Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 25.06.2005, Side 16
16 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. júní 2005 S ennilega er setningin sú fræg- asta af mörgum frægum full- yrðingum mannsins og jafn- framt sú umdeildasta – „Tilveran kemur á undan eðl- inu“ (L’existence précède l’ess- ence). Í látlausri setningu er maðurinn, eða Maðurinn, „dæmdur til frelsis“. Það sem takmarkar hann, þrengir að honum á alla enda og kanta, setur honum algerar skorður – sjálft eðlið, hvernig maðurinn er og á að vera – er varpað af herðum hans í einni svipan! Eðlið, þessi erfða-afsökun, fengin í vöggugjöf frá guði, og sífellt er notað til að fría manninn undan ábyrgð og til að út- skýra og réttlæta óréttlæti og ójöfnuð af öllu tagi, er snúið á haus og það gert að aukaatriði. Eðlinu, sem útskýrir m.a. launa- mun kynjanna og grundvöll markaðs- lögmála, er blásið burt rétt si svona. Enginn annar en Jean-Paul Sartre hefði getað látið frá sér fara svona makalausa fullyrðingu, kennisetningu sem kjarnar „guðspjall“ hins guðlausa manns, sjálfan ex- istensíalismann, tilvistarhyggjuna. Í setning- unni felst að maðurinn hefur ekki rígbundið „eðli“ heldur er það sem hann gerir. Þessi setning kjarnar tilvistarheimspeki Sartre og kannski alla afstöðu hans til lífsins. Mað- urinn, sagði Sartre, er „frum- (eða fram-) varp“ – pro-jet – sem ekki er til öðruvísi en að varpa sjálfum sér fram fyrir sig, í áttina að því sem hann getur orðið, án þess að nokkru sinni verða það. „Hvert andartak [lífs míns] ítrekar fæðingu mína,“ eins og hann segir í skáldævisögunni Les Mots (Orðin). Pólitísk viljayfirlýsing Nú, þegar 100 ár eru liðin frá fæðingu Sartre (21. júní 1905) og 25 ár frá dauða hans 15. apríl 1980, er engu líkara en hon- um hafi einmitt að einhverju leyti tekist að sanna, á sjálfum sér, þessa fullyrðingu sína um frelsið gagnvart eðlinu (sem nær er að lesa sem pólitíska viljayfirlýsingu fremur en bókstaflega trúarsetningu): Sartre var rit- höfundur, kennari, róttækur hugsuður, heimspekingur, baráttumaður, andófs- og jafnvel undirróðursmaður fram í rauðan dauðann. Líf Sartre snerist um afstöðu og ábyrgð, þrátt fyrir, eða kannski vegna, fáránleika (guðleysis) heimsins og neindarinnar. Sartre sá jákvæðni þar sem aðrir sáu bullandi svartsýni – þetta á við um guðleysið og al- gert frelsi og algera ábyrgð mannsins. Hann sá frelsi þar sem aðrir sáu helsi – í her- numdu Frakklandi, í seinni heimsstyrjöld, benti hann samlöndum sínum á í blaðagrein að þeir hefðu aldrei verið frjálsari – hver hugsun sem stríddi gegn nasistum var sig- ur, nú skipti afstaðan öllu. Stríðið breytti reyndar miklu í afstöðu Sartre. Á háskólárunum og fyrir stríð var hann fremur ópólitískur en frá og með stríð- inu og reynslu hans af því, skilgreindi af- staðan og gjörðin allt: maðurinn var það sem hann gerði. Sartre var framarlega í andspyrnuhreyfingunni í Frakklandi eftir að hafa setið í fangabúðum nasista. Eftir stríð átti hann samneyti við franska kommúnista og gekk til liðs við flokkinn um stund. Í Als- írstríðinu gagnrýndi hann frönsk stjórnvöld og barðist af hörku gegn nýlendustefnu þeirra. Hann léði fjölmörgum réttlæt- ismálum nafn sitt: hann tók að sér að rit- stýra bönnuðu blaði máóista; tók þátt í að stofna og ritstýra dagblaðinu Libération (1973) og sem enn er eitt besta dagblað Frakklands. Róttæk gagnrýni hans tók ekki bara til andstæðinga og andstæðra skoðana: Sagt hefur verið að Sartre hafi sífellt verið að skrifa og hugsa gegn sjálfum sér og eigin hugmyndum. Eilíft andóf Sartre var í