Vikublaðið


Vikublaðið - 06.05.1994, Síða 8

Vikublaðið - 06.05.1994, Síða 8
16 VIKUBLAÐIÐ 6. MAI 1994 Kjartan Gunnarsson er slaufu- berandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Um hann er sagt að hann sé lævís klækjarefur og/eða meinlaust möppudýr. Þetta er stóreignamaður, á eignir upp á 200 milljónir. í Valhöll tekur hann á móti tékkum frá Ingimundi í Heklu, Einari í Sjóvá, Páli í Kók, Sigurði Gísla í Hagkaup og fleiri góðum mönnum. Það er helsta „ak- sjónin“ í Valhöll, sem hefur verið líkt við „dauðsmannsgröf1. Sagt er að Kjartan hafi gert Dav- íð að formanni, en annars var helsta pólitfska afrek hans að fella Júlla Hafstein í formannskjöri í Heim- dalli. En núna ætlar Kjartan að bæta um betur. Hann ætlar að koma sér á spjöld sögunnar. Hann fór í heilagt stríð gegn því að R-listinn fengi að kalla sig Reykjavíkurlistann. Þetta er helsta baráttu- og stefnu- mál Sjálfstæðisflokksins fyrir kom- andi borgarstjórnarkosningar og er þá endanlega búið að henda lykla- kippunni hans Ama. R-listinn má þetta ekki, segja Kjartan og með- reiðarsveinar eins og Sigurbjöm Magnússon, fallisti í formennsku- kjöri ungíhalds. Sjálfstæðismenn eiga Reykjavík. R-listinn má ekki kenna sig við eign Sjálfstæðisflokks- ins. Það væri siðlausasti stuldurinn síðan styttunni af Pallas Aþenu var stolið þegar Kjartan, Davíð og Geir Haarde vom í stjórnmálaleik í MR í gamla daga. Það er allt í lagi þótt iistar í Vest- mannaeyjum, Súðavík, Bessastaða- hreppi, Alftaneshreppi og á Eski- firði séu kenndir við viðkomandi sveitarfélög. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki ennþá orðinn þinglýstur eig- andi þessara sveitarfélaga. En Sjálf- stæðisflokkurinn er þinglýstur eig- andi Reykjavíkur. Kjartan sjálfur á fasteignir við Skipholt, Brautarholt, Asvallagötu, Blómvailagötu, Star- haga, Bústaðaveg og Selásblett, en afganginn eiga Sjálfstæðisflokkur- inn og hans menn. Næst kærir Kjartan R-listann fyr- ir að nota bláar blöðrur. Og sendir fulltrúa sína á skírnarathafnir og bannar öðmm en yfirlýstu íhaldi að skíra syni sína Davíð eða Árna (þeir mega heita Markús). Sigurður heitir maður og er Sveinsson. Hann er afkomandi Sveins í Völundi, fyrirtækis sem nú heyrir sögunni til. Sigurður þessi hefur vit á handbolta og starfar á því sviði. A Selfossi. En er í framboði í Reykjavík. Þegar gagnrýnt var að skemmtidagskrá á vegum Sjálfstæð- isflokksins og Þróttar var auglýst af íþrótta- og tómstundaráði tók Sig- urður sig til og skrifaði grein í Moggann. „Ekkert má maður“ sagði Sigurður. Og hneykslaðist gríðarlega á afskiptasemi R-lista- pakksins. Hvað með það þótt Flokkurinn hafi misnotað ITR, Þrótt og látið börn bera út áróður fram yfir útivistartíma? Ekkert má maður. Hélt ekki R-listapakkið stjórnmálafund í skóla og braut þar með stjórnarskrána? Og Arni heldur áfram að klippa borða. Sem borgarstjóri Reykjavík- ur klippir hann borða og ber merki í barmi: „Ég „fíla“ Sjálfstæðisflokk- inn“. Hann á Reykjavík. Evrópa Af máli ýmissa íslendinga mætti halda að Island væri ekki í Evrópu. Gott dæmi urn þetta er vinningaskrá happdrættis nokkurs sem nýlega hefur verið efnt tdl. Fyrsti vinningur er nefiii- lega „Ferð fyrir tvo með Flugleiðum til Evrópu“. Annar vinningur er veglegast- ur: „Utanlandsferð fyrir tvo“. Þriðji vinningur er síðan: „Ferð fyrir tvo með Flugleiðum til Kaupmannahafnar". Kaupmannahöfn virðist að dómi að- standenda þessa happdrættis ekki vera í Evrópu. Samkvæmt sígildri iandafræði telst Evrópa vera næstminnsta heimsálfan að flatarmáli, aðeins Eyjaálfa