Eintak - 05.05.1994, Blaðsíða 16
-
Það er sorglegt en satt að það skuli vera útbreiddari kenning að við séum það sem við étum en að við verðum það sem við litum upp til. En samt
ætti það að segja eitthvað um okkur. Ef ekki hvernig við lítum út í augum annarra þá íþað minnsta örlítið um hvernig við lítum á okkur sjálf.
Gerður Kristný bað nokkra íslendinga að segja frá fyrirmyndum sínum og Andrés Magnússon lét drauma þeirra rætast í einu frosnu andartaki.
■ : ' ■
Ómarsson”
á hér hörð skoö-
anaskipti við
Voitaire, sjnn
úpþáhams
y andstæding.
Magnús Skarphéðinsson
er hér í þeim búnihgi sem
hann er kunnastur fyrir. bún-
ingi hinnar líknandi hjúkrun-
arkonu. SV
Arna Steinsen
skorar hér tvö stig íeinum
ieikja sinna árið 1987 þeg-
ar henni tókst að skora
hvorki fleiri né færri en
3041 stig á einu keppnis-
tímabili.
Arna Steinsen
íþróttakennari \
Michael Jordan körfuknatt-
leiksmaður er stórkostlegitr
íþróttamaður og eflaust dreyrti
marga um að vera jafn færir o:
hann. Ég hef dáð Jordan frá því
fór fyrst að fylgjast með körfubolU
anum á Stöð 2. Hann hefur allt sem
góður körfuknattleiksmaður þarf
. að hafa til að bera, líkamlega jafnt
sem andlega.
Sævar Karl Ólason
kaupmaður
Kjartan Ólafsson finnst mér
vera djarfur og mikill ævintýra-
maður. Það væri gaman að líkjast
honum bæði líkamlega og andlega.
Ég er nýbúinn að lesa Laxdælu og
það afrek Kjartans sem mér er
einna minnisstæðast er sundið við
Niðarós þar sem hann kaffærði
konunginn. Þar sýndi hann afar
skemmtilega snerpu.
Tómas A. Tómasson
veitingamaður \
Af því-venjulega fólki sem un
getur í mannkynssögunni er Benj-
amin Franklin sá sem ég lít hvað
mest upp til. Benjánjin náði svo
góðum tökum á sjálfurn sér að
hann réði fullkomlega við.sínar
veraldlegu og holdlegu hlið
Hann lét margt gott af sér leiða óg
hugsaði ekki um hvað hann fengi í
staðinn jafnvel þótt hann hefði get-
að orðið forríkur. Benjamín var
dáðasti maður síns tíma bæði í
Bandaríkjunum og Bretlandi.
Hann náði 84 ára aldri og eftir
hann liggur óhemjumikil speki.
Benjamin skrifaði mikið um
dyggðina og margt af því er meðal
annars líka hægt að finna í Biblí-
unni. En hann einfaldaði hana og
setti í samhengi við nútíma sinn.
Benjamin Franklin stuðlaði að
miklum framförum og hafi maður
slíka fyrirmynd gerir maður sér
betri grein fyrir því hverju hægt er
að koma í verk.
Magnús Skarphéðinsson
baráttumaður fyrir dýraréttindum
'Aðdáunarverðustu persónur
sögunnar í mínum huga eru þær
tugþúsundir þekktra eða nafn-
lausrá manna og kvenna í to þús-
und áiþ gamalli sögu siðmenning-
arinnansem lögðu hart að sér fyrir
. meiri jnannúð á jörðu hér, eða
hörðust fyrir raunverulegum
breytingum á samfélagi hvers tíma
til að milda þennan kalda og
hranalegáfheim sem okkur hefur
verið komiþ fyrir í. Flest þetta fólk
lét líf sitt fyrir sánnfæringu sína.
af eftirnijnnilegri nöfnunum í
stöífum fyrir aukinni ntannúð er
Florence Nightengale. Hún
vann ótrúlég hjcnarstörf á styrjald-
arsvæðinu fórðum við aðstæður
sem fáum geta'kbmið í hug hér 1
hinum náttúrulausa^vesturlanda-
velsældarklúþbi hert)
ins.
Gunnar Hjálmarsson
tónlistarmaður \
Ég lít mjög upp til Jóhanns
risa. Ég hef kynnt mér ævi hans
dálítið og hún hefur verið bæði
skrautleg og skemmtileg. Hann
ferðaðist með flokki vanskaplinga
og sýndi sig fyrir peninga. Það var
ákveðinn ævintýrablær yfir þessum
bandarísku viðundurssýningum og
Jóhann hlýtur að hafa kynnst afar
skrautlegu fólki í þeim. Hann varð
brátt svo vinsæll að hann fór af
stað með eigin sýningu og gekk
mjög vel. Þetta er auðvitað hin
ákjósanlegasta vinna: Maður er
bara maður sjálfur, stendur kyrr og
lætur fólk borga fyrir að fá að horfa
á sig. Reyndar seldi Jóhann líka
sérsmíðaða hringa sem voru eins
og armbönd á venjulegu fólki. Svo
lék hann í bíó. Þetta er ekki aðeins
frábært starf heldur er líka
skemmtilegt að vera svona stór. Nú
þykja svona viðundurssýningar
ómannlegar og mun mannlegra að
loka þetta fólk inni á stofnunum.
En Jóhann væri líklega bara í
körfuboltanum.
Þorfinnur Ómarsson
dagskrárgerðarmaður /
---------TTT-------- /
Franski heimspekingurinln og
rithöfundurinn Jean-Jacques
Rousseau var einn af lærifedrum
frönsku byltingarinnar serþ haíði
mikil áhrif í hinum vest/-æna
heimi. Auk þess var hanrj mikifl
fræðimaður og setti fram kenning-
ar varðandi barnauppeldi/sem enn
eru notaðar í dag. Sú sething sem
hefur aftur á móti heillað' mig mest
í mannkynssöguni er sú/sem Kató
sagði: „Auk þess legg ég/til að Kar-
þagó verði lögð í eyði.“/ Ungur að
árum pældi ég mikið í Rómarveldi
og helsta niðurstaðan/sem ég hef
dregið af því er sú ao þetta hafi
verið ansi gott/svall.
1
16
FIMMTUDAGUR 5. MAl 1994