Eintak - 05.05.1994, Side 28
K L A S S í K
Nemendatónleikar frá Tónlistarskóla Reykjavíkur
kl. 17.00 í Norræna húsinu.
L E I K H Ú S
Skilaboðaskjóðan sýnd kl. 14.00 í Þjóöleik-
húsinu. Sýningum ter fækkandi og verður síö-
asta sýningin um miðjan mat.
Sumargestir sýndir af Nemendaleikhúsinu í
Lindarbæ kl. 20.30. Þetta er mjög góð sýning
með mjög fallegri sviðsmynd en eilítið sfðri
búningum.
Hugleikur sýnir Hafnsögur kl. 20.30 í Hafn-
arhúsinu. Tekið skal fram að Sævar Sigurgeirs-
son er einn af höfundum leikritsins.
Gauragangur á Stóra sviði Þjóðleikhússins kl.
20.00. Bókin var frábær og leikritið er ekki
siðra.
Gleðigjafarnir á Stóra sviði Borgarleikhúss-
ins kl. 20.00. Verkið fjallar um gamlar revíu-
stjörnur sem í fyrstu eru f fýlu hvor út í aðra en
svo tekst meö þeim góð vinátta.
DANSSTADIR
Express er stórskemmtileg hljómsveit sem
leikur fyrir dansi á Ömmu Lú. Orn Árnson
skemmtir matargestum.
UPPÁKOMUR
Hin árlega Elvis Presleykeppni er á Tveimur
vinum meö búningum og öllu tilheyrandi. í
kvöld er sjálft úrslitakvöldið og fólk er eindregið
hvatt til að mæta á þennan einstaka menningar-
viðburð.
O P N A N I R
Tinna Gunnarsdóttir opnar sýningu í Gallerí
Greip á Hvertisgötunni á 40 karlmannsnælum
og fimm veggnælum. Sýningin stendur til 18.
maí.
Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir opnar
sýningu á pastelmyndum f Gallerí Fold.
Sýning á verkum Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal opnar í dag í Listhúsinu. Par
eru sýnd verk frá tveimur fyrstu áratug-
unum í lífi hans sem listamanns, meðal
annars höggmyndir og málverk..
Sendiherra Noregs, hr. Nils Dietz opnar
sýningu í Hafnarborg en þar eru verk lista-
mannahóps sem kallar sig Gruppe 5 til sýnis.
Hann skipa þeir Hákon Bleken, Ramon Is-
ern. Halvdan Ljosne Lars Tiller og Roar
Wold. Þrjátíu ár eru liðin sfðan þessi hópur
sýndi fyrst undir heitinu Gruppe 5 og er þaö yl-
irskrift sýningarinnar nú. Hún er framlag Noregs
til lýðveldisafmælisins og stendur út þennan
mánuð.
Tryggvi Ólafsson opnar sýningu í Listasafni
ASl.
Helga Rún Pálsdóttir og Bergdís Guðna-
FYRIR
KVARTGJARNA
Pantið viðtal við Árna Sigfússon
borgarstjóra og kvartið yfir
hverju því sem hefur plagað
ykkur undanfarin ár. Það er
hreint með ólíkindum hvað sá
maður tekur vel
undir flest það
sem fyrir hann er
lagt þessa dag-
ana. Þið getið
kvartað undan
ónógum bílastæð-
um nálægt leiði
forfeðra ykkar, þið getið kvart-
að undan skorti á félagsað-
stöðu fyrir dúfnaræktendur eða
þið getið kvartað undan frygð-
arstunum í nágrönnunum ef
ykkur dettur ekkert annað í
hug. Árni mun taka undir þetta
allt.
Tveir stórtónleikar í júní
Það þarf að fara allt affur til ársins
1986 til að finna sambærilega við-
burði á sviði dægurlagatónlistar og
verða á Listahátíð í sumar. Árið 1986
voru haldnir tónleikar tvö kvöld í
röð í Laugardalshöll. Hljómsveitirn-
ar sem léku voru Simply Red, Fine
Young Cannibals, Lloyd Cole and
the Commotions og Madness. Þrjár
fyrstnefndu hljómsveitirnar voru
aliar á þröskuldi heimsfrægðar þeg-
ar þær komu hingað og er það mál
þeirra sem voru í Höllinni 17. og 18.
júní að sjaldan hafi betur tekist til
með tónleika á Listahátíð. Það var
fullt hús bæði kvöldin og áhorfend-
ur skemmtu sér konunglega.
