessari spurningu, sögðust hafa sofið hjá undir áhrif- um einhverra ólöglegra vímu- gjafa. Og listinn yfir vímugjafana er langur: Cannabis, kókaín, alsæla, sveppir, sýra, rush, poppers, meskalín, heróín. Margir höfðu notað cannabis í rúminu en stór hluti af hinum efhunum komu fram í svörum tiltölulega fárra. En þrátt fyrir þessa miklu áfengis- og vímuefnanotkun var það algengast að fólk segði að þessi efni hefðu slæm áhrif á kyn- Íífið. Kostirnir við vímuefnin voru einkum þeir að kynlífið verður opnara, feimni minnkar og hugmyndaflugið brýtur af sér öll bönd. Nokkrir voru á því að áfengi og vímuefni ykju úthald. En eins og áður sagði var meiri- hlutinn á því að áhrif áfengis og vímugjafa væru slæm. Og þeir sem skýrðu það nánar nefndu sljóvgaðar tilfinningar, minnk- andi ábyrgðarkennd og líkamleg- an doða. Vondur vöxtur Rifnar sokkabuxur SUBBUSKAPUR Hár á fótleggjunum ÓGRINILEG KONA Að áliti 50 karla sem tóku þátt í könnuninni. Hvað konur gera vitlaust í rúminu Karlar sem tóku þátt í könnun eintaks voru spurðir hvað helst væri ábótavant hjá þeim sem þeir svæfu hjá. Nokkrir menn í sam- búð sögðu ekkert, trúir sínum konum. Hinir höfðu flestir undan einhverju að kvarta og þegar grannt er skoðað kvörtuðu næst- um allir undan því að fá það ekki nógu mikið, nógu oft og nógu fjöl- breytt hjá rúmfélaganum. Nokkrir kvörtuðu undan hreinu og kláru úthaldsleysi, aðrir kenndu leti um og einn nefndi sérstaklega að konumar í sínu lífi fengju fullnægingu of snemma. Aðrir voru uppteknari af birtingar- myndum þessa áhugaleysis og kvörtuðu undan fábreytilegum hugmyndum um kynlíf, skort á fjölbreyttum aðferðum og stell- ingum, hugmyndaleysi og jafnvel hreinu og kláru áhugaleysi. Enn aðrir töldu að undir niðri kynni að leynast villidýr sem ekki fengi að brjótast út vegna óframfærni, feimni eða tepruskapar. Einn til- tók sérstaklega að sér sámaði hversu tregar konur væru í allt sem kalla mætti afbrigðilegt kyn- líf. En algengasta lýsingin á göllum kvenna í rúminu voru að þær væru ekki nógu opnar (líkast til í óeiginlegri merkingu) og að yfir þeim hvíldi eitthvert bölvað áhuga- og hugmyndaleysi. Fyrir utan þetta var þó fátt nefnt. Einum leiddist til dæmis konur sem góluðu eitthvað í takt við atburðina í rúminu að því er virtist fremur af skyldurækni en innlifun. Annar nefndi rauð undir- föt, þriðji kyndeyfð á kvöldin en greddu á morgnana og sá fjórði ísúra lykt, svo Ijóst er að margt er mannanna bölið. Vanur helgarævintýramaður skrifaði að hann væri orðinn leiður á að vakna við að börn rekkju- nautarins sturtuðu yfir sig kornf- lexdiskum og mega allar góðar vættir miskunna sig yfir þann mann. © MJAÐMIR Hreinleiki Sápulykt RASS Rökuð skaut HREYFINGAR GOÐUR VÖXTUR Líkamsburður LANGIR, GRANNIR FÆTUR GIRNILEG KONA Að áliti 50 karla sem tóku þátt í könnuninni. allt frá því tvisvar í mánuði og upp í tvisvar á dag. Sumir skrifuðu aðeins „óteljandi". Karlar fróa sér ekki frekar heldur oftar Af töflum sem fylgja greininni má lesa hversu margir hafa prófað hitt og þetta í kynlífinu. Þegar spurt var um sjálfsfróun var hins vegar