Vikublaðið


Vikublaðið - 18.11.1994, Síða 1

Vikublaðið - 18.11.1994, Síða 1
Hvað hefur orðið af Evrópu? Evrópa hefur ekkert fram að færa til heimsmenningarinn- ar lengur nema ef vera skyldi útþurrkun þjóðemiseinkenn- anna. Bls. 4 8 Jenný vaiin! r • Ék ur Svving, Kuran, Swing | Héraðsdómur staðfestir að jafn- Borgarlistamaðurinn, jazz- ■‘WvÉMHH réttislög hafi verið bmtin á leikarinn, fiðlusnillingurinn, ■ Jennýju Sigfúsdótmr en Finnur fjölskyldufaðirinn og WjS&jL' Í.V ' 1 higólfsson rífúr bara kjaft. i ******$ *t L «- ~ Pólverjinn Szymon Kuran er í 1 Flokkspólitísk spilling er pfy 4I"* * 1 r ^ r ^ . & viðtali vikunnar sem Elísabet undirrótín. Baksíða Jökulsdóttír tók. Bls. 6-7 45. tbl. 3. árg. 18. nóvember 1994 Ritstjóm og afgreiðsla: sími 17500 250 kr. Fyrram borgarfulltrm í ábatasamt sérverkeftii Júlíus Hafstein, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er að taka saman tillögur í ferða- málum fyrir samgönguráðherra og fær 600.000 krónur fyrir viðvikið. Sérverkefnið var ákveðið með munnlegu samkomulagi í sumar. Halldór Blöndal sam- gönguráðherra ákvað í á- gúst síðast liðnum að fela samflokksmanni sínum Júlíusi Hafstein fyrrum borgarfulltrúa að gera tillögur í ferðamálum. Júlíus, sem var hafhað af flokksmönnum sínum í prófkjöri fyrir síðustu borgarstjómarkosningar, fær samkvæmt munnlegu samkomu- Iagi urn 600 þúsund krónur fyrir að setja tillögur sínar á blað. Þórhallur Jósepsson aðstoðarmað- ur samgönguráðherra staðfesti að Júlíus væri að vinna að slíku sérverk- efni fyrir ráðuneytið, en kvaðst ekki geta upplýst um hvað verkefnið snerist eða hvað Júlíus ætti gð fá greitt fyrir það. Heimildarmenn Vikublaðsins sögðu hins vegar að Júlíus ætti að setja „eitthvað á blað um ferðamál" og fá 600 þúsund krónur fyrir vikið. Júlíus staðfesti þetta sjálfur í sam- tali við Vikublaðið og einnig að upp- hæðin væri nærri lagi, þó þannig að Störf fyrir 400 í sam- göngufram- kvæmdum Talið er að sátt Alþýðusam- bandsins, vinnuveitenda og ríkisstjómarinnar um 3,5 millj- arða króna firamlag ríkisins til samgönguframkvæmda tryggi 300 til 400 manns störf á næstu árum. Benedikt Davíðsson forseti ASI segir að þessi niðurstaða verði að teljast vemlegt spor í rétta átt miðað við fyrri áætlanir. Sem kunnugt er boðaði Davíð Oddsson forsætisráðherra upphaf- Iega að 7 milljarðar ættu að fara í samgönguframkvæmdir á næstu 10 árum og að þetta yrði fjármagnað að fullu með sérstöku bensíngjaldi. Því gjaldi var mótmælt harðlega. Þegar forsætisráðherra svaraði fyrirspurn Guðrúnar Helgadóttur nýverið um þessar fyrirætlanir upp- lýsti ráðherrann að sama morgun hefði náðst þessi sátt og mun Davíð hafa lagt nokkra áherslu á að lending væri koinin í málinu áður en fyrir- spuminni yrði svarað. Að sögn Benedikts þýðir þessi út- færsla að bensíngjaldið vegi nú að- eins íjórðungi af frainkvæmdunum og muni aðeins vega 0,13% í fram- færsluvísitölunni. það gæti skeikað 50 þúsund krónum dl eða frá. „Þetta kom fyrst til tals í júlí, en í ágúst var gert munnlegt samkomulag á fundi með ráðherra og ráðuneytisstjóra. Eg á að gera til- lögur um ýmsa þætti ferðamála og tengda þætti. Eg vil taka það fram að þetta er ekki skýrslugerð, mér er ekki gert að skila 500 blaðsíðna skýrslu sem síðan endar ofan í skúffu. Eg á að gera tillögur til hjálpar þessari at- vinnugrein og hef nokkuð frjálsar hendur ef ég vil koma með viðbótar- tillögur." Júlíus sagði að hann reiknaði með því að skila inn tillögum sínum innan nokkurra vikna, en engin tímamörk lægju þó fyrir. Júlíus var borgarfulltrúi 1986- 1994 og kjörinn fúlltrúi í ferðamála- nefnd Reykjavíkur frá 1986 og í Ferðamálaráði Islands frá 1985. Júlí- us er með verslunarskólapróf og lauk íþróttakennaranámi og hefur rekið heildverslun í smáum stíl. Þetta er í aimað sinn á stuttum tíma sem Vikublaðið greinir frá því að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins séu að fela uppgjafastjómmálamönnum sínum sérverkefni. Fyrir skönimu greindum við frá því að Davíð Odds- son hefði falið Þorvaldi Garðari Kristjánssyni störf fyrir forsætis- Enginn bilbugur á sjúkraliðum Hvorki gengur né rekur í samningaviðræðum sjúkraliða og samninga- nefndar ríkisins og verður ástandið á heilbrigðisstofnunum landsins æ alvarlegra. Samninga- fúndur var haldinn í gær, en ekki er vitað til þess að hann hafi skil- að