Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Qupperneq 19

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Qupperneq 19
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. október 2005 | 19 FYRIR tveimur árum bárust útvarpsfréttir af því að kona frá Brasilíu hefði fengið dokt- orsgráðu í Cambridge út á þá kenningu að Gamli sáttmáli væri falsskjal frá 15. öld með pólitískt hlutverk í samskiptum Íslendinga við erlent konungsvald á þeim tíma. Við Ís- lendingar höfðum lært það í skóla að Gamli sáttmáli væri samningur Íslendinga við Noregskonung frá 1262/4 og því kom þessi hugmynd nokkuð flatt upp á flest okkar enda var sáttmálinn óspart nýttur sem raunverulegt skjal í lagaþrasi við Dani í sjálfstæðisbaráttunni. Í fréttunum var mikið gert úr því að höf- undur kenningarinnar væri kona og þar að auki frá Brasilíu. Og með því að gráðan var frá Cambridge hafa hlustendur sjálfsagt skilið fréttina svo að þar með væri kenn- ingasmíðin öll nokkuð ótraust og hægur vandi að leiða hana hjá sér eins og flestar aðrar kenningar. En nú er kenningin komin út á bók sem verður að taka afstöðu til, ekki síst vegna þess að höfundurinn er kominn hingað til lands í fyrirlestraferð. Meginefni bókarinnar snýst um samskipti Íslendinga við Noregskonunga eins og þau blasa við okkur í heimildum, ekki aðeins þeim skjölum sem kölluð eru Gamli sáttmáli eða Gissurarsáttmáli, heldur líka í Íslend- ingasögum og þá helst þeim sem varðveittar eru í safnhandritinu Möðruvallabók frá miðri 14. öld. Í upphafi tekur höfundur sér stöðu við hlið þeirrar útbreiddu hugmyndar að textar í handritum frá miðöldum séu sí- breytilegir og endurspegli ævinlega að- stæður við ritun þeirra – eins og þeir Sverr- ir Tómasson og Már Jónsson hafa verið iðnir við að boða hin síðari ár. Hvern texta beri því að túlka eins og hann komi fyrir í sínu handriti fremur en að líta á hann sem tilbrigði við annan texta eða heimild um aðra og upprunalegri gerð. Þessi hugsun, sem lá til grundvallar vinsælli heildarútgáfu Svarts á hvítu á Íslendingasögunum á 9. áratug síðustu aldar, er mörgum Íslend- ingum þó mjög framandi því hér á landi hef- ur hugmyndin um glataðan upprunalegan texta, jafnvel eftir tiltekinn nafngreindan höfund, gengið ljósum logum eins og hver annar draugur í fræðunum. Hinni fræðilegu leit að þeim texta hefur jafnvel verið líkt við leitina að landinu fagra í ævintýrum. Með afstöðu sinni til miðaldatexta á Patricia hins vegar samleið með þeim fornsagnafræð- ingum sem hafa haldið því hvað ákafast fram hin síðari ár að aldur Íslendingasagna beri að skoða betur í ljósi aldurs handrit- anna en áður hefur verið gert – og hafa rannsóknir Örnólfs Thors- sonar á Grettis sögu verið þar í fararbroddi. Stærsti hluti rannsóknar Patriciu Boul- hosa beinist síðan að laga- textum og hvað þeir segi okkur um sambandið við Noregskon- ung. Hún byrj- ar á Ólafs- lögum, sem kennd eru við Ólaf helga og eru hluti af Grá- gás. Lögin sem við þekkjum sem þjóðveld- islögin og Grágás eru varðveitt í tveimur meginhandritum frá því um miðja 13. öld og mikill fengur er að umræðunni hér um mik- ilvægi þess að halda handritunum að- greindum – frekar en að lesa þau saman í leit að sameiginlegum allsherjarlagatexta þjóðveldisins. Grágásarhandritin