Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Page 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. október 2005 | 13 ÞAÐ mun fremur fátítt að spennu- sögur séu gefnar út í myndskreyttum útgáfum, þótt ég minnist þess að vísu að hafa fyrir margt löngu séð stöku teikningar í bókum af þessari tegund. Þar var þó í flestum tilvikum um að ræða ódýrar út- gáfur, prentaðar á vondan pappír og teikningarnar tíðum harla óskýrar. Nú er „spennusaga allra tíma“, Da Vinci- lykillinn, eftir bandaríska höf- undinn Dan Brown hins vegar komin út í næsta vandaðri mynd- skreyttri útgáfu, prýdd fjölda ljós- mynda (litmynda) frá „sögustöðum“ og af ýmsum gögnum og gripum, sem við sögu koma. Þetta má að vissu leyti kalla skemmtilega nýbreytni og trúlega er það engin tilviljun að einmitt Da Vinci-lykillinn er gefinn út með þess- um hætti. Ferill þessarar bókar er með nokkrum fádæmum. Þegar hún kom fyrst út komst hún strax á met- sölulista í flestum enskumælandi löndum og var síðan þýdd á fjölmörg tungumál. Bókin hefur hvarvetna selst í stórum upplögum og kannski má hafa það sem skýrasta dæmið um velgengni hennar, að henni er enn, tveimur til þremur árum eftir að hún kom fyrst út, stillt út á áberandi stað í mörgum bókabúðum á ýmsum fjöl- förnum stöðum, til að mynda á flug- völlum og lestarstöðvum. Það bendir til þess að bóksalar telji hana enn vænlega söluvöru. Þarf þá vart að geta þess, að sjaldgæft er að spennu- sögur endist svo lengi í stórsölu. Þær eiga sér flestar fremur skamman líf- tíma. En ferill Da Vinci-lykilsins er einn- ig sérstakur að öðru leyti. Efni bók- arinnar hefur vakið mikla athygli og áhuga á meðal almennings og fræði- manna, miklu meiri en almennt ger- ist um spennusögur. Víða um lönd hafa fræðimenn deilt, stundum hart, um sannleiksgildi bókarinnar og efn- istök höfundar og lesendur virðast margir hafa hrifist af lestrinum og vilja gjarnan vita meira. Þetta hafa ýmsir aðilar reynt að notfæra sér. Ferðaskrifstofur og hvers kyns áhugamannaklúbbar gangast fyrir ferðum á „söguslóðir“ og víða, m.a. hér á landi, hefur verið efnt til fjöl- sóttra námskeiða um efni bók- arinnar. Allt má þetta kallast býsna merki- legt og ekki þekki ég dæmi um að spennusaga hafi vakið slík viðbrögð áður, a.m.k. ekki á seinni árum. Ástæðan virðist einföld. Höfundinum tekst að slá á strengi dulúðar og hann fjallar á nýstárlegan hátt um efni, sem flestir Vesturlandabúar láta sig nokkru varða en fæstir virðast þekkja til nokkurrar hlítar. Margir munu og fagna boðskap bókarinnar, ef hægt er að tala um boðskap í þessu efni, vildu gjarnan að hann væri sannur. Hitt er svo aftur annað mál, að Da Vinci-lykillinn er að mínu mati ekkert sérlega góð spennusaga, eða skáldsaga yfirleitt. Persónusköpunin er t.d. ærið losaraleg, aðalsöguhetjan einhvers konar hvorki-né-maður, og atburðarásin er á köflum langdregin og lítt sannfærandi. Myndirnar í þessari útgáfu eru vel valdar og margar fallegar. Á köflum bera síður bókarinnar að vísu nokk- urn keim af túristabæklingum, en þær munu vafalaust höfða til margra þeirra sem hrifust af lestri bók- arinnar og fylltust forvitni. Vel má velta því fyrir sér hvort spennusaga á borð við þessa standi undir mynd- skreyttri útgáfu af þessari gerð. Því verður ekki reynt að svara hér, en víst er þetta snjöll sölumennska. Spennusaga með myndum BÆKUR Spennusaga Dan Brown. Myndskreytt útgáfa. 