nokkru. Samkvæmt heimildum Viku- blaðsins em sjúkraliðar afar óhress- ir með hversu verkfallsbrot em tíð á stóru sjúkrahúsunum, þar sem hjúkrunarfræðingar ganga í störf sjúkraliða án þess að undanþágu- umsókn sé Iögð fram. Sjúkraliðar láta engan bilbug á sér finna í verkfallinu, en á hinn bóginn á félagið ekkert í verkfall- sjóði og ljóst að fjárhagur félags- rnanna er í mörgum tílvikum mjög bágur eftir að hafa fengið laun fyrir aðeins 10 daga í mánuðinum. I at- hugun er að félagið fái úthlutun úr vinnudeilusjóði BSRB. Málefhi sjúkraliða voru rædd ut- an dagskrár á Alþingi á miðvikudag, þar sem fram kom hörð gagnrýni á fjármálaráðherra og afstöðu samn- inganefhdar hans. Guðrún Helga- dóttir fjallaði um smánarleg byrjun- arlaun sjúkraliða og gagnrýndi fjar- vem Friðriks Sophussonar á sania tíma og neyðarástand væri að skap- ast á heilbrigðisstofhunum. Sagði hún að úr því fjármálaráðherra væri í Noregi ætti hann að kynna sér byrjunarlaun sjúkraliða, þau væm 130 þúsund í Noregi en 56 þúsund á Islandi. Þá vakti athygli að stjóm- arliðinn Matthías Bjarnason veittist harkalega að samninganefhd fjár- málaráðherra fyrir að leggja fram nánasarlegt tilboð, sem væri til skammar. ráðuneytið og fær Þorvaldur Garðar enn 115 þúsund krónur á mánuði fyrir viðvikið ofan á önnur eins efrir- laun. Engar reglur gilda um sérverk- efhi ráðuneyta og virðist vera að komast á sú hefð að þau séu notuð til að bæta kjör útvalinna einstaklinga. Launabilið breikkar Munur milli láglaunafólks og hátekjumanna hefúr aukist á síðustu ámm samkvæmt athugun Þjóðhagsstofhunar á skattfram- tölum sem var kynnt í vikunni. Meðaltekjur hjóna í efsta fimmt- ungi tekjudreifingarinnar vom 1986 þrefalt hærri en hjóna í neðsta fimmtunginum. Nú þarf að marg- falda tekjur láglaunaheimila með amk 3,5 til að þau nái tekjum há- launaheiinilanna. I athuguninni er ekki tekið mið af vaxtatekjuin sem em ekki skattskyldar. Hálaunahópar hafa drjúgar fjánnagnstekjur en lág- launafólk býr ekki við það að geta fjárfest og hefur því hverfandi vaxta- tekjur. Því er líklegt að munurinn á heildartekjum hafi aukist enn meira. Skuldir heimilanna hafa auldst mikið vegna kaupmáttarhmns launa- fólks. Bara á einu ári, 1992 til 1993, minnkaði kaupmáttur um tæp 4%. Skuldir heimilanna jukust á sama tíma um tæp 7%. Hótel Borg með millj- ónir kr. í vanskihim Tómas A. Tómasson, kaup- andi Hótel Borgar, er kominn í talsverðan greiðsluvanda vegna kaupanna og endurbótanna á hótelinu. Tómas er í verulegum vanskilum við borgina, seljanda eignarinnar, og við veðhafa. Af 172ja milljón króna kaupverði á Tómas að vera búinn að greiða 22 milljónir en hefur aðeins greitt um helming þessa og skuldar verulega dráttar- vexti vegna mismunarins. Borgaryfirvöld hafa neitað að gefa út afsal vegna vanskilanna og sömu- leiðis neitað að veita viðbótarveð- leyfi umfram þau sem þegar hafa verið veitt. Reyndar hefúr borgin þegar tekið veð í öllu lausafé hótels- ins vegna vanskilanna. Borgin keyptí Hótel Borg 1990 að frumkvæði Davíðs Oddssonar gagn- gert til að koma í veg fyrir kaup Al- þingis á eigninni. Haustíð 1992 seldi borgin Tómasi eignina á 172 millj- ónir og var kaupsamningurinn und- irritaður af Markúsi Erni Antons- syni. Samkvæmt minnisblaði borgar- lögmanns til borgarstjóra er staðan nú sú, að Tónias skuldar 11 milljón- ir af útborguninni fyrir utan 150 milljónir samkvæmt óútgefnu skuldabréfi til borgarsjóðs. Borgin hefur veitt veðleyfi fyrir alls 35 millj- ónum króna og hefur Tómas farið ffam á veðleyfi fyrir 40 milljónum til viðbótar, en ekki fengið. A fyrsta veðrétti hvflir nú 15 milljón króna veð en eigandi þess er Isrokk hf., rekstraraðili Hard Rock, veitinga- húss Tómasar og fjölskyldu, en á öðrum veðrétti eru átta handhafa- bréf upp á samtals 20 milljónir. Þess skal getið að Tómas hefur að undanförnu greitt 100 þúsund krón- ur á mánuði til að sýna greiðsluvið- leimi. Hann hefúr einnig farið ffarn á að vanskilin verði sett á skuldabréf þar sem hann greiddi 400 þúsund krónur á mánuði. Þær 150 milljónir sem Tómas skuldar borginni sam- kvæmt óútgefnu skuldabréfi eiga að greiðast á 12 árum, með fyrstu af- borgun, 12,5 milljónir, í september á næsta ári. Þróunarfélag Reykjavíkur hefur verðlaunað Tómas fyrir uppbygg- ingu hótelsins.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.