í júní verða aftur tveir popptón-
leikar á Listahátíð. Fyrst ber að
nefna að loksins eftir langa bið kem-
ur Björk til landsins til tónleika-
halds. Enginn vafi er á því að mjög
margir eru búnir að bíða þessa við-
burðar með óþreyju og eru orðnir
langeygir eftir því að sjá hana flytja
tónlistina af Debut á sviði með
hljómsveit. Björk og hljómsveit
hennar verða aldeilis ekki ein á ferð
því með þeim kemur hljómsveitin
Underworld sem er ein ferskasta og
efnilegasta sveit Breta. Underworld
gaf út sína fyrstu
breiðskífu í upphafi
þessa árs, dubno- ■
basswithmyhead- f
man, en á síðasta ári \
sendi sveitin frá sér |
þrjár smáskífur sem íj
allar fóru inn á lista j
bresku popppress-
unnar yfir bestu g
smáskífur síðasta |
árs. Sveitin leikur 1
danstónlist og ef á K
að líkja henni við
einhverjar aðrar
sveitir má helst
greina áhrif frá New |
Order og Depeche |
Mode. Underworld i
á þó sína tónlist sjálf }
með húð og hári.
Björk og Und-
erworld verða í Höllinni 19. júní og
það er eins gott að vera í viðbragðs-
stöðu þegar miðasalan fer í gang því
það er ekki ólíklegt að uppselt verði
á tónleikana.
Hinir tónleikarnir á Listahátið
verða þriðja júní í húsnæði toll-
stöðvarinnar við Reykjavíkurhöfn.
Þar eru heldur engir aukvisar á ferð.
Saint Etienne heitir hljómsveitin en
henni hefur verið hampað sem
popphljómsveit tíunda áratugarins í
tónlistarblöðum víða um Evrópu.
Saint Etienna hefúr sent frá sér þrjár
nni
Það eru margir
óþreyjufullir að sjá og
heyra hana á tónleik-
um. Það verður að
veruleika 19.júníþegar
hún treður upp i Höll-
plötur sem allar hafa fengið mikið
lof gagnrýnenda og afbragðs viðtök-
ur kaupenda. Sveitin leikur sann-
kallað glassúrpopp í anda Abba og
The Carpenters að viðbættum nú-
tíma tækniáhrifum. Sveitin mun
vera einstaldega skemmtileg á tón-
leikum. Áður en Saint Etienne stígur
á svið munu íslensku sveitirnar
Bong og Bubbleflies hita upp í tón-
Saint Etienne
hefur verið kölluð popp-
hljómsveit tíunda ára-
tugarins. Hún leikur á
tónleikum þriðja júnl.
leikagestum.
Það er því dagljóst að tónleika-
þyrstir hafa ríka ástæðu til að hlakka
til.Q
Helga Rún og Bergdís
„Frumraun okkar við að gera
það sem við viljum."
Ísten^kur
fatnaður
Jákvæður íslenskur fatnaður er
aðalsmerki þeirra Helgu Rúnar
Pálsdóttur og Bergdísar
Guðnadóttur sem opna sýningu á
fatalist á laugardaginn i Portinu í
Hafnarfirði.
„Þetta er fatnaður fyrir fólk sem
enn er jákvætt í þeirri svartsýni sem
ríkir nú í þjóðfélaginu og þorir að
klæða sig dálítið öðruvísi en aðrir,“
segir Helga Rún.
Þær stöllur sýna hvor um sig 30
alklæðnaði fyrir konur en báðar
reka þær saumastofur.
„Á sýningunni sést frumraun
okkar við það að gera það sem við
viljum gera í stað þess að gera það
sem aðrir vilja að við gerum,“ segir
Bergdís. Hún hefur aðeins einu
sinni áður haldið sýningu opinber-
lega en Helga Rún hefur aftur á
móti gert búninga fyrir ýmsar leik-
sýningar. Síðast hannaði hún bún-
inga og hatta fyrir myndina um
Jón Sigurðsson. Helga Rún er
ein þeirra hönnuða sem farin er að
vinna með roð.
„Það er mjög svipað leðrinu í
vinnslu en aðeins slitsterkara.
Helsti gallinn er aftur á móti sá að
það er í mjög iitlum bútum því
fiskurinn er svo lítill," segir Helga
Rún.
Sumt fatanna sem hún og Berg-
dís sýna má nota en annað eru
listaverk.
„Ég sýni til dæmis fatnað sem ég
kalla „Islenskt veður" en hann er að
hálfu leyti regnkápa og að hálfu
ieyti sumarklæðnaður og er ætlað-
ur þeim sem ekki vita í hverju þeir
eiga að fara út,“ segir Bergdís.
