Vikublaðið


Vikublaðið - 20.08.1993, Side 9

Vikublaðið - 20.08.1993, Side 9
VIKUBLAÐIÐ 20 AGUST 1993 Samfélaglð 9 sérstaklega þegar veðrið er gott. Hún kom til landsins fyrir átta mánuðum vegna stríðsins í fyrrum lýðveldum Júgóslavíu. Fjölskyldan flutti á Akranes og tóku bæjaryfir- völd vel á móti þeim sem olli því að skólinn sem Tanja fór í var undir það búinn að taka á móti nýjum nemanda sem ekki kunni íslensku. „Krakkarnir voru svo góðir að ég trúði því varla. Þau tóku í hendina á mér og sögðust vera vinir mínir. Fyrst talaði ég ensku en krakkarnir sögðu mér að tala íslensku, en það er mjög erfitt að læra málið. Eg hef eignast marga vini á Islandi og þeir hafa hjálpað mér að læra íslensku.“ Tanja er þó ekki alltaf ánægð með veðrið á Islandi sem er töluvert kaldara en í Bosníu. „Bær- inn minn heitir Bosanski Brod og þar er um 35 stiga hiti á sumrin. Þar eru engin fjöll og mikið af trjám.“ Tanja segir stríðið í Bosníu vera ógeðslegt. Hún hafi oft verið hrædd þar. Enginn úr hennar en í móðurætt á hún marga ættingja sem hafa fallið. Fjölskyldan hafði þó nógan mat, til dæmis áttu þau ávexti, grænmeti og súkkulaði. „Við fórum lítið út því það var hættulegt og það er þreytandi að hlusta á sprengingar allan daginn. Það var skrítið að koma hingað, allir voru úti og engar sprenging- ar.“ Tanja er ánægð með sumarskól- ann, hún hefur eignast fleiri vini sem er ánægjulegt að hafa sam- skipti við. Finnst þérþií vera oróin Islendmg- ur? ,Já svolítið. Ég fermdist hér og tala íslensku við vini mína og á heima hér. ísland er landið mitt og hér ætla ég að búa. Ég sakna samt Bosníu, þar eru vinir mínir og hús- ið mitt,“ segir Tanja Veselinovic. Ég kunni bara dálítið í ensku Alexi Rechetov kom til íslands vegna þess að pabbi hans er sendiherra Rússlands á íslandi. Hann hefur nákvæma tímasetn- ingu á því hvenær hann kom og segist hafa verið hér í eitt ár, tvo mánuði og sjö daga. Hann segist kunna ágætlega við sig hérna en pabbi hans starfaði í sendiráði Sov- étríkjanna á íslandi fyrir þrjátfu og tveimur árum. Hann talar þess vegna íslensku og var búinn að kynna land og þjóð fyrir Alexi svo það var auðveldara að koma hing- að. Alexi bjó áður í Moskvu og fannst Reykjavík eins og þorp þeg- Tefany Fatalla: Miklu kaldara hér en á Filipseyjum. ar hann kom fyrst til landsins. Hvernig var að koma til Islands? „Fyrst var það ógeðslega erfitt, ég kunni bara dálítið í ensku og það var ekki gott að vera í skólanum. Fyrst skiptu krakkarnir sér ekkert af mér en það er betra núna því ég er búinn að læra meiri íslensku. Ég á einn vin hérna og vinn hjá Stál- smiðjunni á lager og þar er mjög gott fólk. Mér finnst meira gaman að vinna þar en vera í skólanum.