Vikublaðið


Vikublaðið - 18.08.1995, Síða 5

Vikublaðið - 18.08.1995, Síða 5
VIKUBLAÐIÐ 18. ÁGÚST 1995 T Sverrir og Agnes 5 Lehinn í Landsbanhanum Hver lak upplýsingum og afhenti Morgimblaðinu skjalabunka um uppgjör Landsbankans við SÍS? Bankaeftirlit Seðlabankans sættir sig ekki við skýrslu og útskýringar Landsbankans og vill að Ríkissaksókn- ari fýrirskipi rannsókn á mábnu. Það voru ekki margir einstakbngar sem höfðu aðgang að þeim gögnum sem Morgunblaðið hafði undir höndum. Bankaefrirlit Seðlabankans ákvað nýlega að vísa til Ríldssaksóknara meintum brotum á bankaleyndará- kvæðum laga um viðsldptabanka og sparisjóði, en þar er átt við skrif Agn- esar Bragadóttur í Morgunblaðinu í mars síðastliðnum. Nánar tdltekdð tók Agnes saman fjórar langar og ítarleg- ar greinar um viðskipti og uppgjör Landsbankans og Sambands ís- lenskra samvinnufélaga. Samkvæmt heimildum Vikublaðsins fór ffam einhvers konar „innri rannsókn" í Landsbankanum í kjölfar greinar- skrifanna og'var síðan tekin saman skýrsla um málið sem send var bankaefrirliti Seðlabankans. Sú á- kvörðun bankaeftirlitsins að senda málið til Ríldssaksóknara segir þá sögu að embættið hafi ekki sætt sig við útskýringar Landsbankans. Það er deginum ljósara að mál verða að teljast nokkuð alvarleg þeg- ar bankaeftírlitið ákveður að fara þessa réttarfarsleið og án efa er á- kvörðunin tekin í samráði við banka- stjóm og bankaráð Seðlabankans. Hér er því ekkert hálfkák á ferðinni: Seðlabanldnn vill rannsókn og fá ffam hver eða hverjir hafi rofið bankaleyndina og þar með gerst brotlegur éða brotlegir við lög. Framburður háttsettra og þykkur skjalabunki Á því getur ekld leikið mildll vafi að lög um viðskiptabanka og spari- sjóði hafi verið brotin beint eða ó- beint, miðað við ákvæði laganna um þagnarskyldu. Akvæðið er svohljóð- andi: „Bankaráðsmenn, stjómar- menn sparisjóðs, bankastjórar og sparisjóðsstjórar, endttrskoðendur og aðrir starfsmenn viðskiptabanka eða sparisjóðs era bundnir þagnarskyldu um allt það er varðar hagi viðsldpta- manna hlutaðeigandi stoffumar og um önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fýrir dómi eða lögreglu eða skylda sé til að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.“ Af lestri greinanna fjöguiTa í Morgunblaðinu er deginum ljósara að Agnes og Morgunblaðið hafa ekld einvörðungu haft góðan aðgang að einum eða fleiri háttsettum starfs- mönnum eða bankaráðsmönnum Landsbankans, heldur einnig haft undir höndum þykkan skjalabunka. Fundargerðir leynifunda um yfirtöku eigna Sam- bandsins Þessi skjalabunld hefur haft að geyma ítarleg gögn, m.a. um afkomu, skuldastöðu og viðskiptasögu Sam- bandsins og tengdra fyrirtækja gagn- vart Landsbankanum, Samvinnu- bankanum og erlendum bönkum, um sldpulagsbreytingar innan Landsbankans, skýrslu sérstaks starfshóps um stöðu Sambandsins og tengdra fyrirtækja (í september 1992), skýrslu Löggiltra endurskoð- enda hf. um matá skýrslu starfshóps- ins og um árangurinn af starfi Hamla hf., bréf og athugasemdir Kjartans Gunnarssonar varðandi tillögur starfshópsins, svör starfshópsins við