Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Síða 5
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. október 2005 | 5 „Value“, eða verð, segir síðan til um hversu vel tólið stendur sig miðað við hvað það kost- ar. Í seinni tíð hefur tímaritið bætt við stuttri tónlistar-, tölvuleikja- og kvikmyndagagnrýni. Lokahlutinn samanstendur síðan af „how- to’s“ annars vegar og „buyer’s guide“ hins vegar. „How-to’s“ eru stuttar greinar um hvernig maður getur fengið sem mest út úr þeim græjum sem maður á þegar til og „bu- yer’s guide“ er samantekt af gagnrýni blaðs- ins sl. mánuði, þar sem lesendur geta séð í snarhasti hvaða vörur þykja bestar í hverjum verðflokki. Auglýsing eða umfjöllun? Ég veitti því strax athygli þegar ég fór að skoða T3 að auglýsingamagnið í blaðinu var minna en ég átti að venjast í erlendum tíma- ritum. Ástæðan er þó líklega sú að blaðið er ein risavaxin auglýsing frá upphafi til enda. Engar heimildir eru fyrir því að framleið- endur raftækja séu með puttana í ritstjórn blaðsins, en í blaðinu eru nær eingöngu grein- ar sem fjalla um nýjar vörur á markaði og les- andanum er gerð grein fyrir því hvers vegna hann ætti frekar að kaupa þessa vöru en hina. Blaðið er því auglýsing að því leyti að mark- mið þess er að fá lesendur þess til að vera virkir neytendur og viðhorfið er „þú verður að eignast þetta“. Þó ég efist ekki um heilindi blaðsins í umfjöllun sinni um tækin, þá má telja víst að sum fyrirtæki séu duglegri við að koma sínum vörum að heldur en önnur. Hags- munirnir geta verið umtalsverðir enda kemur blaðið út í átján löndum og eru lesendur þess fimm hundruð þúsund talsins. Það hlýtur að teljast áhugavert að maður er sjaldnast hvattur til þess að kaupa sér til- tekna vöru vegna þess hversu hagnýt hún er, heldur vegna þess að hún er „head-spinning“ eða „neck-jerking“ svo ég noti orðalag blaðs- ins sjálfs. Varan er þannig fyrst og fremst til þess fallin að vekja athygli á sjálfum þér í hópi annarra og skapa öfund þeirra sem í kringum þig eru. Í raun snýst málið ekki um vöruna sjálfa heldur um þá ímynd sem þú skapar þér með því að eiga hana og nota. Tækið er ekkert annað en stöðutákn. Þröstur Helgason skrifaði grein í Ritið um tískutímaritin i-D og Surface árið 2002 og vís- ar þar til kenninga frönsku fræðimannanna Roland Barthes og Jean Baudrillard um tísku og auglýsingar. Barthes bendir á að merking selji tísku á þann hátt að tískan framleiði ímyndir sem fái neytandann til að kaupa nýj- ar tískuvörur hvað sem líði hagnýtu gildi þeirra. Þessu er hægt að lýsa með dæmi um mann sem kaupir bíl; maðurinn kaupir bílinn vegna þeirrar merkingar sem hann hefur. Í hugum okkar hefur BMW eina merkingu, Skoda aðra og Mitsubishi enn aðra. Með því að eignast bílinn yfirfærist merking bílsins einnig yfir á eigandann sjálfan. Baudrillard teygir sig aðeins lengra og heldur því fram „að auglýsingar myndi […] tilgangslausan og óþarfan heim“. Skv. honum leggja þær ekkert til framleiðslu hlutanna eða hagnýtingar þeirra, og það er ekki til sú auglýsing sem ekki er uppfull af aukamerkingu. Auglýsing- arnar eru sjálfar orðnar neysluvara, því við borgum líka fyrir