“ Alexi segist eiga eftir að vera á íslandi í að minnsta kosti eitt ár í viðbót en hann veit ekki hvert leið- in liggur næst. Það er miklu betra í Artúnsskóla því þar á ég marga vini Guinevere Moyle hefur búið í tvö ár á Islandi. Hún er firá Bandaríkjunum og verður héma næstu þrjú árin. Mamma hennar er fornleifafræðingur og er að skrifa doktorsritgerð. Guinevere segir að hún hafi komið hingað vegna þess að það sé gott að grafa á Islandi út af víkingunum sem hér voru. Áður bjuggu þær í Massachusettsfylki og þar er bæði heitara á sumrin og kaldara á vetrum en hér. Þar er líka mikið af háum trjám sem gaman er að klifra í og leika sér. „Erfiðast var að læra málið. Ég fór í skóla tveimur mánuðum eftir að ég kom hingað. Surnir í skólan- unt voru duglegir að hjálpa mér en aðrir hjálpuðu ekki mikið. Það var leiðinlegt í Melaskóla en svo flutti ég og það er miklu betra í Ártúns- skóla því þar á ég marga vini. Fyrsta setningin í íslensku sem ég lærði var „ég tala bara ensku“. Ein stelpa úr gamla skólanum er enn vinkona mín og hún talaði ensku við mig.“ Guinevere segist frekar líta á sig sem bandaríska en íslenska en að það geti breyst þegar hún verður búin að vera hér í fimm ár. Hún vildi geta farið oftar til Bandaríkj- anna því pabbi hennar er þar og hann hefur aldrei komið til íslands. „Við höfum bara farið til hans um jólin og ég sakna hans. Ef hann kæmi til íslands væri allt gott. Það væri líka mjög gott að fá lítinn kött eða marga.“ Mérfinnst stundum leiðinlegt og stundum ekki Frá Filipseyjum er Tefany Fat- alla sem kom til íslands fyrir sautján mánuðum. Mamma hennar kom til íslands á undan og var að vinna hérna. Hún giftist svo á ís- landi og saknaði barna sinna sem voru eftir á Filipseyjum. Tefany og tvær systur hennar komu til íslands en bræður þeirra tveir vildu ekki koma. „Það er mjög erfitt að læra ís- lensku. Það er líka miklu kaldara hér en á Filipseyjum. Þar er hita- beltisloffslag. Ég fór í skóla nokkr- um mánuðum eftir að ég kom. Krakkarnir í skólanum hjálpuðu mér að læra málið en sumir stríddu mér. Mér finnst stundum leiðin- legt en stundum ekki.“ Tefany segist stundum vilja fara aftur til Filipseyja en hún ætlar að búa á íslandi. Hún saknar þess helst frá Filipseyjum að hafa ekki ömmu sína, bræður og frænkur, en þau eru öll á Filipseyjum. Stundum hugsa ég á íslensku Mér fannst erfitt í skólanum að geta ekki talað við neinn, en ég fór svo í málaskóla Mímis til að læra íslensku,“ segir Dyian Kinclla sem kom til íslands fyrir einu og hálfu ári. Mamma hans er íslensk en hann hafði ekki lært íslensku áð- ur en þau fluttu til landsins nema einföldustu hluti eins og já, nei og góðan dag. Hann segist stundum hafa gaman af kalda veðrinu hér, því á Englandi sé næstum aldrei snjór. Helst finnst honum leiðin- legt á íslandi þegar ekkert er að gera. „Sumir voru duglegir að hjálpa mér í skólanum, aðrir ekki. Ég veit ekki hvort ég er orðinn íslendingur en stundum hugsa ég á íslensku. Það gerði ég ekki fyrst. Ég hugsa að það sé erfiðara að koma til Is- lands fyrir þá sem tala rnjög óskyld tungumál. Margir tala ágæta ensku hér.“ Dylan segist vera mun ánægðari í Lækjarskóla í Hafnarfirði þar sem hann er núna en í Garðaskóla í Garðabæ þar sem hann var fyrst. Þar voru móttökurnar ekki eins góðar, fannst honum, og krakkarn- ir reyndu stundum að stríða hon- um. Myndir: Olafur Þórðarson Dylan Kinolla: Kunni bara já og nei og góðan dag er ég kom til landsins. Bækur Sjálfsævisaga Sakharovs Andrei Sakharov: Memoirs 775 bls. Vintage Books 1992. Verð 1.995.