Eintak - 05.05.1994, Síða 19
,Svo hleyp ég að miðjunni og aftur út á kant.
Nema hvað Stjáni misskilur mig eitthvað og
heldur að ég œtli að koma svífandi inn í teig og
hendir boltanum þangað ...
Hvernig var að koma í Fjörðinn
til Haukanna?
Það var mjög gaman. Þetta er
þriðja tímabilið sem ég er hjá
Haukum og þetta hefur verið góð-
ur tími. Það er mikill uppgangur í
íþróttamálum í Firðinum. Þar sem
ég þekki best til hjá Haukunum eru
menn mjög heitir og vinnusamir
og starfa geysilega vel að málefnum
félagsins. Ég held að það sé óhætt
að fullyrða að starfið í kringum
Hauka er með því besta á landinu.
Það er allt á hreinu og öll vanda-
mál leyst um leið og þau koma
upp. Þetta skiptir mjög miklu máli
fyrir leikmennina. Ég kynntist því
fyrst í Þýskalandi að það væri
hugsað fyrir öllu. Þar voru læknar
og sjúkraþjálfarar alltaf til staðar í
kringum liðið og allur nauðsynleg-
ur útbúnaður. Handboltinn er að
komast á meira „prófessjónal“ stig
hérna en verið hefur.
Handboltinn er ekki eina íþróttin
setn þú hefur komið nálœgt. Þú varst
vel liðtœkur ífótbolta.
Jú, jú, það er rétt. Ég spilaði all-
an fótboltaferilinn með Þrótti,
bæði í fyrstu og annarri deild. Ég
var sautján ára þegar ég byrjaði í
meistaraflokki en þá vorum við í
annarri deild. Við unnum hana
það árið og ég varð markahæstur í
deildinni. Svo vorum við þrjú ár í
þeirri fyrstu, féllum og komum
upp aftur.
Þú varst alltaf iðinn við að koma
boltanum í netið.
Maður laumaði inn einu og
einu. Ég spilaði síðast með Þrótti
sumarið 1986. Ég var búinn að vera
í Þýskalandi um veturinn og kom
heim og var með í tveimur leikj-
um. Við unnum annan eitt núll og
ég skoraði markið. Hinn unnum
við stórt og þá gerði ég þrjú. Það
var lokahnykkurinn á knattspyrnu-
ferlinum.
Þér hefur aldrei dottið í hug að
einbeita þér að fótboltanum?
Nei, maður var bara í þessu
báðu. Handboltinn var á veturna
og fótboltinn á sumrin svo þetta
fór ágætlega saman. Ég valdi ekki
fyrr en ég fór til Þýskalands í at-
vinnumennskuna.
Hvað er þér minnisstœðast frá
ferlinum þegar þú lítur um öxl?
Fyrsta árið með Þrótti í fyrstu
deild var mjög skemmtilegt. Að
koma beint upp úr annarri deild-
inni og vinna bikarinn og lenda í
öðru sæti í deildinni stendur upp
úr. Síðasta árið með Dusseldorf er
mér líka mjög minnisstætt.
Maður hefur líka lent í ýmsu
„spaugilegu" á þessum árum. Ég
man til dæmis eftir því að við vor-
um einhvern tíma að leika með
landsliðinu á móti í Frakldandi.
Við vorum að spila lokaleikinn
gegn Tékkum, það var jafnt, við
vorum með boltann, það var búið
að dænia aukakast og bara sjö sek-
úndur eftir. Þá var stillt upp fýrir
Kristján Ara og ég kalla til Stjána:
„Kíktu á mig hérna til vinstri, ég
get trúað að ég verði frír.“ Svo
hleyp ég að miðjunni og aftur út á
kant. Nema hvað Stjáni misskilur
mig eitthvað og heldur að ég ætli
að koma svífanai inn í teig og
hendir boltanum þangað. Á meðan
stend ég aleinn úti á kanti og eng-
inn varn. rmaður nálægt mér, en
sendingin misheppnaðist svo rosa-
lega að markvörðurinn hjá Tékk-
um náði strax boltanum og grýtti
honum yfir allan völlinn, beint í
markið hjá okkur og við töpuðum.
Eftir leikinn komust við síðan að
því að jafntefli hefði nægt okkur til
sigurs. Við hefðum ekkert þurft að
reyna að skora. Ég get sagt þér að
Bogdan Kowalzik var ekki par
ánægður með okkur eftir þennan
leik.
Já, Bogdan var soldið svakalegur
hefur maður heyrt.
Hann var gífurlega strangur og
með mjög erfiðar æfingar. Menn
voru alltaf á milljón á æfingum og
fengu aldrei að slaka á. Þegar ég lít
aftur verð ég að segja að maður
skilur ekkert í því að hafa látið hafa
sig útí þetta. Núna veit maður að
það er hægt að komast í jafngott
form á einfaldari og þægilegri hátt
og þessi aðferð að hálfdrepa menn
alltaf á æfingum er ekki mjög snið-
ug. Hún skapar bara leiða og gerir
menn svekkta og pirraða. Áður en
við fórum á Ólympíuleikana í Seo-
ul höfðum við æft tvisvar á dag í
fjóra mánuði - menn ekki aðeins
orðnir dauðþreyttir á handbolta
heldur líka á hver öðrum enda
gekk okkur heldur ekki nógu vel.
Hvernig leggjast leikirnir sem eru
framundan við Val íþig?
