Frjáls þjóð - 07.04.1962, Blaðsíða 3
FRJÁLS ÞJÓÐ
Útgefandi: Þjóðvarnarflokkur íslands.
Ritstjóri: Magnús Bjarnfreðsson, ábm.
Framkvæmdastjóri: Jafet Sigurðsson.
Auglýsingastjóri: Bryndis Sigurjónsdóttir.
Áskr.gj. kr. 14.00 á mán. Kr. 84.00 i/2 ár, í lausas. kr. 4.00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 8. Sími 19985. Pósthólf 1419.
Prentsmiðjan Edda h.f.
Fagra hugsjón....
í fréttum útvarpsins var flýja land sitt. Og ekki
fyrir skömmu sagt frá at-
viki, sem gerðist í hinni
fyrrverandi höfuðborg
Þýzkalands, Berlín. Þetta
atvik er að vísu líkt mörg-
um hliðstæðum atvikum,
sem þar hafa gerzt að und-
anförnu, þó skulum við
staldra örlítið við það.
Austur-þýzkur lögreglu-
þjónn var orðinn leiður á
sælu kommúnismans í A.-
Þýzkalandi. Hann tók þá
ákvörðun að flýja landið,
eins og svo margir sam-
landar hans hafa að und-
anfömu gert. Hann gat
ekki gert^það á þann hátt,
að taka sér far með bifreið
eða sporvagni vestur yfir
landamörkin og sækja þar
um landvistarleyfi. Nei,
hann varð að freista þess
að hlaupa, og hlaupa svo
hratt, að samstarfsmenn
hans gætu ekki tafið fyrir
honum, hann vissi mæta
vel, hvað biði hans, ef flótt
inn mistækist.
Flóttinn mistókst. Sam-
starfsmenn hans sáu hvað
verða vildi og skutu á
hann. Þegar nokkrir metr-
ar voru eftir að settu marki
hitti ein kúlan í mark.
Flóttanum var lokið, hinn
ungi maður komst aldrei í
fyrirheitna landið.
Hvers vegna vildi Iög-
regluþjónninn flýja land?
Því er ekki hægt að svara
með neinni vissu. Því er
haldið fram af andstæðing-
um stjórnarvaldanna í
Austur-Þýzkalandi, að
hann hafi flúið af pólitísk-
um ástæðum, hafi verið
orðinn þreyttur á sælu
kommúnismans. En auð-
vitað geta legið aðrar á-
stæður að baki flóttans.
Hann gettjr vel hafa brotið
eitthvað það af sér í starfi,
að hann yrði að forða sér
undan refsingu laganna.
Hann vissi, að ef hann
kæmist vestur yfir mörkin,
yrði honum fagnað og
hann yrði aldrei framseld-
ur. En við getum látið það
liggja miFIi hluta. Hann er
svo sannarlega ekki einn
um það að hafa reynt að
hafa allir, sem það hafa
gert, gert það vegna þess
að þeir hafi átt í útistöð-
um við lögin. Ef svo væri,
væru Austur-Þjóðverjar ó-
venjulega miklir afbrota-
menn.
Flótti Austur-Þjóðverja
úr landi sínu er orðinn
mikið vandamál fyrir vald-
hafana þar. Þeir hafa grip-
ið til alls konar örþrifa-
ráða, til þess að reyna að
koma í veg fyrir hann.
Múr, hefur verið reistur
gegnum hina gömlu höfuð-
borg, gaddavírsgirðingar
liggja um landið og vopn-
aðir verðir gæta þess, að
enginn komist óhultur yfir.
Ekkert af þessu hefur þó
dugað. Flóttinn heldur á:
fram. Og hvað veldur?
í Austur-Þýzkalandi er
„alþýðulýðveldi”. Allir
eiga að búa við mannsæm-
andi kjör, hinu illræmda
auðvaldi hefur verið út-
rýmt, hin fagra hugsjón,
sósíalisminn; er þar fram-
kvæmd að sögn. Gallinn er
bara sá, að sósíalisminn er
EKKI framkvæmdur þar í
sinni réttu mynd. Vissir
þættir hans eru það, en til
viðbótar kemur flokksein-
ræði, einræði, sem mönnum
hefur alla tíð fallið illa við.
Ríkir jarðeigendur sópa
ekki lengur til sín öllum
afrakstri, en í þeirra stað
eru komnir spilltir stjórn-
málamenn, sem í skjóli
valds síns kúga alþýðu
manna á litlu betri hátt en
burgeisarnir áður. Fögur
hugsjón er misnotuð og
smáð, og þetta gerir það
að verkum, að lýðræðis-
sinnaður sósíalismi á erfitt
uppdráttar víða um heim.
En sumir eru býsna á-
nægðir með þetta allt sam-
an. Þeir eru jafnvel áfjáðir
í það að leyfa fleiri þjóð-
um að kynnast hinni miklu
sælu. Og þessir menn eru
líka til hérlendis, en hér,
eins og suður í Þýzkalandi,
koma þeir ekki til dyranna
eins og þeir eru klæddir,
heldur bera ssuðargæru á
báðum öxlum.
Dráttarvélar h.f. fá unboð fyrir
Perkins-verksmiðjurnar
Einn stærsti og þekktasti
framlciðandi dieselvéla, Perkins
Engines Ltd., hefir falið dráttar-
vclum h.f. umboð fyrir fram-
leiðsluvörur sínar hérlendis.
Perkins Engines Ltd. á sér tvö
systurfyrirtæki, Perkins Out-
board Motors Ltd og Perkins
Gasturbins Ltd. Oll eru fyrir-
tækin staðsett í Peterborough á
Englandi. Þau framleiða létt-
byggðar, hraðgengar dieselvél-
ar til notkunar í bílum, dráttar-
vélum og iðnaði, auk margra
tegunda utanborðsmótora og
gastúrbína.
