Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.2005, Page 8
8 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 9. júlí 2005
S
nemma í vor fór ég til
Danmerkur til fundar
við fólk frá Svíþjóð og
Noregi. Eftir góðan
kvöldverð í Óðinsvéum
settist ég niður á úti-
kaffihúsi með norskum
félaga og við fórum að
spjalla um daginn og veginn. Hann sagði
mér meðal annars í óspurðum fréttum að
í flugvélinni á leið frá Osló til
Kaupmannahafnar hefði hann lesið at-
hyglisverða grein í sunnudagsútgáfu
norska Dagblaðsins.
Greinin fjallaði um franska tilvistar-
spekinginn Jean-
Paul Sartre í til-
efni þess að 100 ár
eru liðin frá fæð-
ingu hans. Þar var sagt fullum fetum að
Frakkinn atarna væri stórlega ofmetinn
og hefði aldrei haft neitt sem máli skiptir
fram að færa. Ég sýndi greininni mikinn
áhuga og þegar ég var nýkominn aftur
heim til Íslands fékk ég hana senda í
tölvupósti frá þessum norska vini mínum.
Andlega blindur og sljór
Greinin er eftir perúíska rithöfundinn
Mario Vargas Llosa og fyrirsögnin er
Uppgjör við Sartre. Þar undir stendur
feitletrað: „Jean-Paul Sartre var åndelig
blind og slöv – og tok feil i nesten alla
saker han for svarte eller angrep“ eða
„Jean-Paul Sartre var andlega blindur og
sljór – og honum skjátlaðist um hér um
bil allt sem hann tjáði sig um“.
Eftir að hafa lesið greinina leitaði ég
frekari heimilda um Vargas Llosa. Ég
komst meðal annars að því að hann er
fæddur á millistríðsárunum, hreifst ung-
ur af Sartre, en fannst seinna að þessi til-
eygði kommúnisti hefði leitt sig á glap-
stigu. Upp frá því hefur Vargas Llosa
verið óþreytandi við að rakka niður Jean-
Paul Sartre og verk hans.
Greinin í norska Dagblaðinu var til
vitnis um biturð og beiskju. Þar var ekki
kafað ofan í heimspekilegar kenningar
Sartres, heldur mest gert úr því að á
sjötta áratugnum hefði hann sagt að í
Sovétríkjunum hefðu menn frelsi til að
gagnrýna allt sem vera vildi og efast um
að pólitískar ofsóknir ættu sér stað í Sov-
étríkjunum undir stjórn Stalíns.
Síst ber að gera lítið úr þessari póli-
tísku blindu sem því miður hrjáði of
marga mestu hugsuði síðustu aldar. Hins
vegar þykir mér Vargas Llosa sjálfur
gerast sekur um mikla þröngsýni með því
að dæma ævistarf Sartres ómerkt og
einskis vert vegna glámskyggni hans á
vettvangi stjórnmálanna. Það er svipað
og að við Íslendingar afskrifuðum bók-
menntaverk Halldórs Kiljans Laxness
fyrir það eitt að hann var einu sinni hall-
ur undir Ráðstjórnarríkin. Í þessu tilliti
er munurinn á stöðu þeirra tveggja ef til
vill helst sá að Halldór skipti um skoðun
en ekki Sartre og Halldór þáði Nób-
elsverðlaunin en ekki Sartre. Sartre var
trúr sannfæringu sinni fram á hinstu
stundu og gaf lítið fyrir Nóbelinn og
flestöll borgaraleg gildi.
Ástríður og poppljómi
Vargas Llosa er bitur en ég held þó að
með einhverjum hætti hafi hann hitt
naglann á höfuðið þegar hann skrifar að
Sartre hafi verið fjölmiðlafígúra. Hann
var iðulega á síðum slúðurblaðanna, gekk
í öllum mótmælagöngum sem hann þefaði
uppi og var sífellt að rífa kjaft – kannski í
og með til þess að komast á síður blað-
anna. Sartre virðist hafa kunnað „al-
mannatengsl“ út í hörgul, að koma sjálf-
um sér á framfæri, búa til úr sér „brand“
og skapa sér ímynd.
En pólitísk vindhögg og meintir
stjörnustælar Sartres rýra á engan hátt
framlag hans til heimspeki og bók-
mennta. Þó mætti ef til vill spyrja sig
hvort almennar vinsældir þessa merka
hugsuðar og eins konar poppljómi sem
umlék hann á fimmta, sjötta og sjöunda
áratug 20. aldar hafi orðið til þess að
hann sé ekki tekinn nógu alvarlega í aka-
demísku samfélagi 21. aldar?
