Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 18.07.1994, Qupperneq 10

Eintak - 18.07.1994, Qupperneq 10
Ragna Sæmundsdóttir Svipjóð Lilja Pálmadóttir Bandaríkin Heiðrún Anna Björns- dóttir Þjóðverjar Steinunn Olína Þor- steinsdóttir Brasilía Herdís Birna Arnar- dóttir Brasilía Ragna Sæmundsdóttir Redondo, Argentínu. Lilja Pálmadóttir Alexei Lalas, Bandaríkjun um. Heiðrún Anna Björns- dóttir Paolo Maldini, Italíu. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Romario, Brasilíu og Maradona, Argentínu. Herdís Birna Arnardóttir: Roberto Baggio, Italíu. hOn seqir HANN SEQIR Heimsmeistamr í klúðri HSÍ komi sér úr klípunni sjúlft Upp á síðkastið hefur mikið verið rætt um byggingu handboltahallar fyrir Heims- meistarakeppnina 1995. Málið er nokkuð dæmigert fyrir vinnubrögð og hugsunarhátt okkar íslendinga. Það hefur verið ljóst um nokkra tíð að keppnin eigi að fara fram hér á Iandi, en nú 10 mánuðum fyrir keppnina eru menn að fara á taugum og heimta nýja handboltahöll. Ef ég man rétt þá fékk HSI engar undir- tektir hjá Davið Oddssyni þáverandi borg- arstjóra þegar þeir fóru fram á að Reykjavík- urborg reisti handboldahöll, sem átti að vera skilyrði þess að íslendingar fengju að halda keppnina. Þrátt fyrir þetta ákvað HSI að leita allra leiða til að láta keppnina fara fram, Laugardalshöllinni skyldi breytt og skilyrði Alþjóðahandknattleikssambandsins upp- fyllt. Nú eru menn hinsvegar að gera sér grein fyrir því að uppfyfling lágmarksskil- yrðanna er ekki nóg, til að íslendingar fái miða á leikina, né til að sómi og meiri hagn- aður verði af keppninni. Það er auðvitað ákaflega dæmigert fyrir það, hversu framsýn og skipuleg þjóð við er- um, að skömmu fyrir keppnina er allt óljóst um það hvert skuli stefna í húsnæðismálum hennar. Það er líka í meira lagi hjákátlegt að lesa bókun minnihluta Sjálfstæðismanna um seinagang í afgreiðslu málsins, þegar hugsað er til þess að þeir höfðu alla mögu- leika sem ráðandi flokkur í borginni og rík- isstjórnarflokkur, til að koma málinu far- sællega í höfn, meðan enn var nægur tími til stefnu. Núverandi meirihluti í borgarstjórn hefur tekið skynsamlega á málinu. Það er alveg ljóst að það væri í meira lagi óábyrg stjórn borgarinnar, sem ákvæði að redda málinu, hver sem kostnaðurinn yrði. Tilboð borgar- innar er í rausnarlegt og ríkisstjórnin ætti að sjá sóma sinn í — ef einhver vilji er til að bjarga keppninni — að taka tilboðinu. Hitt er svo annað að staðan á ekki að koma HSÍ á óvart. Þeir tóku að sér að halda keppnina þrátt fyrir að ekki væri komið til móts við kröfur þeirra og fyrir vikið eiga þeir auðvit- að ekki heimtingu á því að aðrir komi þeim til bjargar. Á hitt ber að líta að sá aðili sem hagnast mest á keppninni er auðvitað ríkið sjálft og því ekki óeðlilegt að ríkisstjórnin komi að málinu á einhvern hátt. Eftir stendur auðvitað að íslendingar verða að læra í eitt skipti fýrir öll að það gengur ekki lengur að gera endalaust út á Guð og lukkuna, hvort sem þeim er ætlað að sjá um efnahagsmálin, umferð til og frá Þingvöllum eða handboltamót. Við verðum að læra að horfa fram í tímann og taka skipulega á hverjum þeim vanda og hverju því verkefni sem við tök- umst á við. Á það hefur skort á. flestum hliðum þjóðlífsins og á það hef- ur skort við undirbúning þessarar