Eintak - 18.07.1994, Page 14
í blaða- og bókabúðum landsíns er að finna ótrúlegan 1]ölda alls kyns blaða og tímarita. Hér á árum áður voru menn heppnir ef þeir gátu fengið Se & her og
Hjemmet, en nú er öldin önnur. Slegið hefur verið á að alls sé um 1.200 erfend tímarit að velja og á hverju ári bætast fieiri ný við en falla út. Rokkarnir eu ótelj-
andi. Fyrir utan fréttatímarit almenns eðlis eins og Newsweek og Time eu á boðstólum sérfræðitímarit um allt milli himins og Jarðar. Allt frá stjörnufræði til
stjörnuspeki. Blöð fyrir áhugafólk um megun og blöð fyrir áhugafólk um stór brjóst. Andrés Magnússon og Björn Malmquist fengu starfsfólk bókaverslunar
Eymundsson í lið með sér og ffettu broti af því besta.
.45 Firepower
Þetta er byssublað, sem er ansi
sérhæít. Eins og nafnið gefur til
kynna er nefnilega aðeins fjallað
um skammbyssur með hlaupvídd-
inni .45, en slíkar byssur eru ein-
ungis ætlaðar til þess að drepa fólk
fljótt og auðveldlega. I blaðinu má
lesa dóma um hinar aðskiljanlegu
byssutegundir af þessarri hlaup-
vídd, umfjöllun um skotfæri og svo
framvegis.
The Advocate
hið elsta fyrir homm
Bandaríkjunum. Það fjallar um allt
milli himins og Jarðar, en ávallt frá
sjónarhorni homma og iesbía. Það
er hvass tónn í blaðinu, en það er
ekki jafnöfgasinnað og mörg önnur
blöð, sem sérstaklega eru ætluð lítt
kynvísu fólki.
Bloody best of Fang-
oria
Sumir fara í bíó til að sjá stjörn-
urnar sínar. Sumir fara til að hitta
fólk og enn aðrir af því þeir nenna
ekki að vera heima hjá sér. En þeir
eru einnig til sem fara í bíó til að
láta hárin rísa og sjá bíóðið (tómat-
sósuna) slettast. Síðastnefndi flokk-
urinn les Fangoria, sem er eins
konar fagtímarit áhugamanna um
„splatter“ kvikmyndir. Þarf að segja
meira?
Business Traveller
Nafn blaðsins skýrir efni þess
nær fullkomlega, en í þvi er að
finna alls kyns ráðleggingar til við-
skiptaferðaíanga. Forsíðugreinin er
um misháa flugvallarskatta, flugfé-
lög fá einkunnir, ráðlagt er um bíla-
ieigur, hótel, bari oa hvaðeina, sem
gefa þarf gaum á ferðalögum um
heiminn.
Busty
Þetta er ómissandi sérrit fyrir
áhugamenn um stór brjóst. Blaðið
er gefið út af hinu virta klámriti
Hustler og fjallar í raun aðeins um
þennan eina hluta kvenmannslík-
amans. Hins vegar má draga í efa
fegurðarskyn ritstjóranna, sem
setja magn í beint samhengi við
gæði.
Diet & Exercise
Greinilega kvennatímarit. Á for-
síðunni pósar Cindy Crawford
sem erkitýpa mjósleginna kvenna.
Reyndar er forsíðan og baksíðan
einu litsíðurnar í blaðinu; allt ann-
að minnir einna helst á slúðurblöð-
in; fréttir af fallegum og grönnum
kvikmyndastjörnum, sem ijóstra
því upp hvernig þær eru svona
grannar og óteljandi leiðir til að
missa aukakílóin. En blaðið fær þó
plús fyrir að leggja áherslu á lík-
amsrækt í staðinn fyrir galdrakúra.
Hins vegar fær það mínus fyrir
ótrúlega ljótt útlit.
The Economist
Þrátt fyrir nafnið fjallar blaðið
ekki sérstaklega um hagfræðileg
málefni, heldur er það einfaldlega
langbesta vikulega fréttablað í
heimi. Það er ekki myndaskreytt í
líkingu við Newsweek og Time og
það er með fremur óspennandi út-
lit, en það er hundrað sinnum bet-
ur og skemmtilegar skrifað en hin
blöðin til samans. Það er líka evr-
ópskara, enda breskt.
Elegant Bride
Þetta er eitt af fjölmörgum blöð-
um, sem sinnir sérstaklega verð-
andi brúðum. Blaðið ber vitaskuld
merki þess að lesendurnir eru í
flestum tilvikum að lesa blaðið í
fýrsta og síðasta sinn og hefur ekki
einu sinni fyrir því að auglýsa eftir
áskrifendum. Blaðið fjallar um
brúðarkjóla, ráðleggingar fyrir
veisluna og svo framvegis. Hið eina
sem vantar í blaðið eru auglýsingar
frá skilnaðarlögfræðingum.
Entrepreneur
Eins og nafnið bendir til, er þetta
fagtímarit þeirra sem reka lítil fyrir-
tæki, eða hafa hug á að eignast eitt
slíkt og vilja vera frumkvöðlar.
Seinni hópurinn, að minnsta kosti
þeir sem búá í Bandaríkjunum, fá
væntanlega eitthvað fyrir snúð
sinn, því í blaðinu eru skráð 650
fyrirtæki sem eru til sölu þar í landi.
Nú er bara að hringja, þeir eru við
símann — núna.
Fly Fisherman
Hafi maður meiri áhuga á fisk-
um en fuglum, getur þetta blað ver-
ið það rétta. En — augnablik. Ef
lesandinn notar spún, getur hann
gleymt þessu blaði, því það er að-
eins fyrir þá eðlu fiskimenn, sem
berja vatnið með svokölluðum
flugum. Og hvað er svo að finna í
blaðinu? Jú, lýsingar á veiðistöðum,
leiðbeiningar um hvernig á að kasta
og svo auðvitað auglýsingar fyrir
flugur, stangir og allt annað sem