Jean-Paul Sartre var maður ástríð-
unnar. Hann var maður
þess sem Frakkar og Eng-
lendingar kalla „Engage-
ment“. Hann gekk um
stræti Parísar með flest-
öllum fylkingum sem fyr-
irfundust. Hann lagðist á
sveif með fjölmörgum bar-
áttuhópum sem höfðu eitt-
hvað á stefnuskrá sinni
sem hann gat hugsanlega
verið sammála. Sartre sem
var alltaf á ferðinni með
rauða spjaldið á lofti. Hann
staulaðist hálfblindur upp
frá borðinu á kaffihúsinu
sínu, angandi af sígarettum
og svörtu kaffi, til að segja
hingað og ekki lengra.
Kannski er stundum virð-
ingarverðara að eiga sér vondan málstað
en engan og sýna með því lífsmark? Mér
er til efs að Vargas Llosa sé sammála því.
Frelsi og óheilindi
Því er líkt farið um mig og Vargas Llosa
að heimspeki Jean-Pauls Sartres hefur
haft mikil áhrif á mig og hefur enn.
Framan af hreifst ég mest af umfjöllun
hans um frelsið. Hann leggur áherslu á
að það sé grundvallaratriði í lífi sérhvers
manns að hann er dæmdur til að vera
frjáls og getur ekki varpað ábyrgð á eigin
gjörðum yfir á aðra. Það er skylda mín að
virða frelsi annarra og nýta eigið frelsi til
að gera gott úr sjálfum mér.
Samkvæmt heimspeki Sartres er
mannleg tilvera upphaflegri en eðlið.
„Maðurinn er sjálflifuð fyrirætlun, öfugt
við til dæmis mosa, fúafen eða kálhöfuð,“
eins og Sartre segir í fyrirlestrinum
Tilvistarstefnan er mannhyggja. Við er-
um því ekki sköpuð með eitthvert fyr-
irfram ákveðið eðli. Við erum ekkert ann-
að en það sem við gerum úr okkur, sem
er fyrsta lögmál tilvistarstefnunnar.
Hins vegar er líf okkar að sjálfsögðu
skilyrt af ytri aðstæðum, svo sem líkam-
legum erfðum, stéttarstöðu, land-
fræðilegum þáttum og fleiru sem við
fáum í vöggugjöf. Þetta er það sem
Sartre kallar staðveru og er í eilífri tog-
streitu við handanveruna, frjálst áform
okkar og möguleika til frjálsrar breytni.
Sartre gerir í raun eins lítið og hann
mögulega getur úr umhverfisþáttum og
félagsmótun. Hann leggur ríka áherslu á
að menn geti ávallt stigið handan stað-
veru sinnar og nýtt frelsi sitt. Ef menn
neita handanverunni – möguleikum sín-
um – og gerast leiksoppar staðverunnar
gerast þeir um leið sekir um það sem
Sartre kallar óheilindi.
Þegar grannt er skoðað er sjaldnast
hægt að kenna öðrum um það sem úr
okkur varð. Við ákvörðum það sjálf með
eigin vali. Með því að taka einn kostinn
fram yfir annan útilokum við ótal mögu-
leika en opnum um leið fyrir ótal aðra
möguleika. Þannig sköpum við okkar eig-
ið eðli með athöfnum okkar og vali.
Þessi kenning Jean-Pauls Sartres um
frelsið og mannlega tilveru er augljóslega
mjög takmörkuð. Þótt hún nyti mikillar
hylli meðal Vesturlandabúa þá fór Sartre
ekki varhluta af gagnrýni sem var eink-
um í þá veru að hann gerði of lítið úr ytri
öflum sem skilyrða eða ráða miklu um
gjörðir manna.
Skorturinn
Sartre reyndi að setja fyrir þennan leka á
kenningu sinni með seinni verkum sínum
þar sem Gagnrýni díalektískrar skynsemi
er höfuðritið. Í því byggir hann mjög á
kenningum Marx og Engels en gæti seint
talist venjulegur eða forpokaður marxisti.
Hann var óvæginn við þann flokk manna
og kallaði þá lata. Sartre sakaði þá um að
vera fastir í neti kenninganna og reyna
sífellt að troða veruleikanum inn í þær.
Dostojevskí lýsti þessu ágætlega um
hundrað árum áður í lúmskri gagnrýni á
sósíalista þegar þegar hann lætur eina af
sögupersónum sínum í Glæp og refsingu
segja: „Draumahúsið er fullsmíðað, en
eðlið er ekki reiðubúið að setjast þar að,
það vill líf, það hefur ekki lokið sinni lif-
andi þróun – enn er of snemmt að fara í
kirkjugarðinn!“ (þýðing Ingibjargar Har-
aldsdóttur).
Sartre vildi færa marxismann nær
þeim mannheimi sem við byggjum og það
var sannfæring hans að þar væri tilvist-
arstefnan hjartað sem dælir
blóði og kveikir líf í hálfdauðu
kerfi. Hann leggur eftir sem
áður áherslu á að það eru ein-
staklingarnir sem fram-
kvæma og þótt þeir séu að
hluta skilyrtir af umhverfi
sínu þá eru þeir aldrei algjört
andlag þess.
Hann setur fram eins kon-
ar átakakenningu þar sem
þarfirnar og skorturinn eru
drifkraftur mannlífsins og
baráttunnar manna á meðal.
