Eintak - 21.04.1994, Qupperneq 24
og blátt hár og í
þannig litum bún-
ingum. Svo vorum
við með blátt hár
og í bláum bún-
ingum,“ segir
Bergsteinn
Björgúlfsson.
„Toppurinn á
ferlinum var þegar Jonee Jonee hélt á
neðaníarðarhljómsveitahátíð í Róm.
Aðstandendur hennar höfðu séð
Rokk í Reykjavík og báðu um okkur
eða Purrkinn sem komst ekki. Okk-
ur var ótrúlega vel tekið enda vorum
við dálítið öðruvísi. Við tókum upp
tvær plötur og aðra þeirra í bílskúr á
Ítalíu. Hún er mjög léleg enda tekin
upp illa. Ég hef rekist á hana á se-
cond hand mörkuðum í nokkrum
Evrópulöndum. Hún er nefnilega
mjög falleg; öll blá.
Jonee Jonee kom aftur saman fyr-
ir einu til tveimur árum síðan og
tókum við þá upp nokkur lög. Við
eigum ef til vill eftir að gefa þau út.
Sú tónlist sem við leikum núna er
rökrétt framhald af því sem við vor-
um að leika á sínum tíma. Það væri
fárániegt að staðna.“
Nafn; Þorvar Hafsteinsson söngur Aldur: 33
ára Atvinna: Kvikmyndatökumaður í Kaup-
mannahöfn Hjúskaparstaða: Fráskilinn og á
tvö börn Hljómsveitarferill: Hljómsveit Ellu
Magg, Jonee Jonee, Jisz Menntun:
Stúdentspróf frá Flensborg. BS frá School of
Audio Ftesearch í New York. Hvað varð um
hann? Vann á R íkissjón varpin u og Stöð 2 að
námi loknu. Stofnaði Myndbandagerð
Reykjavikur með Friðriki Þór Friðrikssyni,
Hallgrími Thorsteinssyni og Guðbergi Dav-
íðssyni. Flutti ásamt fyrirtækinu til Oslóar en
býr nú í Kaupmannahöfn þar sem hann vinn-
ur við sjónvarpsstöð og er jafnframt tökumað-
ur fyrir Árna Snævarr fréttaritara RÚV.
Nafn: Heimir Barðason bassi Aldur: 31 árs
Atvinna: Atvinnulaus Hjúskaparstaða:
Sambúð Hljómsveitarferill: Jonee Jonee
og Dá. Menntun: Hóf fiskeldisnám í Noregi
en hætti því og lærði hljóðupptöku í Þýska-
landi. Hvað varð um hann? Starfaði sem
hljóðupptökumaður hjá Sjónvarpinu og sem
leiðsögumaður fyrir laxveiðimenn á sumrin.
Heimir er atvinnulaus en nýtir tímann til að
möndla með nýja músik.
Nafn: Bergsteinn Björgúlfsson trommurAld-
ur: 31 árs Atvinna: Kvikmyndatökumaður á
Stöð 2 og tónlistarmaður. Hjúskaparstaða:
Giftur og á tvö börn Hljómsveitarferill:
Panik, Grenj, Jonee Jpnee, Sönghópurinn
Emil og Anna Sigga, Óþekkt ánægja, Allir
reiðir, Drengjakórinn, Góðkunningjar lögregl-
unnar, Fánar og Rask. Menntun: Multi track
hljóðupptökur Hvað varð um hann?Tveímur
dögum eftir Ítalíuferðina fór Bergsteinn til
New Yorí í eins árs hljóðupptökunám. Þegar
heim kom hóf hann störf hjá Stúdíó Mjöt og
Sýrlandi. Jafnframt fór hann í Söngskólann
og var í alls kyns kórum og kvartettum. Berg-
steinn hefur unnið á Stöð 2 frá stofnun henn-
ar en er nú í sjö mánaða pásu til að leika með
Rask.
Mogo Homo var eina hljómsveit-
in sem átti lag í Rolck í Reyjavík en
kom ekki fram í myndinni. „Ég veit
ekki af hverju upptakan var ekki
sýnd en lagið var spilað á meðan Egó
var að stilla upp á Lækjartorgi. Það
voru margir sem héldu að þetta væri
Bubbi sem væri að
spila okkar lag og
það var leiðinda-
misskilningur,"
segir Óskar Þóris-
son. „Við vorum
fyrsta hljómsveitin
til að spila tölvu-
popp á íslandi og
spiluðum í Hollywood og Óðali.
