Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.2005, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.2005, Síða 8
8 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 19. mars 2005 F agleg sjónarmið fá ekki alltaf að ráða í skipulagsmálum. Þau eru nefnilega einnig hápólitísk. Skipulagsmál snúast um hags- muni, bæði einstaklinga og heildar. Þau snúast um mikil verðmæti sem eru landið okkar. Og þau snúast um lífsgæði og lífsstíl, jafnvel lífsafstöðu. Spurningin er: Í hvernig borg viljum við búa? Viljum við búa í þéttbyggðri borg? Slík borg er ekki aðeins hagkvæmari fyrir bæði einstkal- ingana og heildina heldur einnig umhverf- isvænni en dreifð borg. Hún gerir hins vegar miklar kröfur til félagslegrar færni sem Ís- lendingar búa ef til vill ekki yfir enn. Lang- flestir Íslendingar hafa nefnilega hingað til búið mjög dreift, einnig þeir sem eiga heima í borginni. Reykjavík einkennist af miklum bilum á milli húsa og hverfa. Í þessum bilum eru misstór tún og mó- ar eins og í kringum sveitabæi og milli þeirra. Í þessum bilum eru götur sem minna líka margar hverjar á þjóðvegina sem liggja um sveitir landsins enda viljum við geta ekið hratt og örugglega á milli húsa og hverfa. Í þessum bilum er líka mikið myrkur enda fáir á ferli. Þessi bil hafa orðið til vegna þess að Reykvík- ingar tóku þá ákvörðun um miðja síðustu öld að dreifa byggðinni mikið. Reykvíkingar vildu ekki búa í þéttbyggðri borg. Þeir vildu hafa mikið rými í kringum sig og víðan sjóndeild- arhring eins og í átthögunum. Sökum þessa ákváðu Reykvíkingar þegar á sjöunda ára- tugnum að reisa mikla byggð austan Elliðaáa. Þeir vissu að þetta myndi kosta mikil ferðalög fyrir íbúa en bíllinn átti að bjarga því, hann var alltaf að verða ódýrari, sparneytnari og þægilegri. Í tíu, tuttugu, þrjátíu, fjörutíu ár héldu Reykvíkingar áfram að trúa á krafta- verk bílguðsins og teygðu byggðina lengra og lengra upp um holt og móa. Auðvitað lærðu þeir fljótt að bílguðinu þykir hvorki vænt um fólk né náttúruna og það krefst mikilla fjár- hagslegra fórna. Reykvíkingar uppgötvuðu fljótt að bílguðinu þykir ekki vænt um neitt nema sjálft sig en eigi að síður héldu þeir áfram að byggja dreift því til dýrðar. Það var ekki fyrr en órannsakanlegir vegir þessa guðs höfðu þakið meira en helming borgarlandsins og bensínkirkjurnar byrgðu sýn á flest annað að borgarbúar tóku sumir hverjir að efast. Það var farið að tala meira og meira um þéttingu byggðar. Og nú er loksins talað um að byggja í Vatnsmýrinni, einu skelfilegasta myrkrabili borgarinnar, þó að pólitískir hagsmunir standi enn í vegi fyrir því að flugvöllurinn víki. Og í stað þess að reisa enn eitt úthverfið upp við Úlfarsfell þá hefur nú til dæmis verið skipu- lögð byggð við Mýrargötuna í miðbænum. Á sama tíma heyrist einn og einn tala um að það vanti lóðir og þannig er enn þrýst á að land verði brotið undir nýja byggð einhversstaðar upp undir fjöllum. Sé pólitísk sannfæring þar á bak við væri forvitnilegt að heyra á hverju hún byggðist. Sem stendur virðast skynsamleg rök fyrir því að láta borgina halda áfram að breið- ast út um móa og mela nefnilega vera af skorn- um skammti. En eins og áður sagði fá fagleg sjónarmið ekki alltaf