463 bls. Bjartur, Reykjavík, 2005. DA VINCI-LYKILLINN Dan Brown Jón Þ. Þór RAGNHEIÐUR Gestsdóttir hefur sent frá sér nýja barnabók, Regn- bogann. Bókin er hugsuð fyrir yngri börnin, þau sem eru að byrja að læra að þekkja litina, en einnig fyrir eldri börn sem eru að byrja að átta sig á litablöndun, að gult og blátt býr til grænt o.s.frv. Eins og hennar er von og vísa hefur Ragn- heiður myndskreytt bókina á ein- faldan en hugmyndaríkan hátt, samsetningar af vatnslitum, teikn- ingum og klippimyndum skapa myndheim bókarinnar. Í Regnbog- anum segir frá bræðrunum þrem- ur, Gulum, Rauðum og Bláum sem koma lífi á jörðinni til bjargar þeg- ar sólin hefur verið svo lengi bak við ský að allt er orðið grátt. Þeir búa sér til rennibraut og gera sér það að leik að fara salíbunur niður himinhvelið alla leið til jarðar, skapa þannig regnbogann og gefa náttúrunni aftur lit. Einn helst kostur bók- arinnar eru ein- faldar en fallegar myndirnar, hér eru amk. engir ljótir kallar eða dularfull skrímsli á ferð sem gætu hrætt ungar sálir. Bræðurnir þrír eru bæði hugrakkir og líka litlir í sér, sérstaklega Blár, sem þarf að skríða upp í fangið á Gulum því hann er hræddur við að renna sér. Persónur þeirra hefðu þó mátt vera skýrar mótaðar. Regnboginn líður svolítið fyrir boðskap sinn eins og oft er raunin með barnabækur, hér er svo aug- ljóslega verið að kenna litina að flest annað fellur í skuggann. Myndirnar eru fallegar en það rík- ir ekki mikil kátína í þeim, mesta fjörið er rennibrautarregnboginn en þegar kemur að því að lita blóm og tré ná töfrarnir síður að lifna við. Ég gæti trúað að aðeins meiri leikur og fjör hefði orðið til þess að gera bókina eftirsóknarverðari fyr- ir yngstu kynslóðina. Hugmyndin er ekki afspyrnu frumleg og þegar kemur að því að læra um litina verður bókin ef til vill undir í sam- keppni við lífið sjálft, liti, pappír og sköpunargleði barna. Séð á já- kvæðan máta getur bókin þó einnig einmitt glætt þennan sköp- unarkraft og lokkað börnin að vatnslitunum og pappírnum. Margt við myndheiminn er fallegt og höfðar til barna en stór hluti hans höfðar þó frekar til fullorðinna, mynstrið í gráma skýjanna osfrv. Örlítið meira glens, grín og húmor og sterkari karakterar Guls, Rauðs og Blás hefðu kannski orðið til þess að halda aðeins betur athygli barnanna. Þrátt fyrir þessa ann- marka er Regnboginn falleg og vönduð bók eins og allt sem Ragn- heiður sendir frá sér og bókin nær að efla tilfinningu barna fyrir litum og möguleikum þeirra. Stóra rennibrautin BÆKUR Börn Ragnheiður Gestsdóttir Mál og menning 2005 REGNBOGINN Ragnheiður Gestsdóttir Ragna Sigurðardóttir SKÁLDSKAPUR Gyrðis Elías- sonar er gjarnan settur saman úr andstæðum. Ljóðrænt raunsæi textans fær á sig andblæ af mar- traðarkenndri ógn eða hryllingi og draumkenndri heimssýn sem markast af eyðingarverki tímans. Í smásögum hans er líka áherslan meiri á myndheim sögunnar en frásögnina. Hún er þá gjarnan innbyggð í skyndimynd af mann- lífi. Þetta er í það minnsta þau einkenni sem ég upplifi við lestur á nýjasta smásagnasafni hans sem hann nefnir Steintré. Frásagnir Gyrðis eru oft á tíð- um svo látlausar að lesandi spyr sig stundum að lestri loknum um hvað meint saga hafi í raun og veru fjallað, hvort nokkuð hafi yf- ir höfuð gerst frásagnarvert. Allt eins víst að sagan snúist um draumfarir, einkennilegar tilvilj- anir eða órætt samhengi fyrirbær- anna. Aftur á móti stendur eftir skýr mynd, mannlífsmynd eða táknmynd um mannlíf og sterk kennd. Óhugnaður birtist í mörgum myndum eins og í frásögninni af firringu drengs sem safnar myndum af sjaldgæfum fuglategundum. Hann gerir það þannig að hann skýtur fuglana og tekur myndir af þeim en hleður fuglshræjunum í frysti- kistu heimilisins sem er óðum að fyllast. Eða myndina af ókenni- legri ófreskju sem föst er bílbelti í bílhræi við árbakka og er að reyna að losa sig. Þrátt fyrir ótta sögumanns vitum við í reynd ekki hvort um er að ræða óvætti eða helsærða mannveru vegna þess að sögumenn Gyrðis eru ekki örugg- ustu heimildarmenn í heimi. Áberandi er sú kennd í smá- sagnasafninu sem tengist for- gengileikanum. Bílhræ, rústir, bækur