Músikin var kannski helst í líkingu
við O.M.D og Depeche Mode. Ferill
Mogo Homo varð ekki langur því ég
fór til Japans að elta stelpu og var þar
í hálft ár. Þegar ég kom til baka
reyndi ég að endurvekja grúppuna
en það varð aldrei nein mynd á því.
Þetta var svo mikið hark að ég gafst
upp á poppbransanum og fór að
vinna í Skífunni.“
Nafn: Óðinn Guðbrandsson bassi Hvar varð
um hann? Lítið hefur spurst til Óðins annað
en að hann vann í Kassagerð Reykjavíkur um
tíma.
Nafn: Óskar Þórisson hljómborð, söngur Ald-
ur: 34 ára Menntun: Tónlistarnám og bók-
menntafræði í HÍ Atvinna: Námsmaður Hjú-
skaparstétt: Giftur, eitt barn á leiðinni.
HljómsveitarferilkTaugadeildin, Fræbb-
blarnir, Mogo Homo, Professor X, Stórhljóm-
sveit FÍH. Hvað varð um hann? Óskar vann
hjá Skífunni í 10 ár og rekur nú Fornsölu
Fornleifs. Síðastliðið haust settist hann á
skólabekk og nemur bókmenntafræði við HÍ.
Hann spilar einnig á saxafón með stórhljóm-
sveit FÍH.
PURRKUR
PILLNIKK
„Á fyrstu æfingu Purrks Pillnikks í
Norður-kjallara í menntaskólanum
við Hamrahlíð sömdum við bunka
af lögum. Skyndilega kemur Þor-
gerður Ingólfsdóttir, stjórnandi
kórs skólans, askvaðandi og biður
okkur um að hætta þessum hávaða
því það væri verið að halda Paul
Sukovski-námskeið í húsinu.
„Vitið þið ekW hver hann er?“
spurði hún okkur. Við vissum það
alveg og héldum því áfram æfing-
unni og sömdum öll lögin á fyrstu
plötuna enda unnum við með Moz-
art-hraða,“ segir Bragi Ólafsson.
„Ásmundur Jónsson var útgef-
andinn okkar. Þegar rætt var um bis-
ness sagði hann oft með mikilli
hægð: „Hvernig er staðan?“ Þetta var
vinsæll frasi hjá honum. Einhverju
sinni ferðaðist Purrkurinn um Eng-
land með hljómsveitinni The Fall.
Eftir einhverja tónleikana fengum
við far með sendiferðabíl sem hún
hafði til afnota og komum dótinu
oldcar fyrir aftur í. Þar var meðal
annars nýfengið upplag af þriðju
plötunni okkar og hellingur af
barmmerkjum sem framleidd höfðu
verið í Bretlandi. Við vorum að aka
upp hæð þegar farangursrýmið opn-
ast og plöturnar og barmmerkin
fjúka út á veg. Þá reis Ási upp úr sæti
sínu og spurði: „Hvernig er stað-
an?“„
Nafn: Einar Örn Benediktsson söngur Aldur:
31 árs Atvinna: Húsfreyr og fyrirsæta Hjú-
skaparstaða: Sambúð og eitt barn Hljóm-
sveitarferill: Kjöt, skyr og slef, Purrkur
Pillnikk ,Jisz, Jssl, Kukl, P.P. jdjöfuls ég,
Ornamental, FÍUx of' Pink Indians; Þukl og
Sykurmolarnir Menntun: BA í fjöimiðlafræði.
1. gráða í hjáip í viðlögum. Hvað varð um
hann? Einar meikaði það með Sykurmolun-
um auk þess sem hann sinnir útgáfumálum
og hljómleikahaldi á vegum Smekkleysu.
Hann er blaðamaður eintaks í undirheimum
Reykjavíkur og teiknimyndafígúra f blaðinu.
Nafn: Ásgeir Bragason trommur Aldur: 35
ára Atvinna: Eróbikkkennari Hjúskapar-
staða: Sambúð, eitt barn Hljómsveitarferill;
Grínonions og Purrkur Pillnikk Menntun:
MA í dansi og próf í hundatamningu. Hvað
varð um hann: Ásgeir siíðraði kjuðana eftir
að Purrkur Pillnikk lagði upp laupana og fór
erlendis til náms í dansi. Hann starfar nú sem
kroppatemjari í eróbikkstúdíói Jónínu Bene-
diktsdóttur í Gautaborg.