Klukkan 16.00 á laugardag og
sunnudag gefst gestum sýningar-
innar kostur á að sjá dansara sýna
fatnað þeirra Bergdísar og Helgu
Rúnar svo ekki er úr vegi að skella
sér í Portið um helgina. ©
dóttir opna sýningu á fatahönnun sinni í Port-
inu í Hafnarfirði. Þetta er sölusýning og fara
fram sérstakar sýningar i umsjón Helenu
Jónsdóttur dansara kl. 16.00 laugardag og
sunnudag.
í Þ R Ó T T I R
Fótbolti Víkingur og IR mætast í A-deild
Reykjavíkurmótsins klukkan 17.00 á gervigras-
inu í Laugardal.
SJÓNVARP
RIKISSJONVARPIO 09.00 Morgunsjónvarp
barnanna 10.30 Hlé 12.25 Staöur og stund:
Sex borgir Sigmar B. Hauksson fór til
Lissabon að skoða sig um. 12.40 Mótor-
sport endursýningtZ.10 íþróttahornið end-
urtekinn þátturWAO Einn-x-tveir 13.55
Enska knattspyrnan Bein útsending frá leik
Everton og Wimbledon, Bjarni Fel lýsir.
16.00 (þróttaþátturinn Sýnt verður trá úrslit-
um Islandsmótsins í pílukasti, í alvöru.
18.25 Flauel 18.50 Táknmálsfréttir 18.00
19.00 Strandverðir
20.00 Fréttir 20.30 Lottó 20.35 Simpson-
fjölskyldan Traustustu þættir sjónvarpsins.
21.05 Ragnarokkur Inspector Morse: Twi-
light of the Gods Seinasta myndin um
Morse í bili. 22.50 Gestirnir Besökarna
Sænsk draugasaga fyrir fullorðna um
draugagang á sveitabýli. 00.20 Dagskrárlok
STÖÐ TVÖ 09.00 Með afa 10.30 Skot og
mark 10.55 Jarðarvinir 11.20 Simmi og
Sammi 11.40 Fimm og furðudýrið 12.00 Lík-
amsrækt Hopp og hí frá Stúdíó Jónínu og
Hrafns fyrirþá sem vilja sprikla heima í
stofu. 12.15 NBA tilþrif 12.40 Evrópski vin-
sældalistinn Topp 20 frá MTV. 13.30 Kaup-
hallarbrask Working Trash Hreingerningar-
menn á Wall Street finna haldgóðar upp-
lýsingar í ruslinu og fara að braska sjálfir.
15.00 3-Bíó: Blettatígurinn Cheetah Disn-
eymynd um ameríska krakka I Afríku sem
taka ungan blettatígurí fóstur. 18.05 Popp
og kók Það er orðið illhorfandi á þáttinn
eftirað Pálmi Guðmundsson, hinn nýi
kynnir, tók við af tngibjörgu. Hann er einn
afþessum þrautleiðinlegu þáttagerðar-
mönnum sem eralinn upp á frjálsu út-
varpsstöðvunum og heldur að hann sé
góður fjölmiðlamaður af því að hann get-
ur talað sæmilega skýrt. Pálmi ætti frekar
að blaðra minna og sýna fleiri myndbönd.
19.19 19.19 20.00 Falin myndavél 20.25 Á
norðurslóðum Uppáhaldsþáttur Kristjáns í
sjónvarpinu. 21.15 Kiri Þáttur með söng-
konunni Kiri Te Kanawa. 22.40 Friðhelgin
rofin Unlawful Entry Ágætis þriller um lög-
regluþjóni sem er kallaður á innbrotsstað
og verður ástfanginn af húsmóðurinni
Hann er einmana og vingjarnlegur en er
ekki ailur þar sem hann er séður Aðalhlut-
verk: Kurt Russell, Ray Liotta og Made-
leine Stove. 00.35 Dauðakossinn A Kiss
Before Dying Frekar tæp spennumynd um
siðblindan mann í túlkun Matt Dillon sem
erjafn heillandi og hann er hættulegur.
Sean Young leikur tviburasystur og er jafn
ósannfærandi í hlutverkum þeirra beggja.
02.05 Samferðarmaður Fellow Traveler
Breskur tryllir um æskuvini sem ienda á
svarta listanum á McCarthy- tímanum í
Bandaríkjunum. 03.25 Dagskrárlok
SÝN 17.00 Amertska atvinnumannakeilan
Hryllilega leiðinleg og bjálfaleg iþrótt, að
minnsta kosti að horfa á. 18.30 Neðanjarð-
arlestir stórborga Undirheimar stórborga
heimsins skoðaðir.
SUNNUDAGUR
P O P P
Bubbi Morthens er nú kominn á Hvamms-
tanga.
Synir Raspútíns eru öflugir rokkarar, snjallir,