tvö verð- skulda sömu meðferð og handrit annarra miðaldatexta, að vera lesin sem tvær sjálf- stæðar heimildir sem ekki er hægt að hræra saman. Umdeildasta kenning bókarinnar, um að Gamli sáttmáli sé tilbúningur frá 15. öld, hvílir á þeim aðferðafræðilega grunni sem lagður er í fyrstu tveimur köflunum um að miðaldahandrit séu heimild um samtíma sinn og ekki endilega áreiðanleg afrit af eldri forritum. Það er vissulega mjög hress- andi að fá svo afgerandi endurskoðun á því sem alltof mörg hafa alltof lengi gengið út frá sem ótvíræðum sannindum. Í ljósi þeirra hugmyndavinda sem nú blása er það eðlileg gagnrýni að endurskoða heimildagildi 15. aldar skjala um skjal eða skjöl sem eiga að hafa orðið til við ákveðinn gjörning á ár- unum 1262–4. Hluti af röksemdafærslu Patriciu er reyndar að það sé oftúlkun á heimildunum að það hafi orðið afgerandi breyting á hög- um Íslendinga við það að sverja Noregskon- ungi hollustueiða. Áhrif og völd Noregskon- unga hafi þegar verið orðin töluverð á Íslandi löngu áður og að túlkun seinni alda Íslendinga á þessum gjörningi hafi mótast af gleraugum rómantíkur, þjóðernishyggju og sjálfstæðisbaráttu. Allt eru það rétt- mætir fyrirvarar. Ég hefði þó viljað sjá hana ganga lengra í endurmati sínu á heimildum um samskipti Íslendinga við Noregskonung og hugsa betur hvernig standi á því að hand- ritið Morkinskinna, fyrsta handritið með konungasögum í bland við þætti af Íslend- ingum við norsku hirðina, skuli ekki njóta sannmælis sem handrit frá þeim tíma sem það var ritað, þ.e. um 1280, heldur vera not- að gagnrýnislítið sem heimild um eldra og glatað verk frá um 1220. Sé ætlunin að fjalla um þróun hugmynda um samskipti Íslend- inga við norskt konungsvald, m.t.t. breyt- inga sem verða eftir 1262/4 er þetta veiga- mikið atriði. Margt í snarpri gagnrýni á viðteknar hugmyndir um Gamla sáttmála á mikinn rétt á sér. Ég sakna þess þó að höfundur skuli ekki beita þeim hugmyndum sem kynntar eru í upphafi af meiri sveigjanleika en raun ber vitni þegar talið berst að heim- ildagildi þeirra 15. aldar handrita sem við höfum af þessum meinta sáttmála Íslend- inga við Noregskonung. Með því að sýna fram á að ýmislegt í sáttmálanum (eða sátt- málunum því að hér er um fleira en eitt skjal að ræða) endurspegli aðstæður á 15. öld hef- ur hún nefnilega ekki sýnt fram á að hann sé tilbúningur frá þeim tíma, heldur einungis það sem hún lagði upp með að allir textar í miðaldahandritum endurspegla aðstæður á ritunartímanum. Það sama á við texta sem varðveittir eru í munnlegri geymd. Hafi verið gerðir einhverjir munnlegir eða skriflegir sáttmálar um 1262/4 í líkingu við þá Gömlu sáttmála og/eða Gissurarsátt- mála sem til eru, verðum við að ganga út frá því að þeir hafi verið lagaðir til eftir því sem árin liðu – alveg eins og aðrir miðaldatextar. Við þekkjum það á vorum dögum að EES- samningurinn er talinn úreldast mjög hratt og því þurfi að endurskoða hann. Slíkur end- urskoðaður samningur héldi samt áfram að vera EES-samningurINN. Í lokakaflanum leggur höfundur fram skemmtilega greiningu á Íslendingasög- unum í Möðruvallabók og sýnir fram á að þær snúist mjög um hugmyndir Íslendinga um konungsvald í Noregi. Við sækjum okk- ar útbreiddu skoðun í veigamiklum atriðum til