Nafn: Friðrik Erlingsson gitar Aldur: 32 ára
Atvinna: Skrifari Hjúskaparstaða: Ógifturog
bamlaus Hljómsveitarferill: Bacchus, Stuð-
ventlar, Tunglskinstríóið Purrkur Pillnikk og
Sykurmolarnir. Menntun: Stúdent og nám í
auglýsingateiknun. Hvað varð um hann:
Friðrik er helst þekktur fyrir að hafa hlotið fs-
lensku barnabókaverðlaunin fyrir bókina
Benjamín dúfu og gert kvikmyndahandritið
fyrir Stuttan frakka. Hann hefur nýlokið við að
semja kvikmyndahandrit upp úr bókinni sem
Gísli Snær Erlingsson ætlar að gera kvik-
mynd eftir.
Nafn: Bragi Ólafsson bassi Aldur: 31 árs At-
vinna: Ljóðskáld Hjúskaparstaða: Giftur og
á þrjú börn HljómsveitarferilkSkólahljóm-
sveitin Bacchus, dansiballahljómsveitin Stuð-
ventlar (þar sem óperusöngvarinn Ólafur
Árni Bjarnason var söngvari), kassagítartr-
íóið Tunglskinstríóið, Purrkur Pillnikk, Ikarus
og Sykurmolarnir. Menntun: Verslunarpróf
frá VI, stúdent MH og spænskunám í Gran-
ada og HÍ. Hvað varð um hann? Bragi bað-
aði sig í frægðarsól Sykurmolanna á meðan
þeir voru og hétu. Hann sinnir ritstörfum og
hefur gefið út þrjár Ijóðabækur sem hafa feng-
ið góða dóma.
Q4U
Ellý söngkona í Q4U vakti athygli
fyrir líflega sviðsframkomu og
óvenjulegan Jdæðaburð á tónleikum.
„Q4U byrjaði sem kvennahljóm-
sveit,“ segir hún, „og fyrstu tónleik-
arnir voru í Menntaskólanum við
Hamrahlíð en við kunnum ekki
neitt að spila. Ég ætlaði að vera á
trommunum en svo vildi enginn
syngja svo það endaði með því að ég
tók það að mér. Við vorum klappað-
ar upp en þá voru allar hinar farnar
og ég stóð eftir ein á sviðinu. Þetta
var upphafið að Q4U en fljótlega
gengu Kommi, Steinþór og Gunn-
þór til liðs við mig. Linda, kærasta
Steinþórs, bættist síðan í hópinn því
hún var ekkert að gera. Við spiluð-
um 11 sinnum án þess að æfa nokk-
urn tíma og lögin urðu bara til á tón-
leikum. Okkur
fannst gaman að
uppákomunum
sem við lentum í
en ég mundi ekki
vilja gera það aft-
ur. Þetta var rosa-
legt sukk og það
leið yfir trommar-
ann á hljómleikunum á Borginni
sem sýndir voru í myndinni. Þetta
var alveg hræðilegt. Ég var með eitt-
hvað drasl í hárinu og hélt alltaf í
hausinn á mér því það var allt að
hrynja úr. Allir tónleikar sem við
héldum voru hálfgert klúður, sándið
var lélegt og þar fram eftir götunum.
Einu sinn fórum við og spiluðum á
ísafirði á einhverri hátíð en það
mættu bara þrír á ballið hjá okkur en
þeim hafði ég boðið. Við vorum lát-
in spila kl. 9 og fannst það svolítið
skrýtið því við áttum að vera aðal
hljómsveitin. Löggan handtók mig
eftir að við vorum búin að spila því
ég hafði verið að þvælast með ein-
hverjum strákum og við ætluðum að
heimsækja kunningja þeirra. Flann
var ekki heima og við fórum bara
inn og vorum kærð fyrir innbrot út
af þessu. Löggunni á Isafirði fannst
ég eitthvað skuggaleg og var búin að
fýlgjast með mér hvert fótmál. Síðan
er ég tekin föst og stungið í steininn.
