Eintak

Eksemplar

Eintak - 18.07.1994, Side 27

Eintak - 18.07.1994, Side 27
 n Búlgarir kaffærðir í fyrri hálfleik. Gaman lýá Svíum Hrepptu bmnsið eftir öruggan sigur á Búlgörum—40 Þeir Jan Larsson og Stefan Schwarz höfðu ærna ástæðu til þess að brosa út af eyrum um leið og þeir handfjatla bronsið. Síðast þegar til fréttist stóðu deilur í Svíþjóð um hvaða borg fengi fyrst að fagna þjóðhetjunum þegar heim kemur, Stokkhólmur eða Gautaborg. Fyrri hálfleikur í leik Búlgara og Svía um þriðja sætið á HM var nán- ast eign Svía. Þeir yfirspiluðu Búlg- ara og settu fjögur mörk í hálfleikn- um, þar af þrjú á aðeins sjö mín- útna kafla. Búlgarir sáu aldrei sól- ina í þessum leik og vilja sjálfsagt gleyma honum sem fyrst. Svíar komu ákveðnir til leiks og eftir tíu mínútna leik hafði Tomas Brolin náð forystu fyrir þá með góðu skallamarki. Eftir markið áttu Búlgarir ágætis rispur en Ravelli í marki Svíanna kom i veg fyrir jöfn- unarmark. Svíar gerðu síðan út um leikinn með þrem mörkum frá þeim Hakan Mild, Henrik Lars- son og Kennet Andersson. Staðan í hálfleik var 4:0 og nánast formsatriði fyrir Sviana að klára leikinn. Hins vegar var spurning hvort Búlgörum tækist að bjarga andlitinu og halda hreinu í seinni hálfleik. I.iður í þeirri áætlun var að skipta um markvörð enda hafði Borislav Mihaylov í marki þeirra ekki staðið sig sem skyldi. Inn á kom Plamen Nikolov og tókst honum að halda hreinu í seinni hálfleik og sýndi oft á tíðum snilld- artilþrif. Allt annað var að sjá til Búlgara í seinni hálfleik og þeir voru klaufar að setja ekki 1-2 mörk. Fyrir leikinn var Hristo Stoitchkov marka- hæstur í keppninni ásamt Rússan- um Oleg Salenko með sex mörk og átti hann möguleika á að því sem næst tryggja sér markakóngs- titilinn með því að skora. Það var gaman að fylgjast með honum þar sem hann var að dóla upp við víta- teig Svíanna og dettandi í sífellu í von um að dómari leiksins dæmdi aukaspyrnu rétt utan teigs eða jafn- vel vítaspyrnu. Vítaspyrnur fékk hann ekki en tvær aukaspyrnur sem hann var óheppinn að skora ekki úr. Rétt fyrir leikslok fékk hann síð- an dauðafæri einn á móti Ravelli en tókst á ótrúlegan hátt að láta að verja frá sér. Síðari hálfleikur var því markalaus og langt í frá eins skemmtilegur og sá fyrri. Eins og tölurnar gefa til kynna var sigur Svíanna fyllilega verð- skuldaður og eru þeir vel að brons- verðlaununum komnir. Erfitt er að velja þeirra bestu menn í leiknum því liðið spilaði eins og vel smurð vél allan tímann. Þó er vert að geta frammistöðu þeirra Ravellis og Brolins en þeir voru hreint stór- kostlegir í leiknum. Eftir að Búlgarir komust í und- anúrslitin var eins og þeir hreinlega hættu og gerðu sig ánægða með fjórða sætið. Allan baráttuviija vantaði í liðið og það var eins og þeir hreinlega nenntu ekki að klára leikinn. Það var helst að þeir sýndu viðleitni í að koma Stoitchkov á blað í leiknum en hann, eins og reyndar aðrir lykilmenn liðsins á borð við Letshkov og Konstad- inov, náði sér ekki á strik í leikn- um. Balakov var einna skástur svo og Nikolov markvörður sem kom inn á í hálfleik.© MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994 Heimslið FIFA 3-4-3 © O O 1 Michel Preud’homme BEL 2 Jorginho BRA 3 Marcio Santos BRA 4 Paolo Maldini ITA 5 Thomas Brolin SVE 6 Dunga BRA 7 Gheorghe Hagi RUM 8 Krasimir Balakov BUL 9 Roberto Baggio ITA 10 Romario BRA 11 Hristo Stoichkov BUL Heimslið EINTAKS 3-4-3 1 Thomas Ravelli SVE 2 Paolo Maldini ITA 3 Marcio Santos BRA 4 Jorghinho BRA 5 Fernando Redondo ARG 6 Gheorghe Hagi RUM 7 Thomas Brolin SVE 8 Dunga BRA 9 Roberto Baggio ITA 10 Kennet Anderson SVE 11 Romario BRA Stærstu sýningu heims er lokið Frábær fótbolta veisla! Heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu er lokið og milljónir knattspyrnuáhugamanna um all- an heim hafa líklega fengið nægju sina af knattspymu i bili og antisportistar geta væntan- lega tekið gleði sina á ný. Eins og eftiralla íþróttaviðburði skipast menn i flokka að leik loknum. Annað hvort eru menn hetjur eða skúrkar og liklega allt þar á milli. Að lokinni keppni hef- ur Aiþjóðaknattspyrnusamband- ið, FIFA, valið opinbert úrvalslið keppninnar og til samanburðar hefur EINTAK fengið fjölmarga is- lenska spekinga til að velja is- lenskt úrvalslið heimsmeistara- keppninnar 1994. Q E 27 \port

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.