Vikublaðið - 27.05.1994, Page 12
12
IJmhehnuriiin
VIKUBLAÐIÐ 27. MAI 1994
Norðurlöndin og
Evrópusambandið
Erindi Steingríms J. Sigfússonar alþingismanns og fyrrv. ráðherra á fundi ráðsins um
Evrópustefnu (Rádet for Europæisk politik) í Kaupmannahöfn 9. 5. 1994
/
g vil í upphafi þakka fyrir boðið um að
koma hingað á þennan fund og gera grein
fyrir mínum sjónarmiðum og stöðu Is-
lands í samhenginu Norðurlönd og Evrópusam-
bandið. Eg inun reyna að gera grein fyrir við-
horfum í íslenskum stjórnmálum ög stöðu mála
með eins hlutlausum hætti og mér er unnt, en
mínar persónulegu skoðanir og stefna míns
flokks hafa að sjálfsögðu nokkur áhrif á það
hvernig ég met stöðuna.
Ég vil ennfremur undirstrika að ég fagna því
að mér sem fulltrúa íslands er boðin þátttaka á
þessum fundi til að útskýra okkar sjónarmið og
með því árétta að norrænt samstarf heldur sínu
striki gegnum m.a. skoðanaskipti af þessu tagi,
þó það skiljist að einhverju leyti leiðir í utanrík-
ispólitískum ákvörðunum.
Stutt sögulegt yfirlit
Ég tel rétt að gera í byrjun mjög stuttlega
grein fyrir stöðu íslands og sögu íslenskra utan-
ríkismála og er þá rét't að minna á að ísland með
sína 265 þús. íbúa og sitt einhæfa atvinnulíf þar
sem 80% útflutningstekna þjóðarinnar koma frá
sjávarútvegi, hefur mikla sérstöðu.
Ur stjórnmálasögunni er rétt að rifja upp að
íslendingar fagna á þessu ári 50 ára afmæli lýð-
veldisins og meðvitundin um endurheimt sjálf-
stæði er því fersk í vitund þjóðarinnar. Island
varð ffjálst og fullvalda ríki 1918 í konungssam-
bandi við Danmörku. Lýðveldi var stofnað á
Þingvöllum 17. júní 1944 og verður 50 ára af-
mælis þess fagnað innan skamms, eins og áður
sagði. íslendingar hafa frá upphafi haft nánust
tengsl við hin Norðurlöndin, við Noreg og síð-
an auðvitað Danmörku um margra alda skeið og
síðan öll Norðurlönd, sérstaklega á eftirstríðs-
tímanum.
ísland gekk í Gatt 1968 og EFI A árið 1970,
eða 10 árum eftir að samtökin voru stofnuð og
gerði í framhaldinu fríverslunarsamning við
Evrópubandalagið eins og önnur EFTA-ríki.
Svonefnd bókun 6 gaf íslendingum strax frá því
snemma á áttunda áratugnum góð viðskiptakjör
með sjávarafurðir inn á markað Evrópubanda-
lagsins og verulegar tollalækkanir eða niðurfell-
ingar. Munaði þar mestu um nær algert tollfrelsi
fyrir frystar sjávarafúrðir. Samkeppnisstaða ís-
lands var því allgóð á Evrópumarkaði og á köfl-
um betri en t.a.m. keppnauta okkar á þeim
markaði, Norðmanna. Innan EFTA hafa íslend-
ingar síðan barist fyrir höfuðstefnumáli sínu
ímilliríkjaviðskiptum, þ.e. tolifrjálsum viðskipt-
um með sjávarafurðir og náðist það fram fyrir
nokkrum árum.
íslendingar hafa til viðbótar þessu átt náin
efnahagsleg og stjórnmálaleg samskipti við
Bandaríkin og verður vikið að því síðar.
ísland tók ákvörðun um það í Osló snemma
árs 1989, ásamt öðrum EFTA-ríkjum að hefja
könnunarviðræður við Evrópubandalagið um
gerð EES-samningsins.