Það var lán í óláni því flugvélin sent
við ætluðum með í bæinn hrapaði í
Esjunni. Helgina eftir komu lögg-
urnar sem tóku mig fasta til Reykja-
víkur, bönkuðu upp á hjá mér og
buðu mér í partý. Þetta var á mánu-
degi og ég var ekki til í að detta í það,
sérstaldega ekki með löggum. Þeir
voru með fullt af smygluðu búsi en
enduðu síðan í fangelsi sjálfir.“
Nafn: Berglind G.Garðarsdóttir söngur Ald-
ur: 33 ára Menntun: Búningahönnuður At-
vinna: Búningahönnuður í New Orleans Hjú-
skaparstétt: Fráskilin Hljómsveitarferill:
Q4U Hvað varð um hana? Linda var aðstoð-
arbúningarhönnuður við kvikmyndir og leikrit
hérlendis en lærði búningahönnun í Los
Angeles. Hún reynir nú fyrir sér í faginu í New
Orleans.
Nafn: Gunnþór Sigurðsson bassi Aldur: 33
ára Menntun: Sjálfmenntaður Atvinna: At-
vinnulaus Hjúskaparstétt: Fráskilinn, eitt
barn Hljómsveitarferill: Q4U, Alls konar
nafnlausar hljómsveitir, Vin-K, ekki starfandi í
hljómsveit. Hvað varð um hann? Gunnþór
hefur starfað við hitt og þetta, mest hjá sjón-
varpinu sem lausráðinn dagskrárgerðarmað-
ur. í dag er hann atvinnulaus og er að jafna
sig af bakmeiðslum.
Nafn: Steinþór Stefánsson gitar Aldur: Lát-
inn Hjúskaparstétt: Fráskilinn, lét eftir sig
einn son. Hljómsveitarferill: Fræbbblarnir,
Q4U, Vá, Kvöl nágrannans. Hvað varð um
hann? Steinþór varð úti fyrir nokkrum árum
eftir að hafa verið að skemmta sér.
Nafn: Elínborg „Ellý“ Halldórsdóttir, söngur
Aldur: 32 ára Menntun: Grunnskólapróf At-
vinna: Starfstúlka á skóladagheimili Hjú-
skaparstétt: Trúlofuð, tvö börn Hijómsveit-
arferill: Q4U, Swinging Zombies, Ósómi,
T42, Handan grafar, Sex púkar, Þetta er bara
kraftaverk, Purpurarauðir demantar, ekki
starfandi í hljómsveit. Hvað varð um hana?
Ellý hefur komið víða við í atvinnulifinu og var
meðal annars fatafella um tíma. Hún eignað-
ist son 7. apríl síðastliðinn og sinnir móður-
hlutverkinu um þessar mundir.
Nafn: Kormákur Geirharðsson trommur Ald-
ur: 30 ára Menntun: Einn bekkur í mennta-
skóla Atvinna: Trommari Hjúskaparstétt:
Ógiftur Hljómsveitarferill: Taugadeildin,
Q4U, Mórall, Oxmá, Tónabræður, Langi Seli
og skuggarnir, Júpíters, Risaeðlan, Djass-
hljómsveit Konráðs B, Páskar frá Akureyri,
spilar í dag með KK bandi. Hvað varð um
hann: Kommi hefur haldið tryggð við tromm-
urnar og situr enn við settið.
SJÁLFSFRÓUN
„Það var mikið sukk í kringum
Sjálfsfróun og maður man ekki mik-
ið eftir þessum tíma, annað en að
hann var mjög skemmtilegur,“ segir
Jónbjörn Val- Lc&SB
geirsson, trym- -
bill sveitarinnar.
„Lífið var bara J%Up9VjjÆ:
leikur og maður /|
Inigsaði ekkert um ,ÆB
tramtiðina." Æ
Hann segir að ■
þegar farið var að
sýna Rokk í Reykjavík hafi hann og
félagar sínir í hljómsveitinni verið
hættir að sniffa lím eins og þeir urðu
hvað frægastir fyrir en verið komnir
í önnur efni og vinur hans sem var
mikið í kringum hljómsveitina hafi
látið lífið af of stórum skammti í
Amsterdam .“Þetta voru 3-4 ár sem
við vorum að spila og einkunnar-
orðin voru sex and drugs and
rock’n’roll. Það var haldið áfram
þangað til menn hreinlega gáfust
upp hver á öðrum. Við spiluðum
opinberlega svona tvisvar í viku en
þetta var allt saman verulega ruglað
og rennur mikið saman í eitt. Maður
nennir ekki að spá mikið i þennan
tíma og mér fmnst myndin ferlega
leiðinleg. Við tókum okkur ekki al-
varlega sem hljómsveit frekar en
nokkrir aðrir og þetta var allt leikur.
