Eintak - 18.07.1994, Blaðsíða 3
GOTT FÓLK / SlA
Sameiginlegt átak sem skilar árangri
-poa pratensis-
Lágvaxin grastegund sem er mjög útbreidd í
íslenskri flóru. Kjörlendi plöntunnar er
valllendi, mýrar og hálfdeigjur en tegundin
er mjög breytileg. Vallarsveifgras er harðgerð
planta og aðlagast vel hinum
fjölbreytilegustu aðstæðum.
-betula pubescens-
Tré eða runni. Harðgerð
landnámsplanta sem þrífst í allt að
700 m hæð. Kjörlendi birkisins er
hálfgrónir melar og móar. Birki
þrífst við flestar aðstæður
Rýgresi.
-lolium multiflorum-
Einær grastegund sem þrífst vel
á láglendi og upp í allt að 400 m
hæð.
Túnvingull.
-fcstura rubra-
Grastegund. Kjörlendi túnvingulsins
er sandar og melar.Túnvingull getur
þrifist við flestar aðstæður hér á
landi.
Úr þessum poka
sprettur margt gott!
Gróðurvernd er brýnasta umhverfismál okkar
Islendinga í dag. Okkur ber skylda til að koma þessu
máli farsællega í höfn, landsins vegna og barna okkar vegna.
Viðskiptavinir Olís vinna í þessu máli af heilum hug.
Þeir fá ókeypis fræpoka frá Landgræðslunni
á næstu Olísstöð og sá innihaldinu á svæði þar sem
gróðureyðing herjar. I pokanum eru fræ planma
sem henta vel íslenskum aðstæðum.
Stöðvun uppblásturs er undirstaða þess að tré og annar gróður
ásamt dýralífi fái þrifist.
Víða sjást merki þess að vel hafi tekist til við uppgræðslu
á undanförnum árum, en fjöldamörg svæði eru enn í hættu
.. vegna gróðureyðingar.
Viðskiptavinir Olís vita hversu brýnt þetta mál er
fyrir íslenska þjóð. Komdu við á næstu Olísstöð
og leggðu landinu lið.
P GRÆÐUM LANDIÐ MEÐ
m
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ1994