eilífri andstöðu við kerfið. Hann barðist almennt fyrir réttindum fanga og réttindum „annarra“, þeirra sem eru „öðru- vísi“. Hann tók þátt í því að fá rithöfundinn, þjófinn og smákrimmann Jean Genet lausan úr fangelsi. Hann stóð meira að segja vörð um réttindi Andreas Baaders, forsprakka rauðu herdeildarinnar í Þýskalandi, þegar sá sami var fangi þýskra yfirvalda. Hann var þó með öllu ósamþykkur aðgerðum Baader-Meinhof en taldi sig þurfa að vernda aðila, þegar enginn annar vildi, gegn stjórn- valdi með fasískar tilhneigingar. Sartre dáði Bandaríkin og bandaríska menningu, einkum bandarískar bókmenntir og djass, en það hindraði hann ekki í því að berjast hatrammlega gegn Víetnamstríðinu upp úr 1970. Honum var reyndar uppsigað við Bandaríkin á seinni árum. Það var svo eftir honum að falla fyrir byltingarfólkinu unga í maí ’68: Hann lýsti yfir stuðningi sín- um og hvatti þau til dáða. Hann rómaði hugkvæmni þeirra og eggjaði þau til að fylgja sannfæringu sinni, án þess nokkru sinni að troða sinni hugmyndafræði upp á þau. Hinn síbreytilegi og sífrjói Sartre var síð- ur en svo óskeikull. Hann lýsti yfir stuðn- ingi við Sovétríkin eftir stríð og rómaði mannréttindi þar í landi. Hann sneri þó baki við kerfinu eystra eftir að sovéski herinn réðist inn í Ungverjaland 1956. Hann sagði sig svo úr Kommúnistaflokknum franska nokkru síðar. Einstaklingsgrundaðar tilvist- arkenningar hans áttu auk þess aldrei upp á pallborðið á þeim bæ. Hann hélt þó áfram þátttöku í ýmsum róttækum hreyfingum. Eins og að líkum lætur þá hafa sumir ekki enn fyrirgefið Sartre þetta gerska æv- intýri. Hann hefur einmitt sætt álíka hræsn- isfullum ásökunum um mannvonsku og ís- lenska Nóbelskáldið. Sartre baðst ekki afsökunar og leitaði ekki eftir „fyrirgefn- ingu“, gaf enda lítið fyrir þann smáborg- aralega mekanisma. Á-lit annarra Sjálfum voru Sartre svo úthlutuð Nób- elsverðlaunin 1964, nokkrum mánuðum eftir útkomu Orðanna, sem margir telja merk- asta framlag höfundarins til bókmennta. Sartre hafnaði verðlaununum samstundis: Hann lýsti því yfir að hann vildi ekki láta „á-lit“ annarra skilgreina sig og alls ekki á- lit „nokkurra háskólamanna og gamalla herra sem standa ekki fyrir nokkurn skap- aðan hlut“. Hann benti ennfremur á að „rit- höfundinum bæri að koma í veg fyrir að hann væri gerður að stofnun“. Þá vildi Sartre ekki láta kerfið gleypa sig með því að þiggja af því fjármuni. Mörgum þótt Sartre skjóta illilega yfir strikið en ákvörð- un hans var hins vegar í fullu samræmi við lífsspeki hans. En var Sartre ekki einfaldlega það vel fjáður að hann hafði efni á því að hafna þeim umtalsverðu fjármunum sem í verð- laununum fólust? Sartre átti vísast alltaf til hnífs og skeiðar en var hins vegar aldrei vel efnaður. Simone de Beauvoir hefur sagt frá því hvernig honum hélst illa á peningum. Innkomu af alls konar skrifum og bókum var jafnskjótt eytt í vini og kunningja. Sartre var nægjusamur, leigði litlar íbúðir og hafði ekki mikla þörf fyrir eignir og hluti; eignasöfnun stríddi reyndar gegn sannfæringu hans. Hann byrjaði t.d. ekki að safna bókum fyrr en eftir fertugt og þá í litlum mæli. Hann ferðaðist á tímabili mikið, einkum með Beauvoir, en aðallega nægðu honum einfaldar vistarverur og kaffihúsin góðu í París. Svartar rúllukragapeysur Sartre lagði í vana sinn um langt árabil að sitja og skrifa á uppáhaldskaffihúsum borg- arinnar. Select við Montparnasse, Deux Magots sem stendur við Boulevard St. Germain des Prés. Torgið við kaffihúsið var skýrt í höfuðið á Sartre og Beauvoir alda- mótaárið 2000. Að