Vikublaðið - 05.11.1993, Page 9
VIKUBLAÐIÐ 5. NOVEMBER 1993
Heiiiiurlnn
9
Idag ríkja miklir óvissutímar.
Með endalokum kaldastríðsins
hvarf sú vissa, ef ekki öryggi,
sem ógnarjaínvægi eftírstríðsár-
anna veitti. 140 ár héldu stórveldin
Evrópuríkjum í járngreipum sín-
um, þannig að engar breytingar
urðu, eða gám orðið á ríkjaskipan
álfunnar. En í sömu mund og þíð-
an brast á var sem langur Þymirós-
arsvefn væri á enda; líkt og í ævin-
týrinu tóku menn við sömu iðju og
áður en þeir féllu í svetninn langa,
hefðbundnir óvinir í suð-austur-
hluta álfunnar vöknuðu af dvala,
grófa upp stríðsöxina og hófa að
drepa hvern annan í nafai heilagra
þjóðréttinda.
I sjálfa sér þurftu þjóðernisdeil-
ur á Balkanskaga ekki að koma
neinum á óvart. Bæði markast saga
þessa svæðis allt ffá síðari hluta f9.
aldar til loka síðari heimsstyrjaldar
af innbyrðis deilum þjóðarbrota,
og einnig er hugtakið „þjóðar-
hreinsun“ í raun skilgetið afkvæmi
þeirrar kynþátta-þjóðemisstefau
sem sett hefar svip sinn á stjórn-
málahugsun álfannar allrar í um
tvær aldir. Þar, ef ekki um allan
lieim, hefar sú skoðun verið við-
tekin að þjóðir skuli eiga sér sitt
eigið heimili, eigi tilkall tíl að lúta
engum öðmm þjóðum og að þær
eigi rétt til þess að krefjast yfirráða
yfir landssvæðum í krafd slíkra
þjóðréttinda. Islendingar em engin
undantekning frá þessari reglu; á
síðustu öld höfauðum við vin-
gjarnlegu boði Dana að gerast
meðlimir í dönsku þjóðríki og
stofauðum okkar eigið, með þá
hugmynd að vopni að glæst fortíð
og sérstakt tungumál bæði réttlætti
kröfar um sjálfstæði og neyddi
okkur til að krefjast þessa réttar.
I hugmyndaheimi hinnar „ras-
ísku“ þjóðerniskenndar hefar hug-
takið þjóð öðlast nánast guðlegan
sess. Skyldan við þjóðina er öllum
öðmm skyldum æðri — landráð er
versta tegund svika, að tala „ó-
hreina“ tungu em svik við okkar
innsm náttúm. Þjóðemi er eitt-
hvað sem við fæðumst með, og rit-
arar þjóðarsögunnar leita róta
þjóðernisins í myrkustu fornöldum
— til þess tíma er engum datt í hug
að hann eða hún væri fremur af
einu þjóðerni en öðm.
I raun er hugtakið þjóð sem póli-
tískt hugtak samt tiltölulega nýtt af
nálinni og tæpast neina rúmlega
200 ára gamalt. Það er tilkomið í
ffönsku stjórnarbyltingunni sem
andsvar við falli einvelda; þegar
þegnar Lúðvfks 16. höfðu höggvið
af honum höfaðið og skorið þar
með á tengslin við guð almáttugan
þörfauðust þeir nýrrar skilgrein-
ingar á uppsprettu fallveldisins í
franska ríkinu. Samkvæmt kenn-
ingum inanna á borð við Jean-
Jacques Rousseaus var ríkisvaldið
tilkomið með sáttmála einstaklinga
og lögin áttu ekki að vera annað en
tjáning almannaviljans, þ.e. fall-
veldið býr í einstaklingum sem lúta
sömu stjórn og sömu lögum.
Vandamálið við hugmyndina var
að ákvarða hvernig skipuleggja átti
samfélagið á gmnni þessa skilnings
á fallveldinu — hvar á að draga
mörk á milli eins ríkis og annars?
Ef hver og einn á að búa við óskert
fallveldi hlýtur hver einstaklingur
að vera sérstakt ríki útaf fyrir sig.
