Eintak - 18.07.1994, Blaðsíða 5
Óhugur ríkir meðal Siglfirðinga vegnajnnbrots smástráka í hús eldri konu
Hefmeðaumkun
meo þessu fólki
segir húseigandinn og ætlar ekki að leggja fram kæru.
Þrír tíu ára drengir hafa viður-
kennt að hafa brotist inn í hús eldri
konu á Siglufírði og hreinlega lagt
hana í rúst. Atburðurinn átti sér
stað á föstudagskvöld og var að-
koman slík að ótrúlegt þykir að svo
ungir krakkar hafi staðið að
skemmdarverkunum. Eigandi
hússins, Elín Jónsdóttir, var er-
lendis þegar verknaðurinn átti sér
stað. Hún segist ekki ætla að leggja
fram kæru gegn drengjunum þar
sem hún hafi of mikla meðaumk-
un með þeim og aðstandendum
þeirra.
Að sögn Elínar var mikið af
innbúi hússins ónýtt; búið var að
rústa sjónvarpi og útvarpi, teppi
og veggir voru ataðir málningu og
sömuleiðis sauri. Persónulegir
munir, svo sem styttur og vasar,
voru brotnir sem og flest annað
sem brotnað gat. Þau húsgögn
sem ekki voru brotin og brömluð
var búið að eyðileggja með því að
hella einhvers konar sýruvökva yf-
ir þau.
Elín segir að allir í bænum séu
orðlausir af óhug vegna þessa at-
burðar. Hún kveðst rétt kannast
við þá drengi sem hér um ræðir en
segir ekkert það hafa komið upp á
í samskiptum sínum við þá sem
tilefni gæti gefið til þessa gjörn-
ings.
Aðspurð hvort foreldrar drengj-
anna hafi haft samband við hana
svarar Elín neitandi. Faðir eins
þeirra kom þó við þegar hún var
ekki heima til að skila hlutum sem
sonur hans hafði stolið. Hann
ræddi þá lítillega við dóttur Elínar.
„Þetta fólk á alla mína samúð,
því hlýtur að líða ákaflega illa og
eiga mjög bágt.“ Elín segir það ekki
hafa neitt upp á sig að leggja fram
kæru þar sem slíkt myndi ekkert
bæta auk þess sem drengirnir séu
ekki sakhæfir. Hún hefur mestar
áhyggjur af því að fá ekki trygginga-
bætur þar sem einvörðungu innbú-
ið var tryggt en fasteignin sjálf að-
eins brunatryggð.
Elín segist ætla að reyna að láta
koma öllu í stand á ný sem fyrst en
þangað til býr hún hjá vandalaus-
um vinum í bænum. Siglfirðingar
hafa ýmsir hverjir sýnt henni sam-
hug og boðist til að hjálpa henni til
að hreinsa út úr húsinu.
62 62-62
Bjóðum ollt aó 20% afslótt af
notuóum bílum í eigu Globus fram
ab verslunarmannahelgi.
Veðrið þ essa dagana er betra en elstu menn muna
og jDjóðarskútan er að rétta úr kútnum.
Auk þess býður Bílahöllin allt að 20% afslótt af
notuðum Globusbílum fram að verslunarmannahelgi.
Er lífið ekki yndislegt?
Tryggðu þér notaðan bíl í eigu Globus meó
20% afslætti fyrir verslunarmannahelgi.
Veðrió er gott
- veróió er enn betra.
SÍMI: 674949
ÞAÐ ER OPIÐ HJÁ OKKUR:
Mónudaga til föstudaga kl. 9.00 - 18.30
laugardaga kl. 10.30 - 17.00
MÁNUDAGUR 11.JÚLÍ 1994
5