Vikublaðið - 06.01.1995, Page 2
2
VIKUBLAÐIÐ 6.JANÚAR 1995
BLAÐ SEM V I T E R f
Útgefandi: Alþýðubandalagið
Ritstjóri og ábm.: Hildur Jónsdóttir
Blaðamenn: Páll Vilhjálmsson, Friðrik Pór Guðmundsson
, og Ólafur Pórðarson
Auglýsingasími: (91)-813200 - Fax: (91)-678461
Ritstjórn og afgreiðsla:
. Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík
Sími á ritstjórn: (91)-17500 - Fax: 17599
Útlit og umbrot: Leturval
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja hf.
Alvarleg staða í
ríkisflármálum
' Hún er ekki glæsileg, myndin sem blasir við nú í upphafi
árs þegar fitið er til þeirrar stöðu sem ríkisstjómin hefur
komið fjánnálum ríkisins í. Hvert og eitt einasta markmið
sem ríkisstjomin setti sér í ríkisfjármálunum, hver einasta
yfirlýsing Davíðs Oddssonar forsætisráðherra þar að lút-
andi, er gersamlega hrunin. Síðast í október við setningu
þingsins fór hann hálglegum orðum um traustan árangur
ríkisstjómariimar í vaxtamálum sem stuðla myndi að end-
urreisn atvinnulífsins, og kvað hann homstein efiiahags-
stefiiu ríkisstjómarinnar. Blekið var varla þomað á ræðu-
blöðum hans þegar í ljós kom hversu órafjarri raunvem-
leikanum lýsing Davíðs á horfunum í efhahagslífnu var.
Annað hvort var því um að ræða vísvitaða blekkingu eða
þá meinlega afhjúpun á sérstöku ólæsi Davíð á efnahags-
íegar vísbendingar. Alfir muna stórkarlalegar yfirlýsingar
Friðriks Sóphussonar um að koma halla ríkissjóðs niður í
svo gott sem ekkert á kjörtímabilinu. Og enginn hefur
gleymt því atriði sem Davíð Oddsson setti með svo sterk-
um hætti á oddinn í upphafi kjörtímabilsins; að ekki skufi
tekin erlend lán og að Seðlabankinn skyldi ekki framar
notaður til að fjármagna lánsfjárþörf ríkissjóðs. Hvað blas-
irvið?
Halfi ríkissjóðs á kjörtímabili ríkisstjómarinnar verður
um 40 milljarðar.
Hlutfall hreinna skulda ríkissjóðs af landsframleiðslu
hefur vaxið úr 15 prósentum 1989 í ríflega 30 prósent á
nýfiðnu ári.
Skuldasöfhun ríkissjóðs við Seðlabankann hefur á kjör-
tímabifi ríkisstjómarinnar vaxið um rúmlega helming, eða
úr 8 milljörðum 1991 í rúma 18 milljarða.
Við þetta bætist að ríkið hefur, samkvæmt upplýsingum
ráðuneytisstjóra fjámrálaráðuneytisins, tekið stórfelld er-
Iend lán til að fjármagna rekstur í stað þess að beita Iántök-
um aðeins í þágu arðbærra fjárfestinga.
Samspil þessara þátta setur allt þjóðfélagið í stórhættu.
Eitthvað verður undan að láta. Ein fyrstu teikn þess vom
að fjárfestingarstigið hefur farið lækkandi og er nú neðan
hættumarka. Önnur teikn era nú komin í ljós með einkar
skýrum hætti; þær vaxtahækkanir sem nú dynja yfir og yf-
irvofandi fjármagnsflótti til útlanda. I firétt í Morgunblað-
inu á miðvikudag var greint frá því að ávöxtunarkrafa
vegna þríggja mánaða ríkisvíxla sé nú komin upp í 6,27%
en það er um 42% hækkun á vöxtunum frá því þeir vom
lægstir í apríl 1994, en þá námu þeir 4,4%. I sömu frétt
kom einnig fram að það hafi ekki einu sinni tekist að selja
víxla til lengri tíma. íalar það ským máfi um tiltrú mark-
aðarins á efnahagssteíhu ríkisstjómariimar.
Óstjómin er því alvarlegri að nú er mikil óvissa
ffamundan í íslensku efnahagslífi. Um árabil hefur verka-
fólk haldið aftur af sér í kjarasamningum í trausti þess að
stjómvöld ynnu vel úr því svigrúmi sem þannig skapaðist
og treystu grunninn að bamandi kaupmætti til framhúðar.
Það tækifæri hefur verið látið ónotað. Þeir einu sem hafa
notið velvildar ríkisstjómarinnar era þeir sem mest áttu
fyrir og eiga nú enn digrari sjóði. Og nú er svo komið að
launþegar eiga einskis annars úrkosti en að berjast fyrir
betri kjörum með öllum ráðum, enda heill og afkoma fjöl-
skyldnanna í húfi.
Pólitízkan
Eljaraglettur
rabherra
Milli jóla og nýárs virtist í uppsiglingu
enn annar þátturinn í sjónleiknum
sem forsætisráöherra og utanríkis-
ráöherra hafa boðið þjóöinni uppá
síðari hluta kjörtímabilsins. Leikurinn
gengur útá það að aðalleikararnir
leita allra hugsanlegra og óhugsan-
legra leiða til að lítillækka mótaðil-
ann. Leikreglumar eru þær að
blammeringamar skulu vera undir
rós og aldrei beinskeyttari en dylgja.
