Eintak

Tölublað

Eintak - 21.04.1994, Blaðsíða 32

Eintak - 21.04.1994, Blaðsíða 32
Sýning á verkum Þóreyjar Magnúsdóttur veröur opnuð á laugardag í Gallerí Sævars Karls að Bankastræti 9. Æja, eins og hún er kölluð, sýnir skúlptúra unna í leir, járn, stein, rekaviö og gips sem málaöir eru með jarpiktmentlitum. I grund och botten er farandsýning í kjaliara Norræna hússins þar sem sýndar eru teikningar eftir börn á Norðurlöndum. Sýningin opnar á sunnudag. Þrjár sýningar standa yfir (Nýlistasafninu. Listahreyfingin The Guerilla Girls frá New Vork sýnir veggspjöld. Þetta er hópur lista- kvenna sem kemur gjarnan fram í þröngum kjólum og með górillugrímur. Þær Svala Sig- urleifsdóttir og Inga Svala Þórsdóttir sýna jalnframt eigin verk í Nýló. Eitt verka Ingu Svölu er reyndar gert með Kínverjanum Wu Shan Zhuan i efri salnum eru svo verk úr eigu satnsins. Síöasta sýningarhelgi Drafnar Friöfinnsdótt- ur í Listasafni ASÍ þar sem hún sýnir stórar tré- ristur. Margrét Sveinsdóttir sýnir olíumálverk ( Gallerí 11 á Skólavörðustíg. Þetta er fyrsta einkasýning hennar hér í bæ. Hulda Hákon sýnir málverk og skúlptúra á Kjarvalsstöðum. Það má alveg rekast í bfáu, blómin á gólfinu því að þau eru úr steypu. Ól- afur Gíslason heldur sömuleiðis sýningu að Kjarvalsstöðum og er yfirskrift hennar Vernis- sage. Seölabankinn er hér með hvattur til að kaupa óþvegnu rauðvínsglösin hans Ólafs. Helst einn á hvern startsmann. Svo hanga verk Kjarvals sjálfs að sjálfsögðu uppi líka. Listasafn Háskóla íslands er með sýn- ingu á nýjum verkum í eigu safnsins á öllum hæðum í Odda. Jóhann Sigmarsson Veggfóörari sýnir myndir á Mokka. Verk Jóhanns hanga...tja...ekki víða en alla vega er eitt í Plús film. Anton Einarsson sýnir málverk á Veitinga- staðnum að Laugavegi 22. Nokkuð glúrinn bara. Lýsingar Barböru Árnason við Passíusálma Hallgríms Péturssonar hanga upp (Listasafni íslands. Býsna góðar hugmyndir tærrar listak- onu. Yfirlitssýningin á verkum Jóns Gunnars Árnasonar stendur líka yfir í Listasafninu. Guðbergur Bergsson kallar Jón Gunnar galdra- dreng og segir sýninguna einstæða. Sýningarn- ar í Listasafninu standa til 8. maí. Hugmynd-Höggmynd heitir sýning í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þar sem er úrval verka frá ólíkum tímabilum í list Sigurjóns. Safninu var nýlega gefið olíumálverk eftir Sigur- jón af bæjarhúsunum á Kolviðarhóli sem hann málaði á termingaraldri. Sýningin stendur alveg fram á vor. í Listhúsinu Ófeigi stendur ennþá yfir samsýningin Stefnumót. Listamennirnir sem þar sýna eru þeir Þorri Hringsson, Finninn Jouni Jappinen Helga Magnós- dóttir, Bandaríkjamaðurinn Robert Bell, Sig- urður Þórir og Hringur Jóhannesson Sýningu Óskar Vilhjálmsdóttur í Gerðubergi lýkur á sunnudaginn. B í Ó I N BIOBORGIN Óttalaus Fearless ★** Myndum elnisem fáir leikstjórar komast líls Irá, sjállan daudann. Weir lekst þó að búa til slerka mynd og sleppur smjo heimsborgir og heimsborgarar, draumar og dægurþras og allt verð- ur þetta svo manneskjulegt í með- förum Thors þó hann geti verið meinfyndinn á köflum. Þetta er bók sem á engan sinn líka hér á landi og enn og aftur hef- ur Thor auðgað íslenskar listir og listasögu með framlagi sínu. Ég er vonandi ekki eini maður- inn sem er kominn með upp í kok af suður-amerísku töfraraunsæi, bókmenntagrein sem ég kýs mikið