Vikublaðið - 06.05.1994, Page 3
VIKUBLAÐIÐ 6. MAI 1994
Guðfræðin
3
Dr. Georg Leonard Carey, erkibisk-
up ensku biskupakirkjunnar sem er
þjóðkirkja þarlendra, heimsótti Is-
land dagana 22. til 24. apríl og átti
annríkt. Dagskrá heimsóknarinnar
var stíf, svo stíf að blaðamannafund-
ur sem átti að vera í Hallgrímskirkju
laugardaginn 23. apríl féll niður.
Sjónvarpsstöðvamar fengu að spyrja
Dr. Carey í fáeinar mínútur og á
meðan á því stóð var blaðamanni
Vikublaðsins tilkyimt að
erkibiskupinn gæti rætt við hann
næst. I þrjár mínútur.
Dr. Georg Leonard Carey erkibiskup ensku biskupakirkjunnar. „Sérhver kirkja er vitnisburöur eöa tákn. Auðvitað viljum við aukna kirkjusókn, en
við erum þó frekar rólegir og afslappaðir yfir þessu. Við viljum fyrst og fremst vera til staðar og bjóða fram okkar þjónustu þegar fólk vill nýta sér
hana.“ Myndir: ÓI.Þ.
Nú var úr vöndu að ráða. Var
hægt að ræða eitthvað viti-
borið og innihaldsríkt við
erkibiskup á þremur mínútum? Aug-
ljóslega var ekki hægt að fara djúpt út
í guðffæðina. Blaðamaður hleraði í
kringum sig og komst að því að
kollegarnir spyrðu helst um málefni
kvenpresta í Bredandi, um hvers
vegna erkibislcupinn væri á Islandi og
„how do you like Iceland". Og spurt
var um stríðið í fyrrum Júgóslavíu. En
þeim skilaboðum var náðarsamlegast
komið til blaðamannsins að hann vildi
helst ekki svara fleirum spurningum
um það viðkvæma málefni, en Dr.
Carey mun vera sérffóður um málefni
Serba.
Biskupinn í Grimsby: Stríðin
snerust um afkomuna.
Meðan beðið var og vandamálið í-
hugað var David Tustin biskup af
Grimsby tekinn tali. Borgin sú er ís-
lendingum minnisstæð vegna þorska-
stríðanna og vart hægt að tala um vin-
áttu á þeim tífna. En nú eru tímamir
breyttir og Tustin er sagður annálað-
ur íslandsvinur.
„Mín fyrstu kynni af íslendingum
var þegar ég komst í samband við As-
geir Asgeirsson fyrrum forseta Is-
lands, en þá var hann í heimsókn í
London. A sjöunda áratugnum veittist
mér síðan sú mikla ánægja að kynnast
Sigurbirni biskup ykkar, ég hygg að
það hafi verið 1967. Eg var í starfsliði
þáverandi erkibiskups og Sigurbjörn
heimsótti okkur. Mitt hlutverk var að
skipuleggja dagskrá héimsóknarinnar
og þá kynntumst ég og kona inín hon-
um og úr varð vinskapur. Hann heim-
sótti Grimsby og ekki datt inér í hug
þá að ég ætti effir að verða biskup
Grimsby."
Tustin man ólgu þorskastríðsár-
anna vel og segir að sein betur fer
heyri hún nú fortíðinni til. „Nú eru
náin og góð tengsl milli Grimsby og
Reykjavíkur. Ég get vel skilið þær til-
finningar sem ríktu þegar þorskastríð-
in geisuðu, þetta var spurning um af-
komu, að komast af. En nú hefúr tek-
ist að koma þessu rifrildi frá og meðal
annars hefur tekist að byggja upp gott
kirkjulegt samstarf þjóða okkar. Ekki
er langt síðan kórinn í Grimsby heim-
sótti ísland. Mín fyrsta heimsókn til
íslands var fyrir tveimur árum og þá
var það einmitt vegna slíks samstarfe."
Fyrrum ffughermaður:
Öll trúarbrögð og kirkjur for-
dæma stríð
Blaðamaður Vikublaðsins var ■
hálfnaður með næstu spurningu en
koinst ekki lengra, því nú var tilkynnt
að Dr. Carey væri tilbúinn í mínút-
urnar þrjár. Allt var þetta grafalvar-
legt, menn á þeysingi með kalltæki, ís-
lenskir og enskir sldpuleggjendur og
prestar og íslenskar löggur að passa
upp á að engir kverúlantar tækju upp á
einhverjum ósóma. Því var best að
slíta samtalinu við Tustin, sem sam-
þykkti að halda spjallinu áffam að
erkibiskupnum frágengnum.
Dr. Carey virtist þreyttur eftir stífa
dagskrá í heimsóknum til allra hinna
Norðurlandanna. Blaðamaður Viku-
blaðsins sagði honum þá meiningu
sína að ekki væri við miklu að búast á
svo skömmum tíma sem úthlutaður
var og hann gat ekki annað en sam-
sinnt því.
Erkibiskupinn var sem fyrr segir
búinn að fá nóg af því að svara spurn-
ingum um Bosníu og Serba. En ungur
að árum hafði hann sjálfur tekið út
herskyldu í konunglega breska flug-
hernuin (RAF) og hann var fyrst
spurður um þá nöturlegu staðreynd
að mörg ef ekki flest stríð væru háð í
heiminum í nafni trúarbragða.
