Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 18.07.1994, Qupperneq 25

Eintak - 18.07.1994, Qupperneq 25
iiddist ii :ram ogl velli. Hé1 iiðsins yj unnustaI áhyggl Valur - Fram 2:5 Eiður Smári Guðjohnsen 2. - Ríkharður Daðason 2, Hólm- steinn Jónasson, Kristinn Haf- liðason, Helgi Sigurðsson. = Lið Vals: Lárus Sigurðsson ’ - Bjarki Stefánsson, Guðni Bergsson, Kristján Hall- dórsson - Jón Grétar Jóns- son, Atli Helgason, Ágúst Gylfason, Hörður Már Magnússon, Sigurbjörn Hreiðarson(Einar Birgisson) - Kristinn Lárusson(Guðmundur Brynjólfsson), Eiður Smári Guðjohnsen. £^ft*|Lið Fram: Birkir Kristinsson UHfcl - Helgi Björgvinsson, Pétur Sf Marteinsson, Ágúst Ólafs- son(Guðmundur Steins- son), Gauti Laxdal (Anton Björn Markússon) - Hólmsteinn Jónasson, Valur Gíslason, Steinar Guðgeirsson, Kristinn Hafiiðason - Ríkharður Daða- son, Helgi Sigurðsson. Áminnigar: Guðni Bergsson Val - Valur Gíslason Fram Dómari: Sæmundur Víglunds- son dæmdi mjög vel. Maður leiksins: Ríkharður Daðason. ’GGJA tinn Lárusson í leik Vais og ir borinn af ■tumrar læknir Kristni og á ans fylgist M full meö. m Markaregn 'ó var skorað af falleg mörkum í slag Reykjavíku isanna Fram og KR á föstudags- kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen oraði tvö mörk fyrir Val og hér hann íbaráttu við Frammarann Pétur Marteinsson Dramatísk umskipti á Hlíðarenda Framarar unnu Valsmenn 5 - 2 í Mjólkurbikamum. „Það skiptir ekki máli hvað við fáum mörg mörk á okkur á meðan við skorum fleiri en andstæðingur- inn. Við fáum alltaf á okkur tvö til þrjú mörk í leik, sama hversu stífan varnarleik við leikum, svo við tók- um bara mann úr vörninni, bætt- um í framlínuna, og spiluðum brjálaðan sóknarbolta,“ sagði Pét- ur Marteinsson, aftasti maður Framvarnarinnar, eftir 5-2 sigur þeirra á Val í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar. Leikur liðanna s.l. föstudags- kvöld var mjög skemmtilegur á að horfa enda litu sjö mörk dagsins ljós, auk fjölda færa. Valsmenn voru miklu sterkari í fyrri hálfleik, skoruðu tvö mörk og óðu í færum. Framarar voru hins vegar eins og álfar út úr hól og það var engu lík- ara en þeir væru eingöngu á staðn- um til að vera viðstaddir eigin út- för. I síðari hálfleik snerist dæmið hins vegar við, en þá voru Framarar í híutverki grafarans og jörðuðu Valsmenn. Fyrsta markið kom strax á 8. mínútu. Kristinn Lárusson sendi þá fallega fyrir markið, Eiður Smári Guðjohnsen var á undan Ágústi Ólafssyni, renndi sér boltann og skoraði. Stuttu síðar jöfnuðu Fram- arar. Hólmsteinn Jónasson tók þá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, boltinn fór í varnarmann, breytti um stefnu og hafnaði efst í mark- horninu — Overjandi fyrir Lárus Sigurðsson markvörð. Valsmenn sóttu stíft og á 21. mínútu náðu þeir forystunni. Sigurbjörn Hreiðars- son átti þá fallega sendingu upp í hornið, Jón Grétar Jónsson gaf fyrir á Eið Smára, sem umkringdur fjórum varnarmönnum setti bolt- ann í netið. Framarar voru nálægt því að jafna tveimur mínútum síð- ar. Rikharður Daðason átti þá gott skot að marki Valsmanna en Lárus markvörður náði að slæma fætinum í boltann og framhjá fór hann. Það sem