aukamerkingu hlutanna, eða auglýsinguna, þegar við festum kaup á nýrri vöru. Auk þessa má benda á að auglýs- ingar eru líka neysluvörur í bókstaflegum skilningi, t.d. borgum við fyrir ýmsa vörulista og fyrir skemmstu var til sýninga á Stöð 2 sjónvarpsþáttur sem sýndi einvörðungu aug- lýsingar utan úr heimi. T3 er ekki hrætt við að taka þátt í sköpun þessa auglýsinga- og ímyndarheims. Blaðið hvetur þig til kaupa á vörunum sem það hefur til umfjöllunar og segir berum orðum að mað- ur verði að eignast hitt og þetta – þótt það sé ekki nema bara til að líta vel út. Tíska tækninnar En maður er varla flottur ef græjan sjálf lítur ekki vel út. Gæða DVD-spilari lappar lítið upp á ímyndina ef hann er ekki til prýði. Þetta við- horf gagnvart tækni er fremur nýtt af nálinni, en upphaf þess má að öllum líkindum rekja til hönnunarafreka Bang & Olufsen en í ríkari mæli til þess þegar tölvuframleiðandinn Apple kynnti fyrstu iMac-tölvuna árið 1998. Hugmyndin um að tölvan gæti verið fallegt húsgagn var skemmtileg tilbreyting frá gráu kössunum sem tíðkast höfðu fram að því. Þessar nýju áherslur raftækjaheimsins á útlit gera það að sjálfsögðu að verkum að umfjöll- un um slíkar vörur stendur mun nær hönn- unar- og tískuumfjöllun heldur en tíðkaðist áður. Þetta hefur líka þau áhrif að tæknin sjálf verður háðari tískustraumum, ákveðnar vörur og ákveðin vörumerki geta enn frekar „komist í tísku“ heldur en áður var með vörur af þessu tagi. Þessi þróun er skýr í T3, því uppstilling, ljósmyndir og umfjöllun blaðsins um nýjar vörur er náskyld tískuþáttum tískutímarit- anna. Ljósmyndir af vörum prýða gjarnan heilar síður og eru þ.a.l. oft miklu stærri held- ur en vörurnar sjálfar. Einsog Þröstur komst að í sinni greiningu á tískutímaritum, þá er textinn sem fylgir þessum „tískuþáttum“ einnig tvíræður og vísar gjarnan í dægurlaga- texta, kvikmyndir eða slíkt. Það er engin mannleg nærvera í T3. Einu ljósmyndirnar sem birtast af fólki eru á for- síðunni og forsíðumódelið fylgir síðan forsíð- ugreininni inni í blaðinu. Þeim myndum er þó stillt þannig upp að forsíðumódelið er fremur fylgihlutur tækisins heldur en tækið fylgi- hlutur módelsins. Tólin sjálf eru módelin. Þeim er stillt upp á eigin forsendum og óháð notagildi sínu. Horft er framhjá raunverulegu gildi þeirra og við fáum aldrei að sjá tækin í notkun. Hér er því ekki síður en í hefð- bundnum tískutímaritum forðast að vísa til veruleikans, því tólin eru aldrei sýnd í sínu „eðlilega“ umhverfi, heldur nær undantekn- ingarlaust í eigin heimi. Þau eru sýnd óháð mönnunum í nýju, óvæntu samhengi og þau ber að skilja á eigin forsendum. Í raun eru þau sýnd á listrænan máta, ekki ósvipað og þegar Jeff Koons stillti upp tveimur ryksug- um í glerbúri, eða þegar Andy Warhol málaði Campbell-súpur. Ef flestir nútímamenn kynn- ast tvívíðri myndlist fyrst og fremst gegnum grafíska hönnun í dagblöðum, sjónvarpi og á plakötum, einsog Josh Sims talar um í 221. tbl. i-D, má þá ekki líta svo á að vöruhönnun 21. aldarinnar sé sú þrívíða sjónlist sem flestir munu komast í snertingu við? Kvenímyndir og karlmennska Því miður hefur T3 tekið upp ýmis leið- indaeinkenni