Vikublaðið - 17.09.1993, Page 15
VIKUBLAÐIÐ 17. SEPTEMBER 1993
15
Rithöndin
Lifandi persónuleiki með snert af ævintýramennsku
ú ert injög skipulagður og
þér er lagið að stjórna stór-
um verkefnum þannig að
allt gangi slétt og fellt. Hugsjóna-
maður og tilfmningamaður en hef-
ur góða sjálfsstjórn og lætur ekki
koma þér úr jafnvægi. Urræðagóð-
ur; alltaf til í að tala um hlutina og
reyna eitthvað nýtt. Þú ert fastur
fyrir, enginn hávaðamaður. Þú vilt
enga fjötra en finnur að fjölskyldu-
böndin eru mjög mikilvæg. Þér
finnst gaman að vinna og engin
vandamál há þér í uingengni við
fólk.
Þú ættir helst að sinna starfi sem
er tilbreytingarríkt og felur í sér
umgengni við fólk því í rauninni
erm gefinn fyrir tilbreytingu. Þú
ert mjög lifandi persóna og ein-
hvers staðar langt inni fyrir býr dá-
lítill ævintýramaður. Ritstörf
myndu líka henta þér, skáldið
mundi fá smðning hjá ævintýra-
manninum. Þú ert ágætlega
greindur og hefúr það vafalaust oft
forðað þér ffá skakkaföllum, því þú
átt til anga af kæruleysi, ævintýra-
mennskunni, en greindin tekur í
taumana og lagfærir áður en tii
vandræða horfir.
Þú ert sennilega gefinn fyrir
mannfagnað og gleðskap, - svo
ffamarlega sem það fer ekki úr
böndum. Metnaður er þó nokkur,
einkum fyrir hönd fjölskyldu og
vina.
Varast: Að horfa meira á yfir-
borðið en kjarnann.
Góða framtíð.
R.S.E.
Skúli Alexandersson, fiskverkandi
ogjyrrverandi alþingismaður.
/
Dagskráin
Fjölbreytni er lykilorðið
Það er erfitt að gera sér í hug-
arlund það viðhorf sem inn-
kaupastjórar sjónvarps-
stöðvanna hafa til áhorfandans.
Hvað liggur að baki þegar þeir
virðast vilja þröngva upp á hann lé-
legum kima amerískrar „Holly-
wood-menningar“? Gott dæmi eru
kvikinyndaseríur sem Ríkissjón-
varpið hefur fest kaup á og hefur
þegar hafið sýningar á. Grínmynd-
irnar Police Academi I til VI flokk-
ast vissulega undir lélega ameríska
kvikmyndagerð. Fyrsta myndin af
sex þótti þokkaleg, önnur þolanleg,
en það sem á eftir kom með öllu
óboðlegt. Allar myndirnar eru
mjög svipaðar, byggðar á sömu
lágkúrulegu kímninni og þegar
maður hefur séð eina þeirra, hefur
maður í raun séð þær allar. Sárt er
að leikinn skuli sami leikur-
inn með þá Jerry Lewis og
Elvis Presley, en hver kvik-
rnyndin á fæmr annarri hef-
ur verið sýnd með þeim fé-
lögum upp á síðkastið.
Ekki gemr innkaupastjóri
RÚV búist við því að allir
landsmenn geti vaiið milli
tveggja eða fleiri sjónvarps-
stöðva. Því ætti hann að
leitast við að hafa valið sem
fjölbreyttast á erlendu efni
og leita fanga í vandaðri
kvikmyndagerð. Fjölbreytni
er lykilorðið að bættri dag-
skrá RÚV.
Komandi helgi mun ég
líklega horfa meira á sjón-
varp en hlusta á hljóðvarp.
Föstudagurinn er þó und-
Guíhnundur Magni Agústsson, nemi t MH.
antekning. Þá hef ég ætlað
mér að hlýða á Radíus á
Aðalstöðinni og Pál Óskar
Hjáhntýsson, sem stjórnar
síðdegisþættinum Yndis-
legt líf á sömu stöð.
Um klukkan 19:00 mun
ég hverfa aftur til æskuár-
anna og horfa á Ævintýri
Tinna í Ríkissjónarpinu
og alls ekki missa af frétt-
um. Nafn kvikmyndar
kvöldsins vekur ekki
áhuga minn, en hún titlast
„Eldsvoðinn - lokuð inná
37. hæð“. Ekki bíður mað-
ur með óþreyju eftir dag-
skrá laugardagsins, en vera
má að önnur tveggja kvik-
mynda RÚV sé áhugaverð
ef ekki báðar.