Þeir leggjast mjög vel í mig, eins
og allir leikir reyndar. Við höfúm
unnið báða leikina við Val í vetur
en það hefur verið naumt — við
unnurn á Hlíðarenda með einu og
heima með einu. Þetta voru tvísýn-
ir leikir og það má segja að við höf-
um haft heppnina með okkur í
þeim báðum, en það þarf oft til að
klára dæmið.
Hefur Valsliðið ekki komið á
óvart í vetur? Áður en tímabilið
hófst misstu þeir þrjá af sínum sterk-
ustu mönnum: Jakob Sigurðsson
hœtti, Geir Sveinsson fór til Spán-
arog Valdimar Grímsson til KA,
Flestum liðum hefði munað um
minna.
Já, og nei, þeir misstu náttúrlega
mjög sterka leikmenn sem hafa
verið kjarninn í liðinu hjá þeint. En
svo verður maður að líta á það að
elckert lið hefur fengið jafn góðan
unglingamannskap upp undanfar-
in ár og Valsmenn. Dagur Sig-
urðsson og Ólafur Stefánsson
eru í þessum hópi og þeir eru farn-
ir að leika þannig í dag að þeir eru
hættir að vera bara efnilegir og eru
einfaldlega orðnir mjög góðir
handboltamenn og þetta eru strák-
arnir sem eru að taka við í lands-
liðinu. Það kom mér í sjálfu sér
ekki á óvart að Valsliðið færi þetta
langt. Þeir eru með besta markvörð
á landinu, mjög góðan þjálfara,
reynslumikla leikmenn eins og Jón
Kristjánsson og stóran hóp af
ungum og sterkum strákum.
Á hvað þurfið þið að leggja
áherslu i leikjunum við Val?
Sóknarlega held ég að liðin séu
mjög svipuð svo eins og í mörgum
öðrum leikjum er þetta spurning
um varnarleik. Það kemur til með
að skipta miklu máli hvort lið nær
að spila betri vörn. Rétta hugarfar-
ið á réttum degi kemur líka til með
að vega þungt. Menn verða að
leggja sig hundrað og tíu prósent
fram, eins og rnaður segir, til að
vinna leik.
Þú sagðir hérnafyrr að þið hefðuð
ekki tapað á heimavelli í allan vetur.
Lítur þetta þá ekki vel út á tnóti
Val?
Ef reglan helst þurfum við ekkert
að óttast, en það hefst náttúrlega
ekkert með svona einfaldri reglu.
Maður verður að hafa fyrir hlutun-
um og heimavöllurinn vinnur
þetta ekki fyrir okkur.
Viltu spá einhverju um úrslitin;
verða þettafímm leikir?
Nei, ég held ég spái engu. Við
stefnum að sigri í hverjum einasta
leik sem við tökum þátt í þannig að
við ætlum að klára þetta í þremur
leikjum. Það gengur þó kannski
ekki upp og leikirnir gætu orðið
fleiri, en við ætlum að vinna hvort
sem þeir verða þá fjórir eða fimm.
Nú hefur þú átt tnjöggott tímabil.
Ertu nokkuð að hugsa um að hœtta?
Ég hef ekki hingað til gefið nein-
ar yfirlýsingar út, bara sagt við sjá-
um til hvernig haustar. En ég
reikna fastlega með því, ef heilsan
leyfir, að verða með næsta vetur.
Liðið er komið í Evrópukeppni og
það verður gaman að vera með.
Það er að segja ef maður kemst í
lið.©
Feríllinn
Handbolti
1974 Páll byrjar að æfa hand-
bolta með Þrótti fjórtán ára gam-
all.
1979- 1980 Þróttur lendir í öðru
sæti og vinnur sér rétt til að leika í
fyrstu deild.
1980- 1981 Þróttur verður bikar-
meistari og lendir í öðru sæti
fyrstu deildarinnar.
1981- 1982 Þróttur kemst í und-
anúrslit í Evrópukeppni bikarhafa
og tapar þar naumlega gegn
Dukla Prag. Liðið lendir í þriðja
sætí fyrstu deildarinnar.
1985- 1986 Páll gerist atvinnu-
maður og leikur með Dankersen í
Bundesiigunni í Þýskalandi.
1986- 1987 Páll gengur til liðs
við Dusseldorf. Liðið leikur til
úrslita í bikarkeppninni.
1987- 1988 Dusseldorf missir
naumlega af þýska meistartitlin-
um og lendir í öðru sæti.
1988- 1989 Páll snýr aftur til l’s-
lands og gengur til liðs við KR.
1989- 1990 KR lendir í öðru sæti
fyrstu deildar.
1990- 1991 KRfelluríaðradeild.
1991- 1992 Páll gengur til liðs
við Hauka.
1993-1994 Haukar tryggja sér
sæti í Evrópukeppni og leika til
úrslita um íslandsmeistartitilinn.
Páll lék 173 landsleiki á árun-
um 1980-1988 og skoraði í
þeim 416 mörk.
Páll á markamet í fyrstu
deildinni ásamt Alfreð Gísla-
syni; báðir hafa skorað tutt-
ugu og eitt mark í einum leik.
Fótbolti
1972 Páll byrjar að æfa fótbolta
með Þrótti tólf ára gamall.
1977 Byrjar að leika með
meistaraflokki Þróttar sem þá var
í annarri deild. Liðið sigrar
deildina og Páll verður
markakóngur hennar.
1978-1985 Páll leikur með Þrótti
í fyrstu og annarri deild.
1986 Páll leikur tvo síðusti knatt-
spyrnuleiki sína og skorar fjögur
mörk í þeim.
Páll lék tvo A-landsleiki, gegn
Grænlandi og Noregi 1980, og
skoraði eitt mark.
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994
19