Það er töluvert síðan maður hætti
þessu sukki en við bjuggum á
Hlemmi og vorum þar öllum stund-
um. Maður sér ekki eftir neinu í
þessu sambandi þótt þetta hafi ör-
ugglega ekki haft góð áhrif á hausinn
á mér. Þegar ég lít til baka þá fmnst
mér ég ekki hafa verið neinn alvöru
pönkari. Maður klæddi sig kannski
svoleiðis en hugsaði ekki eins og
pönkarar. Ég er miklu reiðari í dag
en ég var þá þótt nú sé töluvert um
liðið síðan ég hætti að sukka. Ætli
maður sé ekki aðallega reiður út í
sjálfan sig en maður uppsker eins og
maður sáir. Ég hef aldrei farið í með-
ferð en hætti alltaf öðru hvoru upp á
eigin spýtur. Mér fmnst ég ekki vera
fíkill í neitt nema sígarettur."
Nafn: Bjarni Þ. Þórðarson söngur, bassi Ald-
ur: 28 ára Menntun: Grunnskólapróf At-
vinna: Sjómaður Hjúskaparstétt: Sambúð,
eitt barn Hljómsveitarferill: Sjálfsfróun,
Garg og Geðveiki Hvað varð um hann?
Bjarni hefur tekið sér ýmislegt fyrir hendur og
starfaði meðai annars á vegum útideildarinn-
ar og skipulagði tónleika. Hann sækir nú sjó-
inn frá Eyrarbakka.
Nafn: Sigurður Ágústsson gítar Aldur: 30 ára
Menntun: Grunnskólapróf Atvinna: Verka-
maður Hjúskaparstétt: Eitt barn Hljómsveit-
arferill: Sjálfsfróun, Garg og geðveiki Hvað
varð um hann? Siggi pönk er hættur að spila
og hefur unnið ýmsa verkamannavinnu und-
anfarin ár. Hann starfar nú hjá Lopa hf.
Nafn: Jónbjöm Valgeirsson trommur Aldur:
28 ára Menntun: Grunnskólapróf Atvinna:
Húsaviðgerðir Hjúskaparstétt: Fráskilinn,
tvö börn Hljómsveitarferill: Sjálfsfróun,
Garg og geðveiki, Dýrið gengur laust, Kaos.
Hvað varð um hann? Jónbi er enn að
munda kjuðana og tók þátt í músiktilraunum
nýlega með hljómsveitinni Kaos. Hann hefur
haft atvinnu af margs konar verkamannastörf-
um og vinnur nú við húsaviðgerðir.
SPILAFIFL
„Þegar rokkbylgjan kom opnaðist
fyrir manni alveg nýr heimur því
hljómsveitir eins og Brimkló og
HLH flokkurinn voru allsráðandi í
tónlistarlífinu hér-
lendis,“ segir Hall-
dór Kristinsson.
„Ég var farinn að
sækja í þessa
músik og var for-
dæmdur í skólan-
um fýrir að hlusta
á Stranglers. Síðan
skellur þetta tímabil yfir og það kom
eins og himnasending fyrir mig. Þeg-
ar ég byrjaði í Spilafíflum var það al-
gjör kúvending því áður haíði þetta
verið svona unglinga- bílskúrsfíling-
ur. Daginn eftir að ég hóf störf með
hljómsveitinni spiluðum við á
tveimur tónleikum annars vegar fyr-
ir framan MR og síðan á Annað
hljóð í strokkinn í Laugardalshöll
um kvöldið. 1 Höllinni voru tvö svið
og margar hljómsveitir sem komu
fram en þessi mýgrútur hljómsveita
einkenndi þennan tíma. Maður ólst
upp á Borginni sem tónlistarmaður
en það var helsta miðstöð tónlistar-
flutningsins. Ég var byrjaður að nota
dóp og bransinn varð sem olía á eld-
inn á neysluna. Þetta gekk á sukki,
daginn út og daginn inn. Spilafífl
koksaði síðan á keyrslunni eftir
þriggja ára spilamennsku. Ég held að
það sé ekki spurning að dópið hafi
drepið þessa bylgju að lokum, því
þetta snérist svo mikið um lífsstíl.
Margir sem voru í hljómsveitunum
voru ekki í þeim tónlistarinnar
vegna og áttu ekkert erindi í músik.