þessara sagna um að landnámsmenn á Ís- landi hafi verið sjálfstæðir höfðingjar á flótta undan ofríki Haralds hárfagra. Patricia bendir á að þetta sé aðeins ein hefð af mörgum um hlutverk Noregskon- ungs við landnám Íslands. Í öðrum textum segi að menn hafi þurft leyfi hans til að fara út til Íslands og í enn öðrum að hann hafi ekkert haft með landnám Íslands að gera yfirleitt. Hennar boðskapur er að okkar verkefni sé að greina þessar ólíku hug- myndir, leyfa ólíkum röddum textanna að njóta sín frekar en að reyna að steypa þá alla í eitt mót í leit að hinum eina sanna sögulega veruleika handan textanna. Í heild er þessi bók geysilega hressandi innlegg í umræðu um eðli miðaldatexta og heimildagildi þeirra. Í mörgum tilvikum tekst höfundi að benda á það sem verður augljóst um leið og það hefur verið sagt, líkt og í sögunni af nýju fötum keisarans, en annars staðar tekst henni ekki að fylgja eft- ir eigin hugmyndum og nota þær til að end- urtúlka þær heimildir sem fyrir liggja. Með öðrum orðum: Enda þótt sumum finnist hér nokkuð langt gengið á köflum hefði mátt ganga enn lengra. Loftskipti í fræðunum BÆKUR Miðaldafræði Patricia Pires Boulhosa The Northern World 17 Brill: Leiden og Boston 2005 Icelanders and the kings of Norway: Mediaeval sagas and legal texts Gísli Sigurðsson Gallerí 100°: Bryndís Jóns- dóttir og Einar Marínó Magnússon til 25. nóvember. Gallerí +: Finnur Arnar Arn- arsson til 6. nóvember. Gallerí Fold: Þorsteinn Helgason til 30. október. Gallerí Húnoghún: Ása Ólafsdóttir. Gallerí i8: Þór Vigfússon til 23. desember. Gallerí Sævars Karls: Guð- rún Nielsen til 3. nóvember. Gallerí Turpentine: Arn- gunnur Ýr og Amanda Hughen til 14. nóvember. Garðaberg, Garðatorgi: Árni Björn Guðjónsson til 31. októ- ber. Gerðarsafn: Tími Romanov- ættarinnar. Til 4. desember. Gerðuberg: Einar Árnason til 6. nóvember. Þórdís Zoëga til 13. nóvember. GUK+: Hartmut Stockter til 16. janúar. Hafnarborg: Myndhöggv- arafélagið í Reykjavík til 31. október. Háskólinn á Akureyri: Hlyn- ur Hallsson til 2. nóvember. Hrafnista, Hafnarfirði: Guð- finna Eugenia Magnúsdóttir til 6. desember. Hönnunarsafn Íslands: Norskir glerlistamenn til 30. október. Ís-café: Bjarney Sighvats- dóttir til 15. nóvember. Must Love Dogs Charlie and the Chocolate Factory  (HJ) Strákarnir okkar  (SV) Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri Kiss, Kiss, Bang, Bang Fever Pitch  (SV) Flight Plan  (SV) Transporter 2  (HJ) Wallace og Gromit – Bölvun vígakanínunnar Cinderella Man  (HJ) Goal  (SV) Must Love Dogs The 40 Year-old Virgin  (SV) Valiant m. ísl. tali Sky High Charlie and the Chocolate Factory  (HJ) Myndlist Artótek, Grófarhúsi: Bryndís Brynjarsdóttir til 6. nóv- ember. Aurum: Harpa Einarsdóttir til 28. október. Bananananas: Þorsteinn Otti Jónsson og Martin Dangraad. Byggðasafn Árnesinga: Á Washington-eyju og Gras- jurtir. Til nóvemberloka. Café Karólína: Margrét M. Norðdahl til 4. nóvember. Gallerí 101: Haraldur Jóns- son til 26. nóvember. Kvikmyndir Borgarbíó, Akureyri The Legend of Zorro Doom Africa United  (SV) Transporter 2  (HJ) A History of Violence  (HJ) Smárabíó The Legend of Zorro Fever Pitch  (SV) Africa United  (SV) Transporter 2  (HJ) Red Eye  (SV) Óskar og Jósefína m. ísl. tali Sharkboy