er minni. I máli margra er Evrópa þó minnst allra heimsálfa. Bretar tala til að mynda um að fara „til Evrópu“ þegar þeir bregða sér yfir sundið til meginlandsins. Og forráðamenn í Evrópubandalaginu tala iðulega, með nokkrum hroka, um aðild- arríki þess sem Evrópu, enda þótt ein- ungis um þriðjungur Evrópuríkja eigi aðild að bandalaginu. Það eru ekki aðeins útmörk Evrópu sem eru á reild í máli sumra, heldur einnig skipting álfunnar innbyrðis. Á Haukur Hannesson kalda stríðið mikla sök á því. Þegar járn-' tjaldið var sett niður eftir endilangri álf- unni breyttust gamlar skilgreiningar, löndin austan tjalds voru nú allt í einu öll sögð í Austur-Evrópu, öll lönd vest- an megin í Vesmr-Evrópu. Svo einfald- ur var heimurinn í kalda stríðinu. Að eðlilegum og hefðbundnum hætti skiptist Evrópa í 5 parta: í Norður-, Suður-, Austur-, Vesmr- og Mið-Evr- ópu. I Mið-Evrópu eru Þýskaland, Sviss, Austurríki, Tékkóslóvakía, Pól- land, Ungverjaland og Rúmenía. Lönd- in þar fyrir austan mynda hina eiginlegu Ausmr-Evrópu (gömlu Sovétríkin vest- an Úralfjalla) og löndin fyrir vestan mynda Vesmr-Evrópu (Frakkland, Benelúx-löndin, Bretland og Irland). Löndin fyrir sunnan Mið-Evrópulönd eru sögð í Suður-Evrópu og löndin fyr- ir norðan Mið-Evrópulönd (Norður- löndin) mynda Norður-Evrópu. Nú er kalda stríðið að baki og búið að rífa járntjaldið niður. Samt virðist hin einfalda skipting Evrópu í ausmr og vesmr enn í fúllu gildi hjá sumum. Þeir virðast ekki geta losað sig við hina brengluðu heimsmynd eftirstríðsár- anna. Sviðsljós Baltasar Karmákur, Anna Kristín, Halldóra og Ingvar E. í hlutverkum stnum t Kæru Jelenu, sem Þjóðleikhúsið hefur ákveðið að taka til sýningar aftur. Kæra Jelena snýr aftur Þjóðleikhúsið hefur ákveðið að taka aftur til sýningar Ieikritið Kæru Jelenu eftir Ljudmilu Razumovskaju, sýningu sem sló öll sýningarmet á Litla sviðinu leikárið ’91-'92. Aðeins er um örfáar sýning- ar að ræða. Kæra Jelena þótti með besm leik- listarviðburðum þess leikárs og var það alls sýnt 161 sinnum, að leik- ferðum meðtöldum. Leikritið var fyrst sýnt á Litla sviðinu en leikárið '92 - '93 var það einnig tekið til sýn- ingar á Stóra sviðinu. Þrátt fyrir það komust færri að en vildu og hefúr því verið ákveðið að sýna verkið á nýjan Ieik. Leikarar í verkinu eru: Anna Kristín Arngrímsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Baltasar Kormákur, Hilmar Jónsson og Halldóra Björnsdóttir. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Fyrsta sýning verður þriðjudaginn 17. maí. Hjartagátan Setjið rétta stafi í reitina neðan við krossgátuna. Þeir mynda þá kvenmannsnafh. - Lausnarorð krossgátunnar í síðasta blaði er Fömhagi. 7— Z 3 7 1 5T L i 8 9 ¥ 10 ¥ II IZ 13 T 7 s II 7 ? 16 V lb 9 5~ ii I? ig Z l°l T ID Z £ )5~ 9 20 17 5~ 21 ¥ 8 S 2 'G T 17 S 9 2 ¥ 8 22 23 8 18 5 V n> ZH- / 0 5 7 9 23 20 8 ¥ 9 £ 9 7 ¥ 2S Zá> II 9 V 27 9 23 5 ¥ 21 23 7 Z8 10 Ý ¥ 17 5" 7 9 2 20 \ 2 3 2 ¥ 27 27 Z°i Z ¥ 10 r ll 9 ¥ 12 9 20 9 is 4 20 5" V 30 31 2/ 4 31 10 18 2 ¥ h" 2á> ip 9 II 3o 3! 17 ¥ 17 1S 20 ' W~ V sr U 2 17 T 2 31 W Z S 7 S’ 21 27 1S 7 ¥ )£ 27 Z7- 23 8 ¥ 2 9 23 s ¥ 1S 17 V 27 27 9 17 Z ¥ 28 2 ¥ 9 2 27 ¥ 23 32 17 5T 21 7 17- 8 iz ie z A = 1 = Á = 2 = B = 3 = D = 4 = Ð = 5 = E = 6 = É = 7 = F = 8 = G = 9 = H = 10 = 1 = 11 = í = 12 = J = 13 = K = 14 = L = 15 = M = 16 = N = 17 = o = 18 = Ó = 19 = P = 20 = R = 21 = S = 22 = T = LO II U = 24 = Ú = 25 = v = 26 = .x = 27 = Y = 28 = Ý = 29 = Þ = 30 = Æ = 31 = Ö = '\kí ■\o .11

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.