frekar að lesa í þeirri íslensku frum- útgáfu sem Borges sótti í. Samt sem áður verður að segjast að Isabel Allende kann að skrifa, þó það vanti í mig Gee-Whizvið- brögðin sem hún virðist kalla fram um víða veröld. Og Thor Vil- hjálmsson kann að þýða. Pólstjarnan er einn af þessum vel skrifiiðu reyfurum sem hafa verið að dúkka upp á undanförnum ár- um og má flokka sem Alistair MacLeanDesmondBagleyHamm- ondlnnes með listrænan metnað. Sagan gerist um borð í sovésku verksmiðjuskipi sem er á veiðum undir stjórn Bandaríkjamanna í Beringshafi. Um borð er fýrrum rannsóknarlögregluþjónninn Ark- adí Renko (þess sama og gerði Gorkí-garðinn frægan), sem hefur fallið úr hæstu hæðum kommún- istaflokksins sakir „pólítísks ábyrgðarleysis“ ofan í það að flaka fisk í illa lyktandi skuggaveröld skipsins innan um glæpamenn, flokksbullur og dularfulla Banda- ríkjamenn. Hér eru eiturlyf, njósn- ir, kynlíf og morð og bókin er skrif- uð í þessum stíl sem blandar saman staðreyndum og skáldskap á svo fyrirhafnarlausan hátt að manni finnst maður vera orðinn sérfræð- ingur í alþjóðastjórnmálum og sov- ésku þjóðskipulagi meðan á lestrin- um stendur. Fléttan er samt frekar ódýr á köflum og ég stóð mig að því að bera höfundinn saman við Mi- chael Dibdin sem hefúr með bók- um sínum um ítölsku rannsóknar- lögguna Aurelio Zen (sem féll einn- ig í ónáð hjá kommunum, yfirboð- EFTIR ÞORVALD ÞORSTEINSSON urum sínum, en endaði við síma- laust skrifborð í stað færibands) gert mig að átoríteti í ítölskum inn- anríkismálum og það var ekki allt of hagstæður samanburður fyrir Mr. Smith. En sem sagt í það heila fínn reyfari með öðruvísi umhverfi og í ágætri þýðingu Matthíasar Magnússonar. Popp ÓTTARR PROPPÉ Texas krakkbar Pantera Far Beyond Driven ★★★★ ZZTop Antenna ★★★★ Bandarískir poppsalar hljóta að vera langt komnir með neglurnar og hársvörðinn þessa dagana. Ofan á það að þurfa að afgreiða bílfarma af meistaraverkum skítuga pönkar- ans sem skaut af sér hausinn þurfa þeir að horfa upp á hljómsveit eins og Pantera fara beint á topp vin- sældalistans. Og það þó það standi augljóslega borvél upp úr höfðinu sem prýðir umslagið. Athyglisverð- ur hausverkur fyrir bransann vestra það! Pantera gæti verið prótótýpan að grimmasta þungarokksbandi í heimi sem þá guðhræddu dreymir illa um. Þetta eru síðhærðir subbu- strákar (og feitir, minnstu ekki á það) frá Texas sem spila eyrna- skemmandi graðhestarokk af drasl- gerð. Fyrri plötur þeirra, Cowboys from Hell og Vnlgar Display of Po- wer (kúrekar helvítis & vaidníðsla af verstu sort) gáfu góð fyrirheit, en nú er Pantera endanlega orðin að hörðustu þungarokkssveit vestan Mississippi. Far Beyond Driven er platan sem MctaUica dreymir um að gefa út. Hér ræður thrashið ferð- inni, bláeygð keyrslan í algleymingi mínus þreytandi tæknisýningin. Pantera eru alveg til í að djamma aðeins til að ná upp betra stuði. Hér skal óhikað mælt með þessari af- urð, ef þú kaupir hana er hætt við að fasteignaverð lækki í hverfmu. Húseigendur í rokkaðri kantin- um þurfa þó ekki að leita út fyrir Texas til að vernda fjárfestinguna því ZZ TOP tríóið gagnlega var að gefa út nýja plötu. Það eru þessir vinalegu afar sem komu Texas á rokkkortið, hversu hratt sem Pant- era fá gargað um annað. Þegar ZZ TOP lenti upp á kant við rokkskrif- ræðið skelltu þeir Gibbons, Hill