eftir liíði hálfleiksins var um einstefnu Valsmanna að ræða og þeir fengu mörg gullin tækfæri til að bæta við mörkum. Besta færið átti Hörður Már Magnússon þcgar hann á óskiljan- legan hátt skaut himinhátt yfir markið. Framarar fengu fyrsta færið í síð- ari hálfleik en Gauti Laxdal beið of lengi með að skjóta og það rann út í sandinn. Á 60. mínútu skiptu Framarar um leikmann. Guð- mundur Steinsson kom þá inn á fyrir Ágúst Ólafsson og hafði það góð áhrif á leik liðsins. Framarar jöfnuðu metin á 67. mín. Kristinn Hafliðason hljóp þá með boltann upp hálfan völlinn, lét skotið ríða af við vítateiginn og skoraði. Ríkharð- ur Daðason kom svo Fram 13-2 aðeins tveimur mínútum síðar eftir sendingu frá Helga Sigurðssyni. Og nú voru Framarar einráðir á vellinum. Á 75. mínútu skoraði Ríkharður annað mark sitt í leikn- um. Guðmundur Steinsson snéri þá laglega á einn varnarmanna Vals við endalínu, renndi út á Hólm- stein sem hitti boltann illa. Knött- urinn barst til Ríkharðs, sem af- greiddi hann í netið. Fimmta og síðasta markið skoraði Helgi Sig- urðsson og verður að skrifa það al- farið á Lárus Sigurðsson markvörð. Anton Björn Markússon, sem var nýkominn inn á sem varamaður, gaf þá háan bolta inn fyrir vörn Vals. Lárus markvörður, sem var í skógarferð rétt utan teigs, hikaði. Helgi náði boltanum og var ekki í vandræðum með að skora í autt markið. Eins og áður sagði voru hálfleik- arnir hjá liðunum eins og svart og hvítt. Valsmenn miklu betri í fyrri hálfleik, en Framarar í þeim seinni. Það vakti athygli að Kristinn Björsson þjálfari Valsmanna gerði engar ráðstafanir til að styrkja vörnina þegar Marteinn Geirsson skipti Guðmundi Steinssyni inn á 60. mínútu og fjölgaði þannig framlínumönnunum úr tveimur í þrjá. Ríkharður Daðason var bestur í liði Fram, skoraði tvö mörk og var mjög ógnandi. Eins var Steinar Guðgeirsson góður og Valur Gislason spilaði mjög vel eftir að hann var færður aftur í vörnina. Hjá Valsmönnum stóð Eiður Smári upp úr að vanda og eins var Krist- inn Lárusson sterkur. 0 Þróttarar óheppniri Eyjamenn unnu í framlengingu. Markasúpa á Víkingsvellinum! Tíu mörk f einkennilegum leik. Það leit lengi vel út fyrir að Vík- ingar yrðu teknir í bakaríð í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninn- ar. Þórsarar skoruðu fjögur mörk í fyrri hálfleik og fengu auk þess fjöldamörg dauðafæri sem ekki nýttust. Það varð þó ekki raunin, því Víkingar vöknuðu til lífsins í síðari hálfleik og skorðu þá fjögur mörk gegn tveimur mörkum Þórsara. Fyrsta markið kom strax á 6. mínútu leiksins. Bjami Svein- björnsson skoraði þá eftir lagleg- an undirbúning Ormarrs Ör- lygssonar. Bjarni skoraði aftur stuttu síðar eftir laglega samvinnu við Guðmund Benediktsson. Lárus Orri Sigurðsson setti þriðja markið og Bjarni Svein- björnsson það fjórða. Það var líkt og allt annað Vík- ingslið hæfi síðari hálfleikinn en þann fyrri. Strax á fyrstu mínút- um hálfleiksins skoraði Óskar Óskarsson fýrir Víkinga. Þórsar- ar settu síðan næstu tvö mörk. Fyrst Júlíus Tryggvason og síð- an Guðmundur Benediktsson og var mark Guðmundar sérlega glæsilegt. Þarmeð voru Þórsarar komnir í 6 - 1 og hættir. Víkingar nýttu sér það, bættu þremur mörkum við og björguðu andlit- inu. Fyrst skoraði Óskar Óskars- son, síðan Marteinn Guðgeirs- son og loks Björn Bjartmarz - og lokastaðan því 6-4. Bestir í liði Þórs voru þeir Bjarni Sveinbjörnsson og Ormarr Örlygsson en Óskar Óskarsson stóð upp úr í liði Víkinga. 