að ráða í skipulags- málum. Borgar- og samfélagsvitund Reykvík- inga er heldur ekki svo beysin að á hana megi treysta. Til þess að átta okkur betur á van- þroskaðri borgarvitund Íslendinga, pólitískum áhrifum á þróun Reykjavíkur og faglegum sjónarmiðum til skipulags borgarinnar þá skulum við skoða þessa sögu eilítið betur með Salvöru Jónsdóttur, skipulagsfræðingi og sviðsstjóra skipulags- og byggingasviðs borg- arinnar. Ekki uppskrift að góðu borgarsamfélagi Reykjavík er ung borg. Hún fer ekki að vaxa fyrr en eftir seinna stríð og þá var bíllinn kom- inn til sögunnar. Áhrif bílsins á þróun borga sést glöggt í amerískum borgum þar sem ekki var til þróað almenningssamgöngukerfi. Í evr- ópskum borgum var slíkt kerfi til og því hafði bíllinn ekki jafn mikil áhrif. Bíllinn gerði kleift að byggja í ódýrara landi fjarri miðbæj- arkjarna og atvinnusvæði. Hér sem víða ann- arstaðar varð þessi þróun hröð. Stór úthverfi spruttu upp og fleiri og fleiri þurftu að fara um langan veg til að sækja atvinnu. Vegakerfið varð æ umfangsmeira og bílaeignin gríðarleg. Götur hafa verið útfærðar eins og þær séu þjóðvegir í dreifbýli til þess að koma öllum bílaflotanum fyrir, það er eins og notaður sé rangur skali við hönnunina, hann sé ekki mið- aður við mannfólkið sem býr í borginni og taki ekki tillit til þess að landsvæði er takmarkað og dýrt. Í könnun á landþörf samgangna frá því í fyrra kemur í ljós að helmingur lands í Reykjavík er undirlagt samgöngumann- virkjum. Þetta er álíka hátt hlutfall og í sam- bærilegum borgum í Bandaríkjunum. Þar eru þó til borgir eins og Houston í Texas með á milli 60 til 70% lands undir samgöngu- mannvirkjum. Að sögn Salvarar Jónsdóttur er það ekki til fyrirmyndar. „Skipulagsfræði í Bandaríkjunum fjalla nú fyrst og fremst um það hvernig megi end- urheimta borgina, lækna amerísku borgina eða bjarga henni. Meira að segja Banda- ríkjamönnum óar við landsóuninni. Til þess að snúa ofan af ástandinu eins og það er í Reykja- vík nú þarf geysilegt átak. Við erum að reyna að spyrna við fótum með því að þétta byggð en auðvitað mun taka langan tíma að ná ein- hverjum verulegum árangri í þeim efnum. Hin dreifða byggð Reykjavíkur er ekki upp- skrift að góðu borgarsamfélagi, hvorki frá hagrænu sjónarmiði séð né félagslegu eða vistlegu. Gatnagerð í dreifðri byggð er til að mynda gríðarlega kostnaðarsöm. Þess má geta að í Staðarhverfi, sem er eitt af dreif- byggðustu hverfunum í borginni, er flatarmál samgangna á hverja íbúð 322 fermetrar en 41 á Grettisgötu. Þessa gatnagerð erum við að greiða úr sameiginlegum sjóði. Jafnframt er miklu dýrara að halda úti almennings- samgöngum í dreifðri byggð. Samkvæmt ný- legri könnun á ferðavenjum Reykvíkinga not- ar fólk síður strætó í dreifðu úthverfunum. Íbúar þessara hverfa ganga líka síður í vinn- una af skiljanlegum ástæðum. Bandarískar rannsóknir sýna að mittismál fólks eykst eftir því sem það býr fjær borgarmiðjunni. Dreifð byggð hefur líka áhrif á samskipti íbúa, fólk ræðist minna við. Og þannig mætti áfram telja.