og Beard sér bara út í óbyggðir að veiða krókódíla. Komu ári síðar fúlskeggjaðir aftur til byggða og tóku völdin í bandaríska rokk- heiminum. Á Antenna leita þeir aft- ur til gömlu búlludaganna og dusta rykið af einfalda þungabúgíinu sem þeir eiga einkarétt á. Það er ekki aukahljóðfæri á þessari plötu enda ekki þörf fýrir önnur en þau sem þremenningarnir fá sjálfir annað. ZZ TOP eru, ásamt upptökusjóran- um Bill Ham, konungar Suðurr- íkjarokksins. Að hlusta á sveitina í góðu stuði er eins og að spítta á ká- dílják um eyðimörkina. Gamla Suðurríkjafánann dregur fyrir sólu, maður sveiflar ósjálfrátt skottinu og spangólar til mánans. Þeir sem komast hjá því að dilla sér í takt við þessa tónlist hafa að voru viti unnið allt of lengi á loftpressu! © Sjónvarp SIGURJÓN KJARTANSSON Góðlegur hundur Dagsuós Ríkissjónvarpinu ★★★ Það verður að segjast að Dagsljós sem hóf göngu sína í haust hafi ver- ið langbesta uppfmning fráfarandi framkvæmdastjóra. Þessi rösklega fjörutíu og fimm mínútna langi jráttur var hugsaður í upphafí til að gegna svipuðu hlutverki í Sjón- varpinu og dægurmálaútvarpið á Rás 2 og rná finna margt í samlík- ingunni hvað varðar uppbyggingu þessara tveggja þátta, þó svo að um tvo ólíka miðla sé að ræða. Þættin- um er stjórnað af tveimur stelpum, tveimur strákum og einum ritstjóra sem öll sinna sínu hlutverki ágæt- lega, þó að mér finnist þau nú vera full meinlaus og sakleysisleg og þar af leiðandi ekkert sérstaklega skemmtileg. Fjalar getur þó átt góða spretti þegar hann fær gesti í sófann og rnaður hefur stundum séð hann fara illa með viðmælend- ur og þá eiga þeir það líka skilið (helvítis svínin!). Það er hins vegar annað hljóð í strokknum hjá rit- stjóranum því þegar hann er með sófann er hann off eins og góðlegur hundur sem bíður eftir því að gest- urinn klappi sér. Stelpurnar rninna hvor fyrir sig á Mary Poppins og/eða Dallasmömmuna Miss Elly FYRIR ÞRAUTSEIGA Veljið ykkur verðug verkefni. Berjist fyrir að tónleikahöllin verði nefnd Árna Johnsens- höllin þegar hún loks verður reist. Stingið upp á að þjóðfán- anum verði breytt í tilefni 50 ára afmælis lýöveldisins og hann gerður úr fslenskum lopa. Leggið til að þingmenn verði staðsettir hver í sínu kjördæmi og ræði sín á milli með hjálp nýjustu fjarskipta- tækni. Krefjist þess að pusluvagnarnir niður í bæ standi fyrir út- rýmingu dúfnanna sem eru ekkert ann- að en fijúg- andi rottur. næstum óskaddaður. fíosie Perez leikur Irábær- lega. Pelikanaskjalið The Pelican Brief •kkÞráll lyrir ágætt etni kemst þessi mynd aldrei á llug. Bókin er betri. í það minnsta lyrir þá sem hala þokkalegt ímyndunarall og eilítið skárra en Pak- ula. Hús andanna The House of the Spirits **** Frábær leikur. Myndin veröuraldrei leiðinleg þrátt lyrirþriggja tima setu. BÍÓHÖLLIN Hetjan hann pabbi My Father The Hero *★★ Huggulegasta gamanmynd með ágælum leik Depardieu. Pelikanaskjalið The Pelican Brief ** Þrátt lyrir einvala lið er þessi mynd háll andvana. Hvorki persón- urnar né sagan ná að litna við. Ágæt afþreying. Á dauðaslóð On Deadly Ground * Steven Seagal lær málið og heldur barnalegar einlægar ræður um umhverfis- vernd á milli þess sem hann drepur umhverfiss- óða. í næslu mynd ler hann á hvalaslóðir og kviðristir Halldór Ás- grímsson og Kristján Loltsson. Leikur hlæjandi láns The Joy Luck Club *★★ Indæl mynd um kínverskar konur. Beethoven 2 * Annar þáttur með lleirihund- um en iærri og þynnri bröndurum. Mrs. Doubtfire **** Gasalega fyndin mynd. Rokna Túli ★** Það erkomið íslenskttal við þessa mynd sem helur lengisl nokkuð lengi á vídeóleigunum. Börnin mæla með henni. HÁSKÓLABÍÓ Leitin að Bofaby Fischer Searching for Bob- by Fischer ** Vandvirknislega gerð myndum dreng sem á erlitt með að standa undir þeim miklu krölum sem geröar eru til hans. Eins konar ást The Thing Called Love ** Glöð mynd um ungt lólk ÍAmeríku, léttylir- bragð og lallegir leikarar. Litli Búdda Litle Buddha ** Þráttfyrir glæsilegan búning vanlar einhvern neista í þessa lilraun Bertoluccis til að búa til mikla ep- iska sögu. Blár Blue ** Kieslowski-myndirnar verða þynnri og þynnri eltir því sem þær verða lleiri og lleiri. Listi Schindlers Schindler’s List **** Verðskutduð Óskarsverðtaunamynd Spielbergs. Allir skila slnu besta og úr verður hetjarinnar mynd. Meira að segja Polanski braut odd af ollæti sínu og lór á amerlska mynd (en hann er nú reyndar gyðingur og missti mömmu sína íhellörinni). Beethoven 2 * Meira gelten hiátur. Líf mítt My Lile *★ Hugguleg tilraun til að búa tii mynd um venjulegt lólk. í nafni föðurins In the Narne ol the Falher * * * * Mögnuð mynd um réttarmorð I Eng- iandi. Umdeild lyrir tillærslur á smáum alriðum sögunnar en isköld og sönn engu að síður. LAUGARÁSBÍÓ Tombstone * Myndin er lengi Igang en svo loks þegar þeir byrja að skjóta þá verður hún eins og verið sé að sýna úr limm vestrum I einu. Leiftursýn Blink * Ágæt tæknivinna en engin hugsun. Dómsdagur Judgement Night * Heiðarlegir og velmeinandi Ameríkanar villast I Irumskógi eigin heimaborgar. Og hitla óþjóðalýð sem undir það síðasta óskar sér að hann helði ekki abbasl upp á þá. REGNBOGINN Hetjan Toto Toto Le Heros *** Velgerð stríðsárasaga Irá Belgíu. Lævís leikur Malice * Sérdeilis bjánaleg mynd. /Ellarað gabba áhorfandann með því aö byggja upp söguþráð en hendahonum svo skyndilega og taka upp nýjan. Áhorlandinn gabbastekki, heldur móögast. Píanó *★★ Óskarsverðlaunaður leikur Iað- al- og aukahlutverkum. Þykk og góð saga. Far vel, frilla mín Farwell My Concubine *** Glæsilegmynd. Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol- ate **★ Ástir undir mexíkóskum mána. STJÖRNUBÍÓ Fíladelfía Philadelphia **** Frábærlega leikin. Það hala allir gotl al að sjá þessa mynd og ekki kæmi á óvart þó hún væri notuð sem kennsluelni I alnæmisvörnum þar til annað betra býðst. Dreggjar dagsins Remains ol the Day **** Magnað verk. Morðgáta á Manhattan Manhattan Murder Mystery * * * Allen er lyndinn Iþessari mynd. Hún er ekki ein al hans bestu en sannar að það er skemmtilegra að tlmanum undir Allen-mynd en annars konar myndum. SÖGUBÍÓ Himinn og jörð Heaven and Earth ** Síðasti hlutinn aftrílógiu Olivers Stone um Vietnam. Hér reynir hann að segja mikta sögu en nær atdrei tökum á henni. Sister Act 2 * Nunnurnar hafa skipt úl al lyrir krakka á glapstigum. Söngurinn er enn poppað- urgospel. Sagan enn þunn og Whoopi enn með ot fáar línur þannig og reynir að segja eitlhvað með svipnum sem enginn skilur. En börnum finnst gaman al þessari mynd. Það helur eitt- hvað með nunnurnarað gera. Svipað og I myndasögu SÖB um árið; Prestarnir gera það líka. 32 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.