Vikublaðið - 27.05.1994, Side 16
Munið
áskriftarsímann
17500
Árni sveik
loforðin við
aldraða
✓
Aþví kjörtímabili sem nú er
að ljúka ætlaði Sjálfstæðis-
flokkurinn að tillögu Ama
Sigfússonar og Páls Gíslasonar að
fjölga hjúkrunarrýmum fyrir aldr-
aða um 160 til 170 á tímabilinu
1991 til 1993. Efndimar urðu þær
að hjúkmnarrýmum fjölgað um 80
eða helmingi minna en Ami og Páll
lofuðu. Þá ætluðu Ami og félagar
að kaupa árlega 15 til 20 leiguíbúð-
ir fyrir aldraða 1991 til 1993 eða
samtals 45 til 60. Efindimar urðu
þær að 10 leiguíbíðir vom keyptar
eða um fimmtungur af því sem til
stóð.
A þessar staðreyndir bendir Kristín
A. Olafsdóttir borgarfulltrúi. Fyrir
lok síðasta kjörtímabils var lögð fram
skýrsla starfshóps sem unnið hafði í
málefhum aldraðra allt kjörtímabilið.
Formaður starfshópsins var Arni Sig-
fússon og með honum í starfshópnum
voru samflokksmaðurinn Páll Gísla-
son og minnihlutafúlltrúarnir Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir og Kristín A.
Olafsdóttir. Nefndarmenn voru sam-
mála um brýna nauðsyn þess að fjölga
hjúkrunarrýmum fyrir aldraða. Arni
og Páll töldu nóg að fjölga rýmunum
um 160 til 170 á næstu þremur árum.
Efndirnar urðu um 80. Um leiguíbúð-
ir sögðu Arni og Páll: „Með uppbygg-
ingu leigu- og hlutdeildaríbúða við
Lindargötu og áffamhaldandi kaup-
um Reykjavíkurborgar á 15-20 íbúð-
um árlega, næstu 3-4 ár, til údeigu
öldruðum, verður jafnan unnt að
svara metinni þörf fyrir félagslegar í-
búðir fyrir aldraða." Sem fyrr segir
urðu efnirnar á þessu loforði 10 leigu-
íbúðir í stað 45 til 60.
Ingibjörg Sólrún og Kristín töldu
að of skammt væri gengið í tillögun-
um og vildu mun markvissari upp-
byggingu, en Arni og Páll töldu nóg
að gert - og stóðu ekki við nema lítinn
hluta af því sem lofað var.
Stöð 2 sttur
á sorpfrétt
Fréttastofa Stöðvar 2 birtir
ekki ffétt um mistök meiri-
hluta Sjálfstæðismanna í
Vestmannaeyjum í sorpmálum.
Fréttaritari Stöðvar 2 í Vestmanna-
eyjum segir fréttina ekki tilbúna en
hann hóf að virma hana fyrir meira
en hálfúm mánuði.
Meirihluti sjálfstæðismanna í
Vestamanneyjum keypti sorpeyðing-
arstöð fyrir tveim árum sem fór langt
fram úr kostnaðaráætlunum og er
meingölluð. Meira magn sorps er nú
urðað í Vestamannaeyjum en raun var
á áður en sorpeyðingarstöðin tók til
starfa.
Bæjarstjórinn í Vestamannaeyjum
og ffambjóðandi sjálfstæðismanna,
Guðjón Hjörleifsson, fór fyrir þriggja
manna nefnd sem ákvað að kaupa
sorpeyðingarstöðina. Stöðin átti upp-
haflega að kosta tæpar 100 milljónir
króna en hún mun kosta bæjarfélagið
160 milljónir króna.
Gísli Oskarsson, fréttamaður
Stöðvar 2 í Vestamannaeyjum, hóf að
vinna frétt um sorpeyðingarstöðina
fyrir hálfum mánuði og tók meðal
annars viðtal við Einar Val Ingimund-
arson umhverfisverkfræðing. Sjálf-
stæðismenn vildu hins vegar ekki ræða
málefni sorpey^ingarstöðvarinnar og
ekki heldur embættismenn bæjarfé-
lagsins.