sumu leyti skilgreindu þau skötuhjú Parísarlíf og kaffihúsamenn- ingu borgarinnar, ásamt öðrum í líkum stell- ingum. (Ástarsamband Sartre og Beauvoir – ást aldarinnar – er svo efni í margar greinar en um samband þeirra, líkamlegt og/eða vitsmunalegt sýnist sitt hverjum.) Þótt Sartre hafi svo sem ekkert viljað kannast við „Existensíalistana“ sem svartklæddir (í rúllukragapeysum) hertóku kaffihús og djassbúllur, einkum í kjöllurum miðborg- arinnar, var hann og Beauvoir, Juliette Gréco, Boris Vian og fleiri í brennidepli þessa bóhemíska, andborgaralega tískuhóps. Síðar tók við harðkjarna sósíalísk barátta, fyrir öreigann, en snemma á 6. áratugnum breiddist fagnaðarerindi existensíalismans út um allan heim, eins og eldur í sinu. Til- vistarspekileg viðhorf og kannski einkum útlit í þeim anda breiddist til Bandaríkj- anna, einkum New York þar sem eins konar samsvörun var að finna í Beat-hreyfingunni svokölluðu, þótt ekki væri hún jafn grunduð í hugmyndum og hugmyndafræði. Áhrif tilvistarspekinnar á Íslandi hafa ekki verið könnuð sérstaklega en víst er að þau voru nokkur, ekki síst meðal mennta- fólks og kannski leikhúsfólks sérstaklega. Nokkur leikrita Sartre voru sviðsett (Fang- arnir í Altona, Flekkaðar hendur o.fl.) og svo féll fáránleikhúsið eins og flís við tilvist- arspekilegan rass. Gísli Halldórsson, leikari, o.fl. unnu málefninu fylgi. Þá má heita víst að hópurinn sem stóð að móderníska menn- ingartímaritinu Birtingi hafi sótt í hug- myndir Sartre og félaga en þar fara fremst- ir í flokki Einar Bragi, Hörður Ágústsson, Thor Vilhjálmsson, Jón Óskar, Sigfús Daða- son, svo einhverjir séu nefndir. Áhrif þess- ara hafa svo seytlað niður í yngri kynslóðir og existensíalisminn er nú hluti af íslensku erfðaefni. Sartre í Frakklandi 100 ára afmælisins er minnst í Frakklandi með margvíslegum hætti. Gefnar hafa verið út fjölmargar bækur um manninn, ævisögur og álit samferðamanna og ýmiss konar end- urmat á hugsunum og hugsjónum hans. Tímarit hafa mörg helgað honum sérhefti, t.d. Magazine littéraire, og L’Histoire. Blað- ið sem hann stofnaði gaf út einkar veglegan 70 síðna kálf með afar fjölbreyttri umfjöllun. Það sem einkennir þessa umfjöllun um Sartre, og hefur einatt einkennt umsagnir um Sartre, er fullkomið hispursleysi. Ekkert er dregið undan. Hann reyndi aldrei að fegra sjálfan sig, gekk reyndar reglulega í skrokk á eigin goðsögn og það er eins og það hafi smitað út frá sér. Óhelg goðsögn Margir nota tækifærið til að krukka í goð- sögnina: Sósíalistar og kommúnistar hrylla sig og benda á að Sartre hafi ekki auðveldað sameiningu á vinstri vængnum, Þeir sem eru til hægri geta ekki fyrirgefið honum að hafa staðið með máóistum og þeim óhugnaði sem hann fól í sér, að þeirra mati. Það er rætt um heimspekina, skáldsögurnar, leik- ritin, blaðaskrifin, kaffihúsarápið, stöðu Sartre sem óopinbers ambassadors Frakka, í heimsókn hjá Krutsjef, hjá Kastró, í Bras- ilíu, Japan, Ísrael, Palestínu, Kína, í heim- sókn hjá Baader, með Rauða Benna, í maí- byltingunni (’68) miðri, í kröfugöngu með Foucault fyrir réttindum fanga, að hann sjö- tugur hafi verið að selja áróðursrit úti á götu fyrir hópinn „Lifi Byltingin!