Ég var að horfa á Rokk í Reykjavík
fyrir tveimur mánuðum og mikið af
þessu eldist mjög illa. Mér finnst
Þeysararnir standa upp úr en hljóm-
sveitir eins og Sjálfsfróun voru fyrst
og fremst unglingar í uppreisn. Mú-
siklega voru þeir alveg úti að skíta,
en það var allt fyrirgefið því allt var
leyfilegt og þótti bara kúl. Það var
líka það sem gerði þetta skemmti-
legt. Mér finnst ekki hafa komið
önnur eins bylgja aftur nema dauða-
rokkið sem dó í fæðingu.
Við liðum svolítið íyrir það að
Sævar og Örn sem voru í bandinu
höfðu áður verið í Sirkus og Fimm
sem voru kallaðar skallapopps-
hljómsveitir og því áttu þeir alltaf
erfitt uppdráttar. Þeir tveir voru ekki
teknir gjaldgengir pönkarar eins og
við Birgir sem vorum 17 ára. Við
vorum líka miklu betri spilarar en
margir aðrir á þessum tíma og það
þótti ekkert fínt.“
Natn: Sævar Sverrisson söngur Aldur: 36
ára Menntun: Grunnskólamenntaður, eitt ár í
matreiðslu Atvinna: Sölufulltrúi Hjúskapar-
stétt: Sambúð, tvö börn Hljómsveitarferill:
Lena, Circus, Reykjavík, Amon Ra, Fimm,
Spilafífl, Óþekkt ánægja, Rabbabandið,
Galíleó. Hvað varð um hann? Sævar hefur
starfað við sölumennsku i 10 ár en flutti um
skeið til Ólafsfjarðar. Hann er nú sölufulltrúi
fyrir efnagerðina Kötlu og hefur sungið und-
anfarin fimm ár með Galíleó.
Nafn: Örn Hjálmarsson gitar Aldur: 35 ára
Menntun: Sjálfmenntaður Atvinna: Verslun-
arstjóri Hjúskaparstétt: Giftur, tvö börn
Hljómsveitarferill: Drift, Circus, Fimm,
Spilafífl, Galíleó. Hvað varð um hann? Örn
tók sér góða pásu frá rokkinu eftir að hann
var í Spilafíflum. Hann fór í veiðiskap á fullu
og hefur verið verslunarstjóri i Veiðivon und-
anfarin ár. Hann spilar núna með Galíleó.
Nafn: Birgir Mogensen bassi Aldur: 31 árs
Menntun: Grunnskólapróf, tónmenntun At-
vinna: Hljóðmaður Hjúskaparstétt: Sam-
búð, tvö börn Hljómsveitarferill: Hattimas,
Spilafífl, Með nöktum, Kukl, Killing Joke,
starfandi með nafnlausri hljómsveit. Hvað
varð um hann? Birgir komst í hljómsveitina
Killing Joke sem var nokkuð vinsæl í Englandi
um tíma. Hann fór síðan í skóla og tók nokkra
kúrsa i rafeindavirkjun. Hann starfaði síðar í
Flísabúðinni áður en hann fór að vinna hjá
Hljóðrita þar sem hann er núna.
Nafn: Halldór Kristinsson frommurAldur: 30
ára Menntun: Grunnskólapróf Atvinna:
Áfengis- og fíkniefnaráðgjafi á unglingaheim-
ilinu Tindum, hljómlistarmaður Hjúskapar-
stétt: Sambúð Hljómsveitarferill: Fiaskó,
Óli P. og svörtu sveskjurnar, Járnkarlarnir,
Spilafífl, Með nöktum, MX-21, Júpíters,
Tempotarios. Hvað varð um hann? Halldór
hefur gert allt milli himins og jarðar, unnið við
fiskvinnslu málningarvinnu og verslunarstörf.
Hann hefur verið án vímuefna í sex ár og
starfar sem ráðgjafi fyrir unglinga sem eiga
við áfengis- og fíkniefnavandamál að stríða.
Hann er í nýrri hljómsveit sem heitir Tempot-
aríos en hún var stofnuð upp úr gleðisveitinni
Júpiters.