Samningur um Evrópskt efna-
hagssvæði
Viðræðurnar við Evrópubandalagið um EES
hratt af stað mikilli umræðu á íslandi um tengsl
okkar við ríki Evrópubandalagsins, nú Evrópu-
sambandsins. Viðhorf íslensku þjóðarinnar og
íslensku stjórnmálaflokkanna voru og eru al-
mennt þau að aðild að Evrópubandalaginu sé
ekki á dagskrá. Umræðan snérist um það hversu
náin tengsl okkar skyldu vera og hvers eðlis. All-
ir viðkenna þörf okkar fyrir góðan viðskipta-
samning en deildari meiningar eru um hversu
langt skuli ganga í því að undirgangast yfirþjóð-
legt vald á erlendri grund. Afgreiðsla samnings-
ins tók Iangan tíma á íslandi og urðu langar um-
ræður á Alþingi íslendinga frægar út um lönd og
álfur. A hinu foma íslenska Alþingi hefur ríkt og
ríkir að mestu leyti óbreytt sú hefð að ræðutími í
meiriháttar málum og við afgreiðslu lagafrum-
Steingrímur J. Sigfússon er bjartsýnn fram-
tíð norræns samstarfs þó að einstakar
Norðurlandaþjóðir velji sér mismunandi
leiðir í samskiptum sínum við Evrópu.
varpa er ekki takmarkaður. Að endingu fór það
svo að þrír af fimm flokkum sem fulltrúa eiga á-
Aljtingi klofnuðu í afstöðu sinni til málsins. Al-
þýðuflokkurinn studdi málið í heild sinni, minn
flokkur, Alþýðubandalagið, lagðist sameiginlega
gegn samningnum, en Sjálfstæðisflokkurinn,
Framsóknarflokkurinn og Kvennalistinn klofn-
uðu. Oruggur meirihluti varð fyrir afgreiðslu
samningsins en mjótt varð á munum í atkvæða-
greiðslu um tillögu um að hann skyldi borinn
undir þjóðaratkvæði. Skoðanakannanir bentu til
að afstaða þjóðarinnar skiptist nokkurn veginn í
tvennt, með og á móti samningnum.
Nú þegar samningurinn hefur loks gengið í
gildi eru þegar uppi umræður um framtíð hans
og hversu lengi Evrópska efnahagssvæði sem
slíkt komi til með að verða til. Leiðir það af
sjálfu, þar sem öll önnur aðildarríki en ísland ffá
EFTA-hliðinni hafa nú sótt um inngöngu í Evr-
ópusambandið.
Skipta iná möguleikunum upp í tvennt, þ.e.
annars vegar ef Island kemur til með að standa
eftir eitt EFTA-ríkjanna sem aðili EES. Sá
möguleiki er augljóslega fyrir hendi þar sem
Sviss felldi aðild í Jrjóðaratkvæðagreiðslu og
Lichtenstein hefur ekki fullgilt sína aðild. Hinn
möguleikinn er svo að aðildarsamningar falli í
þjóðaratkvæðagreiðslu t.d. í Noregi og e.t.v.
fleiri löndum.
Rétt er að hafa í huga að verði Island eitt
Norðurlandanna utan Evrópusambandsins mun
það óneitanlega hafa talsverð áhrif á samvinnu
íslands við Finnland, Svíþjóð og Noreg. Við
höfum ýmiss samningsbundin réttindi gagnvarf
þessum ríkjum. það skýrist hvernig þau réttindi
breytast við væntanlega aðild hinna Norður-
landaþjóðanna þriggja að Evrópusambandinu.
Það er ljóst að við aðild að Evrópusambandinu
munu þessi ríki fá sameiginlega tolla gagnvart
ríkjum utan sambandsins og sambandið gerir
viðskipta- og tollasamninga við þriðju ríki sam-
kvæmt 113. gr. Rómarsamningsins.
Sú sérkennilega staða kann því að koma upp
að það geti reynst nokkuð erfitt fyrir íslendinga
að halda hagstæðum viðskiptakjörum gagnvart
þessum grannþjóðum, sem við höfúm öðlast, í
gegnum aðild að EFTA og ýmsa norræna samn-
inga og tvíhliða samninga og jafnvel einfaldlega
óskrifað fyrirkomulag sem tíðkast hefur í sam-
skiptum vinaþjóðanna áNorðurlöndum. Hér er
einkum um að ræða markaðsaðgang fyrir þær
sjávarafurðir sem ekki njóta að fullu tollfrelsis
samkv'æmt EES-samningi. Þetta á við t.d. um
síld, en eins og áður hefúr komið fram er full frí-
verslun með fisk og fiskafurðir milli EFTA-ríkj-
anna.