tískutímaritanna. Þar fer mest fyrir tilhneigingu blaðsins til að hlutgera kvenlíkamann og sýna konuna í óljósu kyn- ferðislegu hlutverki. Einsog fram hefur komið er mynd af fáklæddri konu á forsíðu hvers tölublaðs. Konan er yfirleitt að handfjatla ein- hvern hlut sem er fjallað um innan í blaðinu. Athygli fyrirsætunnar beinist þó aldrei að tækinu sem hún er að nota heldur horfir hún beint á lesandann. Augnaráðið er gjarnan tví- rætt eða kynferðislegt og slíkir undirtónar endurspeglast síðan í fyrirsögnum blaðsins. Oftar en ekki er óljóst hvort fyrirsagnir vísa til vörunnar sem verið er að kynna eða til konunnar sem meðhöndlar hana. Orðin sem notuð eru yfir tækin tilheyra líka orðaforða karla um konur, t.d. „sexy,“ „hot,“ „sleek“ og „stylish“. Á forsíðu 107. tbl. stendur „next ye- ar’s hottest gadgets exposed“. Undir text- anum stendur falleg kona á nærbuxunum ein- um klæða og horfir þokkafullum augum í átt til lesandans meðan hún handfjatlar nýja leikjatölvu frá Nintendo. Lesandinn verður að hugsa sig tvisvar um hvort þessi „hot gad- gets“ sem eigi að afhjúpa („expose“) séu græjur eða konan sem snýr baki í okkur. Á forsíðu 86. tbl. er fyrirsæta í mjög stuttum buxum og stuttum bol. Hún stendur á nýrri tegund farartækis sem nefnist Segway. Við myndina stendur „enjoy the ride“ og aftur er lesandinn í nokkurri óvissu um hvort átt sé við farartækið eða konuna. Í T3 er semsagt ekki gerður neinn stórkostlegur grein- armunur á konum og hlutum. Í þeim myndaþáttum sem fylgja forsíð- ugreininni er tólunum stillt þannig upp að erf- itt er að ráða hvort tækið sé fylgihlutur fyr- irsætunnar eða öfugt. Blaðið er tækjablað og áherslan er lögð á tækin sjálf svo oftar en ekki virðist konan vera aukahlutur. Fjölmiðla- fræðingurinn Marshall McLuhan skrifaði á sjöunda áratugnum um hugtakið „gadget“. Í greininni „The Gadget Lover“ færir hann rök fyrir því að maðurinn heillist alltaf af fram- lengingu sjálfs sín utan líkamans. Þess vegna er maðurinn svo hrifinn af raftækjum, því þau gera manninum kleift að framkvæma utan eigin líkama, en þó í krafti hans. Hann lítur svo á að þegar maður noti t.d. bíl þá verði hann í raun bíllinn og bensíngjöfin sé fram- lenging fóta hans. Eins er lyklaborðið sem ég skrifa á framlenging fingra minna. Myndin sem er dregin upp af konum í T3 bendir þann- ig til þess að okkur beri að túlka konur sem framlengingu á karlmanninum. „Hvers vegna bara framlengingu á karl- manninum?“ kunna sumir að spyrja, en mað- ur þarf ekki að skoða T3 lengi til að sjá að blaðið er skrifað fyrir gagnkynhneigða karla og fáa aðra – enda leiddi lesendakönnun blaðsins sjálfs í ljós að yfir 90% lesenda þess voru karlar. Ritstjórnin virðist gera ráð fyrir því að þetta séu ógiftir karlar á milli þrítugs og fertugs sem hafi gaman af því að leika sér og eyða peningum í óþarfa. Heimilisstörf standa í vegi fyrir mikilvægum hlutum einsog bjórdrykkju, snakkáti og leikjum, („get in the way of important tasks such as drinking beer, popping Pringles and playing Jenga“) en þér er samt ráðlagt að kaupa Kitchen Aid-vél því hún er svo flott. Það gæti þó haft sínar afleið- ingar að eiga svoleiðis því félagarnir gætu far- ið fram á meira en skál af morgunkorni þegar þeir kíkja í heimsókn. („When your mates come over they’ll be expecting a bit more than a bowl of Frosties.