Eintak

Issue

Eintak - 05.05.1994, Page 35

Eintak - 05.05.1994, Page 35
HvacM © Steinunn Ólína & co í samkeppni við Light Nights © Valdís komin í bameignarfrí © Skúli Helgason kallaður heim til að tengja R-listann við ungtfólk Arnór Hannibalsson prófessor Ég skrífaði nafnið mitt undir með það íhuga að þoka málinu íþá átt sem yfiríýsingin gefur til kynna. Það er vitað mál að þetta var undirskriftasöfnun til að mynda þrýstihóp og þeirgefa útslag í mörgum málum. Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur Ég er svo skemmtileg að þegar fólk sér að ég kýs Ingiþjörgu Sól- rúnu fara fleiri að gera það. Málfríður Guðný Gísladóttir lögfræðinemi Augiýsingar hafaáhrifog í krafti fjöidans getum við gætt lýðræðis- ins. Það skiptir líka miklu máli að taka afstöðu. Öll nöfnin á list- anum hafa sín áhrif. Andrea Jónsdóttir þáttagerðarmaður Ég trúi ekki á mátt auglýsinga, en vegna þess að ég ætla að kjósa Ingibjörgu Sólrúnu og var beðin um að nafnið mitt yrði þarna samþykkti ég það. Efaðrir trúa þvíað nafnið mitt hafi áhrif hlýtur það að vera mjög flatterandi. Aðalsteinn Leifsson ritstjórl Þessar auglýsingaherferðir eru þess eðlis að þær eru birtar viku eftir viku með sífellt fleirí nöfnum. Samstaða alls þessa fólks hefur áhrifþótt nafnið mitt eitt og sér segði lítið. Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur Ég get ekki ímyndað mér að nafn- ið mitt hafi afgerandi áhrífáþað hvað annar einstaklingur kýs. Þetta er frekar min persónuleg stuðningsyfirlýsing. Arnór Ijáði nafn sitt á undirskriftalista fyrir breytingu á staðsetningu nýja Hæstaréttarhússins en hin á stuðn- ingsyfirlýsingu fyrir Ingibjörgu Sólrúnu. G! L UÐNI I Franzson I klarínettu- leikari og leikar- arnir Steinunn Ólína Þor- STEiNSDÓTTTR, Ragnar Magnússon, Felix Bergsson og Þórdís Arn- ljótsdóttir ætla ekki að sitja auðum höndum í sumar held- ur setja upp spunaverkefni ætl- að erlendum ferðamönnum. Að- allega verður leitað fanga í ís- lenskum þjóðsögum og er vinnu- heitið „Tales from our Country" en verkið verður flutt á ensku. Tónlist verður ríkur þáttur í sýn- ingunni. Sýningar fara fram á efri hæð kaffihússins Sólon ísland- us og er ætlun- in að hafa sýning- una mjög færanlega svo að leik- myndin verður líklega íburðarlítil... Reykjavíkurlistinn er að vinna að blaði ætluðu ungu fólki þessa dagana og var mikið haft fyrir því að finna góðan mann til að ritstýra því. Að sjálfsögðu þarf sá maður að þekkja til veru- leika ungs fólks og geta náð til þess. Á endanum var leitað út fyrir landsteinana eftir vinnuafli og rokkfræðingurinn Skúli Helgason kallaður heim frá Bandaríkjunum til að setjast í rit- stjórastólinn. Skúli hefur með- al annars séð um rokkþáttagerð fyrir Rikisútvarp- ið og starfað í Röskvu. Hann hefur dvalið í Bandaríkjunum í vetur þar eð kona hans stundar þar nám... Hin ástsæla útvarps- kona FM 95,7 Valdís Gunnarsdóttir er far- in í bameignarfrí. í stað hennar er kominn ungur maður að nafni Ásgeir Páll fyrrum stjórnandi þáttarins Diskóboltar. Er það mál manna að hann spili ekki al- veg sömu huggulegu lögin og Valdís er alþekkt fyrir en það er náttúrlega ekki heigl- um hent að feta í fótspor hennar... Unnið er að því að fá loftskip hingað til lands í tengslum við 50 ára lýðveldisaf- mælið á Þingvöllum þann 17. júní. Agnar W. Agnarsson hefur verið í sambandi við þýska íyrirtækið WDL sem smíðar og leigir út loftskip. Agnar segir að það sem helst sé því til fyrirstöðu að fá loftskip hingað til lands sé kostnaðurinn. WDL vill