í stórum dráttum má skipta
framleiðslunni þannig:
1. Dieselvélar i bifreiðir, drátt-
arvélar og önnur farartæki. Allt
frá 41 hestafli við 2.400 snún-
inga á mínútu, til 112 hestafla
við 2.800 snúninga. Hraðgengari
vélarnar eru einkum notaðar í
fólksbifreiðir en hinar í vöru-
bifreiðir og dráttarvélar.
Auk hinan venjulegu diesel-
véla, sem með litlum breyting-
um má setja í flestar tegund-
ir bíla og dráttarvéla, framleiða
Pcrkinsverksmiðjurnar fjöldan
allan af „Conversion-Units", þ.
e.a.s. vélum ásamt öllum nauð-
synlegum fylgihlutum fy'rir á-
kveðnar tegundir bíla og drátt-
artækja. Þannig getur umboðið
hér heima útvegað diéselvélar
sem Perkins hefur framleitt sér-
staklega í ýmsar þær tegundir
bíla, sem upphaflega eru seldir
með benzínmótorum. Allar fest-
ingar vélarinnar eru þá miðað-
ar við hina ákVeðnu bílategund
og hún passar við gírkassann
sem fyrir cr í henni. hlá í þessu
sambandi nefna margar gerðir
enskra smáfólksbíla og ýmsar
vörubifreiðar enskar og amerísk-
ar. —
Auk þessa selja margar
stærstu bíla- og dráttarvéla-
verksmiðjur heims tæki sín með
Perkins dieselvélum. Þannig er
Pcrkins-dieselvél í Willys-jepp-
anum, tvær stærðir Perkins-dies-
el í dráttarvélum frá Ford og
Thames Trader flutningabifreið.
Þá er Perkins-diesel í öllum
tækjum frá Massey-Ferguson.
Hér eru aðeins fá dæmi tekin,
en samtals mun 814 framleið-
endur farartækja, landbúnaðar-
véla, báta og iðnfyrirtækja nota
Perkins-dieselvélar með þessum
hætti.
2. Dieselvélar í trillur og fiski-
báta (seldar með gírkössum og
öðrunv úlbúnaði). Stærð allt frá
30 hcstöflum við 2.00 snúninga
á mínútu í 120 hestöfl við 2.100
snúninga.
3. Dieselvélar til að knýja
hvers konar tæki. rafala o. fl
(,,iðnaðarvélar“). Stærð allt frá
33 hestöflum við 2.000 smininga
á mínútu í 8,5 hestöfl við 2.000
snúninga. Iðnaðarvélarnar eru
með annarri gagnetillingu en
hinar og er ganghraðinn hafð-
ur minni vegna hins stöðuga á-
lags, sem venjulega er á vélum
til þeirra nota. Vélar til iðnaðar
eru hérlendis í mun lægri toll-
flokki en aðrar vélar.
4. Utanborðsmótorar til notk-
kunnar á sjó og vötnum. Stærð-
ir allt frá 4.5 hestöfl við 4.000
snúninga á mínútu í 40 hestöfl
við 4.500 snúninga.
Perkins Engines Ltd. er að-
eins 29 ára gamalt. Það hóf
Framh. á bls. 8.
Á sýningartjaldi
Nýja - Bíó:
Heljarfljótið
(Wild River)
Heljarfljótið — Wild Riv- áhrif, sem við verðum fyrir,
er! Hvers vegna heitir kvik- út í bláinn og sama er að
myndin þessu nafni? Hvað er segja urh áhrif litanna í
það í kvikmyndinni, sem myndinni.
hægt er að kenna við eitt- Þessar tilraunir Elia Kaz-
hvert sérstakt fljót? Kvik- an til listsköpunar með liti
myndin hefst að vísu á mikl- og myndun eru margar hverj-
um gauragangi af flóði, en ar fallegar og athyglisverðar,
livað svo? en tilgangslausar í þessu
Framhaldið er ágœtt sýnis- sambandi. hvað þá þcgar
horn af einum hættulégasta kvikmyndahandritið er í
óvini kvikmyndanna, ofnotk- höndum manns eins og Paul
un liins talaða máls. Stein- Osborn, sem eftir þessu að
drepandi hlutur, sem gefur dæma virðist halda. nð skáld-
hinum kvikmyndrænu áhrif- sagnagerð og kvikmynda-
um hvert kjaftshöggið á fæt- handritagerð eigi eitthvað
ur öðru. Eg er illa svikinn, ef sameiginlegt.
Elia Kazan hefur ekki upp- Það athyglisverðasta við
runalega ætlað sér að hafa kvikmyndina er leikstjórn
þessa kvikmynd ennþá lengri. (ekki kvikmyndastjórn) Elia
því svo snubbótt er samsetn- Kazan. sem er góð. Hvað
ing myndarinnar. að furðu lckinum viðkemur, þá eru
sætir. það Albert Selmi og Jo Van
Þaðipr aftur á móti vafa- Fleet. sem athvglisverðust
samt. hvort Elia Kazan hef- eru. '
ur fengið að koma nálægt Það verður tilhlökkunar-
samsetningu myndarinnar, efni. þegar séð verður fram
ef farið hefur verið eftir venju á að fækka fer þeim kvik-
þeirra í Hollywood. En myndum, sem gerðar eru cft-
hvernig, sem í því liggur. þá ir skálds ,.
eru hin Ijóðrænu kvikmynda- 1 StefánG.
Frjáls þjóð — laugardaginn 7. apríl 1962
3