“ Leiðinn og einmanaleikinn hangir yfir Kannski er varla hægt að halda því fram að það hafi beinlínis verið röng ákvörðun að skipuleggja byggð austan Elliðaáa á sínum tíma. Þétting byggðar var ekki á dagskrá og pólitískar og samfélagslegar aðstæður kölluðu á ódýrt húsnæði í miklu magni. Fólk flutti unn- vörpum úr sveit í borg og ríkisstjórnin gerði samning við verkalýðshreyfinguna um bygg- ingu 1250 íbúða sem láglaunafólki var gert kleift að eignast á þægilegri kjörum en áður tíðkuðust og kom það í stað beinna launa- hækkana. Þetta hafði talsverð áhrif á skipulag Breiðholtsins og að mati Salvarar má deila um þá ákvörðun að koma þessum íbúðum fyrir á einum stað. „Reynsla Bandaríkjamanna hafði til dæmis sýnt að það skapaði fleiri félagsleg vandamál en það leysti að búa til slík hverfi enda var tek- ið að rífa þau niður þar um það leyti sem við tókum að reisa þau hér.“ Skipulag Breiðholtsins var þó að mörgu leyti í eðlilegu framhaldi af því sem gert hafði verið áður hér og erlendis. Hverfið er sprottið upp úr fúnksjónalismanum. Gætt var að því að hafa bæði blokkarbyggð, raðhús og einbýli í hverfinu auk þjónustukjarna. Það var hins vegar galli hversu lítil atvinnustarfsemi var í hverfinu. Hverfið var þannig mjög líflegt og gott þar til konur fóru almennt að vinna utan heimilis, þá var ákaflega lítil starfsemi í því að degi til. Það einkennir einmitt mörg úthverfanna að vera eins konar svefnbæir. Þangað koma íbú- arnir til að hvílast. Á daginn hangir leiðinn og einmanaleikinn yfir þessum hverfum. Flugvöllurinn á að víkja sem fyrst Vatnsmýrin er lykillinn að þéttingu byggðar í miðbæ Reykjavíkur. Með byggð á þessu gríð- arlega mikla og dýrmæta svæði mætti gjör- breyta borgarmyndinni og leggja grunn að efl- ingu íslensks borgarsamfélags. Úr því getur hins vegar ekki orðið nema flugvöllurinn víki. Eins og flestum er kunnugt runnu viðræður borgar og ríkis um það hvort og hvenær flug- völlurinn færi út í sandinn fyrir réttum fjórum árum. Borgaryfirvöld vilja hann burt en ríkið vill að hann sé á sínum stað sem lengst. Það er fyrst nú síðustu daga sem einhver hreyfing hefur komist á málið, og sjónarmið skipulags- yfirvalda eru skýr, að sögn Salvarar Jóns- dóttur. „Út frá mínum bæjardyrum séð á flugvöll- urinn að víkja sem fyrst. Vatnsmýrin er allt of dýrmætt land til þess að hafa þar flugvöll. Okkur munar um hvern fermetra af þessu nesi sem borgin stendur á. Ég skil hagræðið sem er af því fyrir landsbyggðarfólk að hafa hann svo nálægt miðbænum en þau rök eiga ekki jafn mikið við nú og áður. Leiðin til Keflavíkur er alltaf að styttast. Það verður líka að hafa í huga að 80% þjóðarinnar býr á höfuðborg- arsvæðinu eða innan klukkustundar aksturs- fjarlægðar frá borginni. Það er því brýnnt hagsmunamál fyrir aðeins 20% þjóðarinnar að hafa flugvöll í Vatnsmýrinni.“ Salvör segir að ljóst sé að flugvöllurinn muni fara úr Vatnsmýrinni í áföngum. Tals- verð umræða hefur verið um framkvæmdina að undanförnu. Hugmyndir um skipulag ein- stakra búta á svæðinu hafa verið gagnrýndar. „Það hefur verið talað um bútasaums- skipulag í þessu sambandi,“ segir Salvör. „Sjálfri þykir mér bútasaumur fallegur. Skipulag er iðulega eins konar bútasaumur. Við þekkjum borgir í Ameríku og gömlu Aust- ur-Evrópu sem voru reistar eftir allsherj- arskipulagi og þær eru ekki fallegar. Þegar maður saumar bútasaum sér maður auðvitað fyrir sér allt teppið. Það