Slíkt getur tæpast talist hagkvæmt,
ekki síst í samfélögum nútíinans
þar sem verkasldpting er efnahags-
leg nauðsyn. Rousseau var samt
mjög tortrygginn í garð allra stofa-
ana sem virtust takmarka fallveldi
einstaklinga og að hans mati hlutu
ríki að vera smá ef þegnarnir áttu
að njóta fallra réttinda. Aðeins í
sináum ríkjum getur hver einstak-
lingur tckið beinan þátt í stjóm
ríkjanna og tjáð vilja sinn með
beinurn hætti.
Er þjóðríkið feigt?
Erindi haldið á ráðstefnu um íslenska utanríkisstefnu sem félagið Verð-
andi stóð fyrir hinn 16. október 1993.
Byltingarmennirnir ffönsku
tóku annan pól í hæðina. Frekar en
að hluta Frakkland í sundur í ótal
veikburða borgríki, völdu þeir að
halda óbreyttu því landi sem þeir
erfðu ffá einveldinu. Þessi ákvörð-
un byggði á sögulegum gmnni —
ríkið Frakkland var til og þarfaað-
ist þess vegna ekki sérstakrar upp-
götvunar — en einnig virtist fram-
kvæmanlegt að halda slíku ríki
saman. Það skal tekið ffam til að
fyrirbyggja misskilning að sú þjóð
sem fæddist í ffönsku byltingunni
átti sér engar menningarlegar for-
sendur; stórir hlutar ríkisins vom
tiltölulega nýjar viðbætur við hið
ffanska ríki og þjóðin talaði fjölda
ólíkra tungna. Enn síður var
Frakkland landffæðileg eining, þar
sem landamæri þess í austri áttu sér
enga sérstaka stoð í landslagi.
Eg rek þessa sögu einungis til að
minna á að upphaf þjóðríkisins var
hálfgerð tilviljun. I kenningum
byltingarmanna var það alls ekki
þjóðin sem var fallvalda, heldur
áttu allir þegnar ríkisins hlut í fall-
veldinu, sem einstaklingar, eða sem
þátttakendur í bræðralagi þegn-
anna. A síðustu öld jókst þeirri
skoðun hins vegar fylgi meðal íbúa
Evrópu að fólki með svipaðan
menningarbakgrunn bæri að sam-
einast og mynda sérstök ríki. Hug-
myndin var sú að menningin, og þá
sérstaklega tungumálið, yrði til
fyrir einhvers konar samspil manns
og náttúm, þannig að aðstæður á
hverjum stað mómðu sálarlíf og
hugsunarhátt einstaklinga, kynslóð
effir kynslóð. Þess vegna bæri fólki
að varðveita menningu sína, af því
að annað væri svik við uppmna
þess, gengnar kynslóðir og kyn-
slóðir framtíðarinnar. Fljótlega
varð vart við tilhneigingar til kyn-
þáttafordóma hjá áhangendum
þessara hugmynda, þ.e.a.s. þá hug-
dettu að surnar menningarheildir
væm æðri öðrum og að þær hefðu
þar með rétt til að drottna á grund-
velli yfirburða sinna.
Guðmundur
Hálfdanarson
Þessi nýi straumur þjóðernis-
hyggju átti lítið skylt við þær lýð-
ræðishugmyndir sem komu fram í
ffönsku byltingunni og í raun varð
hann til sem andsvar við skynsem-
is- og einstaklingshyggju í anda
upplýsingarinnar. En þegar til kom
reyndist erfitt að halda þessum
tveimur pólitísku straumum að-
greindum.