0 Það var mikill taugatitringur í Sæviðarsundinu þegar Þróttarar tóku á móti Eyjamönnum í 16. liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar s.l. fimmtudag. Eyjamenn byrjuðu betur og sóttu grimmt, en áttu í vandræðum með að koma knettinum framhjá hinum kornunga markverði Þróttara, Fjalari Þorgeirssyni. Smátt og smátt sóttu Þróttarar í sig veðrið og fóru að leika af eðlilegri getu. Á 36. mínútu kom fýrsta mark leiksins þegar Þórir Ólafsson skallaði glæsilega í hornið fjær — óverjandi fyrir Fjalar markvörð. Þegar 5. mínúturnar voru liðnar af seinni hálfleik jöfnuðu Þróttarar og var Hreiðar Bjamason þar að verki. Og aðeins 4. mínútum síðar kom Haukur Magnússon Þrótti yfir, 2-1. Varamaðurinn Friðrik Sæbjörnsson jafnaði fyrir Eyja- menn á 72. mínútu með fallegu skallamarki. Liðin skiptust á að sækja það sem eftir lifði leiks og fengu mörg ágæt færi, en inn vildi boltinn ekki. Og því varð að grípa til framlengingar. Eyjamenn skorð- uðu tvívegis í framlengingunni og var Zoran Ljubicic að verki í bæði skiptin. Nökkvi Sveinsson fékk gullið tækifæri til að koma IBV í 5 - 2 þegar hann þrumaði í slánna úr víti. Zoran Ljubicic og Nökkvi Sveinsson voru bestir Eyjamanna í leiknum en hjá Þrótti bar mest á Ágústi Haukssyni, Hauki Magn- ússyni og Hreiðari Bjarnasyni. 0 Í8 úrslit. iavík Slógu FH-inga út I vrfaspymuKeppni. Það var magnþrungin spennan þegar hinn ungi leikmaður Grind- víkinga, Óli Flóventsson, gekk að vítapunktinum í leik Grindavíkur og FH síðastliðið föstudagskvöld. Það var komið fram í bráðabana og Haukur Bragason var nýbúinn að verja frá Þórhalli Víkingssyni leik- manni FH. Staðan var jöfn og Óli gat komið Grindvíkingum áffarn. Og það gerði hann með eftirminni- legum hætti. Grindvíkingar hófu leikinn af krafti og skoruðu strax á n. mínútu. Ólafur Ingólfsson fékk sendingu inn fýrir vörn FH og skoraði ffarn- hjá Stefáni Arnarssyni mark- verði. Ólafur var aftur á ferðinni skömmu síðar þegar hann skoraði eftir að rangstöðugildra FH-inga klikkaði. Leikmenn FH mættu grimmir tii leiks í síðari hálfleik og allt annað var að sjá til liðsins en í þeim fyrri. Sóknir þeirra þyngdust sífellt eftir því sem lengra leið á hálfleikinn og það var aðeins tímaspursmál hve- nær þeir næðu að minnka muninn. Á 83. mínútu skoraði síðan Jón Er- ling Ragnarsson eftir sendingu frá Herði Magnússyni. Jöfnunar- markið kom síðan þegar tvær mín- útur voru liðnar fram yfir venjuleg- an leiktíma. Boltinn barst þá til Harðar Magnússonar eftir mistök í vörn Grindvíkinga og hann átti ekki í vandræðum með að setja boltann í netið. Framlenging. Grindvíkingar voru öllu sterkari í framlengingunni en náðu ekki að skora. Og því kom til vítaspyrnu- keppni og þar höfðu Grindvíkingar betur, 5 - 4. © MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994 Sport 25

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.