spurt aukalega hversu oft þeir fróuðu sér sem á annað borð gerðu það. Eins og sjá má á töflunni var akkúrat jafn stórt hlutfall karla og kvenna sem sögðust fróa sér eða 68 prósent þeirra sem svöruðu spurningunni. Mismunurinn á milli kynjanna felst í tvennu. Annars vegar iðka fleiri konur en karlar í sambandi sjálfsfróun og hins vegar fróa karlar sér oftar, það er þeir sem á annað borð gera það. Reiknað meðaltal segir að sá karl sem á annað borð fróar sér gerir það á fjögurra daga fresti en konan á rúmlega sex daga fresti að meðaltali. En í þessu, eins og svo mörgu öðru, segir meðaltalið ekki neitt. Svarendur sögðust ffóa sér Skrýtnustu staðirnir Þá hafa verið talin upp flest þau atriði sem komu fram í könnuninni og ekki má lesa af töflum, skýringa- myndum, súluritum, hliðargrein- urn, upptalningum eða myndtext- um sem fylgja greininni. Aðeins eitt er eftir. Spurning þar sem fólk var beðið að nefna skrýtnasta staðinn sem það hafði gert það á. Hér kem- ur sýnishorn af svörunum: Upp á eldhúsborði. Undir póst- kassa í fjölbýlishúsi. Á balli á Hótel íslandi. í Grímsey á heimsskauts- baug. Á ströndinni við Hótel Búðir. 1 Lystigarðinum við Versali. Niður í fiöru. Fyrir framan foss upp í sveit. I árabát. í gufubaði. Á salerni í samkvæmi. Á salerni á skemmti- stað. Á salerni á veitingastað. Fyrir framan kirkjudyr. Á bar. Á sand- strönd í útlöndum að degi til. Und- ir brúnni yfir Sogið við Þrastarskóg. 1 flugvél. í sundi. I Húsgagnaversl- un. I þvottahúsi í fjölbýlishúsi. Uppi á fjalli. í Bláa lóninu. 1 and- dyri Hótel Lindar. 1 lyftu. 1 almenn- ingsgarði. í neðanjarðarlest. © 20% 40% 60% 80% 100% játt í hópreið Fjölbreytni kvnl,,iÞrt9sía ! íkynlífi hjá fólki í samböndum og hinum einhleypu ■ Einhleypir 1 ið á. gægjum í sambandi > | © Villtustu kynlífs- draumarnir Eiga mök við vinkonu mína í mátunarklefa í versluninni 17 í Kringlunni. Karl í sambandi. Að hitta einhvern ókunnugan í göngutúr og fara með honum heim. Kona ísambúð. Eitthvað í áttina að samförum - hálfóljóst. Einhleypur karl. Upp á borði, bundin - fjötrar, svipur. Kona í sambúð. Að vera úti í skógi með ókunnugum manni sem veitir mér unað. Einhleyp kona. Ríða í klofstígvélum á sumarnóttu. Kona í sambúð. Vera með fjórum frægustu fyrirsætum landsins. Karl í sambandi. Hópkynlíf í afslöppuðu umhverfi. Kona i sambúð. • Samfarir og nautnalíf í vikufríi í glæsiíbúð með fallegri konu. Einhleypur karl. Að gera það með þremur dökkum stúlkum. Einhleypur karl. Að sofa hjá stelpu í ósköp venjulegum samförum. Einhleypur karl. Svart, heitt, sveitt, suðrænt, fjarlægt, forboðið og fullt af því. Einhleyp kona. Sviðsett nauðgun, helst þannig að margir ráðist á mig í einu. Kona í sambúð. Að vera með mörgum í einu. Einhleyp kona. • Fallegt og gott sex niður á strönd - parið á ströndinni. Kona i sambúð. Horfa á tvær konur elskast. Kona í sambúð. Að vera einn með þremur, fjórum konum. Einhleypur karl. Ég, Naomi Campell og Christina Turlington. Karl í sambúð. FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994 19

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.