„Eg vil byrja á því að segja að trúin
mun lifa allt af. Við höfum horft upp á
fall kommúnismans, en sú hugmynda-
fræði boðaði að trúarbrögðum skyldi
halda niðri. I dag er kristindómurinn
sterkari en nokkru sinni í löndum
fyrrurn Sovétríkjanna, en aftur á móti
hefur vaxandi þjóðerniskennd haldist
nokkuð saman við eflingu kirkjunnar.
Hvaða trúarbrögð og kirkjur sem er
fordæma stríð. Það gerir hin kristna
kirkja, stríð eru algjörlega gegn hug-
sjón kirkjunnar um jafnrétti og ein-
ingu. Maður horfir í kringum sig í
heiminum og sér að það er vissulega
rétt; víða eru átök í nafni trúarbragða.
Mér stendur næst að nefna írland í
þessu sambandi. Þessi staðreynd er
dapurleg, en kannski er þetta óhjá-
kvæmilegt í sumum tilfellum. Hvað
sem því líðiu- ættu allir kristnir menn
að berjast fyrir ffiði og reyna í því
skyni að hafa áhrif á þjóðarleiðtoga
sína.“
Enska biskupakirkjan er þjóðkirkja
og á íslandi hefúr talsvert verið rætt
um hugsanlegan aðskilnað ríkis og
kirkju. Dr. Carey var spurður um álit
hans á tengslum ríkis og ldrkju al-
inennt.
Kirkjan er tákn um mikilvæg
siðferðileg gildi
„Þetta er flóldð mál. Tengslin eru
mjög mismunandi. Ég er f þessari lotu
búinn að heimsækja átta lönd og
hvergi eru tengslin eins. Við ættum að
nálgast þessa spurningu með því að
spyrja fyrst: Hvað er þjóðfélaginu til
hagsbóta? Hvað er rétdátt? Allir eru
David Tustin biskup í Grimsby. „Ég
get vel skilið þær tilfinningar sem ríktu
þegar þorskastríðin geisuðu, þetta var
spurning um afkomu, að komast af.
En nú hefur tekist að koma þessu rifr-
ildi frá."
sammála um að í hverju landi þurfi að
vera siðferðileg gildi. Ráðherra ykkar
sagði mér mjög eindregið að á íslandi
væri kirkjan mjög mikilvæg til að
styðja og viðhalda siðferðilegum gild-
um í þjóðfélaginu. Almennt get ég
sagt að ef ætti að verða aðskilnaður þá
þyrfti að tryggja að kirkjan hefði fullt
frelsi og getu til að rækja skyldu sína
og hugsjónir. En mér finnst að svo
ffemi sem skýrar línur eru á milli ríkis
og kirkju þá sé ekkert sem kemur í veg
fyrir heilbrigt samstarf þarna á milli.“
Dr. Carey víkur að sínu hlutverki í
Englandi gagnvart öðrum trúar-
brögðum. „Það eru ekki forréttindi
mín heldur ánægjuleg þjónusta að fá
að vera talsmaður allra trúarbragða. I
Lávarðardeildinni kemur oft til minna
kasta að tala fyrir hönd annarra trúar-
bragða. Ég get nefút sem dæmi um-
ræðuna um hert innflytjendalög, þar
sem ég sagði að ef boðuð innflytj-
endalög hefðu verið í gildi á fjórða
áratugnum hefðu fáir gyðingar komist
til Englands og ekki var ég að mæla
þessu bót.“
Nú voru mínúturnar þrjár eiginlega
búnar og aðstoðarmenn Careys farnir
að ókyrrast; bílalestin beið koltvísýr-
ingsspúandi fyrir utan. En eftir smá
hik var samþykkt að heimila eina
spurningu til viðbótar.
Blaðamaður valdi að spyrja erki-
biskupinn um mjög takmarkaða
kirkjusókn, á Islandi og víðast hvar á
Vesturlöndum, hvort ekki mætti túlka
hana sem merki um takinarkaðan
áhuga á trú og kirkju.
„Eg verð að segja að mér finnst
þetta ekki vera mjög aðkallandi spurn-
ing,“ segir Dr. Carey. „Mér finnst
þetta ekki gildur mælikvarði. Kirkjan
er fólkið í landinu. Sérhver kirkja er
vitnisburður eða tákn. Auðvitað vilj-
um við aukna kirkjusókn, en við erum
þó ffekar rólegir og afslappaðir yfir
þessu. Við viljum fyrst og ffemst vera
til staðar og bjóða fram okkar þjón-
ustu þegar fólk vill nýta sér hana. Guð
er ekki bara í hugum og hjörtum
þeirra sem sækja ldrkju. Kirkjan er
tákn um mikilvæg gildi og á þann hátt
verðum við að líta á kirkjuna, en ekki
út ffá einhverjum talnaleik.“
Og þar með var mínútunum þrem-
ur lokið, en þær reyndust líkast til vera
tæpar finnn. A leiðinni út sagði Dr.
Carey að sér hefðu fúndist spurning-
arnar góðar og aðstoðarmenn hans
tóku undir það og leiddu sinn mann út
í bílalestina. Með þeim fór Tustin
biskup í Grimsby. Blaðamaður hrað-
aði sér heim og náði síðustu mínútun-
um í leik Wimbledon og Manchester
United. Daginn eftir kom í ljós að
biskup íslands væri Júnætet maður, en
Carey erkibiskup Arsenalisti (eða var
það öfugt?) og blaðamaður Viku-
blaðsins uppgötvaði að hann hefði al-
veg gleymt að spyrja út í þau mál.
%
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 01.05.94-01.11.94 12.05.94-12.11.94 kr. 62.552,20 kr. 74.127,40
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, apríl 1994.
SEÐLAB ANKIÍSLANDS