Á sunnudaginn er m.a. boðið
upp á grínþáttinn „Roseanne“. Sá
þátmr er með amerískan fjölda-
framieiðslustimpil á sér, en inni-
heldur þó grófari kímnigáfu en
aðrir slíkir þættir. Sem sagt, af allri
helgardagskránni er ekki mikið
sem freistar, enda er hún ekki upp á
marga fiska.
Ríkissjónvarpið á, þrátt fyrir allt,
þakkir skildar fyrir sýningar á
mörgum góðum framhaldsþáttum,
t.d. George and Mildred, Yes
Prime Minister og fleirum í þeim
dúr. Að auki birtast endrum og
sinnum mjög góðar fræðslu og
heimildarmyndir á RÚV, t.d. Co-
smos, Lífsbarátta dýranna o.fl.
Meira mætti vera uin slíka þætti á
dagskránni.
06 /V&NÍ ‘terfeiteilcnirjar! ^jarní fjinnUvm
Nú er þó loksins orðið gam-
an að sjónvarpinu enda
einkavinavæðingin farin
að setja svip á stofnunina. Eg heyrði
auglýsingu ffá þeim í útvarpinu um
daginn. Þá vantar 10-12 ára gamla
krakka til að taka þátt í spurninga-
keppni. Og börnin verða að vera
reiðubúin að „fá yfir sig væna
sluminu af grænu slími.“ Þvílík dá-
semdarhugmyn, þvílík óborganleg
snilid. Haldiði að verði nú gaman í
vetur þegar maður getur setið við
kassann á kvöldin meðan nákaldir
vindarnir blása fyrir utan og veru-
lega notið þess að sjá börnin velkj-
ast um í grænu slími. Það veit ég að
yfir þessu hafa þeir lengi legið
Hrafn og Baldur. Þar kornu saman
mennirnir sem þurfti til að fá svona
eitursnjalla hugmynd og hrinda
henni í framkvæmd. Ilrafn er nú
ekki ókunnur þessu enda lands-
þekkmr áhugamaður um ælur og
annað það er ffá búkum kemur. Og
í samstarfinu við leiðandi áhuga-
mann um sauðariðla hefur þetta
fæðst.
Engin ástæða er dl að láta hér
staðar numið. Við þurfum endilega
að fá meira rjómatertukast í sjón-
varpið og þá geta terturnar verið
brúnar svona svo að þetta sé veru-
lega frumlegt. Einhvern hlýmr líka
að vera hægt að finna til að pissa í
beinni útsendingu og svo má fara í
einhvern aldurinn fyrir neðan þá
sem eiga að vera í spurningakeppn-
inni og bera saman innihald bleyj-
anna. Síðast en ekki síst er bráð-
nauðsynlegt að konur verði fengnar
til að slást í drullubaði eins og
tíðkast í öllum menningarlöndum.
Raunar má þegar sjá í dagskránni
áhrif einkavinavæðingarinnar og
ríkisstjórnarsamstarfsins. Þetta hef-
ur birst skýrt í hinuin ffægu um-
ræðuþátmm. Leiðandi einkavinur
fær þar sitt með því að ungir og
sætir drengir standa að þeim þátt-
um. Og síðan er beitt kriteriu
þeirra Alþýðuflokksmanna við
ráðningar. Menn mega hvorki hafa
þekkingu né reynsiu af málinu eigi
þeir að stjórna. Enda hafa þessi
jólahreindýr sem stjórnað hafa
þátmnum staðið sig eins og hetjur.
Óundirbúnir að öðru leyti en því að
fara í ljósatíma og tásnyrtingu vaða
þeir elginn ineð ruddaskap og
ffekju þannig að þegar upp er stað-
ið hefur ekkert skýrst um hvað mál-
ið snerist. Það var líka aldrei ætlun-
in. Þetta á bara að vera „show“ a la
Baldur og Hrafit. Eg er alveg sann-
færður unt að þeir hafa rætt þáð í
alvöru að stjómendur fengju að
henda einhverju slepjulegu í þátt-
takendur ef þeim ekki líkaði við þá.
Vonandi fá þeir félagar að njóta
sín í sjónvarpinu í vemr. Mikið
skelfing hlakka ég til þegar skiptast
á þættir um dýr sem okkur standa
nærri (fílapensla og saurgerla), á-
hugamál forfeðra okkar (sauða- og
náriðlana), nýjar íþróttagreinar
(uppköst og niðurgang) og græns-
límugir barnaspurningaþættir. Þar
mætti reyndar koma að keppni sem
ég man að skátarnir smnduðu í úti-
legunum, þ.e. hver næði að fylla
mest á kókflösku með sjálfsfróun
meðan á útilegunni stóð. Eg er viss
um að þeir kóróna sköpunarverk
sitt með því að fara enn einu sinni
að sýna Húsið á slétmnni.
-V