athugasemdum Kjartans, greinar- gerð Bankaeftirlitsins ffá júlí 1991 um málefni Sambandsins gagnvart bankanum, yfirtökukaupsamningana og síðast en ekld síst fundargerðir fjögurra leynifunda þar sem samið var um yfirtöku Landsbankans á eignum SIS og tengdra fýrirtækja. Stór hluti greinanna er beinlínis rakning á því sem í skjölum þessum stendur. En greinamar byggjast einnig á ffamburði háttsettra manna, sem ekki koma fram undir nafni. Nafn Sverris Hermannssonar er offast nefiit í umræðum manna um máhð, en erfitt er að fullyrða hver eða hverj- ir þama gæm verið á ferð. En benda má á þá aðila sem höfðu gögn og vit- neskju undir höndum: Hverjir höfðu aðgang að trúnaðarupplýsingunum? 1. Yfirmenn Sambandsins. Miðað við anda greinanna í garð SIS er heldur ólíklegt að uppsprettuna sé að finna í þessum hóp. 2. Bankastjóm Landsbankans. Hér er um að ræða Sverri Hermannsson, Björgvin Vilmundarson og Halldór Guðbjamarson. Mál Sambandsins heyrðu undir Sverri. Aðstoðarbanka- stjórar undir Sverri: Brynjólfur Helgason og Bjöm Líndal. 3'. Bankaráð Landsbankans. Hinir pófitískt kjömu fulltrúar hafa ömgg- lega fengið skýrslur um máhð frá bankastjómendum, en ekld er það venjan að færa þeim heilu skjala- bunkana um málefni viðskipta- manna. I bankaráðinu á umræddu tímabili, aðallega 1992, sám Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins, Anna Margrét Guð- mundsdóttir (varamaður Eyjólfc K. Sigurjónssonar), Steingrímur Her- mannsson, Lúðvík heitinn Jósepsson. og Kristín Sigurðardóttir. 4. Sérsldpaður starfchópur um SIS, svonefnd „þremenningaklíka" eða „þríeyki“ í Morgunblaðsgreinunum: Jakob Bjamason og Hermann Eyj- ólfcson frá Utlánastýringu Lands- bankans og Birgir Magnússon ffá Fyrirtækjaviðskiptum. 5. Löggiltir endurskoðendur hf., ytn endurskoðendur Landsbankans, sem yfirfóra öll gögn málsins, eink- um skýrslu starfchópsins og þau gögn sem sú skýrsla byggði á. I stjóm Lög- giltra endurskoðenda sitja: Ingi R. Jóhannsson, Jón Þ. Hilmarsson, Guðmundur Þ. Frímannsson og Arrri Tómasson. I greinunum kemur fram að Ami Tómasson hafi setið hina leynilegu samningafundi um yfirtök- una. 6. Sérstaklega tilfengnir og utan- aðkomandi lögffæðingar til þjónusm við Landsbankann. Hér er um að ræða Tryggva Gunnarsson, sem sat áðumefnda leynifundi, Viðar Már Matthíasson og Ama Vilhjálmsson. Takmarkalítil aðdáun á Sverri og stormsveit hans Það era því greinilega nokkuð margir sem aðgang höfðu að við- kvæmum trúnaðarapplýsingum. Staða þeirra er misjöfn gagnvart bankaleyndarákvæðum, þar sem talað er um „starfemenn“. Það er t.d. túlk- unaratriði hvemig þessi ákvæði snerta utanaðkomandi verktaka sem komast í tæri við trúnaðarapplýsingar. Við lesmr greinanna kemur annars ffam greinilegt „þema“ sem vert er að hafa í huga. Hér er átt við þann anda í greinum Agnesar sem lesa má meðal annars úr eftirfarandi: - Greinarskrifin fjalla um „viðtir- eign“ Landsbankans við SIS. Sú lýs- ing sem ffam kemur í greinum Agn- esar er Landsbankanum mjög vilhöll, en SIS fær á sig beinar og óbeinar háðsglósur. Hvað Landsbankann varðar er ekld einasta að SÍS-mál hafi