og Lavagirl  (SV) Regnboginn The Legend of Zorro Africa United  (SV) A History of Violence  (HJ) Bewitched  (SV) Ómar og Jósefína m. ísl. tali Night Watch Laugarásbíó The Legend of Zorro Doom A History of Violence  (HJ) Wallace og Gromit – Bölvun vígakanínunnar The Descent  (SV) Háskólabíó Doom Flight Plan  (SV) Cinderella Man  (HJ) Jónas Viðar Gallerí: Sigríður Ágústsdóttir til 13. nóv- ember. Karólína Restaurant: Óli G. til aprílloka 2006. Ketilhúsið: Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir til 6. nóv- ember. Kling og bang: Steinunn Helga Sigurðardóttir og Morten Tillitz. Til 30. októ- ber. Listasafnið á Akureyri: Helgi Þorgils Friðjónsson til 23. desember. Listasafn ASÍ: Þorbjörg Þor- valdsdóttir, Karen Ósk Sig- urðardóttir. Til 6. nóvember. Listasafn Einars Jónssonar: Fastasýning. Listasafn Íslands: Íslensk myndlist 1945–1960, til 30. október. Listasafn Reykjanesbæjar: Húbert Nói til 4. desember. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn: Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Til 2006. Bernd Koberling. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús: Guðrún Vera Hjartardóttir til 30. desem- ber. Erró til 23. apríl. Listasafn Reykjavíkur, Kjar- valsstaðir: Jóhannes Sveins- son Kjarval. Til 19. mars. Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar: Hraunblóm: Elsa Afelt, Carl-Henning Ped- Eiríksdóttir til 13. nóvember. Þjóðarbókhlaðan: Brynjólfur Sveinsson til áramóta. Þjóðmenningarhúsið: Hjört- ur Hjartarson út nóvember. Þjóðminjasafn Íslands: Kon- ungsheimsóknin 1917 og Mannlíf á Eskifirði 1941– 1961. Til 27. nóvember. Þrastalundur, Grímsnesi: Reynir Þorgrímsson fram í desember. Leiklist Austurbær: Annie, sun., fim. Borgarleikhúsið: Salka Valka, sun., fim. Woyzeck, lau. okt. Kalli á þakinu, sun. Id, frums. 4. nóv. Lífsins tré, fim., fös. Alveg brilljant skiln- aður, lau., sun., mán. Mann- tafl, 12. nóv. Forðist okkur, lau., sun., mán., þri. Hafnarfjarðarleikhúsið: Himnaríki, lau., fös. Iðnó: Ég er mín eigin kona. upps. út nóv. Gestur – síðasta máltíðin, sun., fim. Íslenska óperan: Kabarett, 5. nóv. Tökin hert, sun., fös. Leikfélag Akureyrar: Full- komið brúðkaup, lau., sun., fös. Þjóðleikhúsið: Halldór í Hollywood, fim., fös. Klaufar og kóngsdætur, lau. Edith Piaf, 6. nóv. Klippimyndir, sun. Koddamaðurinn, lau., sun. Frelsi, sun., mið., fim. ersen, Svavar Guðnason og Sigurjón Ólafsson, til 27. nóv- ember. Listasmiðjan Þórsmörk, Nesk.: 10 listakonur, fram í janúar 2006. Listhús Ófeigs: Gunnar S. Magnússon til 26. október. Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Lars Tunbjörk til 20. nóvem- ber. Norræna húsið: Föðurmorð og nornatími. Til 1. nóv- ember. Nýlistasafnið: Grasrót. Til 6. nóvember. Næsti bar: Sýning um Gamla bíó. Til 12. nóvember. Orkuveita Reykjavíkur: The Roads of Kiarostami. Til 28. október. Safn: Ólafur Elíasson. Stefán Jónsson til 10. nóvember. Hörður Ágústsson til 10. nóv- ember. Saltfisksetur Íslands: John Soul til 31. október. Salur Grafíkfélags Íslands: Elísabet Jónsdóttir, Dayner Agudelo Osorio og Jóhannes Dagsson til 24. október. Skaftfell: Sigurður K. Árna- son til októberloka. Smekkleysa plötubúð - Hum- ar eða frægð: Þorsteinn Otti Jónsson út nóvember. Suðsuðvestur: Jón Sæmund- ur