START
Start var starfandi í þrjú ár en lag-
ið sem þeir tóku í myndinni var tek-
ið upp „live“ á Broadway. „Það var
ótal margt fríkað sem við lentum í
en fæst af því á heima á prenti," segir
Pétur Kristjánsson. „Við Eiríkur
Hauksson vorum
hvað aðsópsmestir
í leikaraskapnum
og hlupum um
allsberir upp um
allar heiðar á
ferðalögum
hljómsveitarinnar
um landið. Mér
fannst það mjög gott mál þegar pön-
kið og nýbylgjan kom því diskóið
var eiginiega búið að ganga af brans-
anum dauðum. Þá kom líka upp
þungt og gott rokk sem ég hef alltaf
fílað mjög vel. Maður tók þann geir-
ann og Start var hljómsveit í þeim
dúr. Eg minnist þess ekki að hafa
lent illa í skallapopparakrítikinni
heldur voru það meira kóperingar-
bönd eins og Brimkló og HLH og
þær hljómsveitir. Start gaf út eina
plötu og lagið Sekur eftir Eirík
Hauksson var valið lag ársins 1982.“
Nafn: Eiríkur Hauksson gítar, söngur Aldur:
34 ára Menntun: Kennari Atvinna: Tónlist og
kennsla Hjúskaparstétt: Giftur, tvö börn
Hljómsveitarferill: Pikkaló, Octopus, Amon
Ra, Basil fursti, Start, Drýsill, með hljómsveit
Gunna Þórðar á Broadway, lcy, Faraldur,
Model, Saga Class, Dúndur, Arts, Just for
Fun og Wanted. Hvað varð um hann? Eirík-
ur er einn mesti alvöru járnari sem þjóðin hef-
ur alið. Hann hefur að mestu haft atvinnu af
söngnum en stundað kennslu að hluta. Árið
1988 flutti hann til Noregs þar sem hann hef-
ur gert það gott í bransanum og unir hag sín-
um vel. Hann er búsettur í Gressvik sem áður
hét Grettisvik eftir Gretti Ásmundsyni og er
stutt frá Osló.
Nafn: Pétur W. Kristjánsson söngur Aldur:
42 ára Menntun: Gagnfræðingur Atvinna:
Framkvæmdastjóri Hjúskaparstétt: Kvæntur
og á þrjú börn HljómsveitarferilhPops,
Lords, Náttúra, Svanfríður, Pelican, Póker,
Píkasso, Start, Dúndur, ekki starfandi i hljóm-
sveit. Hvað varð um hann? Pétur hefur hald-
ið tryggð við poppið þótt hann sé hættur að
syngja opinberlega í bili. Síðastliðin 15 ár hef-
ur hann starfað við hljómplötuútgáfu og
hljómplötuverslanir. Hann rekur nú fyrirtækið
Paradís sem er heildsala með verslun í Borg-
arkringlunni.
Nafn: Nikulás Róbertsson hijómborð Aldur:
40 ára Menntun: Tónlistarmenntun Atvinna:
Grafiskur hönnuður Hjúskaparstétt: Giftur
Hljómsveitarferill: Dögg, Dínamít, Paradís,
Start, Kikk, ekki starfandi í hljómsveit. Hvað
varð um hann? Þegar Rokk í Reykjavík var
gerð var farið að líða á feril Nikulásar í brans-
anum. Hann lék um tíma með árshátíðar-
bandi og fór síðan að vinna við smíðar. í dag
rekur hann hárgreiðslustofu með konu sinni
auk þess sem hann hannar bæklinga og aug-
lýsingar fyrir ýmis fyrirtæki.
Nafn: Jón Ólafsson bassi Aldur: 42 ára
Menntun: Gagnfræðingur Atvinna: Tónlist-
armaður Hjúskaparstétt: Einhleypur, þrjú
börn Hljómsveitarferill: Pelican, Póker,
Start, Drýsill, Hljómsveit Rúnars Þórs, Hljóm-
sveit Sveins Guðjónssonar, Vinir Dóra o.fl.
Hvað varð um hann? Jón hefur verið at-
kvæðamikill í tónlistinni og spilar mikið sem
session-leikari með ýmsum hljómsveitum og
á hljómplötum.
Nafn: Davíð Karlsson trommur Menntun:
Húsasmiður Hvað varð um hann? Að því er
eintak kemst næst er Davíð starfandi sem
húsasmiður (Danmörku.
Nafn: Kristján Edelstein gitar Aldur: 31 árs
Menntun: tónlistarmaður og pizzubakari At-
vinna: Tónlistarkennari Hjúskaparstétt:
Sambúð Hljómsveitarferill: Skriðjöklar,
24
FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994