Sama staða getur komið upp í sambandi við
innflutning Islendinga á lambakjöti til hinna
Norðurlandanna, en þar höfum við haft tiltekna
innflutningskvóta sem óvíst er að haldist. Neína
má dæmi um enn annarskonar útfluming eins og
t.d. útflutning íslendinga áþangmjöli og þara-
mjöli til Finnlands. A því er nú enginn tollur en
sambærilegar vörur eru í 15 % tolli ef þær eru
fluttar til Evrópusambandsins. Reiðhestar hafa
verið fluttir frá Islandi til Finnlands, Noregs og
Svíþjóðar á lágum eða engum tolli, en við inn-
flutning þeirra til Evrópusambandsríkjanna er
tollurinn hinsvegar 18%. Hins vegar er það svo
að allflestir norrænir samstarfssamningar sem
ísland er aðili að og tvíhliðasamningar við þessi
þrjú ríki eru þess eðlis að ekki þarf að hafa á-
hyggjur af því að þeir haldi ekki velli þrátt fyrir
aðild þeirra að Evrópusambandinu ef til kemur.
Það má minna á að við inngöngu Danmerkur
í Evrópusambandið hélst aðild Danmerkur að
Norðurlandasamningum óbreytt, og hefur ekki
verið amast við þeim yfirleitt fyrr en þá í seinni
tíð. Danmörk hefúr einnig gerst aðili að ýmsum
Norðurlandasamningum og breytingum á þeim
effir að Danmörk gerðist aðili að Evrópusam-
bandinu. A hitt er að líta að svigrúm aðildarríkja
Evrópusambandsins hefur minnkað á undan-
förnum árum við það að mikill íjöldi ESB-reglna
hefur verið að koma til sögunnar á ýmsum svið-
um.
Þegar EES-samningurinn var gerður þá þótti
ástæða til að árétta að sá samningur útilokaði
ekki norræna samvinnu samkvæmt 121. gr. hans
og ég leyfi mér að minna á að Svíar óskuðu eftir
því að þátttaka í norrænu samstarfi yrði við-
kennd með viðeigandi hætti íupphafi samninga-
viðræðnanna við ESB.
Felli á hinn bóginn Norðmenn að gerast aðil-
ar, að ekki sé nú talað um e.t.v. fleiri Norður-
lönd, þá er staðan talsvert breytt. Þá yrðu auð-
vitað gjörbreyttar forsendur fyrir því að halda
EES-samningnum áfram um lcið og ríkin væru
orðin tvö eða fleiri sem gætu staðið sameiginlega
að framkvæmd hans, starfrækslu stofnana o.s.frv.
Þó ekki sé ólíklegt að eftir sem áður kæmu til á-
lita einhverjar breytingar og einfaldanir á samn-
ingnurn við það að það fækkaði í hópi þeirra
ríkja sem að honum stæðu.
Sambærilegar spurningar hafa auðvitað vakn-
að, um framtíð EFTA ef Norðurlöndin þrjú
ganga inn í Evrópusambandið og eftir yrðu að-
eins ísland, Sviss og Lichtenstein, þegar Norð-
urlöndin þrjú og Austurríki yrðu gengin í ESB.
Það breytir auðvitað miklu fyrir framtíð EFTA
hvort eitthvað af Norðurlöndunum önnur en Is-
land halda þar áfram. Umræður hafa einnig
vaknað um hvort EFTA gæti orðið notadrjúgt
sem einhverskonar hlið fyrir Mið- og Austur-
Evrópuríki, sem miða öll sín ffamtíðaráform við
að geta sem fyrst orðið fúllgildir meðlimir í
hinni evrópsku fjölskyldu.
Ályktun Alþingis um tvíhliða sam-
skipti við Evrópusambandið
I ljósi þeirrar stöðu sem upp var komin í kjöl-
far aðildarumsókna hinna Norðurlandanna
þriggja að Evrópusambandinu, afgreiddi Alþingi
einróma þann 5. maí 1993 ályktun um að taka
skyldi upp viðræður um samskipti Islands og
Evrópusambandsins í ljósi breyttra aðstæðna.
Hugmyndir manna ganga yfirleitt í grófúm
dráttum út á það að stefnt verði á að breyta EES-
samningnum yfir í tvíhliða samning Islands við
Evrópusambandið, þar sem viðskiptaþáttum og
viðskiptakjörum EES-samningsins verði haldið í
grófúm dráttum, en stefnt verði að því að ein-
falda samninginn, einkum og sér í lagi stofnana-
þáttinn, þannig að hann verði viðráðanlegur og
við hæfi í samskiptum þessara aðila. Reiknað
hefur verið með að slíkar viðræður geti hafist
síðsumars eða í haust og hefur formleg ósk ís-
lendinga þar um verið send Evrópusambandinu.
