Eintak - 18.07.1994, Page 4
Enn óvissa um byggingu HM-hallar
Óvenju mikið var af fólki úti á
næturlífinu á laugardagskvöldinu.
Langar biðraðir mynduðust fyrir
framan nánast alla skemmtistaði
borgarinnar. Að sögn Guðmundar
Einarssonar aðalvarðstjóra var þó
ekki meira um óhöpp en vanalega
en erilsamt að vanda.
Ástæðu þessa mikla mannfjölda
má fyrst og fremst rekja til veðurs-
ins á föstudag. Kalt var og rigning-
ardrulla í þokkabót. Er því talið að
menn hafi húkað heima á föstu-
dagskvöld en hugsað sér gott til
glóðarinnar á laugardaginn en þá
var bærilegasta veður. ©
Skipasmíðastöðin Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi
Boltinn
já ríkinu“
segir Ingibjörg Sólrún.
Enn hafa engar ákvarðanir verið
teknar í HM-málinu svokallaða, en
á föstudag tilkynnti Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri að
hugmyndir um bráðabirgðahús
væru úr sögunni vegna of mikils
kostnaðar. Ingibjörg segir að lend-
ingin í þessu máli verði að vera
sameiginlegt átak allra málsaðila,
það er borgarinnar, ríkis og aðila
tengdri ferðaþjónustu.
Tilboð ýmissa verktaka um bygg-
ingu fjölnota íþróttahúss fyrir
heimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik hafa vakið deilur að und-
anförnu. Forráðamenn handknatt-
leikshreyfingarinnar telja að nauð-
synlegt sé að reisa stórt hús til að
halda keppnina sómasamlega en
tíminn er orðinn naumur og borg-
aryfirvöld telja að kostnaður við
byggingu bráðabirgðahúss sé of
mikill þar sem fast að tvö hundruð
milljónum króna myndu ekki nýt-
ast nema í kringum keppnina.
Ingibjörg segir nauðsynlegt að
forráðamenn handknattleikssam-
bandsins átti sig á því að samið hef-
ur verið um notkun breyttrar Laug-
ardalshallar og erfitt sé því að krefj-
Fullur miðbær
á laugardags-
nótt
ast kostnaðarsamra aðgerða með
stuttum fyrirvara. „Það er alveg
ljóst að borgin fer ekki út í fram-
kvæmdir upp á 5-600 milljónir
króna ein og sér. Það er einfaldlega
ekki verjandi, sérstaklega þar sem
margir aðilar hafa beinan ávinning
af þessu máli, „ segir Ingibjörg Sól-
rún. „Boltinn er því hjá stjórnvöld-
um, ég hef ekki náð í fjármálaráð-
herra um helgina og því mun ekk-
ert gerast í málinu fyrr en á mánu-
dag. Mér dettur til dæmis í hug
hreinn virðisaukaskattur af fram-
kvæmdinni upp á yfir hundrað
milljónir króna og það mætti skoða
niðurfellingu þessa,“ segir Ingi-
björg ennfremur.
Áætlað hefur verið að hreinn
fórnarkostnaður vegna keppninnar
ef bráðabirgðahús yrði fyrir valinu
væri um 170 milljónir króna. Ingi-
björg segir því að að öllu óbreyttu
muni keppnin verða haldin í
breyttri Laugardalshöll en borgin
sé opin fyrir öllum hugmyndum og
frekari möguleikar verði ræddir
gaumgæfilega eftir helgi. ©
Fjölnota íþróttahús eins og
hugmyndir eru uppi um að
relsa við austurenda
Laugardalshallarinnar.
Samþykkt í kjölfarið á því að nýtt hlutafélag hótaði að hætta við að taka þátt í rekstri.
Hræðilegt
vinnuslys hiá
SR-mjoliá
Siglunrði
Starfsmaðurinn
kominn úrlrfshættu.
Þegar EINTAK fór í prentun var
starfsmaður SR-mjöls, er lenti í
sviplegu vinnuslysi um helgina
kominn úr lífshættu. Hann er þó
enn meðvitundarlaus og í öndun-
arvél að sögn Ingiríðar Sigurðar-
dóttur, læknis á fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri.
Slysið bar til þegar maðurinn
var að störfum í hráefnisþró verk-
smiðjunnar þar sem geymd er
loðna til bræðslu. Myndast hafði
eitrað loft í þrónni svo maðurinn
hné niður meðvitundarlaus.
