Vikublaðið


Vikublaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 3

Vikublaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 3
VIKUBLAÐIÐ 18. NOVEMBER 1994 3 Álit á landsfundi Kvennalistans Tilvistarkreppa TSj'ður- i_Nj staða landsfundar- ins staðfesti það sem áður hefur komið fram í málgagni Kvennalist- ans, að flokkurinn er í tilvistar- kreppu, segir Guðrún Helga- dóttir þingmaður. - Ekkert sem koin frain á landsfundinum kom ntér á óvart. Kvennalistakonur \dta ekki hvort þær eiga að halda áfram eða hætta. Þær treystu sér ekki til að taka ákvörðun urn það á lands- fundinum að breyta starfsháttum sínum. Kvennalistinn þarf að vinna sig úr þeirri kreppu sem flokkurinn er í, segir Guðrún. Kiósa kvrrstöðu ~T7~ venna- J\jistinn hefur staðn- aða pólitík og framfara- sinnaðar konur eins og Jóna Val- gerður voru keyrðar niður á landsfundinum, segir Margrét Frímannsdóttir þingmaður. - Það voru vonbrigði að Kvennalistinn skuli ekki sam- þykkja að ganga til samstarfs við aðra félagshyggjuflokka. Rökin sein þær beittu gegn samvinnu, að þær vantreysti Ólafi Ragnari Grímssyni, eru ekki marktæk. Kvennalistinn hafði einu sinni hlutverki að gegna í stjómmál- um en jafnrétti kynja verður aldrei náð með því að bjóða fram lista sem eingöngu er skipaður öðm kyninu, segir Margrét. Maöuninn með lanna titilinn Hann var kjörinn formaður á aðalfundi um síðustu helgi og ber engan venjulegan titil. Hann er „Formaður kjördæmisráðs Al- þýðubandalagsfélaganna í Reykja- vík“ og heitir Haukur Már Har- aldsson. „Hvort það er ok að bera slíkan titil? Maður finnur allavega fyrir smæð sinni gagnvart slíkri langloku. Eg hygg að það sé ætlast til þess að ég verði einhvers konar verkstjóri í samstarfi. Eðli ráðsins samkvæmt gæti slík verkstjórn ekki átt sér stað nema í býsna góðu samstarfi við aðra.“ - Alþýðubandalagsfélögunum hef- ur eitthvað verið að fjölga í borginni. Hvað em þau orðin mörg? „Ekki færri en fimm.“ - Verður þá ekki erfitt að samhæfa starfið? „Menn verða allavega að gera sér grein fyrir aðstæðunum. Eg vona að ekki sé ætlast til kraftaverka af mér.“ Haukur Már Ilaraldsson. Flokk- urinn hefur ekki skipt sér nægi- lega niikið af pólitík. - Hvernig leggst kosningabarátt- an í þig? „Það er erfitt að segja. Það er ó- neitanlega undarlegt að lesa skoð- anakannanir sem hver á eftir annarri sýna að sá flokkur, sem ætti að blóinstra á tímum annarrar eins rik- isstjómar og í öðm eins ástandi þar sem fátæktin tröllríður öllu, haggist varla frá fylgi sínu í síðustu kosning- um og fari jafnvel lækkandi. Þetta sýnir að eitthvað hefur bmgðist og ég freistast til að álykta að flokkurinn hafi ekki skipt sér nægilega af pólitík. Alþýðubandalagið ætti samkvæmt allri skynsemi að vera kostur númer eitt hjá því fólki sem nú er að kikna undan lífskjörunum.