Aðild eða ekki aðild að
Evrópusambandinu
Síðustu mánuði hefur sem að líkum lætur,
orðið mikil urnræða á íslandi um framtíðarþró-
un á þessu sviði og tengsl okkar við Evrópusam-
bandið. Ekki síst nú í kjölfar þess að hin Norð-
urlöndin og síðast Noregur hafa lokið samn-
ingaviðræðum sínum um inngöngu. Margar
spurningar hafa vaknað sem tengjast því hvernig
þróun Evrópusambandsins verði, hver verði
staða smáríkja innan þess, hvernig tengslum
Evrópusambandsins við ríki Mið- og Austur-
Evrópu verði háttað í framtíðini og hver áhrif
fjölgun ríkja í sambandinu komi til með að hafa
á lýðræði, ákvarðanatöku og uppbyggingu sam-
bandsins. Skoðanakannanir hafa sýnt nokkuð
skarpa sveiflu í þá átt að mun fleiri íslendingar
en fyrr og reyndar talsverður meirihluti telja nú
skynsamlegt að látið verði á það reyna að hvaða
kjörum íslendingar gætu komist í samningavið-
ræðum við Evrópusambandið.
Afstaða íslensku stjórnmála-
flokkanna
I gegnum alla þá Evrópuumræðu sem farið
hefur fram á íslandi undanfarin ár og allt fram til
þessa dags, hefur hin formlega afstaða íslensku
flokkanna verið sú að enginn þeirra hefur haft
aðild að Evrópusainbandinu á sinni stefnuskrá.
Hafa menn gjarnan vísað til þess að að óbreytt-
um ákvæðum Rómar-sáttmálans um sameigin-
leg yfirráð yfir auðlindum, þ.m.t. auðlindum
hafsins upp að innstu landhelgismörkum, þá sé
slíkt óhugsandi fyrir Islendinga. Algengur frasi
gegnum allt viðræðuferlið í EES-samningavið-
ræðunum var að segja sem svo að aðild að Evr-
ópusambandinu væri ekki á dagskrá. Auðvitað
hefur mátt greina mismunandi áherslur í ís-
lensku stjórnmálaflokkunum og má segja að þær
hafi að nokkru leyti endurspeglast í afstöðu
flokkanna til EES-samningsins við lokaaf-
greiðslu hans á þingi, sem áður var gerð grein
fyrir.
Umræðan um þessi mál hefur verið talsvert
lífleg síðustu vikurnar og hefúr að ýmsu leyti
dregið til tíðinda í þeirn, eins og nú verður rak-
ið:
Alþýðuflokkurinn hefur ákveðið að flýta sín-
um landsfundi og halda hann nú aðra helgi júní-
mánaðar í staðinn fyrir í haust. Hafa þær rök-
semdir m.a. heyrst að búast megi við alþingis-
kosningum í haust í stað apríl 1995 sem er hinn
reglulegi kjördagur. En einnig liggur fyrir að
vænta megi tillögu um breytta stefnu Alþýðu-
flokksins í Evrópumálunum. Hefur jafnvel
heyrst að formaður flokksins, núverandi utanrík-
isráðherra Jón Baldvin Hannibalsson, muni með
einum eða öðrum hætti gera aðild eða aðildar-
umsókn að stefnumáli hjá Alþýðuflokknuin fyrir
næstu alþingiskosningar.
Framsóknarflokkurinn fékk nýjan formann
nú um sl. mánaðarmót og tók varformaður
flokksins Halldór Asgrímsson við formennsku í
kjölfar þess að Steingrímur Herinannsson ffá-
farandi formaður og fyrrv. forsætisráðherra
gerðist einn af þremurn bankastjórum Seðla-
bankans. Það kvað við nýjan tón hjá hinum nýja
formanni Framsóknarflokksins og velti hann
m.a. upp í stefnuræðu sinni á flokksþinginu
möguleikunum á einhverskonar áheyrnaraðild
eða aukaaðild íslendinga að mikilvægustu
nefndum og ráðum Evrópusambandsins. Hann
taldi að vísu eftir sem áður að full aðild væri ekki
fysilegur kostur og rökstuddi Halldór, sem er
fyrrv. sjávarútvegsráðherra, það m.a. með því að