Þegar komið var að manninum
var hann orðinn blár. Tveir starfs-
félagar brugðust snarlega við og
lögðu sig í lífshættu við að ná hon-
um upp úr þrónni. Þaðan var
hann fluttur rakleiðis á fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri.Vinnueft-
irlitið segir að öryggi í verksmiðj-
unni hafi verið verulega ábóta-
vant. 0
Yfirlýsing sem fulltrúar starfs-
manna skipasmíðastöðvarinnar
Þorgeirs og Ellerts hf. á Akranesi
höfðu skrifað undir ásamt nýju
hlutafélagi um rekstur fyrirtækis-
ins var bæði felld og samþykkt á
sunnudaginn.
Aðdragandi málsins er sá að
miklir rekstrarörðugleikar hafa
hrjáð skipasmíðastöðina og var
hún úrskurðuð gjaldþrota á
föstudaginn. I kjölfar þess var
stofnað nýtt hlutafélag sem
bauðst til að leigja reksturinn.
Fulltrúar þessa nýja hlutafélags,
sem er undir forystu Þorgeirs
Jósepssonar, settust á fund
með fulltrúum starfsmanna á
föstudagskvöldið. Farið var fram
á 20 prósenta kjaraskerðingu en
að sögn Valdimars Þorvalds-
sonar, formanns Sveinafélags
málmiðnaðarmanna á Akranesi,
var því hafnað. Á laugardaginn
var hins vegar komist að sam-
komulagi um yfirlýsingu sem fól í
sér afnám greiðslu 29 mínútna
óunninnar yfirvinnu og kaffihlés.
Sá fyrirvari var þó settur á að
starfsmenn þyrftu að samþykkja
yfirlýsinguna.
Nei og /á
Boðað var til starfsmannafund-
ar klukkan 10.30 á sunnudaginn.
Á hann mættu 30 manns og kol-
felldu tillöguna. Umboðsmenn
starfsmanna voru sendir á fund
hins nýja hlutafélags með þau
skilaboð að starfmennirnir vildu
óbreytt kjör. Á þetta vildu eignd-
ur hins nýja hlutafélags ekki fall-
ast og lýsti Þorgeir Jósepsson
því yfir við bæjarstjórn Akraness
að ekkert yrði af þátttöku þeirra
ef starfsmenn breyttu ekki af-
stöðu sinni. 1 kjölfarið fór nær öll
bæjarstjórn Akraness og skipta-
stjórinn, Þorsteinn Einarsson,
á fund förkólfa samstarfmanna
og gerði þeim grein fyrir að ekk-
ert yrði af frekari rekstri ef þeir
samþykktu ekki yfirlýsinguna.
Starfsmenn gáfu eftir og héldu
annan fund klukkan fjögur sama
dag. Þar voru samankomnir nær
helmingi fleiri starfsmenn en um
morguninn og var yfirlýsingin
samþykkt með yfirburðum í þetta
sinn. Að sögn Valdimars er það
hræðslan við atvinnuleysið sem
mest réði um þessa niðurstöðu
en hún jafngildi fimm prósenta
kjararýrnun. Hann tók þó skýrt
fram að yfirlýsing þessi tæki að-
eins til þriggja og hálfs mánaðar
og í millitíðinni stæði til að semja
upp á nýtt og þá kæmi ekkert
annað til greina en að fara fram á
sömu kjör.
Vonir glæðast
Fleiri stórfréttir gerðust á vett-
vangi skipasmíðaiðnaðarins í
gær. Samkomulag náðist meðal
helstu landa er stunda skipasmíð-
ar um að hætta öllum ríkisstyrkj-
um í greininni. Þorgeir Jósepsson
segir að þetta séu góð tíðindi en
þorði þó ekki að tjá sig mikið um
málið fyrr en hann hefði kynnt
sér það nánar. Þessi samningur
tekur þó líkast til ekki strax gildi
því Frakkar munu verða mjög á
móti því en um þetta var samið af
Evrópusambandinu fyrir hönd
Frakka. Þá er sá galli á gjöf Njarð-
ar að Pólverjar, Kínverjar og
Rússar eru ekki meðal þeirra sem
skrifuðu undir samninginn. Það
gerðu hins vegar Norðmenn sem
hafa verið í fararbroddi við að
ausa ríkisfé í skipasmíðastöðvar,
íslenskum skipamíðastöðvum til
mikils skaða. Norðmenn hafa
verið helstir keppinauta Islend-
inga á þessu sviði og virðist þetta
því ætla að koma skipasmíðaiðn-
aðinum á Islandi mjög til góða
þegar til lengri tíma er litið. ©
4
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994 H