heyrt undir Sverri Hermannsson, heldur kemur ffam lítt dulbúin aðdá- un á því hvemig Sverrir fór loks í stormasama tiltekt þegar hann á ann- að borð fékk SIS undir sinn væng. Áður hafði ríkt „ótrúlegur sofcnda- hátmr“ (þ.e. þegar SÍS-mál heyrðu undir Helga Bergs). Um leið kemur ffam að Sverrir hafi skipað sveit „- tmgra og vaskra manna“ í sérstakan starfehóp um SIS, starfchóp sem gjaman er kallaður „þremenninga- ldíkan“ í greinunum. Þessi stormsveit Sverris fær á sig reyfarakenndan blæ. Reyndar kemur fram það ótvíræða mat að vinnbrögð Landsbankans (lesist: eftir að Sverrir tók við SÍS- málum) hafi forðað bankanum frá milljarðatjóni og var engu öðra en hreinni snilld þar að þakka. - Af Landsbankamönnum beinist nær öll athyglin að Sverri og storm- sveit hans. Bankastjómarformaður- inn Björgvin Vilmundarson og Hall- dór Guðbjamarson era ekld einu sinni aukaleikarar, heldur í besta felli statistar. - Lýsingamar í greinunum af við- ræðurn Landsbankans og SÍS era einhliða: Vitrir og vaskir Lands- bankamenn (lesist: Sverrir og þre- menningaklíkan) rúlluðu yfir vitgr- anna, villuráfandi og ósamstíga stjómendur SIS. Algjört andvaraleysi og vanþekking forsvars- manna SÍS Skoðum eftirferandi setningar úr greinunum í ljósi ofangreinds: - „Svo virðist sem stjómendur Sambandsrisans... hafi haft afar tak- markaða yfirsýn yfir ólíka rekstrar- þætti þessa stærsta fyrirtækis landsins í allmörg ár...“ - „Rekstur og ákvarðanataka hafi verið hrein og klár tímaskekkja í áraraðir... algjört andvaraleysi hafi orðið Sambandinu að falli.“ - „...tókst Landsbankanum að ná vissu ffumkvæði í aðdragandanum að eiginlegum samningaviðræðum við forsvarsmenn Sambandsins. Frum- kvæði sem nýttist þeim Landsbanka- mönnum á leiðarenda." - „Þannig má segja að á vissan hátt hafi þessi starfchópur (lesist: hinir vösku menn Sverris) Landsbankans haft það verkefni að uppfræða Sam- bandsmenn um stöðu fyrirtækisins." - „Segja má að vanþekking for- svarsmanna Sambandsins á stöðu eigin fyrirtækja kristallist í þessum umsögnum forstjórans...“ - „... sjálfum forstjóra Sambands- ins, Guðjóni B. Olafesyni, var meira og minna haldið utan við endanlegan undirbúning að eignayfirtöku Lands- bankans...“ Sverrir og stormsveitin forðuðu Landsbankanum frá milljarðatjóni - „... takmarkaðir hlýleikar virðast hafa verið á inilli forstjóra og stjóm- arformanns Sambandsins." - „Enda hnaut Sverrir Hennanns- son strax um misræmið í málflutn- ingi forstjóra og stjómarformanns Sambandsins...“ - „Segja má að samningalipurð og tækni þeirra Landsbankamanna hafi komið mjög glöggt ffam í síðasta stórmálinu sem aðilar náðu sam- komulagi um...“ - „Þegar litið er til þess, að Lands- banlri Islands áætlaði taphættu sína af viðsldptum við Sambandið og tengd fýrirtæld hátt í þrjá milljarða króna, þegar taphættan var talin sem mest, verður það að teljast ótrúlega jákvæð niðurstaða, að í árslok 1994 höfðu einungis um 250 milljónir króna verið afckrifaðar... starf (Hamla/Landsbankans) hefur forðað Landsbankanum ffá milljarðatjóni." - „Landsbanldnn metur stöðu Sam- skipa á þann veg að hlutabréfaeign hans í félaginu muni jafnvel á örfá- um árum skála bankanum aftur þeim fjárhæðum sem hann hefur orðið að afekrifa vegna Samskipa." - „... er ljóst, að þessi aðferð bankans (lesist: Sverris og þremenninga- klíkunnar) við að gæta hagsmuna sinna, með eignayfirtöku og eigna- sölu, hefur sannað ágæti sitt.