Eintak

Tölublað

Eintak - 18.07.1994, Blaðsíða 24

Eintak - 18.07.1994, Blaðsíða 24
Markalaust þar til í vítaspyrnuKeppni Ótrúleg deyfðqg Blikaráfram Það var Guðmundur Hreiðars- son, markvörður Breiðabliks, sem var hetja sinna manna í víta- spyrnukeppni Blika og Keflvíkinga á fimmtudagskvöld. Eftir marka- lausan leik og framlengingu varð að grípa til vítaspyrnukeppni og í henni varði Guðmundur eina spyrnu auk þess sem Óli Þór Magnússon skaut í stöng Blika- marksins. 1 heild var leikur- inn ótrú- -fK lega leið- inlegur og með ólík- indum að þar færu lið úr 1. deild. Keflvík- ingarnir voru þó betri aðil- inn, en \ þeim var algjörlega fyrirmun- »fÍi/þ að að koma knettinum m.t í mark andstæð- inganna og því fór sem fór. © hylkismenn vorðust vel og komast áfram Ótrúlegt lánleysi Leifturs- manna Fylkismenn eru komnir áfram í átta liða úrslit mjólkurbikarsins eft- ir 2:0 sigur þeirra á Leiftursmönn- um á Ólafsfirði á fimmtudags- kvöld. Vart verður sagt um Fylkismenn að þeir hafi ekki nýtt færin sín því þau voru vart fleiri en mörkin tvö, sem þeir skoruðu í leiknum. Leifit- ursmenn voru mun betri aðilinn í leiknum en lykillinn felst í mörk- unum og á því sviði urðu þeir und- ir í þessum leik. Mörk Fylkismanna skoruðu þeir Þórhallur Dan Jóhannesson og Kristinn Tómasson og lék Ómar Bendtsen sinn fyrsta leik með lið- inu eftir skiptin frá KR, en Ómar kom inn á í leiknum sem varamað- ur í seinni hálfleik. O IA - KR 0:1 Izudin Daði Dervic (42.) (A: Þórður Þórðarson - Stur- laugur Haraldsson, Ólafur ^Adolfsson, Zoran Miljkovic, Sigursteinn Gíslason - Kárí Steinn Reynisson (Stefán Þ. Þórðar- son 78.), Alexander Högnason, Ólafur Þórðarson, Haraldur Ingólfsson - Ma- hajlo Bibercic, Bjarki Þétursson (Karl Þórðarson 65.) KR: Kristján Finnbogason - Þormóður Egilsson, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Izudin Daði Dervíc - Heimir Guð- jónsson, Hilmar Björnsson, Rúnar Kristinsson, James Bett, Einar Þór Daníelsson - Tryggvi Guðmundsson, Salih Heimir Porca (Tómas Ingi Tóm- asson 73.) Áminningar: Hilmar, Heimir, Tyrggvi, Óskar hjá KR og Ólaf- ur og Sigursteinn hjá ÍA. Maður leiksins: Rúnar Krist- insson, KR. 24 port Dómararnir í bikarkeppninni Hveijir eru þeir? Kristinn Jakobsson dæmir fyrír KR. Fæddur 17. júní 1969 og tók dóm- arapróf 1989. UMFG - FH: Kristinn er einn efnileg- asti dómari landsins og dæmir venjulega vel. Lítið bar á honum í þessum leik og veit það á gott en kannski má segja að Jankov- ic hafi átt að fjúka út af fyrir mjög Ijótt brot á Andra Mar- teinssyni. Bragi B. Bergmann dæmir fyrir Ungmennafélagið Árroðann á Árskógsströnd. Fæddur22. október 1958 og tók 1973. UBK - ÍBK: Bragi er einn þeirra semannað hvort eiga góðan leik eða vondan, það er ekkert þar á milli. Þessi leikur var svo leiðin- legur og ró- legur í tíðinni að ekki er hægt annað en að hrósa Braga fyrir dómgæsluna. Sæmundur VÍGLUNDS- SON dæmir fyrir ÍA. Fæddur 17. október 1957 og tók dóm- arapróf 1981. Valur - Fram: Komst mjög vel frá leiknum og dæmdi vel. Gerir fá mistök og beitir hagn- aðarreglunni ágætlega. Einu mistökin voru líklega þau að gefa ekki spjald þegar brotið var illa á Guðmundi Steinssyni. Sæmundur hefur það sér til málsbóta að hann dæmdi ekk- ert á brotið, Frammarar héldu boltanum, brunuðu upp og skoruðu. Hann hefði hins vegar vel mátt spjalda eftir markið, en það eru bara smámunir miðað við leikinn