Eintak

Útgáva

Eintak - 18.07.1994, Síða 18

Eintak - 18.07.1994, Síða 18
Mánudagur P O P P Smuraparnir leika á mánudagsdjasskvöldinu á Sólon íslandus. Kynning á Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum á Gauki á stöng. Meöal annars koma fram hljóm- sveitirnar Kviksand Jesus og Upplyfting. BAKGRUNNSTÓNLIST Paula syngur á Café Romance og spilar á pí- anó. Trúbadorinn Jói Bald spilar á Fógetanum og fólk tekur undir fullum hálsi. F U N P I R Dr. Robert L. Selman heldur fyrirlesturinn .The Risky Business of Growing Up Social" í stofu 101 í Odda kl. 17:15. Dr. Selman er heimsþekktur sálfrædingur fyrir kenningar sínarog rannsóknirá félagsþroska barna og unglinga. Sem prófessor við Harvard Medical School hefur hann veitt skóla for- stöðu fyrir börn og unglinga sem eiga við sérstaka tilfinningalega og félagslega erf- iðleika að stríða. í Þ R Ó T T 1 R Fótbolti I kvöld fer fram heil umferð 1 annarri deild karla í knattspyrnu. Þá leika Þróttur Nes- kaupstað og Selfoss, HK og KA, ÍR og Víkingur, Fylkir og Þróttur R. og Leiftur gegn Grindvíking- um. F E R Ð I R Utivist - Hornstrandir Gengið milli Hornvík- ur og Reykjafjarðar. Þetta ersjö daga gönguferð fyrir hörkutól. Þátttakendur þurfa að bera allar nauðsynjar á bakinu, þar með talið húsnæði og mat. Erfið gönguferð um fallegt svæði. Sennilega svitans virði. Ferðalangar fara með Fagra- nesinu frá ísafjarðarbryggju kl. átta, þann- ig að það eru seinustu forvöð. Útivist - Laugavegurinn Klassísk gönguleið milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Fjög- urra daga gönguferð og gist í skálum. Lagt verðurafstað snemma í dag frá BSÍ svo það er um að gera að drífa sig. Fallegt landslag, mikil fjölbreytni og hæfilegar dagleiðir gera þessa leið næstum full- komna fyrir náttúruunnendur af öllum stærðum. SJÓNVARP RIKISSJONVARPID 18.15 Táknmálsfréttir 18.25 Töfraglugginn Af einhverjum óskilj- anlegum ástæðum þykir ástæða til að endursýna þáttinn frá því á fimmtudaginn. Pála pensill pirrandi að vanda. 18.55 Fréttaskeyti Bogi Ágústsson reynirað breiða yfir að það er ekkert í fréttunum klukkan átta. 19.00 Hvutti Þáttur um strák íhundsliki 19.25 Undir Afrfkuhimni Þáttur undir Afríkuhimni. Nú eru bara 22 þættir eftir. 20.00 Fréttir og íþróttir 20.40 Veður 20.45 Gangur lífsins Bandarisk væmniaf versta tagi. Stelpuálka og gleraugnaglám- ur sýnir óþolandi tilburði við leik sinn líkt og venjulega. 21.35 Sækjast sér um líkir Meintur gamanþáttur sem er næg ástæða út af fyrir sig til þess að vera á móti af- notagjöldum RUV. 22.05 Tískan hennar Fil- ippíu Sæt tískusýning í Kolaportinu. 22.30 Svarthvít og þögul sænsk- rússnensk gaman- mynd. Þarfað segja eitthvað meira?23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok. Martröð frétta- mannsins: Halda úti tveimur fréttaþáttum á dag í landi þar sem engin býr og ekkert gerist. STÖB 217.05 Nágrannar Vonlaus sögu- þráðurog velgjukennd væmni. 17.30 Spé- koppar 17.50 Andinn I flöskunni 18.15 Tán- ingarnír í Hæðargarði Gelgjugums og graft- arbólur. 18.45 Sjónvarpsmarkaöurinn 19.19 19:19 Elin Hirst gerir örvæntingarfulla til- raun tilað sannfæra landslýð um að það sé eitthvað nýtt í fréttum. Það mistekst eins og venjulega 20.15 Neyðarlínan Allt í iagi að horfa á þetta til þessað komast að þvi hversu allt er vont utan íslands. Svo má hlæja að öllum grenjuskjóðunum í „Fólkið hérna er afskaplega vina- legt og það kom okkur á óvart hversu margir tala þýsku. Annars gátum við alltaf bjargað okkur á ensku.