“ Þótt Jean-Paul Sartre hafi ekki verið „mikill fyrir mann að sjá“, eins og sagt er, lét hann nær alls staðar að sér kveða, hvar sem hann sté niður fæti. Hann var frum- gerðin að Intellektúalnum – menningarvit- anum sem hefur áhrif í samfélaginu. Stöðu menningarvita hefur stórlega hrakað frá því að Sartre var og hét og ekki laust við að Frakkar sakni þeirra tíma þegar Sartre og félagar hrærðu upp í samfélaginu. Öllum þessum mörgu hliðum á Sartre eru gerð skil á gríðarstórri sýningu í þjóð- arbókhlöðu Frakka – bókasafni François Mitterrand. Ekkert er til sparað í þessari ít- arlegu og vönduðu sýningu sem sýnir virð- ingu og skilning á sannkallaðri vits- munalegri þjóðargersemi: Jean-Paul Sartre. Heimspekingurinn hefði sjálfsagt afþakkað en þegar hann var borinn til grafar 19. mars 1980 fylgdu yfir 50 þúsund manns honum til grafar, eftir endilangri Champs Elysée- breiðgötu. Útförinni var líkt við útför Victor Hugo en það má heita vel af sér vikið fyrir jafn umdeildan mann og Sartre var alla tíð. Rómantískur skynsemishyggjumaður Sartre var ekki einn þeirra sem stærðu sig af því að hafa aldrei skipt um skoðun eða breytt um hugmyndafræði. Hann var að sjálfsögðu á móti steinrunnum hugsjónum og hugmyndum. Hann skilgreindi sig sífellt upp á nýtt, með nýjum gjörningum, nýrri afstöðu. Allt hlaut að vera kvikt og breyt- ingum undirorpið því óvissa og mótsagnir eru digrir þættir í Verunni. Sartre var sjálf- sagt eins sannur, ekta, og hann gat verið. Ef til vill hitti Irish Murdock naglann á höf- uðið, hvað þessa mótsögn varðar, þegar hún kallaði Sartre rómantískan skynsem- ishyggjumann, í samnefndri bók. Hver er svo staða Jean-Paul Sartre í Frakklandi í dag? Hvernig eru fræði hans og framlag metið? Víst er að sumir eft- irmælendur, nú við 100 ára afmælið, halda því fram að hugmyndir hans og heimspeki eigi enn við, að mörgu leyti. Sumir, eins og t.d. Bernard-Henry Lévy, gamall nemandi Sartre, stundum sagður fjölmiðla-heimspek- ingur, halda því fram að allt þurfi að end- urlesa – í kenningum Sartre búi enn mikið frjómagn. Staðreyndin er samt sú að námskeiðum um sartríska heimspeki, tilvistarspekina, er varla til að dreifa. Slík námskeið er þó ekki langt að sækja, eða til Belgíu og annarra landa í Evrópu. Þetta gæti þó breyst eftir upprifjunina nú, hver veit. Um bókmennt- irnar er auðvitað fjallað enda skáldverkin Orðin (Les Mots) og Ógleðin (La Nausée), Vegir frelsisins (Les Chemins de la Liberté) – allar í og með heimspekilegar – talin til öndvegisrita. Óminnst er þá á öll leikritin sem kannski öfluðu Sartre hvað mestra vin- sælda, í Frakklandi og annars staðar, svo og önnur skrif. Verðandi heimspeki Kannski má halda því fram að þótt heim- speki Sartre hafi að sumu leyti látið á sjá þá lifi andi hans áfram. Hvað sem því líður er víst að kynslóð sú sem tók við af Sartre og félögum og varð áberandi, Foucault, Derrida, Deleuze og fleiri, á honum ýmislegt að þakka: Allir þessir komust í snertingu við hann og þótt þeir hafi snúið frá honum og stundum mjög ákveðið, eins og Derrida, og framið þannig nauðsynlegt „föðurmorð“, þá er ýmislegt í póststrúktúralískum kenn- ingum þeirra sem minnir á sumar kenni- setningar tilvistarspekinnar, kannski ekki síst þá fullyrðingu sem þessi grein hófst á: „tilveran kemur á undan eðlinu“ – sem felur í sér að maðurinn sé sífelld verðandi. Frum-varp til verundar Frakkar hafa efnt til glæsilegrar sýningar í þjóðarbókhlöðu sinni í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu menningarvitans Jean- Paul Sartre. Útgáfa um manninn hefur líka verið gríðarleg á árinu en auk þess hafa verið gefin út óbirt verk eftir hann. Hér eru tíund- uð brot úr lífi manns sem kallaður hefur ver- ið síðasti meistari franskrar hugsunar. Sartre minnst Frá hinni glæsilegu sýningu í frönsku þjóðarbókhlöðunni. Höfundur er bókmenntafræðingur í París. Eftir Geir Svansson geirsv@isl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.