“ Haukur Már hefur lært það á lífs- leiðinni að laga sig að ólíkum að- stæðum. Ungur lagði hann út á lista- brautina og lærði m.a. teikningu af Ragnari Kjartanssyni og högg- myndalist af Asmundi Sveinssyni. Síðan uppgötvaði hann að sjó- mennskan væri hans svið og stóð við svo búið í nokkur ár. Því næst lá leið- in í prentsetninguna, en þar kom að því að honum fannst hyggilegra að skrifa textann sjálfur en að setja eftir aðra og hann gerðist blaðamaður, fýrst á Þjóðviljanum en síðan á Al- þýðublaðinu. Þá kom til þess að hann gerðist blaðafulltrúi Alþýðu- sambandsins og ritstjóri Vinnunnar. Eftir það tóku við „ffee-lance“ blaðaskrif og útgáfa en 1985 gerðist hann kennari í prentsetningu við Iðnskólann í Reykjavík. Þar hefur hann unað glaður við sitt síðan og kennir nú líka nemum í ýmsum deildum ffíhendisteikningu og hár- greiðsluneinum iðnteikningu. Að auki gerðist hann rithöfundur á tímabili og sendi ffá sér bók í Safn til Iðnsögu Islendinga. Og nú er hann sem fyrr segir kominn með afar langan titil. „Að öðru leyti líður mér best með tærnar upp í loftið við lest- ur góðra bóka.“ Ánœgð karlanefnd í herferð gegn ofbeldi Um áttatíu manns mættu á laugardaginn í Norræna húsið á ráð- stefriu til að ræða ofbeldi karla með yfirskriffinni „A ég að gæta bróður míns?“ Karlanefhd Jafnréttisráðs stóð fyrir fimdinum og hyggur á frekari aðgerðir. A útmánuðum stendur til að efna til her- ferðar gegn ofbeldi í samvinnu við verkalýðshreyfinguna, karla- klúbba og samtök eins og Stígamót og Kvennaathvarfið. - Við erum mjög ánægðir með það hvernig tókst til með ráðstefhuna. Aðsóknin var góð, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess hversu veðrið var gott. Fyrirlestrarnir voru áhugaverðir og umræðurnar góðar, segir Sigurður Svavarsson formaður karlanefndar Jafnréttisráðs. Karlar hafa ekki gert rnikið af því að ræða karlaofbeldi þótt konur hafi fýrir nokkrum árum komið umræðuefiiinu á opinbera dagskrá. Vitanlega þegja þeir karhnenn fastast sem hneigjast til ofbeldis en hvers vegna halda hinir sér til hlés? - Karlmenn hafa almennt verið stikkfrí í umræðunni og þeir sagt sem svo að fýrst þeir sjálfir þurfi ekki að takast á við ofbeldi sé engin ástæða fýrir þá að ræða málið, segir Sigurður og leggur áherslu á að ofbeldi sé mál sem koini okkur öllum við. - Það er brýnast að taka á heimilisofbeldi en öll urnræða er af hinu góða. Ekkert skipulagt meðferðarstarf er fýrir karla sem vilja horfast í augu við ofbeldisverk sín og Sigurður telur nauðsynlegt að úr því verði bætt. A Brýnast að taka á heiinilisofbeldi, segir Sigurður Svavarsson for- maður karlanefndar Jafnrcttisráðs. ráðstefnunni greindi Heidi Greenfield, sem er starfandi félagsráðgjafi í Kanada, frá góðum árangri meðferðar við ofbeldishneigð. Karlanefhd Jafhréttisráðs hyggst beita sér fýrir samfýlkingu gegn of- beldi og hefur leitað eftir samstarfi við verkalýðshreyfinguna, karlaklúbba á borð við Kiwanis og Rotary og samtaka eins og Stígamót og Kvennaat- hvarfið. - Við vonumst til þess að skapa hreyfingu sem stæði fýrir utan karla- nefhdina og hugmyndin er að herferðin fari af stað snemma í vor, segir Sigurður. „Ég er laus við sveiflur í útgjöldum. Ég borga bara eina fasta greiðslu mánaðarlega." Sigurður Sveinsson, handknattleiksmaður Með greiðsludreifingu Heimilislínunnar er útgjaldaliðum ársins, einum eða fleiri, dreift á 12 jafnar mánaðargreiðslur. Sama upphæð er millifærð mánaðarlega af launareikningi yfir á útgjaldareikning og bankinn sér um að greiða reikningana. í stað gluggaumslaga færðu sent mánaðarlegtyfirlit yfir greidda reikninga. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS w HEIMILISLÍNAN - Einfaldar fjármálin

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.