Vikublaðið - 30.12.1992, Side 16

Vikublaðið - 30.12.1992, Side 16
VIKUBLAÐIÐ* 6. TOLUBLAÐ • 1. ÁRGANGUR___________________________________29. PESEMBER 1992 ATVINNUMÁL TEXTI OG MYNDIR: ÞRÖSTUR HARALDSSON, DALVÍK Fullvinnslan er framtíðin í frystihúsinu á Dalvík hefur tekist að skipta yfir í aukna fullvinnslu með þeim árangri að verðmætasköpunin og at- vinnustigið helst óbreytt þrátt fyrir samdrátt og aflaleysi. Það vakti athygli á dögunum þeg- En gœðin verða að haldast mikil og stöðug, þá getum viðfengið gott verðfyrir afurðir okkar og verið samkeppnisfœr við fiskiðnað í öðrum löndum. ar Frystihús KEA á Dalvík auglýsti eftir starfsfólki. Eins og málum er háttað í íslenskum sjávarútvegi telst það til tíðinda að þar vanti fólk til starfa. Og merkilegt nokk þá hefur ekkert gengið of vel að fá fólk til starfa. Að vísu veldur þar ýmislegt, svo sem skortur á húsnæði og bama- gæslu á Dalvík. En samt, hvemig stendur á þessu, Gunnar Aðalbjöms- son frystihússtjóri? „Eg get ekki svarað því. Hér á staðnum er ekki meira vinnufram- boð en verið hefur, en samt eru mjög fáir á atvinnuleysisskrá. Við vorum heldur betur mannaðir á sama tíma í fyrra. Það rættist heldur úr þessu eft- ir að við auglýstum og við erum búin að fá sex manns frá Hauganesi og fólk austan úr Bárðardal og vestan af Hvammstanga. Nokkrir komu frá Reykjavík en þeir entust bara í nokkra daga. Svo er skólafólkið að mæta, svo þetta er viðunandi eins og er.“ Vanalega hefur ekki verið unnið í frystihúsinu frá 20. desember og fram til 10. janúar. Nú var hins vegar unnið fram á Þorláksmessu og milli jóla og nýárs. Svo verður tekið frí í eina vinnuviku vegna jólafrís á tog- urunum. Þá verður sinnt nauðsyn- legu viðhaldi. Gunnar segist ekki hafa verið vinsælasti maðurinn í frystihúsinu þegar hann tilkynnti að unnið yrði á Þorláksmessu. „Fólk vill taka sér frí þessa síðustu daga fyrir jól og milli hátíðanna. Það er orðið vant því.“ Svipuð verðmæti þrátt fyrir samdrátt Nú mætti ætla að landburður væri af fiski á Dalvík, en svo er alls ekki. Afli togaranna hefur verið lélegur að undanfömu, rétt eins og annarra fiskiskipa á Islandsmiðum. Að sögn Gunnars hefur að meðaltali verið unnið úr 4.200 tonnum af fiski á ári í frystihúsinu og fyrir nokkrum árum voru söltuð 3.500 tonn. í ár bjóst hann við að um 3.900 tonn yrðu tek- in til frystingar en einungis 1000 tonn í salt. „Kvótasamdrátturinn birtist fyrst og fremst í minnkandi söltun,“ segir Gunnar. En þótt samdráttur hafi orðið í frystingunni líka hafa tekjumar ekki minnkað svo neinu nemur. Árið 1991 var unnið úr 4.276 tonnum í frysti- húsinu og fyrir það fengust 490 milljónir króna. Á næsta ári er áætl- að að vinna úr rúmlega 3.700 tonn- um og fyrir þau er ætlunin að fá 467 milljónir króna. Það er með öðmm orðum reiknað með að meðalverðið hækki úr 114 kr. á kíló í 125 kr. Hvemig má það vera á tímum verð- stöðnunar og jafnvel -lækkunar á sjávarafurðum? Skýringin er fólgin í svonefndri smápakkavinnslu. Fyrir tveimur ár- um festi frystihúsið kaup á tækja- búnaði til að pakka fiski í neytenda- umbúðir. Á þessu ári verður um 600 tonnum pakkað með þessum hætti og á næsta ári er ætlunin að ná fullri nýtingu smápakkalínunnar en það þýðir 800 - 1000 tonn á ári. Fyrir fisk sem þannig er meðhöndlaður og fer beint í frystiborð evrópskra mat- vöruverslana fæst mun hærra verð en þann sem fer í hefðbundna vinnslu. Þessi vinnsla er mannfrekari og þess vegna gerir þessi fjárfesting fyrir- tækinu kleift að halda svipuðum tekjum og sama atvinnustigi með töluvert minni afla en áður. Strangar gæðakröfur Þetta hljómar vel, en af hverju eru þá ekki öll íslensk frystihús komin inn á þessa braut? „Þetta er mjög dýrt og það líður langur tími þangað til það fer að borga sig. Og svo hentar þetta ekki alls staðar. Við höfum ekki grætt mikið á þessu fyrstu tvö árin, enda náum við ekki fullri nýtingu fyrren á næsta ári, þriðja árinu sem tækin eru í húsinu. Það sem tekur tíma er undirbún- ingur þess að koma fiskinum á mark- að. Ef um er að ræða nýja pakkningu sem ekki er fyrir á markaði líður í það minnsta eitt ár frá því fyrirspum- in berst þangað til framleiðsla