sem lesnar eru úti í rign- ingu þar sem þær leysast upp og margt fleira undirstrika þessa kennd. En umfram allt eru þó sögurnar eins konar heimspekileg rannsókn á einsemd mannsins og tengslaleysi hans í heimi forgengi- leikans. Smásögur Gyrðis birta okkur mannlífið oft sem einmanalegt og steingelt. Nafnið Steintré á því vel við sem safnheiti á þessum sögum. Steintré hafa raunar fyrr verið ásækin í sögum Gyrðis og ljóðum sem táknmyndir hins dauða lífs. Það er svo merki um listfengi skáldsins hversu náttúran er lit- skrúðug og lifandi sem rammi ut- an um hið grámóskulega mannlíf. Þetta eru dreifbýlissögur, oft af mönnum sem leita einverunnar í strjálbýlinu innan um bækur og týnast öðru fólki. Smásögur Gyrðis eru einfald- lega með því besta sem skrifað er af módernískum eða póstmódern- ískum prósa. En það er kannski ekki vænlegt að leita að krassandi söguefni í þeim. Þó að glitti í slík- ar sögur í verkum Gyrðis í þessari bók er meginefni sagnanna túlkun sundraðrar, póstmódernískrar vit- undar sem skyggir á allar sögur. Trénað mannlíf BÆKUR Smásögur eftir Gyrði Elíasson. 130 bls. Mál og menning 2005 Steintré Gyrðir Elíasson Skafti Þ. Halldórsson SKAGINN á ekkert nafn, sagði Kålund og átti þá við landssvæðið á milli Húnaflóa og Skagafjarðar. Þetta má til sanns vegar færa, þó að nú sé viðbúið, að aðkomufólk átti sig ekki á því að í raun er Skagi aðeins hluti af þessu stóra svæði. Fyrir um fjörutíu árum var búið á um áttatíu bæjum í fjórum sveitarfélögum í tveimur sýslum á þessum nafnlausa skaga, en nú hefur heldur betur allur búskapur dregizt þar saman og mörg stór- býlin orðin að sumargististöðum þéttbýlisbúa. Byggðin hefur mest verið með ströndum fram, vegna þess að bændur hafa jafnan stundað út- ræði samhliða hefðbundnum bú- skap. Á fyrri tíð og fram að miðri síðustu öld voru þó allmörg góð- býli inn til dala, enda eru þarna víðlend heiðalönd og aragrúi vatna, þar sem silungsbröndur vaka. Í hugum flestra er þetta lands- svæði heldur tilbreytingarlaust, þar sem skiptast á mýrarkeldur og malarhjallar eða rindar eins og þeir nefnast hér. Mörgum þykir hráslagalegt á þessum stað og gróður með út- kjálkablæ, sem minnir einna helzt á Mel- rakkasléttu. Slík viðtekt er alls ekki með öllu réttmæt, því að báðir staðirnir búa yfir merkilegri náttúru og mikilli sögu, ef vel er að gáð. Þessi bók eftir Sigurjón Björns- son sálfræðing er því nokkurs konar varnarræða fyrir þennan hluta landsins, sem liggur nokkuð fjarri hringveginum, sem flestir aka. Höfundur fer með lesanda fyrst í hringferð fyrir Skaga, þá upp um heiðar og inn til dala, síð- an er sagt frá fornum leiðum stranda á milli og að lokum er greint frá vegum að góðum veiði- vötnum. Frómt frá sagt er ekki ósenni- legt, að mörgum muni þykja bókin í þurrara lagi og heldur tormelt við fyrstu sýn, því að láta mun nærri að getið sé rúmlega 1.300 örnefna. Við nánari skoðun og með hjálp afbragðs korts, sem fylgir, kemur annað upp á teninginn. Hafi menn á annað borð ánægju af því að fræðast og ferðast um land- ið, er hér kjörinn vegvísir, saminn af mikilli nákvæmni, þar sem bent er á flest, ef ekki allt, sem forvitni vekur. Þeir, sem vanir eru að lesa á kort, geta líka haft ánægju af lestri heima í stofu og eiga auðvelt með að setja sér landslagið fyrir hugskotssjónir. Það gefur bókinni talsvert gildi, að inn á milli leiðarlýsinga er skot- ið ýmsum sögnum og fróðleiks- molum. Þá er víða minnzt á merk- ar konur og karla, sem hafa búið á jörðum eða eiga sér þar rætur og sagt frá ýmsum atburðum, sem hafa greypzt í huga manna. Höf- undur hefði mátt gera meira af því að segja frá ýmsu fólki, tækifær- isvísum og skondnum atburðum, ekki sízt frá seinni tíma. Það er næsta öruggt, að innan fárra ára lendir margt í glatkistu, sem betra væri að halda til haga. Þegar fólki fækkar í heilum byggðarlögum og búskaparhættir breytast hverfur smám saman mikil vitneskja, sem áður fyrr tengdist lífi og störfum fólks. Þá munu menn betur skynja það en nú, hve mikils virði það er, sem til haga var haldið. Því er næsta víst, að gildi þessarar bókar mun vaxa með árunum. Yfirreið um Skaga BÆKUR Náttúrufræðirit Höfundur: Sigurjón Björnsson. 