Hvort sem litið er á tengsl
manna í millum eða tengsl
þeirra við veröldina, þá kem-
ur í ljós að saga okkar krist-
allast í samspili skorts og
þarfa. Frumstaðreyndin er að
það er ekki til nóg handa öllum. Notkun
og neysla ákveðins þáttar hér og nú úti-
lokar notkun eða neyslu hans síðar. Þessi
staðreynd hefur mjög óheillavænleg áhrif
á sambýli manna. Manneskjum er ofauk-
ið. Þær eru verðandi neytendur og sem
slíkar að minnsta kosti ónauðsynlegar ef
ekki beinlínis ógnvænlegar og óæskileg-
ar. Á meðan maðurinn býr við skortinn
eru átök og ofbeldi óumflýjanlegur þáttur
tilveru hans.
Afurðatregða
Efnisheimurinn ýtir ekki aðeins undir
átök og ofbeldi vegna skortsins. Aðgerðir
manna eru einnig greyptar í hið efnislega
umhverfi og geta oft og tíðum komið í
veg fyrir ný áform. Þetta er það sem
Sartre kallar afurðatregðu eða „Practico-
Inert“. Maðurinn stritar gegn afurðum
eigin athafna sem hafa gjarnan breyst í
eitthvað allt annað en upphaflega var ætl-
unin. Sartre nefnir sem dæmi hvernig
kínverskir bændur ruddu alla skóga í
landbúnaðarbyltingunni en það kom þeim
seinna í koll þegar allt þeirra umrót
leiddi til stórfelldra flóða og eyðilegg-
ingar.
Áður sagði Sartre að helvíti væri annað
fólk vegna þeirra takmarkana sem það
leggur á frelsið; hvernig það reynir að
skilgreina aðra utan frá og hefta frjálst
áform þeirra. Núna er helvíti af-
urðatregðan; efnislegur veruleiki sem
áform manna brotna á.
Það er með tilvísun til skortsins og af-
urðatregðunnar sem Sartre skýrir hópa-
myndanir. Í daglegu lífi finnum við litla
sem enga samkennd með öðru fólki. Við
heilsum ókunnugum ef til vill í strætó-
skýlinu en þegar til kastanna kemur
hugsar hver um að bjarga eigin skinni í
keppni um takmörkuð lífsins gæði. Ut-
anaðkomandi ógn getur hins vegar orðið
til þess að ókunnugt fólk bindist böndum.
Þá leggst það saman á árarnar til þess að
breyta mannlegum veruleika og stundum
tekst því að breyta sögunni. Hvort sem
það gerir þá árás á Bastilluna, brýtur
niður Berlínarmúrinn eða stofnar samtök
á grundvelli kynferðis til að breyta póli-
tískum veruleika og eignast fulltrúa á
þingi, svo fátt eitt sé nefnt.
Davíð og Golíat
Jean-Paul Sartre gerir í kenningum sín-
um ágæta grein fyrir þeim innri og ytri
aðstæðum sem maðurinn býr við. Hann
leggur áherslu á áform einstaklinga og
hvernig þeir skapa sig sjálfir. Hann út-
skýrir einnig hvernig fólk getur skapað
og breytt veröldinni með samtakamætti
þegar mikið liggur við. Lykilhugtök eru
frelsið, skorturinn og afurðatregðan.
Kannski má – bæði í gamni og alvöru –
fá dýpri skilning á grein Marios Vargas
Llosa í sunnudagsútgáfu norska Dag-
blaðsins með tilvísun til skortsins. Jean-
Paul Sartre og Mario Vargas Llosa eru
báðir rithöfundar sem berjast um tak-
mörkuð gæði; athygli, viðurkenningu og
aðdáun. Vargas Llosa finnst vont að lifa
og starfa í skugga risans. Davíð segir
Golíat stríð á hendur – en í þessu tilviki
fer hann tæpast með sigur af hólmi.
Sartre sympósíum (Jean-Paul Sartre 1905–2005) var haldið á Akureyri í sumabyrjun í tilefni af því að hu
Frelsið og skorturinn
Húsfyllir var í Deiglunni á Akureyri 7.
maí sl. þegar þar var haldið málþing und-
ir yfirskriftinni „Sartre sympósíum“ í til-
efni þess að í ár eru liðin 100 ár frá fæð-
ingu franska tilvistarspekingsins
Jean-Pauls Sartres. Frummælendur voru
Jóhann Björnsson, Páll Skúlason, Ragnar
Hólm Ragnarsson og Vilhjálmur Árna-
son. Páll Skúlason gat ekki, sökum anna,
búið erindi sitt til birtingar í Lesbók en
erindi hinna þriggja fara hér á eftir.
Jean-Paul Sartre Hann var mjög umdeildur enda virkur í orðræðu síns
Ragnar Hólm
Ragnarsson
Eftir Ragnar Hólm
Ragnarsson
ragnarh@akureyri.is