Gfsli segist ekki vera búin að vinna
fféttina og hann veit ekki hvort hon-
um tekst að ljúka henni fyrir kosning-
ar. Hann segir pólitík komna í málið
og það geri honum erfitt fyrir.
Löggunni sigað á
Reykj avíkur listafólk
Lögreglunni var síðastliðinn
þriðjudag sigað á stuðnings-
menn Reykjavíkurlistans þar
sem þeir óku um í strætisvagni og
notuðu gjallarhom til að kynna úti-
fund listans á Ingólfstorgi. Allar
líkur benda til þess að kærandi hafi
verið kosningaskrifstofa Sjálfstæð-
isflokksins að Grensásvegi 3, en
þar á bæ var þessu neitað.
Samkvæmt ströngustu umferðar-
regluin er ekki leyfilegt að auglýsa
viðburði með þessum hætti, en yfir-
völd hafa ekki amast við því að t.d. í-
þróttafélög hafi gert slíkt, einkum er
það er á „kristilegum tfma”. I þessu
tilviki hættu stuðningsmenn Reykja-
víkurlistans þessari iðju sinni kl. 21
um kvöldið og voru þá fyrir utan
kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokks-
ins og skömmu síðar svifu lögreglu-
menn að og tóku skýrslu.
Frambjóðetidur G-listans í Kópavogi hafa gengið í öll hús í bænum tneð íslenska birkið og hvarvetna fengiðgóðar móttökur.
Hér eru efrtu menn listans að búa sig til birkigöngu, frá v. Valþór Hlöðversson, Bima Bjamadóttir og Flosi Eirtksson.
Frambjóðendum G-lista vel tekið með G-tréð
Birki „fyrir
bæinn okkar!“
s
tólf bæjarfélögum á landinu,
þar sem Alþýðubandalagið
býður ffam G-lista, hafa ffam-
bjóðendur fært bæjarbúum birki-
plöntur að gjöf. I nokkrum bæjum
var gengið í hvert hús en annars-
staðar var þessu tákni um gróanda
og gott mannlíf komið á framfæri
við verslanir og á mannamótum.
„Islenska birldð er táknrænt fyrir
það sem þarf til þess að takast á við
erfiðar ytri aðstæður, þeas lífskraft og
þolgæði, " segir Einar Karl Haralds-
son ffamkvæmdastjóri
Alþýðubandalagsins. „Enda þótt
G-listarnir séu í mjög mismunandi
stöðu effir stærð bæja og hvort þeir
hafa átt aðild að meirihlutasamtarfi
eða ekki, er við sömu vandamál að etja
um allt land. Atvinna og jöfnuður eru
aðalkröfúrnar allsstaðar. Þessvegna
vildi Alþýðubandalagið vera með eitt
sameinandi tákn fyrir G-listana. Með
því er einnig verið að leggja áherslu á
nauðsyn þess að hlú að vaxtarbrodd-
um þjóðlífsins, börnum, ungviði,
náttúru og nýjungum í atvinnulífi og
stj órnarháttum. “
Frambjóðendum G-listans hefur
hvarvetna verið vel tekið er þeir hafa
komið G-trénu á ffamfæri. Á urnbúð-
ir er skráður eftirfarandi texti: Gjöf til
þín frá G-listanum. Fyrir bæinn okk-
ar! Vísur hafa verið kveða af þessu til-
efni og skal ein tilfærð hér, ættuð af
Sauðárkróki:
BANDALA GSINS BIRKITRÉ
BRÁTTMUN VAXA OG DAFNA.
OG ÉG VONA AÐ ÞAÐ SÉ
ATKVÆÐUMAÐ SAFNA.
Borgin skuldar nær 10 milljarða
Heildarskuldir borgarsjóðs voru 9,5 milljarðar króna um síðustu áramót, en það
svarar til þess að hver íbúi borgarinnar sé skrifaður fyrir 93 þúsund króna skuld
eða hver fjögurra maxma fjölskylda fyrir 375 þúsund krónum. Heildarskuldir
borgarsjóðs hafa á núverandi verðlagi aukist um 5,3 milljarða eða 126 prósent á
kjörtímabilinu. Súluritið sýnir þróunina í milljónum kr. á verðlagi í janúar 1994.
1982 1983
1984
1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991
1992 1993