Vikublaðið - 20.08.1993, Blaðsíða 15
VIKUBLAÐIÐ 20. ÁGÚST 1993
15
Rithöndin
Finnst óþolandi ef ekki má treysta fólki
Skriítin þín sýnir perónu með
allgóðan sjálfsaga og í góðu
jafiwægi. Þú ert traust og
áreiðanleg og það eru líka þeir eig-
inleikar sem þú metur mest hjá
öðrum. Þér finnst óþolandi ef ekki
má treysta fólki. Hins vegar kann
öðrum stundum að finnast þessi
krafa til trausts og áreiðanleika að
vera allt að því barnaleg, því við lif-
um nú einu.sinni á óöld - eins og
allir aðrir hafa gert á undan okkur.
Þú ert hreinskilin og yfirleitt hrein
og bein í öllum samskiptum. Líf
þitt sýnist skiptast upp í afmarkaða
kafla. Þú virðist ljúka við einn
kafla, leggja hann svo til hliðar með
öllu sem honum tilheyrir og byrja á
öðrum. Þetta gæti átt við bæði störf
og einkalíf. Þú virðist stundum
finna fyrir svolítilli einmanakennd,
það eru ekki mjög margir sein þú
finnur skilning hjá af vinum þín-
um.
Þú hefur glögga og skarpa hugs-
un, einnig gott ímyndunarafl.
Ahættu hvers konar er þér illa við,
en þú harkar af þér og tekur hana
samt sem áður. Þetta gerir þér
stundum erfitt fyrir. Þú ert nokkuð
sterk persóna og lætur ekki auð-
veldlega undan. Fjölskyldubönd
eru sterk og þú virðist eiga vel-
gengni að fagna í samskiptum við
fólk. Líklega ertu alltaf með mörgu
fólki, en þér félli betur að vinna á
rólegum og kyrrlátum stað og þá
við einhver rannsóknar eða vís-
indastörf. Varast: Að reikna aðra út
frá þínum eigin hugsunarhætti,
vegna þess að hann er sérstakur og
bara fyrir þig.
Giiðnín Olga Clausen
Czub nui Ðioiúu a
OLUwnt
Dagskráin
Fíflin og slefberarnir á Aðalstöðinni
Eg gerði þau mistök
um daginn að láta
gott af mér leiða í
garðinum mínum, því ég
var gripinn glóðvolgur af
nágranna mínum og
talaður inn á að skrifa þetta
örstutta dagskrárrabb.
Ég hlusta töluvert á
útvarp og þykir gott að
hafa einhverja tónlist í bak-
grunninum þegar ég er að
vinna. Ég hef nær aldrei
lesið útgefha dagskrá hel-
dur bara kveikt á útvarpinu
og leitað uppi eitthvað
áheyrilegt. Þetta sumarið
hefúr útvarpið mitt verið
hvað mest stillt á Rás tvö.
En því miður hefur
morgundagskráin þar milli
9 og 12 farið í hundana eða
tvo þreytta. Þeir gera örug-
glega sitt besta greyin, en
þeirra besta fer því miður
illiiega í taugarnar á mér.
Hef ég því fundið mér aðra
og mun betri rás til að hlus-
ta á, nefnilega Aðalstöðina.
Þar fara fi'flin og slefberarnir
Davíð Þór og félagi á kost-
um. Þeir eru ferskir og oft
mjög fýndnir og hafa góðan
tónlistarsmekk.
Það er svo aftur Gesti
Einari Jónssyni að þakka að
ég skipti yfir á Rás tvö eftir
hádegi og er gott að hann
skuli vera kominn aftur með
þátt.
Einnig líkar mér vel það
sem kemur ffá Andreu
Jónsdóttur, Svavari Gests og
fleirum á Rás tvö.
Ef ég lít svo á dagskrá Sjón-
varpsins þá er ég ánægður með að
þættimir Sœkjast se'r um líkir og Já
rdðberra skuli vera komnir aftur á
skjáinn því mér hefur ávallt líkað
allt það sem breskt er og mætti
Sjónvarpið sýna meira af efni
þaðan.
Fleira gott má finna í dagskránni
þessa vikuna en þar ber þó hæst
Clint Eastwood-inyndina Ú.tlaginn
(The Outlaw Josey Wales) sem
sýnd verður á laugardagskvöldið og
ætti enginn að missa af henni.
Hvað varðar efni sem mætti
missa sín nefni ég alltof góða fólkið
í Leiðin til Avonlea. Vildi ég frekar
að Sjónvarpið keypti næstu 150
þættina af brasilísku Yngismeynni!