er komin í fullan gang. Sé pakkningin til á markaðnum tekur þetta skemmri tíma, en aldrei undir hálfu ári. Áður en samningar eru gerðir kemur kaupandinn hingað og tekur húsið út. Þeir eru mjög strangir og gera miklar kröfur til hreinlætis og gæða. Við þurftum til dæmis að taka gerlasýni á 50 stöðum í húsinu - af gólfinu, úr vatninu, af vinnusvæð- inu, áhöldum fólksins og víðar - og senda í ræktun hjá Rannsóknastofn- un fiskiðnaðarins. Kaupandinn fékk svo skýrslu sem sýndi honum hvem- ig almenn umgengni er í húsinu. Við þurfum svo reglulega að senda sýni af framleiðslunni í ræktun, þar sem leitað er að 4-5 tegundum gerla. Við höfum þurft að gera ýmsar ráðstaf- anir hjá okkur til að mæta þessum kröfum. Þessi framleiðsla fer beint til neyt- enda, en ekki í frekari vinnslu eins og raunin er um blokkina og fleiri af- urðir. Þess vegna er hægt að rekja galla sem finnast í vörunni beint til okkar.“ Hvert fer þessi framleiðsla ykk- ar? „Þýskaland er stærsti markaður- inn, en við seljum líka á Bretland, Frakkland og Svíþjóð. Þetta er mest þorskur, ýsa, karfi og ufsi, en við höfum líka gert tilraunir með aðrar tegundir. Við fáuum margar fyrir- spumir frá kaupendum okkar um til- teknar tegundir eða hluta af fiskinum og framleiðum á að giska vikulega einhver sýnishom. Það fer því mikill tími og peningur í þróunar- og mark- aðsstarf.“ Sérðu fyrir þér að þessi mark- aður fari stækkandi? ,Já, þetta er eins og snjóbolti sem hleður utan á sig. Ég hef á tilfinning- unni að þetta haldi áfram að aukast.“ Eru mörg frystihús byrjuð á svona vinnslu? „Þessi smápakkavinnsla er tvenns konar. Annars vegar er fiskurinn lausfrystur og honum pakkað fryst- um. Hins vegar er fiskinum pakkað ferskum og hann frystur í umbúðun- um. Við erum í því síðamefnda og ég veit ekki um aðra en okkur og HB á Akranesi sem eru í þess konar vinnslu, en það eru þó nokkur hús í lausfrystingunni. Við gelum reyndar líka lausfryst fiskinn enda fer þetta vel saman. Við fáum oft pantanir um ákveðinn hluta af fiskinum og getum þá nýtt afganginn í lausfrystingu og pakkað honum þegar minna er að gera. Með því móti fáum við betri nýt- ingu og stöðugleika í vinnslunni." Fiskréttir sækja fram Að undanfömu hefur eigandi frystihússins, KEA, ásamt Dalvíkur- bæ lagt nokkurt fé í athugun á arð- semi þess að reisa fiskréttaverk- smiðju á Dalvík. Þar er hugmyndin að vinna fiskinn enn meir, jafnvel forsteikja hann og velta honum upp úr brauðmylsnu eða sósum. Þessi verksmiðja gæti nýtt sér það mark- aðsstarf sem íslenskar sjávarafurðir hafa unnið fyrir smápakkavinnsluna. Enn liggur engin niðurstaða fyrir úr þessari athugun, en ein aðalfor- senda þess að svona verksmiðja verði reist er að Island gerist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. Nú er 10% tollur á tilbúnum fiskréttum í EB ríkjunum en hann lækkar í 3% verði EES að veruleika. Gunnar segist sjá fyrir sér að ís- lensk frystihús haldi áfram að auka fullvinnslu sjávarafurða. „Maður sér það í verslunum í Evrópu og Amer- íku að fólk vill fá matinn tilbúinn, það vill ekki þurfa að hafa mikið fyr- ir matseldinni. Þetta sést glöggt á út- flutningsmörkuðum fyrir saltfisk þar sem yngra fólkið vill ekki þurfa að útvatna fiskinn. Það vill fá allt í ein- um pakka, tilbúið í ofninn." Erum samkeppnisfær Fyrir nokkrum árum var þeirri röksemd beitt gegn fullvinnslu hér á landi að betra væri að hafa verk- smiðjurnar sein næst inarkaðn- um. Hefur þetta eitthvað breyst? „lá, samgöngur eru orðnar miklu betri en þá, bæði innanlands og milli landa. Einnig hafa komið til sögunn- ar ýmsar aðferðir til að lengja geysmluþol fisksins. Tollar hafa sín áhrif, en með aðild að EES fara þeir lækkandi. Þetta er því raunhæfari kostur en áður. Við þurfum hins vegar að legga áherslu á dýrari afurðir, þar er staða okkar best. Það eru óhemju mögu- leikar í fullvinnslunni og við höfum hráefnið og gæðin. En gæðin verða að haldast mikil og stöðug, þá getum við fengið gott verð fyrir afurðir okkar og verið samkeppnisfær við fiskiðnað í öðrum löndunt," segir Gunnar Aðalbjörnsson, frystihús- stjóri á Dalvík.

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.