“ Hjónin Wolfgang og Erika Schlor frá Austurríki, hafa verið hér í tvær vikur og ferðast um landið á bílaleigubíl. „Verðlagið hérna er auðvitað fáránlegt en það vissum við svo sem fýrir,“ segir Erika. „Dóttir okkar ferðaðist hér um landið með bakpokann sinn fyrir nokkrum árum og hefur síðan verið að sýna okkur myndir héðan og þaðan af landinu. Þessar myndir heilluðu okkur gjörsamlega og náttúran hérna og landslagið hefur ekki valdið okkur vonbrigðum. Margir vinir okkar í Vín, þar sem við búum, hafa einnig komið hing- að og þeir hafa einnig verið að hvetja okkur til að fara til íslands," bætir Wolfgang við. Eins og í sögu Þessi vinalegu austurrísku hjón eru að koma út úr minjagripaversl- un í miðbænum, þegar blaðamað- ur og ljósmyndari EINTAKS taka þau tali. Þau láta vel af dvölinni og segja engin vandræði hafa komið upp á, enda hafi þau aðeins hitt Is- lendinga sem voru boðnir og búnir til að aðstoða þau á alla lund. „Einu vandræðin sem við lentum í voru raunar á leiðinni hingað,“ segir Wolfgang. „Við þurftum að bíða eina nótt í Munchen, vegna þess að bilun kom upp í flugvélinni okkar. Annars hefur allt gengið eins og í sögu.“ Erika segir að þau hafi keyrt hringveginn og gist á Edduhótel- unum. „Þar var vel að okkur búið og mér fannst maturinn sérstaklega góður. Við gerðum mikið af því að komast á staði sem við höfðum séð á myndum; komum í Skaftafell og Þórsmörk og fórum þar í labbitúra og urðum svo sannarlega ekki von- svikin. Þið Islendingar búið í fal- legu og hreinu landi og eigið að passa vel upp á það,“ segir hún. Og þar með kveðjum við. O Hljómsveitin Marsipan kemur fram á veitingahúsinu Tveimur vinum á föstudagskvöldið og þreyt- ir þá frumraun sína á hljómleika- sviðinu. Marsipan hefur æft und- anfarna tvo mánuði og leikur rokk- að popp. „Hljómsveitin varð þannig til að ég var að taka upp lög eftir mig með Óttari Proppé og Höskuldi Ól- afssyni söngvara en hann hafði verið í hljómsveitinn Wool,“ segir Barði Jóhannsson gítarleikari. „Okkur Höskuldi langaði til að spila meira saman og fengum hina til liðs við okkur en þeir eru flestir líka úr Wool. Ég tók lögin bara upp fyrir sjálfan mig. Þau verða bara undir minni vörslu nema einhver hringi og bjóðist til að gefa þau út.“ Þess skal þó getið að Wool er ekki hætt. En auk Barða og Hösk- uldar skipa Marsipan þeir Þórhall- ur Bergmann pianóleikari, Björn Agnarsson bassaleikari og Orri Dýrason trommuleikari. Að sögn Orra varð Marsipan- nafnið fyrir valinu því það er al- þjóðlegt, fer vel í munni og höfðar til allra. O Þossi plötusnúður Ofnæmið mitt hlé í bíó Ameríku. 21.05 Gott á grillið íslenska fjalla- lambið jarmar eymdarlega á grillinu hjá eiturbrösurum stöðvarinnar. 21.40 Sein- feld 22.05 Saga Troys Saga um strák sem fær alnæmi. Þunglyndislegur þáttur og böl alnæmis. 22.55 Börnin frá Liverpool Breskur framhaldsþáttur. Það jákvæða við hann er að hann er aðeins í tveimur hlut- um. 00.35 Dagskrárlok Þriðjudagur P O P P Stuðgrúppan Alvara spilar fyrir sprelli. BAKGRUNNSTÓNUST Trúbadorlnn Jói Bald úr Búðardal spilará gitarinn sinn og syngur með sem og allir gestir Fógetans. K L A S S í K I Listasafni Sigurjóns Olafssonar leika þau Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari og David Tutt píanóleikari kl. 20:30. Samstarf þeirra hófst i Listaháskólanum í Banffþar sem þau dvöldust eitt sinn bæði sem styrkþegar. Þau léku síðast saman hér á landisumarið 1991. F U N P I R Alvaro Siza talar um portúgalska stað- hætti og eigin verk í Norræna húsinu kl. 20:00. Fyrirlesturinn erá vegum ISARK. í Þ R Ó T T I R Golf / dag heldur Golfklúbbur Dalvikur GHD, opíð 18 holu kvennamót með og án forgjafar. F E R Ð I R Ferðafélag Islands - Laugavegurinn Enn og aftur. Nokkur pláss eru ófyllt Iþessari ferð sem byrjar við BSÍ kl. 08.00. Gangan byrjarí Landmannalaugum og endar, eins og alltaf, í gróðurvininni í Þórmörk, fjór- um dögum síðar. Ein vinsælasta göngu- leið landsins. Fyrir áhugasama erbentá möguleikann á þvíað halda áfram niður

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.