ekki leigja skip út í minna en mánuð og slíkt kosti um 40 milljónir króna mið- að við 150 flugtíma. Það eru helst stórfyr- irtæki sem geti staðið undir slíkum kostn- aði og fengið í staðinn auglýsingu á belg loftskipsins eins og algengt er erlendis. Agnar segir að verið sé að vinna að því að fá aðila til að kosta dæmið en það komi meðal annars til greina að leigja loftskipið út til þeirra erlendu kvikmyndagerðar- manna sem eru við tökur hérlendis í sum- ar. WDL er eina fyrirtækið í heiminum sem fjöldaframleiðir loftskip en skipið sem reyna á að fá hingað í sumar er 60 metrar á lengd, 16 metrar á breidd og 19 metrar á hæð. Það er knúið tveimur 210 hestafla vélum og getur flogið með 50 til 105 km hraða á klukkustund. Það getur borið sjö farþega auk flugmanns. © TÆKI VIKUNNAR Gabbsími Kverúlantamlr eru búnir að eyðileggja Pjóðarsálina með svo eftirminnilegum hætti að normalt fólk þorir ekki lengur að hringja inn af ótta við að vera stimplað hálfvitar. Hér er hins vegar lausnin fundin. Þetta ágæta banda- riska símtæki er nefnilega með inn- byggðum raddbrenglara, sem getur gert kartmannsraddír að kvenröddum og öfugt, þannig að unnt er að vílla á sér heimildir eins og að drekka vatn. Þetta gæti líka hentað einyrkjum I við- skiptum, sem vilja láta „ritara" svara símanum og biðja menn um að bíða óður en forstjóranum þóknast aö ræða við viðkomandi. Eða þá fyrir prakkara til þess að koma megnustu ringulreið af stað, til dæmis í gegnum símastefnumótin. Simann má panta frá vinum okkar hjá póstversiuninni Sharper Image í síma 901 415 445 6100 og það kostar um 6.500 krónur íslenskar. Hins vegar vill Póstur og sírrtí fá öll símtæki til samþykkt'ar og þar á bæ geta menn verið stífir gagn- vart svona apparötum, þannig að hugsanlega er heppiiegra aö smygla honum tll iandsins. O ÉQ VEIT PAÐ EKKI EFTIR HALLGRÍM HELGASON Ameríka í Eurovision Ég veit það elcki. Hvað maður er að horfa á þetta? En það er eitthvað sem heillar. Kannski Evrópustefið í upphafi kvölds sem kastar manni minnugum alla leið upp á aðra hæð á Háaleitisbraut 18 þar sem lítið drengshjarta tifar títt upp við svart- hvítan skerm. Áratugagamall spenningur sem nú er að vísu lítið eftir af... en samt ... Júróvisjón! Þar sem Önnur Mjallir allra landa sameinast eina kvöldstund og við hin látum af öll- um mjalla til að geta horft á þær. Maður verður að skipta huganum í bakgír til að umbera þetta dubbaða og döbblina lið í beinni frá Dublin. Dagskráin byrjar ekki vel. Kynnnarnir tveir eru að vísu af báðum kynjum, en gjörsamlega lausir við kynóra og konan opnar kvöldið á einhverju óskiljanlegu dafli sem mann grunar helst að sé hátíðarupplestur úr Finnegans Wake þar sem á undan er gengin einhver ægileg upptalning á helstu írum aldarinnar. Leidd eru fram sviðið hönd í hönd Sinead O’Connor og James Joyce, Beckett og Bono. Ódysseifur í Júróvisjón. Hvað næst? Van Gogh í Eden? Svíarnir eru fyrstir og flagga ákaflega furðulegu pari. Krúnurak- aður kjöthleifur með gulrótartagl og hugguleg lögreglukona frá Lundi með hatt. Þau reyna sitt besta til að tendra fram hjartnæma tóna og tekst ágætlega að „lifa sig inní“ textann sem alltaf er mikil- vægt þegar sungið er live, en ná sér samt ekki nógu vel á strik. Kannski vegna þess að áður en þau stigu á svið voru þau skikkuð til þess af írskum sjónvarpsmönnum að lesa Endgame eftir Beckett. Söngur þeirra bar þess nokkuð merki. Irarnir þurftu hinsvegar ekkert að lesa enda kunna þeir þetta allt utanbókar og vinningsformúluna líka. Frá fyrsta tóni er nokkuð ljóst í hvað stefnir. Þetta er amerískt lag. Einhver eldgamall og afdankaður rykfallinn kántrísmellur tekinn og settur í Evrópusamhengi af tveimur mjög hárprúðum skallapoppurum sem eru orðnir svo þreyttir að þeir þurfa að sitja, geta ekki staðið. „The rock and roll kids.