íheild. Gylfi Orrason dæmir fyrir Fram. Fædd- ur 3. des- ember 1959 og tók dóm- arapróf 1981. ÍA - KR: Hef- ur oft dæmt betur og missti stundum tökin á leiknum, en aldrei verður sagt um Gylfa að hann sé ósann- gjarn og haldi með öðru hvoru liðinu. Þetta var einfaldlega stórleikur og mjög mikilvægur og því verður lítið sett út á störf Gylfa hér. Gísli Guð- MUNDSSON dæmir fyrir Val. Fæddur 24. maí 1947 og tók dómarapróf 1976. Þróttur R. - ÍBV: Komst skammlaust frá leiknum og fær því ágætiseinkunn. Þótt rangstöðulykt hafi verið af einu marki heimamanna verður ekki við Gísla sakast heldur línuvörð- inn. JÓN SlG- URJÓNS- SON dæmir fyrir Stjörnuna. Fæddur 2. september 1957 og tók dóm- arapróf 1976. Víkingur - Þór: Fékk ekki að dæma stór- leikinn uppi á Skaga og var settur á þennan ístaðinn. Stóð sig ágætlega, enda pressan ekki mikil og áhorfendur miklu færri og hljóðlátari. Jón er nokkuð efnilegur og hans tími mun koma. KR-ingar börðust betur og uppskáru sigur Meistammir úr ieik Björn Ingi Hrafnsson og Sigurgeir Sveinsson skrifá Baráttan var í fyrirrúmi uppi á Skipaskaga á föstudagskvöld í stórleik sextán liða úrslita Mjólk- urbikarkeppninnar, leik ÍA og KR. Baráttuleysi KR-inga í undanförn- um leikjum var ekki til staðar og menn börðust vel fyrir hvern ann- an og liðið í heild. Skagamenn náðu hins vegar ekki að sýna sinn besta leik, liðið saknaði greinilega Sigurðar Jónssonar, sem enn er meiddur, og sóknir liðsins voru ekki nægilega beittar. í upphafi leíks komu Skaga- menn ákveðnari að því er virtist. Liðið átti nokkrar sóknir í byrjun, en smám saman fóru KR-ingar að láta meira tii sín taka og það sem eftir lifði hálfleiksins voru þeir miklu betri aðilinn. Eina mark leiksins kom einmitt undir lok hans, Izudin Daði Dervic negldi boltanum þá í hornið fjær eftir laglega sendingu Salih Heimis Porca. í seinni hálfleik voru Skaga- menn mun sterkari aðilinn en áttu í miklum vandræðum með að ógna Vesturbæjarliðinu, sem varðist mjög vel. Skipunin frá Guðjóni Þórðarsyni var greini- lega sú að halda forystunni og verjast vel og það tókst, miðja og vörn KR-inga stóð sig vel og því var sigurinn aldrei í verulegri hættu. Skagamenn eiga greinilega í ein- hverri krísu þessa dagana. Fjarvera Sigga Jóns er auðvitað missir fyrir liðið en betur má ef duga skal og venjulega hafa menn komið í manns stað hjá Skagaliðinu. Bar- áttan er ekki sú sama og áður og framlínan ekki nægilega ógnandi. Hörður Helgason verður að taka mannskapinn í gegn og ná upp fýrri stemmningu. Liðið hefur nú tapað tveimur leikjum á heima- velli í röð og ef leikurinn gegn FFI í vikunni vinnst ekki er komin upp undarleg staða. KR-liðið barðist hins vegar vel í leiknum og átti sigurinn fyllilega skilið. Stemmningin í liðinu var miklu meiri en í undanförnum leikjum og sigurviljinn ljós frá fyrstu mínútu leiksins. Sú breyting að gera Þormóð Egilsson að fyr- irliða í stað Rúnars Kristinsson- ar skilaði greinilega sínu og Rún- ari leið greinilega mun betur með minni ábyrgð á bakinu og einbeitti sér meira að því að gefa góðar sendingar og hjálpa til á miðjunni. KR-ingar sýndu það í þessum leik að þeir geta gert góða hluti á góð- um degi. Hugarfarið hefur verið helsti veikleiki liðsins í sumar og ef Guðjóni þjálfara hefur tekist að laga það er liðið til alls víst í fram- tíðinni í næstu leikjum. © MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.