er til skipu- lag fyrir alla Vatnsmýrina hér hjá okkur en það væri hins vegar mjög óráðlegt að leggja það fram einhliða. Skipulag svæðisins verðum við að vinna í samstarfi við ríkið og samgöngu- yfirvöld sem eru stórir landeigendur á svæð- inu. Sú vinna mun hefjast í haust eins og til- kynnt hefur verið. Sem stendur er verið að vinna að hönnun 140 þúsund fermetra byggðar á Valssvæðinu vestan í Öskjuhlíð. Þar á að vera margumrædd samgöngumiðstöð eins og alltaf hefur verið gert ráð fyrir í aðalskipulagi Reykjavíkur, óháð flugvelli. Þannig sjáum við fyrir okkur hvernig mætti byggja svæðið upp í áföngum. Við þurfum hins vegar að vinna skipulag þess í stærri hópi. Annað væri óeðli- legt. Skipulag er pólitískt verkefni ekki síður en faglegt.“ Not In My Back Yard Í skipulagsfræðum undanfarinna ára hefur verið lögð mikil áhersla á að skapa mann- eskjulegt umhverfi. Að sögn Salvarar var hún útskrifuð úr námi sínu í Bandaríkjunum með þeim orðum að hún skyldi berjast gegn verslunarmiðstöðvunum. Hér á landi séum við hins vegar einu stríði á eftir í þessum efn- um eins og svo mörgum öðrum. Hún telur að það skorti sterkari samfélags- og borgarvit- und. „Umræðan um Laugaveginn er mjög góð og sýnir að fólki er annt um hann en mér þykir fólk ekki sýna þá væntumþykju í verki. Á sama tíma og Laugavegurinn stendur höllum fæti blómstra mollin, þessi skrýmsli sem soga allt líf úr borgum. Ég vil berjast fyrir því að hér þrífist heilbrigt og gott borgarsamfélag. Börnin mín hafa til dæmis aldrei fengið að fara í Smáralind með mínu leyfi. Ég hef einu sinni farið þangað sjálf á bókamarkað. Til þess að hvetja börnin mín til að fara að fordæmi mínu þá styrki ég þau til fatakaupa í miðbænum en annars ekki.“ Salvör segir að hugsanlega skorti á upplýs- ingu um hvað skipulagsmál snúist hér á landi. Fólk geri sér ekki alltaf grein fyrir því að það sé verið að véla um verðmæti komandi kyn- slóða og að hagsmunir heildarinnar þurfi oft að ganga fyrir. „Það kemur fyrir í Reykjavík að til dæmis barnaleikvellir séu gerðir afturreka úr íbúa- hverfum vegna þess að of mikill hávaði þykir vera af þeim. Leikskóli átti að stækka í einu hverfinu en þá bárust mikil mótmæli frá ná- grönnum sem töldu að stækkunin myndi rýra verðgildi eigna þeirra. Í skipulagsfræðum er kennt að leikskólar auki gæði íbúahverfis. En hér er því öfugt farið að því er virðist. Hér vill fólk frekar keyra börnin sín út úr hverfinu í leikskólann.“ Mótmæli hafa einnig borist gegn sambýlum fyrir þroskahefta í íbúahverfum, segir Salvör, en þegar gríðarstór ný verslunarmiðstöð, sem rísa á við Vesturlandsveg, var kynnt nágrönn- um um síðustu áramót bárust engar at- hugasemdir. Vafalaust segir það meira en margt annað um eðli íslenskrar borgarmenn- ingar. Hún einkennist af hinum svokallaða NIMBY-isma sem orðaður er í kaflafyrirsögn- inni hér að ofan. „Að mínu mati,“ segir Salvör, „verður borg- in aldrei fallegri en hugskot þeirra sem hana byggja.“ Eru dreifð um móa og mela Borg Flugvöllurinn í Vatnsmýri „Vatnsmýrin er allt of dýrmætt land til þess að hafa þar flugvöll. Okkur munar um hve Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Húsin í bænum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.