“) Í blaðinu má reglu- lega sjá stuttar greinar um það hvernig sé best að sannfæra kærustuna um að kaupa hitt eða þetta og það er skýrt tekið fram að helstu fríðindi lífsins séu konur og bjór. Karlarnir eru hvattir til að láta sig dreyma og gleyma öllum áhyggjum hins daglega amsturs. Þetta er raunveruleikaflótti í hnot- skurn. Mikið af því sem er kynnt í blaðinu kostar óheyrilegar fjárhæðir og blaðið er meðvitað um það í skrifum sínum. „In- stallation“-hluti blaðsins, þar sem vel tækjum búin íbúð er heimsótt, virðist til þess fallin að staðfesta að draumarnir sem blaðið hvetur til geti orðið að veruleika. Í þessum þáttum geta lesendurnir samsamað sig fólki sem er raun- verulegt og þannig styrkst í trú sinni um að einhverntímann muni þeir líka geta átt öll þessi tæki og tól. Staðreyndin er hinsvegar sú að fæstir munu nokkurntímann verða nógu ríkir til þess. Blaðinu hefur tekist að skapa draumaheim ekki ósvipaðan þeim sem Pétur Pan tilheyrir. Hvergiland Þó að oft sé talað um poppmenningu og aug- lýsingar sem hugsanalaus fyrirbæri sem svali einföldum og lágkúrulegum hvötum þá er ekkert svo ómerkilegt að ekki búi einhver hugmyndafræði á bakvið það. Í T3 er búinn til heimur sem á lítið skylt við heiminn sem er fyrir utan gluggann. Þar er lífið einfalt og gengur út á að vera ungur, njóta lífsins og leika sér með strákunum. Tólin til þess eru leikjatölvur, farsímar og að því er virðist – konur. Það er hugmyndafræði þess heims. Sitt sýnist hverjum um gildi hans eða gæði, en hugmyndafræði hefur hann þó. Þessi heim- ur er ekki raunverulegur, en aftur á móti er hann kjörinn til þess að heimsækja þegar raunveruleikinn bregst manni og það gerir hálf milljón manna mánaðarlega. Mörkin milli þess sem er raunverulegt og skapað verða sí- fellt óljósari og kristallast kannski best í for- síðugrein 90. tölublaðs: „Games vs. Reality“. Þar bera blaðamenn T3 saman tölvuleiki ann- ars vegar og þær raunverulegu gjörðir sem þeir líkja eftir hins vegar. Niðurstaðan? Fyrir almenninginn sem hefur ekki tíma né ráð til að stunda rallý eða fljúga þyrlum þá er vit- anlega miklu þægilegra að setjast niður fyrir framan tölvuna og láta sig dreyma, og lík- urnar á því að enda utan í kanti með beinbrot minnka verulega. En sem betur fer eru grein- arhöfundar sammála um að raunveruleikinn haldi velli sem lífsreynsla – að minnsta kosti í bili.  Heimildir Við greiningu tímaritsins T3 voru skoðuð ellefu tölublöð þess frá maí 2003 og fram í júní 2005. Marshall McLuhan. 1964. „The Gadget Lover: Narcissus as Narcosis“. Understanding Media: The Extensions of Man. Ark Paperbacks, London Steven Connor. 1997. Postmodernist Culture. Blackwell, London Þröstur Helgason. 2002. „Ímyndir og yfirborð: Um tísku- tímaritin i-D og Surface.“ Ritið 3/2002, bls. 27–47 tíska Höfundur stundar nám í bókmenntafræði við Háskóla Íslands. T3 kemur út í átján löndum T3 kemur meðal annars út í Úkraínu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.