Miðað við þær aðstæður sem
ríktu á 19. öld mynduðu „þjóðir"
hentugar ríkjaeiningar um leið og
þær reyndust vel til affnörkunar á
þeim hópum sem áttu fallveldið í
sameiningu. Slík afmörkun hafði
ekki valdið neinum verulegum
heilabrotum á tíma ein-veldanna,
þar sem einvaldir konungar höfðu
meiri áhuga á að þenja ríki sín út en
að samræma réttindi og lög í öllum
homum þeirra. I lýðræðisríkjum
eiga þegnamir hins vegar allir að
lúta sömu lögum hvar sem þeir búa
og hvaða stétt sem þeir tilheyra,
eða svo segir kenningin a.m.k., og
því er nauðsynlegt að samræmdar
reglur gildi í ríkinu öllu. A síðustu
öld vom mjög verulegar takmark-
anir fyrir því hversu stór slík ríki
gám orðið vegna þess hve sam-
göngur yfir langan veg vom erfið-
ar. Ef við lítum á ríkjamyndun á
þeim tíma kemur því í ljós mjög á-
kveðið mynsmr: smá ríkjabrot
renna saman í tiltölulega stórar
einingar og mynda rfki eins og
Þýskaland og Italíu, ósamstæð
heimsveldi með vanþróaða mið-
stjórn eins og Ausmrríki leysast
upp á meðan skilgreining og upp-
bygging ríkisvalds í öflugum kon-
ungsríkjum eins og því franska og
breska breytist, án þess að landa-
mæri þeirra hafí færst vemlega til.
Nú er rétt að hverfa ffá þessum
vangavelmm sagnfræðingsins yfir í
það sem ég ætlaði að fjalla um, þ.e.
heilbrigði þjóðríkja í nútímanum.
Hvert stefair þetta ríkisform sem
varð svona allsráðandi á öldinni
sem leið?
I raun er erfitt að svara þessari
spurningu á óyggjandi hátt, í og
með af því sagnfræðingar hafa lært
af bimrri reynslu að þeir em slakir
spámenn, en einnig vegna þess að
þróunin virðist ganga í tvær gagn-
stæðar áttir. A meðan ffændur ber-
ast á banaspjót í Júgóslavíu sálugu
og Sovétríkin leysast upp í ótelj-
andi ffumparta, virðast þjóðríki
Vesmr-Evrópu á leið í eina sæng,
þó svo að leiðin til sameiningar
virðist smndum vera grýttari en
bjartsýnusm sameiningarsinnar
vonuðust til.
En sá lærdómur sent við gemm
dregið af þróun síðustu ára er hins
vegar ótvíræður, þ.e. sá gmndvöll-
ur sem þjóðríkið var byggt á í
fyrstu er löngu brostinn. Það sem
gerst hefar er nefnilega það að
gleymst hefar að þjóðríkið er í eðli
sínu ekkert annað en skipulags-
form sem á sér sögulegar forsendur
en er fjarri því að vera einhvers
konar guðleg smíð. Það varð til
fyrir daga flugvéla, síma, útvarps,
sjónvarps, faxtækja og tölvupósts,
og ef söguleg þróun fengi að ganga
sinn gang ætti það að deyja með
þeim aðstæðum sem skópu það.
A tímurn þegar æ fleiri hindrun-
um er rutt úr vegi samskipta yfir
langan veg og þegar sífellt meiri
þörf er á skynsamlegri og ábyrgri
stjóm í málefnum sem þekkja eng-
in landamæri, s.s. í málefnum sem
snerta umhverfi og nýtingu nátt-
úruauðlinda, þá verður huginyndin
um þjóðríkið til sífellt meiri trafala.
Það sem rneira er, í skjóli þjóðern-
isstefhu og hins svonefnda heilaga
réttar þjóðemis em drýgð
grimmdarverk og kúgun sem taka
öllu ffam sem áður hefar þekkst.
Nú drepa menn ekki lengur ná-
ungann í leit að fé og ffama, heldur
vegna þess að það er heilög skylda
þjóðrækinna manna.