“ Titill lagsins á einhvern veginn svo vel við þá. Ekki það að þeir séu rolddegir að sjá, heldur rolcka þeir svoldið og rolla svona til og frá við hljóðfærin. Þeir syngja um bernsku sína og syrgja gömlu rokkhárin sem nú tifa grá í vöngum þeirra í takt við yndislega heita vaggið. Þetta hljómar álíka ámátlega og akústíkskir Pink Floyd-tónleikar í þjónustuíbúðum aldraðra við Dalbraut. „Now we never seem to rock and roll any- more ...“ kyrja þeir og eru á svip- inn eins og þeir séu að syrgja andlát ömmu sinnar. En þessi kántríherma hrífur. Jafnvel Islendingar falla fyrir þessu. Amerískt lag vinnur Evróvisjón. Gamail afturkreistingur úr popp- maga miðríkjanna gengur í liðið. Ameríka þarf ekki annað en að reka við, þá gapir Evrópa í aðdáun og gefur því 12 stig. Douze point. Þegar horft er á Júróvisjón er ekki nóg að halda fýrir eyrun. Mað- ur þarf líka að taka fyrir nefið. Nema náttúrlega þegar íslenska lagið hlómar. Þá þekur mann gamla þjóðlega gæsahúðin sem þróast uppí létta hraunáferð þegar söngkonan fer upp í hálendið. Þetta er náttúrlega langbesta lagið, en það dugir ekki til. Ekki nema við og nokkrir sænskir þrestir sem fatta það. Kannski útsetningin. Eins og vantaði herslumuninn: „Fyrri hálf- leikur var ágætur ..." En hvað annað kom til greina? Ég veit það ekki. Ekki margt um djúsí drætti. Hallærisgangurinn hundraðfaldaður með tilkomu- minni þátttöku austurblolckarinn- ar. Gömlu kommarnir mættir á ballið eins og einhver gömul ástandsfrænka sem ekki var boðið í fjölskylduboðin í fimmtíu ár af því að hún var í ... veseni ... og eigin- lega bara ... vond ... en er nú hætt að drekka og svona og bara gamlir þynnkubaugar undir augum til að minna á fyrra líf. Hún er yfir sig glöð að vera boðin og belgir sig alla út í nýja fína kjólnum sínum og reynir að syngja eins og allir hinir. Króatar og Slóvakar baula um balalækinn heima. Hinsvegar fattar maður loksins af hverju keppnin er alltaf svona halló þegar formenn dómnefnda birtast í fyrsta sinn í ár á skjánum út úr sínum misrisháu höfuðborgum. Þetta skýrist allt þegar ungverksi uppgjafabóndinn og þingmaður framsóknar þar í landi, llorvath Horvathsson formaður útvarpss- ráðs, heilsar alheimi með hjart- næmum heillaóskum og telur síðan upp uppáhaldslögin sín þetta árið. Og málið skýrist enn þegar bólþæg- ustu þulur Rúmena og Litháta bæt- ast í hópinn. Fólk á uppleið sem eklci hefur tíma fyrir annað en lyftutónlist. Ameríska ballöðu- stemmningin heillar, rétt eins og hinn friðþægi og kafloðni sauð- meinlausi píanóleikari Egor Aloy- en við hljóðfærið inni í horni á barnurn á Inter-Est-hótelinu í Búk- arest. Sigríður Arnardóttir hljómaði hér í Frans líka dáldið Austur-Evr- ópulega, var skýrmælt og sein til svara, en henni til björgunarbáts var sannarlega höggmyndin „Sól- far“ sem blasti við í baksýn. Engin veit sína ævi fyrr en öll er og enn síður hvað tekur við að henni lok- inni. Jón Gunnar Árnason birtist hér (líkt og Ódysseifur) í Júróvi- sjón sem fulltrúi lands síns og atti þar kappi við ekki ómerkari lista- menn en byggingameistara Akró- pólishæðar. © FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994 35

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.