- Fæst hjá Máli og menningu Meginhugmyndir perestroika (umbóta) og glasnost (opn- unar) voru rækilega kynntar al- menningi á árinu 1968, tutmgu árum áður en Gorbatjof skipaði þeim í öndvegi sovéskra stjórn- mála. Því áorkaði Andrei Sakharov, en bók hans, Um firamfarir, frið- samlega sambúð og frelsi andans (á ensku: Reflections on Progress, Peaceful Coexistence and In- tellectual Freedom), seldist í 18 milljónum eintaka á innan við tveim árum og tryggði honum þar með heimsfirægð. Það ruglaði marga í ríminu að sjá þennan föður kjarnorku- sprengjunnar skyndilega í hlut- verki baráttumanns fyrir friði og þar næst pólitísks andófsmanns, í kjölfarið á því að hann ásamt þrern- ur öðrum stofnaði á árinu 1970 fyrstu mannréttindanefndina í sögu Rússlands. Arið 1975 hlaut Sakharov ffiðarverðlaun Nóbels og varð eftir það Brésnef-stjórninni stöðugur fleinn í holdi. Harkaleg fordæming Sakharovs á sovéskri yfirráðastefnu, sem hann leit á sem helstu ógnun heinsfriðarins, og mótmæli hans gegn íhlutun Rauða hersins í Afghanistan, leiddu til út- legðar hans í Gorki (1980-86). Þessari bók Sakharovs lýkur í desember 1986 þegar Mikhael Gorbatjof heimilaði honum að snúa aftur til Moskvu. Þá var hann þegar orðinn lifandi goðsögn í heimalandi sínu. Líf Andrei Sakharovs (1921- 1989) nær yfir þann umbrotatíma mannskynssögunnar þegar sovésk- ur kommúnismi reis og hneig. Sjálfsævisaga hans, sem Salmon Rushdie kallar „minnisvarða um sigur mannsandans yfir andskotum sínum,“ geymir mörg lýsandi dæmi um óttann og doðann sem ríkir í alræðisríki en einnig hugrekki fólks og viðnám gegn lygamaskínu og mannréttindabrotum. I bókinni sést glöggt hvernig saman fléttast í Sakharov einlægni, staðfesta og innra jafrivægi. Aðeins einu sinni rnissir hann stjóm á skapi sínu og það er þegar hug- myndafræðingur hatursherferðar gegn Sakharov og fjölskyldu hans sem KGB gekkst fyrir í fjölmiðlum gerir sér lítið fyrir og heimsækir þennan ffæga andófsmann á heim- ili hans (bls. 588-591). Nítjándi kafli þessarar sjálfsævi- sögu Sakharovs er kannski sá at- hyglisverðasti því þar lýsir hann því hvernig hálffimmtugur maður sem tilheyrði einum helsta forréttinda- hópi Nomenklatúrunnar (hinna ráðandi afla) snerist til andstöu við kerfið á áronum 1965-67. Líf Sak- harovs skiptist í tvo meginhluta, fyrir og eftir þetta uppgjör, og stenst það á við hjónabönd hans tvö. Fyrri eiginkona hans, Klava Vikhireva, sem hann eignaðist þrjú böm með, lést 1969 og þremur árum síðar giftist hann Elenu Bonner (Lúsía sem bókin er til- einkuð). Hún er önnur mikilvægasta per- sóna þessarar bókar sem segir ffá tugum einstaklinga úr öllum geir- um þjóðfélagsins. Samband þeirra ber öll einkenni djúpstæðra and- legra tengsla. Bæði helga þau sig göfugu markmiði; kjarnorku- vopnalausum heimi, heimi án póli- tískra fanga, án pyndinga og jafnvel án dauðarefsingar. Þau