Eintak

Issue

Eintak - 05.05.1994, Page 18

Eintak - 05.05.1994, Page 18
Á morgun hefst lokaslagurinn um íslandsmeistaratitilinn með leik Hauka og Valsmanna í íþróttahúsinu í Kaplakrika. Páll Ólafsson er leikstjómandi Hauka og þeirra reyndasti maður. Frammistaða hans kemur til með að vega þungt um hvort Haukar nái titlinum. Jón Kaldal ræddi við Pál um feril hans og leikina sem eru framundan. við höfum ekki tapað ieik á heimavelli í allan vetur. Hvernig gekk þér í þýska boltanum? Síðasta árið með Dusseldorf í Þýska- landi er mér mjög minnisstætt. Þvert ofaní allar spár náðum við öðru sæti í deildinni og áttum möguleika á nieistaratitlin- um fram á síð- asta leik. Við vorum mjög fáliðaðir í Dusseldorf — aðeins með tólf manna hóp á ligunni litu hins vegar þannig á að það væri ekki séns að vinna á sumum völlum. Það var erfitt að spila með mönnum sem hugsuðu svona enda þekkti maður ekki þennan hugs- anahátt sjálfur. Þetta hefur síðan breyst mjög mikið hérna heima. Núna eru heimavellir farnir að virka mjög vel. Við erum til dæmis eina liðið sem hefur unnið leik á útivelli í þessari úrslitakeppni og í leik með Þrótti gegn Kristiansand í Evrópukeppni bikarhafa 1981. Þróttur sigraði 18-16 og komst í undaúrslit keppninnar þar sem liðið tapaði naum- lega fyrir Dukla Prag. meðan hin liðin voru með þetta sextán til átján manns. Félags- myndin af Dusseldorf fyrir tíma- bilið var af tólf mönnum og það var mannskapurinn sem var keyrt á allan veturinn. Ef einn meiddist þá voru bara ellefu á skýrslu fýrir leik. Okkur var ekki spáð góðu gengi fýrir tímabilið en það náðist upp geysilega skemmtileg stemmn- ing í liðinu og við lékum mjög vei. Við vorum óheppnir eða bara klaufar undir lokin og töpuðum síðasta leiknum á móti Alfreð Gíslasyni vini mínum og félögum hans í Essen á meðan Kristján Arason og hans menn í Dortmund gerðu jafntefli sem dugði þeim til sigurs. Þessi síðasti dagur Bund- esligunnar var mikill Islendinga- dagur. Þetta var eitt mitt besta ár í handboltanum. Þegar þú kornst aftur heitn 1988 gekkstu svo í KR. Já, það var búið að leggja deild- ina niður hjá Þrótti og maður varð að finna sér nýtt lið. Alfreð Gísla- son var að koma heim frá Þýska- landi á sama tíma og hafði ákveð- ið að ganga í KR og Jóhann Ingi ætlaði að taka að sér að þjálfa lið- ið þannig að ég sló til og ákvað að fara með þeim. Mér fannst vera mikill áhugi á því að gera eitt- hvað fyrir handboltadeildina hjá KR og mig langaði að taka þátt í því. En það gekk ekki alveg eftir. Ég var í þrjú ár hjá KR, þar til liðið féll í aðra deild en þá var komin mikil upplausn á deildina. Löngu áður en tímabilið var búið höfðu sumir leikmenn ákveðið að fara frá liðinu og það var mikil óreiða á stjórn- inni. KR er stórt félag og það var leiðinlegt að sjá hvernig ein deild þess klúðraði málunum með stjórnleysi og endirinn á KR ferlin- um var hálf-dapurlegur. Páll Ólafsson er einn besti og reyndasti handboltamaður lands- ins. Hann var leikstjórnandi ís- lenska landsliðsins í átta ár og lék hátt í tvöhundruð landsleiki á þeim tíma. Páll hefur leikið með fimm liðum um dagana, þremur hér heima og tveimur í Þýskalandi, en hann hefur ekki enn náð að hampa meistaratitli þótt oft hafi munað mjóu. Möguleikar hans hafa sjaldan verið jafn góðir og núna. Haukar hafa leikið best allra í vetur og urðu á dögunum deild- armeistarar. Páli hóf handboltaferil sinn í meistaraflokki hjá Þrótti fyrir sautján árum og lék þá með einu skemmtilegasta liði handboltasögu íslands þar sem hann og Sigurður Sveinsson voru í aðalhlutverkum. Sérstök leikgleði einkenndi liðið