Vikublaðið - 06.01.1995, Síða 15
VIKUBLAÐIÐ 6.JANÚAR 1995
15
Irving Oil boðið
3 lóðir í borginni
Borgarráð hefur samþykkt ein-
róma að bjóða kanadíska olíu-
fyrirtækimi Irving Oil ltd.
þrjár lóðir fyrir bensínstöðvar og
verslun, með fyrirvara um endanlega
staðsetningu og umfjöllun viðhb't-
andi nefnda borgarinnar. Hin þrí-
eina olíusamsteypa Kolkrabbans,
Skeljungur, Ob'ufélagið (ESSO) og
Olíuverslunin (Olís) hefur brugðist
hart við væntanlegri samkeppni Irv-
ing. Þá hefur Halldór Blöndal gert
þá fáheyrðu kröfa að leyfisveitingar
til Irving eigi að binda skilyrðum um
að Kanadísk yfirvöld opni fyrir
rekstur Flugleiða í Kanada.
Talið er að innkoma Irving Oil
geti fært með sér um 1,5 milljarðs
króna fjárfestingu félagsins. Sam-
þykki borgarráðs náði útyfir marka-
línur meirihluta og minnihluta, en
ath\’gli vakti að við afgreiðslu ráðsins
lögðu sjálfstæðismenn fram bókun
þar sem umhverfissjónarmiðum var
mjög haldið á lofti og svo nauðsyn
þess að kynna máhð rældlega fyrir í-
búum nálægra svæða. Sjálfctæðis-
menn voru sem kunnugt er ekld
beint þekktir fyrir slík vinnubrögð í
valdatíð sinni.
Þær lóðir sem boðnar hafc verið til
kaups eru við Eiðisgranda, Stekkjar-
bakka og Bæjarháls.
FLOKKSSTARFIÐ
Sósíalistafélagið
Félagsfundur mánudaginn 9. janúar 1995 kl. 20:30 að
Laugavegi 3, 5. hæð.
Dagskrá:
1) Á Sósíalistafélagið að taka áfram þátt í störfum kjör-
nefndar Alþýðubandalagsins í Reykjavík?
2) Starfshóþar myndaðir um útfærslu á stefnuskrá félags-
ins.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið á
Vesturlandi
íhaldið vill lækka
hundagjald
Minnihluti Sjálfctæðisflokks- væri á móti því að borgin hefði hagn-
ins í borgarráði lét á að af hundaeftirlitsgjaldi, en Hunda-
þriðjudag bóka að hann ræktarfélagið hefur einnig mótmælt
gjaldtökunni sem of hárri.
Umsögn borgarlög-
manns um gjaldskrá vegna
hundahalds 1995 var vísað
til borgarstjómar, en borg-
arstjóri lét bóka að í um-
sögn sem fyrri borgarstjóri
hefði látið taka saman
vegna þessarar gjaldtöku
kæmi fram að gjöld vegna
hundahalds hafi verið meiri
en tekjur allt frá 1984.
Einnig kemur fram í svari
borgarstjóra að sérstök
nefhd hefur það verkefni að
endurskoða gjaldtökuna.
íhaldið hafnar því að
hundagjaldið standi undir
kostnaði við hundaeftirlit.
Mynd: ÓI.Þ.
Jóhanna
kemur
aftur segir
Guð-
mundur
Árni
Guðmundur Ami Stefáns-
son þingmaður Alþýðu-
flokksins og fyrrum ráðherra
lýsti því yfir í síðdegisþætti Rás-
ar tvö á gamlársdag að hann
teldi að Jóhanna Sigurðardóttir
myndi snúa aftur til Alþýðu-
flokksins í vor.
Guðmvmdur Ami lýsti þessu
yfir og sagði um leið að Jó-
hanna ætti hvergi annars staðar
heima en í Alþýðuflokknum.
Hann á því von á því að Jó-
hanna segi skilið við þá stjóm-
málahreyfingu sem skapast hef-
ur í kringum hana, Þjóðvaka. I
sama umræðuþætti hafnaði Jó-
hanna þessu.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Hinn 10. janúar 1995 er tuttugasti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 20 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000 kr. skírteini = kr. 555,20
» <■ 10.000 kr. skírteini = kr. 1.110,40
- " 100.000 kr. skírteini = kr. 11.104,00
Hinn 10. janúar 1995 er átjándi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 18 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 4.963,30
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. júlí 1994 til 10. janúar 1995 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. janúar 1995.
Reykjavík, 30. desember 1994.
SEÐLABANKIÍSLANDS
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Vesturlandskjördæmi
boðar til opins kjördæmisráðsfundar til undirbúnings kosn-
inga í vor.
Fundurinn verður haldinn sunnudaginn 15. janúar kl. 14:00
í Félagsheimilinu Lindartungu í Kolbeinsstaðarhreppi.
Dagskrá:
Tillaga uppstillinganefndar að framboðslista.
Undirbúningur kosninga.
Önnur mál.
Fundurinn er opinn öllum Alþýðubandalagsmönnum.
Kjördæmisráð
Ný lög um
fjöleignarhús
1. janúar 1995 taka gildi ný lög
um fjöleignarhús.
Upplýsingabæklingur um hin nýju lög liggur nú
frammi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins,
húsnæðisnefndum sveitarfélaga, á sveitar-, bæjar-
og borgarstjórnarskrifstofum, hjá verkalýðsfélögum,
Leigjendasamtökunum, Húseigendafélaginu og
Búsetafélögum'
Þeir sem málið varðar eru hvattirtil að kynna sér
nýju lögin gaumgæfilega og verða sér úti um
upplýsingabæklinginn.
Húsnæðisstofnun ríkisins veitir almennar
upplýsingar um framkvæmd hinna nýju laga
um fjöleignarhús.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: 569 6900 (kl. 8-16)
BRÉFASÍMI: 568 9422 • GRÆNT NÚMER (utan 91-svæðisins): 800 69 69