Jón Baldvin Hannibalsson
gerir gys að því hvað Davíð
Oddsson er sveitó á erlendum
vettvangi og Davíð kallar á utanrík-
ismálanefnd til að hrekja staðleysur
utanríkisráðherra í Evrópuumræð-
unni. Af öllu að dæma yfirtrompaði
Davíð Jón Baldvin þegar Ástríður
Thorarensen eiginkona Davíðs
var borin fyrir því (kvöldfréttum Út-
varpsins annan dag jóla að hún
þægi ekki dagpeninga á opinberum
ferðalögum. Yfirlýsingin kom beint
ofaní umræðu um óhóflegar
greiðslur til Bryndísar Schram
utanrikisráðherrafrúar. Tímasetning-
in og skrýtinn umbúnaður, vitnað
var í óbeina ræðu Ástríðar, gaf
hvorttveggja til kynna að hér væri á
ferðinni jólakveðja frá forsætisráð-
herrahjónunum til hjónanna á Vest-
urgötu. En hér verða samsæris-
fræðingar að hætta að spinna og
leyfa veruleikanum að njóta sann-
mælis. Staðreyndin mun vera sú að
Broddi Broddason fréttamaður
hafði urti hríð reynt að ná í Ástríði
vegna málsins en ekki tekist og svo
sem ekki lögð mikil áhersla á að
koma fréttinni í hús. Broddi koma á
vakt annan í jólum, sem er hægur
fréttadagur, sló á þráðinn og hafði
upp á Ástriði sem virtist ekki um
það gefið að ræða dagpeninga. Þó
var það haft eftir Ástríði að henni
þætti óeðlilegt að þiggja dagpen-
inga þar eð að ferðalögin séu henni
að kostnaðarlausu. Alþjóð veit að
opinber ferðalög eru Bryndísi
Schram líka að kostnaðarlausu.
Broddurinn í athugasemd Ástriðar
var svo hvass að forsætisráðherra
var mættur daginn eftir í Stöð 2 til
að bera smyrsl á sár utanríkisráð-
herrahjónanna. Davíð sagðist ekki
„algjörlega sammála'1 eiginkonu
sinni í þessu máli eins og hægt sé
að ímynda sér jafn einþykkan mann
og forsætisráðherra algjörlega sam-
mála einhverjum öðrum en sjálfum
sér.
Samkeppni, já
takk þegar eg
græbi á henni
Kristinn Bjömsson forstjóri
Skeljungs dylgjaði í Sjónvarpinu á
þriðjudagskvöld um að Irving Oil
myndi hasla sér völl í útgerð og fisk-
vinnslu fái fyrirtækið aðstöðu til að
selja bensín á íslandi. Þetta er sami
maðurinn og talar fjálglega um
frjálsa samkeppni og vill að landið
gerist aðili að Evrópusambandinu.
Hlægilegt íhald
Viðbrögð Áma Sigfússonar
oddvita minnihluta Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík við gríninu sem
gert var að honum í áramótaskaupi
Sjónvarpsins vom þau að kalla
Guðnýju Laxness leikstjóra
skaupsins kommúnista og þvinga
síðan fram bros með þeim orðum
að þeir væru hlægilegastir sem ekki
gætu hlegið að sjálfum sér. Sam-
kvæmt eigin skilgreiningu er fyrrver-
andi borgarstjóri hlægilegur. Ólaf-
ur G. Einarsson menntamála-
ráðherra toppaði Árna með því að
segja í fréttum að skaupliðið hefði
náð sér vel en grínið á forsetann
hefði verið rætið. Allir aðrir eru sam-
mála um að hvössustu skeytunum
hafii verði beint að menntamálaráð-
herra.
Rábherra mennta
og menningar
Eins og margir muna bjó Ólafur
G. Einarsson til stóra og mikla
nefnd um mótun menntastefnu
þegar hann varð menntamálaráð-
herra. Nefndin starfaði lungann úr
kjörtimabilinu og lagði til ýmsar
breytingar á skólahaldi. Ráðherrann
gerði það að sínu meginbaráttumáli
að koma rekstri grunnskólanna yfir
á sveitarfélögin. En vegna þess að
ráðherrann hefur dundað sér við
svo margt annað á starfstíma sín-
um, til að mynda það að redda
einkavini Davíðs Oddssonar
Hrafni Gunnlaugssyni vinnu í
Sjónvarpinu, er hann kominn í tíma-
þröng með málið: Þegar við þetta
bætist að kennarasamtökin voru
ekki höfð með í ráðum, áttu engan
fulltrúa í nefndinni og engar viðræð-
ur fóru fram við þau um breytta
ráðningarsamninga, er ekki við öðm
að búast en að málið endi í full-
komnu klúðri sem er kórónað með
því að menntamálaráðherra segist
enga ábyrgð bera á víghreifum
kennurum sem vilja samninga.
Hvað var Ólafur Garðar aftur
kallaður í Áramótaskaupinu?
Ásmundur í gömlu
hlutverki?
Pólitísk strategía Sjálfstæðisflokks-
ins næstu daga og vikur gengur útá
það að atvinnurekendur nái sem
fyrst samningum við Alþýðusam-
bandið og fái til þess hjálp frá ríkis-
stjórninni í formi félagsmálapakka til
að stilla kennurum og opinberum
starfsmönnum upp við vegg. Til að
þetta nái fram að ganga þurfa ASÍ-
félögin að samþykkja samingaum-
boð til forystu ASÍ og félagsmála-
pakkinn þarf að vera vænn. Til að
koma þessu í kring er talið að Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra
muni reyna að nýta sér þjónustu
Ásmundar Stefánssonar fyrr-
um forseta ASÍ og núverandi
bankastjóra (slandsbanka. Á sum-
um kontómm er fullyrt að Ásmund-
ur hafi hitt Davíð til að ræða þessi
mál en ekki hefur tekist að fá þetta
staðfest.