og Þróttararnir tóku hlutunum ávallt af passlegri alvöru. Einhverju sinni átti Sigurður Sveinsson til að mynda möguleika á því að verða markakóngur deildarinnar þegar einn leikur var eftir í mótinu. Þróttarar gripu þá til þess ráðs að láta Sigurð ekki spila í vörninni heldur beið hann alltaf á miðjunni. í hvert skipti sem Þróttur náði boltanum var honum hent fram á Sigurð. Þetta dugði til og Siggi varð markakóngur. Voru þessi ár í Þrótti ekki skemmtileg, Páll? Þetta var oft ansi fjörugt, eins og það vill reyndar gjarnan vera í kringum Sigurð Sveinsson. Óli H. Jónsson þjálfaði okkur og hann byggði upp mjög skemmtilegan móral í hópnum. Við vorum algjörlega óþekkt stærð þegar við komum upp úr annarri deildinni. Fyrsti veturinn gekk þó heldur betur framar von- um. Við urðum bikarmeistarar og lentum í öðru sæti í deildinni. Það var mjög gaman að vinna bikarinn því þar náðum við að stöðva sigur- göngu Víkinga sem voru þá með svo til ósigrandi lið. Það var mikill uppgangurhjá félaginu á þessum árum bæði innan vallar og utan. Þróttur átti sterka yngri flokka og mikið af góðu fólki starfaði að málefnum félagsins. Það myndað- ist ákaflega skemmtileg stemmning í kringum liðið og við fengum mikið af fólki á leikina hjá okkur. Og flestir voru að sjálfsögðu m wt& ?*£’* S "l?- ýSlífsJiJ ;vK-v komnir til að horfa á Sigga. Þetta var mjög skémmtileg- ur tími. Keyrðuð þið félagarnir ekki saman kókbíl á þessum tíma? Jú, jú, einhvern tíma á þessum árum gerðum við það. Við eyddum miklum tíma saman og það var ým- islegt brallað. Við erum báðir úr Vogahverfinu eins og allt Þróttarliðið var. Þetta voru svo til eingöngu strákar úr Vogaskóla og Langholtsskóla. Eitt árið villtust reyndar til okkar menn eins og Gunni Gunn Víkingur, en Þróttur var fyrst og fremst hverfislið. Þú og Siggi Sveitts sögðuð einhvern tíma að þið cetluð- uð að enda ferilinn á að gera Þrótt að íslandsmeisturum. Og núna er búið að leggja hand- knattleiks- deildfélags- ins niður. Aðal- hvatamað- urinn að því að gera Þrótt að stórveldi að nýju var Oli Kr. Sigurðs- son heit- inn. Því miður er hann fall- inn frá núna og það er spurning hvort einhver nógu kraftmikill geti tekið upp merki hans í þess- um efnum. Þá væri hægt að endur- reisa handboltadeildina og byrja frá grunni. Þar sem deildirnar eru bara tvær ætti það ekki að taka mörg ár að ná þessu markmiði. Þið eruð sem sagt ekki búnir að afskrifa þennan möguleika? Nei, nei, ég segi ekki að við séum neitt voðalega brattir á því en við erum ekki heldur búnir að gefa möguleikann frá okkur. Svofórstu til Þýskalands oggerð- ist atvinnumaður í íþróttinni. Já, það var 1985 að ég gekk til liðs við Dankersen í Bundesligunni og Páll í leik með landsliðinu í Laugardals- höll. Hann lék 173 landsleiki á árunum 1980-1988 og skoraði í þeim 416 mörk. lék með því liði eitt tímabil. Síðan skipti ég um félag og fór í Dussel- dorf. Það var mjög gaman að fara og kynnast nýju landi og fólki. Það skólaði mig mjög mikið til sem leikmann og kenndi mér ýmislegt. Þarna fékk maður tækifæri til að glíma við aðra leikmenn en maður hafði verið að spila við í mörg ár hérna heima. 1 Þýskalandi kynntist ég því líka í íýrsta skipti að spila á alvöru útivöllum. Hérna heima léku flest liðin í Höllinni og það skipti ekki svo miklu máli hvort maður átti heimaleik eða útileik. Margir félaga minna í Bundes- Páll yngri og léttari á sér á fleygiferð í fót- boltanum í leik með Þrótti gegn Víkingi 1979. Örfáum augnablikum eftir að myndin var tek- in fá boltinn í marki Víkings. 18 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.