Ég inyndi heldur ekki gráta
þættina Fólkið í forsælu og reyndar
flesta þessa amerísku eða kanadísku
framhaldsþætti sem eiga það flestir
sameiginlegt að vera mjög yfir-
borðskenndir, værnnir og óraun-
verulegir. Þættir eins og Staupa-
steinn og Roseanne eru þó undan-
tekning ffá þeirri reglu.
Ég á engan affuglara og hef
engan áhuga á að eignast slíkt tæki.
Hvað varðar dagskrá Stöðvar tvö
þá mæli ég með því að menn leigi
ffekar myndbandsspólur, amk
meðan þær eru enn á leigjanlegu
verði, en það þykir víst mjög lágt
um þessar rnundir í höfuðborginni.
En hafið samt ekki áhyggjur því
góðir menn hafa bundist
samtökum um að hækka það öllum
til hagsbóta.
Erlendur Þ. Guðbrandsson,
tölvunarffæðingur
06 i tajtninjar: 8jarni
Tllveran
ogég
Stundum held ég að fólk tald
alvarlega þessar auglýsingar
frá kortafyrirtækjunum. Þetta
um að plastið sé „frelsi til að velja.“
Nú má ljóst vera að valffelsið
stendur um það eitt hvort Einar S.
og félagar geta fengið sér tvo eða
þrjá nýja bíla fyrir jólin, en sumir
virðast halda að valið sé um hvort
maður borgar eða ekki. Þetta sést
mjög greinilega í verslunum. Það
bregst ekki ef maður lendir á effir
kortahafa við afgreiðslukassann,
hann verður alltaf jafn steinhissa
þegar að því kemur að hann þarf að
borga. Opinmynntur og skilnings-
sljór starir hann á kassadömuna
áður hann hefúr sig í að grafa eftir
vesldnu og rótar þar í hálffíma áður
hann loks kemur plastinu upp á yf-
irborðið. Og ég er viss um að margt
af þessu liði heldur að þegar kemur
að skuldadögum þá geti það enn
valið hvort það vill borga eða ekki.
Sjálfsagt eiga frelsisauglýsing-
arnar sinn stóra þátt í þessari vit-
leysu. Ungt, sóldökkt par í bom-
lausri neyslu tilkynnir kortaskrif-
stofúnni að það ætli ekki að borga
fyrst um sinn. „Dreifa greiðslunni"
heitir það víst. Síðan er hægt að
halda áfram að neyta á fullu. „Ég
neyti, þessvegna er ég,“ eins og
spekingurinn sagði.
Drengurinn í þessari ffelsisaug-
lýsingu ber það raunar með sér að
hafa aldrei þurft að vinna á heiðar-
legan hátt fyrir sínu daglega brauði.
Er trúlega einn af þeim sem lifa af
að braska með annarra manna fé en
þeir virðast komast sæmilega af
þessa dagana. Minnir reyndar
grunsamlega á þessa gaura hjá
Verslunarráðinu, sem nú vilja koma
höndum yfir lífeyrisfé verkafólks til
að geta braskað enn meira og velt
byrðum elli og sjúkdóma yfir á rík-
isvaldið.
Þá er fylgikona drengsins ekki
síðri og augljóst að hún hvorki get-
ur né vill vinna fyrir sér. Mér hefur
alltaf fundist þetta ákaflega sjar-
merandi hvernig hún hangir á öxl-
ununt á honum með aðdáun í
augnaráðinu þegar hann tryggir
þeim órofna neyslu með einu rösk-
legu símtali. Hún minnir mig
reyndar sérstaklega á hundana í
sveitinni þegar þeir voru að hengja
sig utan í lappirnar á manni ef eng-
in tík var nálæg þegar sá gállinn var
á þeim. Það gæti verið nógu áhuga-
vert að sjá hvernig samskiptin hafa
þróast eftir að búið var að slökkva á
tökuvélunum.
Sálfræðingur einn kunningi
ntinn segir mér reyndar að öll þessi
auglýsing sé uppfull af kynferðis-
legum táknmyndum. Nefndi sér-
staklega aðdáun gálunnar þegar
uppinn hennar þrífur fram síinann
og dregur út stöngina á honum til
að komast í samband við kortafyrir-
tækið sitt. Mun óþarfi að útlista
hvert táknmálið vísar. Sálfræðing-
urinn sagði mér í framhaldi af þessu
að höfuðástæðan fyrir vinsældum
þessara síma rneðal uppanna væri
einmitt að þar sent þeir séu allajafúa
getulausir af stressi og pilluáti þurfi
þeir á þessari táknrænu athöfn að
halda til viðhalds karlmennskuí-
myndarinnar.