187 bls. Útgefandi er Skrudda. – Reykjavík 2005 Skaginn og Skagaheiði Sigurjón Björnsson Ágúst H. Bjarnason HIÐ íslenska bókmenntafélag hefur gefið út bókina Líkami og sál: Hugmyndir, þekking og að- ferðir í hjúkrun eftir Kristínu Björnsdóttur. Í bókinni er fjallað um tilurð og mótun hjúkrunarstarfs- ins á Vesturlöndum frá miðri nítjándu öld. Rætt er um starfið með hliðsjón af uppgangi nútímaheil- brigðisþjónustu og í ljósi breytinga sem orðið hafa á stöðu kvenna í sam- félaginu. Gerð er grein fyrir hug- myndum og aðferðum sem notaðar voru á ólíkum tímum og leitast við að lýsa þeirri þekkingu sem starfið byggist á. Hugmyndafræðilegar stefnur innan heilbrigðisþjónust- unnar eru greindar, svo sem hug- myndir um samspil líkama og sálar, holdgervingu, heilbrigði og áhrif um- hverfis á heilsufar. Samskiptum starfsmanna og sjúklinga eru gerð ít- arleg skil. Að lokum er fjallað um stefnumörkun sem tengist heilbrigð- isþjónustunni, framtíð velferðarþjón- ustu og hlut hjúkrunar innan hennar. Kristín Björnsdóttir er dósent við hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís- lands. Auk rannsókna á hug- myndafræði og þekkingarþróun í hjúkrun, sem kynntar eru í þessari bók, hefur Kristín stundað rann- sóknir á sviði heimahjúkrunar og skrifað um menntunarmál hjúkr- unarfræðinga og birt greinar í ritum hérlendis og erlendis. Þetta er fyrsta bók sinnar teg- undar sem skrifuð hefur verið um þessi málefni á Íslandi. SKÁLDKONAN Unnur Sólrún hefur gefið út Sambúð, 7. ljóða- bók sína. Bókina má nálgast á net- inu en hún kemur einnig út í bók- arformi. Unnur Sólrún er fædd 1951, lauk BA-prófi í bókmenntum frá háskólanum í Stokkhólmi 1980, uppeldis- og kennslufræði frá KHÍ 2000 og starfar sem kennari. Net- slóðin er: http://unnursol.homes- tead.com/utgafa1510.html. Þar má einnig panta prentað ein- tak bókarinnar og er verðið 1.500 kr. HIÐ íslenska bókmenntafélag hefur gefið út Tölvuorðasafn í ritstjórn Stefáns Briem. Þetta er fjórða útgáfa Tölvuorðasafns- ins. Í Tölvuorða- safni eru nú um 7700 íslensk heiti og um 8500 ensk heiti á rúmlega 6500 hugtökum sem lúta að upplýs- ingatækni og tölvunotkun, og eru hugtök um 30% fleiri en í síðustu út- gáfu. Hugtökin í Tölvuorðasafni hafa flest verið sótt í alþjóðlega staðla. Líklega eru Íslendingar einna lengst á veg komnir með þýðingu tölvumáls ef litið er til hinna Norðurlandanna. Tölvuorðasafnið er í tveimur hlut- um. Fyrri hlutinn er íslensk-ensk orðaskrá og er þar að finna skilgrein- ingar og útskýringar á flestum hug- tökunum. Síðari hlutinn er ensk- íslensk orðaskrá. Þar er íslensk þýð- ing við hvert orð og er hún hugsuð sem tilvísun til íslensk-enska hlutans. Auk fullgildra heita eru fjölmargar skammstafanir í Tölvuorðasafni. Oft- ast er einnig sýnt hvernig lesið er úr þeim. Tölvuorðasafn er afrakstur af ára- tuga starfi orðanefndar Skýrslu- tæknifélags Íslands. Orðanefnd- armenn eru brautryðjendur tölvu- tækninnar á Íslandi og hafa fjöl- breytilega reynslu af tölvunotkun allt frá upphafsárum tölvuvinnslu á Ís- landi. Auk þess hafa þeir fengið til samvinnu við sig fjölmarga sérfræð- inga í fremstu röð. Orðanefndina skipa Baldur Jónsson, Sigrún Helga- dóttir, Þorsteinn Sæmundsson og Örn S. Kaldalóns. Stefán Briem ann- ast ritstjórn. Bókin er 555 bls. Nýjar bækur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.