snúast líka til varnar fyrir minnihlutahópa eins og krímverska Tatara (sem tengist umræðuefnum dagsins í ljósi þjóð- arhreinsananna í ríkjum fyrrum Júgóslavíu) og taka upp málstað umhverfisverndar. Eftír kjarnorku- slysið í Tsjernobyl 1986 lagði Sak- harov t.d. til að allir kjarnakljúfar yrðu grafnir í jörðu af öryggisá- stæðum. Flestir lesendur bókarinnar munu væntanlega fletta ffamhjá hugleiðingum hans um fræðilega eðlisfræði (bls 121-156), tæknileg- ar hliðar kjarnorkutilrauna og stöðu alheimsins (bls. 241-263). Fjörmiklar lýsingar hans á lífi og viðhorfum andófsmanna munu hinsvegar ná óskertri athygli. Til dæmis fjallar hann um erfiðleika sína í samskiptunum við Solsjenit- sín. Þá segir hann ffá því þegar hótað var að loka hann inni á geð- veikrahæli einmitt um sama leyti og hann beitti sér hvað mest gegn misnotkun geðlæknisffæðinnar gegn pólitískum andófsmönnum. Margir þessara andófsinanna gengu svo langt að fórna lífinu sjálfu, eins og t.d. Marchenko, sem lést í fangelsi 48 ára gainall eftir langt hungurverkfall. Þegar Sak- harov lést vottuðu þúsundir venju- legra Sovétmanna honum virðingu sína með því að ganga ffamhjá lík- börunum. Hérþarfekki miklar fjárfestingar í verslunarhúsnœði til að koma upp mörkuðum sem myndast næstum eins og af sjálfii sér á opnum svæðum kringum kofaskriflin. daginn með barnið sitt bundið á bakinu, hænu í annarri hendinni og bananaknippi á höfðinu. Hún hef- ur verið að kaupa í kvöldmatinn. Fínustu kjólarnir eru skósíðir og eins og með spjót upp úr öxlunum (púffermar) og breiðum mittis- linda. Ekki veit ég hvort þessi tíska á sér einhverja sögu. Aðdrættir okkar mzungu (sem hvítir menn hér kallast), eru nokk- uð flóknir. Fara þurffi á fimm staði til að ná saman hráefni í fisksúpu. A markaði innfæddra hér í nágrenn- inu fæst ótrúlega margt, hræódýrt, en moldin, skíturinn og umgengn- in er svona og svona. Tómar gosflöskur eru dýrgripir hér, ef þú átt eina slíka hefur þú höndlað heiminn. Hér á bæ þurffi innfæddan ráðsinann með til að hlutast til um kaup á goskassa ineð glerjum. Svo fer maður og skiptir fyrir glerin. Til þess að komast að sölustaðnum þarf að ganga á planka yfir skurð með goskassann báðar leiðir. Þessu dettur engurn í hug að breyta. Þetta með gosflösk- urnar minnir mig á þegar íslensk börn hirtu tómu glerin og seldu. Hvenær var það nú aftur? Ég ininntist á mzungu. Ég hefi löngum haft áhuga á að lesa og heyra um mzungu, sem sest hafa að í Afríku og hefi nú einmitt rekist á viðtöl við nokkra, sem settust að í Kenya af ýmsum ástæðum, og læt hér flakka það sem einn lét hafa eftir sér. Aðspurður sagðist hann engan áhuga hafa á náttúrunni eða dýra- lífinu. Við hefðum komist af án risaeðlanna og trúlega gerðum við það líka án fi'lanna, ef því væri að skipta. Líkti hann þessum safari- ferðum og dýraglápi við það að horfa á „Nágranna" f sjónvarpinu. Maðurinn var „businessmaður“. Það gefur lífinu lit hve skoðanir fólks eru ólíkar. Með hlýjum kvedjum til Islands.

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.