Ég ætla mér þó ekki þá dul að
spá fyrir um þróun heimsmála,
allra síst um endanlegt hran þjóð-
ríkja á næstu áram. Þjóðerni og
þjóðemisvitund höfða til kennda
sem ná mun dýpra en efaahagsleg
skynsemi eða rökhugsun. A rnarg-
an hátt hafa þjóðemi og þjóðernis-
vitund leyst trúarbrögð og kirkju af
hólnti. I henni leita menn að sam-
kennd, „ídentíteti", og þörf fyrir
slíka tilfinningu hefar fylgt mann-
inum frá upphafi. Þjóðríkin hafa
líka fest sjálf sig rækilega í sessi
með skipulegu uppeldi þegnanna. 1
skólum er börnum kennt að virða
allt það sem þjóðlegt er, þjóðleg
tákn njóta virðingar eins og tákn
trúarinnar áður, þjóðhetjur
sömu tilfinningar og dýrlingar
kaþólskunnar og undarlegur fiðr-
ingur fer unt menn þegar þjóð-
söngur þeirra er leikinn þó svo þeir
geti ekki fyrir sitt litla líf lagt á
minnið nema línu eða tvær af text-
anum.
Allt ber þetta vott um djúpa
sjálfheldu. Það ríkisform sem gerði
sköpun nútímasamfélagsins mögu-
lega tefar nú fyrir ffekari þróun
þess. Enginn getur efast um að
hlutverk Evrópubandalagsins er í
eðli sínu mjög göfagt, þar sem með
stofaun þess rafa þjóðir Vesmr-
Evrópu þann vítahring hefada og
gagnhefada sem kynt hafði undir
tvær heimsstyrjaldir. En um leið er
greinilegt að íbúar Evrópu eiga
erfitt með að stíga skrefið til falls,
þ.e. að leggja niður ríkisstjórnir og
þjóðþing einstakra landa og renna
saman í eitt stórt allsherjarríki.
Með því glömm við fallveldinu
segja menn, en hafa menn minna
fallveldi ef þeir búa í stóra rfki en
smáu? Er fallveldi Frakkans minna
en Islendingsins, einungis vegna
þess að tíl era fleiri Frakkar en Is-
lendingar? Þá koma Þjóðverjar til
með að ráða öllu í Evrópu, segja
aðrir, og tekst þar með það sem
þeim mistókst í heimsstyrjöldun-
um tveimur.
Þeir sem halda slíku fram
gleyma því að markmiðið er að það
verði engir Þjóðverjar, heldur að-
eins Evrópubúar, og reyndar gemr
Evrópubandalagið aldrei orðið
neftt meira en það er nú þegar, þ.e.
skrifræðisskrýmsli, án slíkrar hug-
arfarsbreytingar.
Pólitísk orðræða nútímans ber
þess ótvíræðan vott að við hugsurn
og skynjum okkur fyrst og fremst
sem hluta af þjóðum og við hvorki
gemm né erum reiðubúin til, <ið
gefa þessa vimnd upp á bátinn
hversu nauðsynlegt sem það. væri
fyrir samfélagsþróun í heiminum.
Ilver þróunin verður næsm ára-
mgina veit ég ekki, en lýk máli
mínu á að umorða fleyg ummæli
Marks Twains: Fréttir af dauða
þjóðríkisins era stórlega ýktar.
Höfundur er sagnfiræðingur
Kosning ungs fólks í fram-
kvæmdastjórn og miðstjórn-
Alþýðubandalagsins
Kjörgengi og kosningarétt eiga allir flokksbundnir Al-
þýðubandalagsmenn sem eru yngri en 30 ára 26.
nóvember. Kosinn er einn fulltrúi í framkvæmda-
stjórn og sjö í miðstjórn.
Kjörskrá
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Alþýðubanda-
lagsins. Frestur til að gera athugasemdir er til kl.
17.00, mánudaginn 15. nóvember n.k.
Framboðsfrestur
Frestur til að skila framboðum er einnig til kl. 17.00,
mánudaginn 15. nóvember n.k.
Sérhver flokksmaður undir þrítugu er kjörgengur.”^'
Flokksmenn undir þrítugu geta einnig tilnefnt
einstakling í framboð að fengnu skriflegu samþykki
hans.
Athugasemdir við kjörskrá og tilkynningar um fram-
boð eiga að berast
Skrifsfofu Alþýðubandalagsins
Laugavegi 3, 101 Reykjavík
Sími 91-17500 - Símbréf 91-17599
Kjörstjórn