“ Pentagon-skjöl Morgun- blaðsins Ástæðulaust er að velta því fýrir sér í smáatriðum hvaða upplýsingar það era í greininni sem taldar era brjóta lög um viðsldptabanka, því hið meinta brot getur náð til nánast alls sem ffam kemur í greinunum fjórum. Ríkissakssóknari þarf því út af fýrir sig ekki að velkjast lengi í vafe og mun því væntanlega senda máhð á- ffam tíl réttra rannsóknaraðila. Sem þá munu væntanlega hefja yfirheyrsl- ur yfir tiltölulega þröngum hópi ein- staklinga. Staða bankaeftirhtsins er býsna sterk og og póhtískt er ríkis- saksóknari í erfiðri stöðu til að losa þá sem grunaðir kunna að vera undan rannsókn. Málið v^rður ekld svo auð- veldlega svæft. Agnes Bragadóttir var erlendis þegar þetta er skrifað ogMatthíasJo- hannessen sagði að Morgunblaðið hefði ekkert um máhð að segja. Hins vegar tjáðu ritstjórar Morgunblaðs- ins sig óbeint um máhð í leiðara á sunnudag um samruna fjölmiðlafýr- irtækja, en þar má lesa efrirfarandi: „... eigendur dagblaða á borð við New York Times, Washington Post og Boston Gloþe hafi verið tilbúnir til að horfast í augu við opinbera rannsókn og málshöfðun til þess að koma upplýsingum á ffamfæri við al- menning svo sem með birtingu Pentagon-skjalanna svonefiidu, sem kallaði yfir blöðin rannsókn saksókn- ara og lögreglu í Bandaríkjunum. Þau standa jafnrétt eftir en hið sama verður ekld sagt um þá, sem að atlög- unni stóðu.“ íþg- Haustferð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi 26.-27. ágúst. Nú ætlum við, alþvðubandalagsfólk á Vesturlandi, að leggja land undir fót og hittast undir Jökli helgina 26. -27. ágúst (ath. í fvrsta fundarboði stóð 25. - 26. ágúst en það leiðréttist hér meðh Við hittumst við styttuna af Bárði Snæfellsás kl. 12 á hádegi en hún blasir við þegar í Stapaplássið er komið. Þar verður nánari dagskrá kynnt og spáð í veður og vind. Öfgamar eru skemmtilegar í veðurfari á Snæfellsnesinu og um að gera að haga klæðaburði eftir því. Skynsamlegt er að mæta bæði með 66 gráður N (þó ekki flot- galla) og stuttbuxur í farteskinu. Að kvöldi laugardags verður kvöldvaka í samkomuhúsinu Snæfelli. Frambjóðendur til formannskjörs í Alþýðubandalaginu, þau Margrét Frímannsdóttir og Steingrímur J. Sigfusson, verða gestir okkar á Amarstapa. Nú hagar þannig til í kjördæminu að það er hvergi meira en liðlega tveggja tíma akst- ur á staðinn og því geta menn ákveðið eftir hentugleikum hvort þeir aka heim að kvöldi eða Ieggjast í helgarútilegu. Öll aðstaða er fyrir hendi á Amarstapa, tjaldstæði og veitingar en svefnpokapláss eða gistiherbergi þarf að panta hjá Ferðaþjónustunni Snjófelli, sími 435-6783. Mætum öll kát og hress! Kjördæmisráðið. Nánari upplvsingar hjá Jóhanni og Guðbjörgu f síma 431 -2251

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.