til 30. október. Svartfugl og Hvítspói: Björg HÖNNUNARSAFN Íslands er vel falið leyndarmál Garðatorgs, næstum ósýnilegt frá torginu sjálfu en þeg- ar gengið er upp rampinn blasir safnið við. Húsakynnin eru lítil og vonandi kemur að því að við eignumst okkar eigið alvöru hönnunarsafn þar sem almenningur hefur aðgang að sögu íslenskrar hönnunar. Eins og er þarf safnið að láta sér nægja að troða sýningum sínum á sam- tímahönnun inn í það litla rými sem það hefur til um- ráða, stundum komast sýningar þess vel fyrir, stundum ekki. Nú má sjá í safninu sýningu á norskri samtíma- glerlist, sýningu sem nýtur sín ágætlega. Sýndir eru munir átta listamanna. Hér er um að ræða fremstu gler- listamenn Noregs og frumkvöðla í faginu allt frá miðbiki síðustu aldar en sýning þessi er hluti af aldarafmæli frið- samlegra sambandsslita Noregs og Svíþjóðar 1905. Gler á sér um 250 ára sögu í Noregi en á 20. öld urðu mikil umskipti í þróun glerlista um heim allan, glerið fór að taka meira mið af samtímalistum. Á árunum eftir síðari heimsstyrjöld má glöggt sjá áhrif frá málverki og skúlptúr, sérstaklega kom skúlptúrinn sterkt inn í glerið með massíf og þykk form. Upp úr miðri öldinni fóru ein- stakir glerlistamenn að vinna sjálfstætt þótt enn væri leitað til verksmiðja við framleiðslu hlutanna. Það var svo í kringum 1970 með tilkomu nýrrar tækni við gerð lítilla brennsluofna að bylting varð í faginu, nú gat hver og einn framleitt sína hluti sjálfur og afleiðingin var sprenging í gerð persónulegra glermuna. Tæknin leyfði einnig nýjungar á borð við innfellingu myndefnis í glerið o.fl. sem listamenn nota sér mikið. Oft er talað um að mörk milli lista og hönnunar hafi orðið óskýrari á undanförnum áratugum og óhætt að taka undir það, sum verkanna hér má auðveldlega túlka og skoða sem listaverk. Þannig má velta fyrir sér mynd- efni á borð við eyra í einu af verkum Cathrine Maske. Kannski er þetta tilvísun í frægasta eyra sögunnar sem skorið var af og birtist nú líkt og í formalíni. Aðrir lista- menn nýta sér tækni sem gerir þeim kleift að vitna til náttúrunnar sbr. ísklumpa Maud Gjeruldsen Bugge eða til fjarlægra landa á borð við Afríku eins og Oluf Föinum gerir. Klassískur glerdiskur Arne Jon Jutrem, elsta frumkvöðulsins í hópnum, stendur þó upp úr sem hríf- andi listaverk í einfaldleika sínum, en Jutrem sækir m.a. aftur í aldir í leit að innblæstri fyrir verk sín. Glerið sjálft er svo heillandi og fallegur efniviður, efnahvörfin sem skapa það líka svo spennandi, að gler- list nær auðveldlega til áhorfenda. Góður glerlistamaður getur gætt verk sín dýpt sem venjulega er tileinkuð „hreinni“ list en tæpast er hægt að tala um slíkt þegar um hreina hönnun er að ræða, sérstaklega hönnun með notagildi í huga. Línudansinn þarna á milli getur þó ver- ið spennandi og gaman að sjá þegar meðvitað er leikið með þessa þætti. Sum verkanna á þessari sýningu ná að spila á ímyndunarafl áhorfandans, hin ná því að minnsta kosti að vera fallegir munir sem auðvelt er að njóta þess að skoða. Margfalt gler MYNDLIST Norsk nútímaglerlist Til 30. október. Hönnunarsafnið við Garðatorg er opið kl. 14– 18 alla daga nema mánudaga. Hönnunarsafn Íslands Ragna Sigurðardóttir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.