Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Blaðsíða 1
Laugardagur 29.10. | 2005
[ ]Bækur | Fjallað er um haustbækurnar á sérstökum bókasíðum | 9–15T3 | Tímarit sem reynir að selja þér tól sem hafa ekkert notagildi? | 4Rammstein | Fyrir þýskukennara og þungarokkara | 17
LesbókMorgunblaðsins 80ára19252005
„Huggun. Dásamleg huggun. Ég bið
ekki um meira nú orðið.“
(Kazuo Ishiguro, Óhuggandi, íslensk
þýðing Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur)
Þ
egar Kazuo Ishig-
uro var ungur
maður ætlaði
hann sér að verða
dægurlagahöf-
undur og söngv-
ari. Hann samdi
lög og texta,
hlustaði á Bob Dylan, safnaði hári,
skeggið óx. Þegar hann gekk á fund
útgefenda í Lundúnum í upphafi ní-
unda áratugarins var hann með
kassagítar í annarri hendi, ritvél í
hinni.
Ritvélin sigraði gítarinn. Kazuo
Ishiguro varð ekki rokkstjarna, en
hann varð hins vegar á tiltölulega
skömmum tíma einn virtasti skáld-
sagnahöfundur samtímans. Þrjátíu
og fjögurra ára gamall var hann orð-
inn heimsfrægur eftir útkomu skáld-
sögunnar (og síðar kvikmyndarinn-
ar) The Remains of the Day.
Ishiguro er nú fimmtugur og í mars
kom út hans sjötta skáldsaga, hún
heitir Never let me go og það er
óhætt að segja að hún hafi fengið
frábæra dóma. Sagan er nú komin
út hjá bókaforlaginu Bjarti í ís-
lenskri þýðingu Elísu Bjargar Þor-
steinsdóttur undir heitinu Slepptu
mér aldrei.
Það fór ekkert á milli mála í
Lundúnum í marsmánuði síðast-
liðnum að það var komin út ný
skáldsaga eftir Kazuo Ishiguro. Út-
stillingar í öllum helstu bókabúðum
borgarinnar voru helgaðar Never let
me go.
Kazuo Ishiguro fæddist í Naga-
saki í Japan árið 1954 en hann hefur
verið búsettur í Bretlandi frá fimm
ára aldri. Hann er margverðlaun-
aður höfundur sex skáldsagna og
býr nú ásamt konu sinni og þrettán
ára dóttur í norðurhluta Lundúna.
Kazuo Ishiguro birtist á réttum
tíma. Hann kemur gangandi inn
Heddon Street, klæddur svörtum
frakka, hárið stuttklippt. Ég stend
fyrir utan Momo-kaffi þar sem við
höfðum mælt okkur mót fáeinum
dögum eftir úkomu bókarinnar
Never let me go.
Momo-kaffi er í tísku, og reynist
„… að snerta sárið“
Nýjasta skáldsaga ensk-japanska rit-
höfundarins Kazuos Ishiguros,
Slepptu mér aldrei, er komin út í ís-
lenskri þýðingu. Það er vonlaust að
endursegja þessa sögu: breskur
heimavistarskóli, klónuð börn, líf-
færagjafar, börn sem eiga skamma
ævi fyrir höndum. Þetta er áleitin
saga, sorgleg og óhugnanleg, saga
sem fjallar um vináttu og ást, um
dauðleikann og leyndina sem umlyk-
ur líf okkar. Ishiguro var tekinn máli
í London og spurður um bókina, sem
hefur hlotið lofsamlega dóma.
Eftir Eirík Guðmundsson
3