keppni. Núverandi borgarstjórn Reykjavíkur hefur gengið þannig frá málinu af sinni hálfu, að hvernig sem allt fer verður ekki við hana sakast. Úr því sem komið er ættu menn að reyna að taka höndum saman og koma í veg fyrir að við verðum okkur til skammar. Boltinn er hjá ríkisstjórninni. © Heimsmeistarakeppn- in í fótbolta er búin, en í sama mund er Heims- meistarakeppnin í hand- bolta að komast í ein- daga. Sá vandræðagang- ur allur hefur ekki verið lítill fram að þessu, en ég spái því að nú fyrst sé vitleysan að byrja fyrir alvöru. Það væri reyndar full ástæða til þess að rifja þessa sorgarsögu alla upp, en ég bara man hana ekki alla og lái mér hver sem vill. Handbolti er vafalaust göfug íþrótt, að minnsta kosti fyrir þá, sem iðka hana, en það segir sína sögu um óvinsældir handboltans á heims- vísu, að íslendingar geta talið sig framar- lega í flokki jafningja í greininni. En hvers vegna í ósköpunum er verið að halda heimsmeistarakeppni hér þrátt fyrir að öllum — alveg öllum — hafi verið ... Ragnhildur Vigfúsdóttir Handboltahöll hreint öldungis ljóst að tslendingar væru engan veginn í stakk búnir til þess að halda hana? Ástæðan er einföld. Þessu olli mikil- mennskubrjálæði örfárra einstaklinga í framvarðasveit Handknattleikssambands íslands (HSÍ), sem bitu það í sig að þeir skyldu halda heimsmeistarakeppni á ts- landi hvað sem það kostaði. Álveg sama hvað það kostaði, því það stóð aldrei til að þeir þyrftu að standa straurn að kostnaðin- um sjálfír, enda sambandið á barmi gjald- þrots. Það var ekki ómerkilegasti þáttur þessa samsæris, að það var keyrt í gegn að fá hingað eitt stykki heimsmeistarakeppni og hin og þessi stjórnvöld kúguð til þess að spila með og borga brúsann. Finnst engum neitt skrýtið að þessir karlar hjá HSt hafa aldrei minnst á að þeir geri eitthvað til þess að byggja sér hús eða gera aðrar þær ráð- stafanir, sem tækar væru? Þeir hafa verið eins og hrínandi dekurbörn og látið eins og hver sá stjórnmálamaður, sem ekki vill taka þátt í þessum darraðadansi, sé föðurlands- svikari eða eitthvað þaðan af verra. Á sama tíma hefur aldrei verið minnst á annað en að tekjurnar af heimsmeistara- keppninni skuli renna óskiptar í vasa HSÍ. Þetta gengur náttúrulega ekki. Næst gæti Frjálsíþróttasambandið boðið í Ólympíu- leikana og hvar stæðu Reykjavíkurborg og ríkið þá? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri á lof skilið fýrir að hafa tekið í taum- ana þrátt fyrir mikinn þrýsting. Mín vegna mætti hún ganga enn lengra og segja þess- um körlum að éta það sem úti frýs. Þeir sóttu um og fengu keppnina og þá eiga þeir líka að klára hana, án þess að grenja út pen- inga úr vösum illa stæðra skattborgara. Ég er almennt með miklar efasemdir um opinberan fjáraustur til þess að niður- greiða áhugamál fólks, burtséð frá því hvort fólk hefur áhuga á sinfóníum, fall- hlífastökki eða handbolta. Sjálfur hef ég mikinn áhuga á fótbolta og ég borga líka fýrir þann áhuga fullu verði. Ég skil hins vegar þau rök sumra að borgaryfirvöld skuli styrkja íþrótta- og æskulýðsstarf, en þá verður að verja því fé skynsamlega þannig að það nýtist, sem flestum. Bygging fokdýrra minnisvarða um snælduvitlausa forystu HSt fellur ekki undir slíkt. 0 MÁNUDAGUR 18. JÚLl' 1994 J

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.