Morgunblaðið - 23.06.2005, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.06.2005, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MÁVAR VALDA HÆTTU Hætta stafar af gríðarlegum fjölda sílamáva við Keflavík- urflugvöll, en um 37 þúsund mávar eru á svæðinu yfir sumartímann í þessu stærsta mávavarpi Íslands. Hefur þeim verið gefinn lítill gaum- ur þrátt fyrir að óhapp hafi orðið þegar þota lenti í árekstri við máv og varð að snúa við eftir flugtak árið 1974. Hjónabönd samkynhneigðra Öldungadeild Spánarþings felldi í gær tillögu um lögleiðingu hjóna- bands samkynhneigðra en full- trúadeildin hafði áður samþykkt hana. Nú fer tillagan aftur fyrir full- trúadeildina og líklegt þykir að hún verði samþykkt þar að nýju og verði að lögum. Þá öðlast samkynhneigð pör á Spáni sömu réttindi og gagn- kynhneigðir til ættleiðingar. Fara yfir til lögur Fjárlaganefnd mun fara yfir til- lögur Ríkisendurskoðunar um fram- kvæmd fjárlaga í sumar eða síðsum- ars, og efla eftirlit sitt með fram- kvæmd fjárlaga. Þetta kemur í kjöl- far greinargerðar stofnunarinnar þar sem fram kemur hörð gagnrýni á framúrkeyrslu ríkisstofnana. Styðja leiðtoga Íraka Leiðtogar áttatíu ríkja og al- þjóðastofnana lýstu í gær yfir stuðn- ingi við nýja stjórn í Írak, sem lýtur forystu sjítans Ibrahims al-Jafaris. Sérstök ráðstefna var haldin um málefni Íraks í Brussel í gær. Sjálfsvígum karla fækkar Sjálfsvígum hefur fækkað mark- tækt hjá körlum á síðustu þremur árum þegar miðað er við árin þrjú á undan en einnig þegar til lengri tíma er litið. Lækkunin er mest og töl- fræðilega marktæk hjá körlum 24 ára og yngri. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ % $  %$ %& &%$  %$ %&  &         '() * +,,,  $  % % &%$  %$ $%  %& $%$  %$& % &% %$ %$ $%  %&    Í dag Fréttaskýring 8 Viðhorf 30 Erlent 15/18 Bréf 30 Minn staður 19 Minningar 31/39 Höfuðborgin 20 Hestar 40 Akureyri 20 Myndasögur 44 Suðurnes 21 Dagbók 44/46 Landið 21 Staður og stund 46 Daglegt líf 22 Leikhús 47 Neytendur 23/25 Bíó 50/53 Menning 26, 47/48 Ljósvakamiðlar 54 Umræðan 27/30 Veður 55 Forystugrein 28 Staksteinar 55 * * * HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær Landsvirkjun og ís- lenska ríkið af kröfu landeigenda í Reykjahlíð í Mývatnssveit, sem kröfðust þess að fellt yrði úr gildi rannsóknarleyfi og fyrirheit um for- gang að nýtingarleyfi í landi Reykjahlíðar sem iðnaðarráðherra gaf út í maí 2002. Um er að ræða nýtingu á jarðhita í landi á Kröflusvæðinu, svonefnd- um Sandabotna- og Gjástykkis- svæðum í landi Reykjahlíðar. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir m.a. að sam- kvæmt lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu sé ráð- herra heimilt að hafa frumkvæði að og/eða láta rannsaka og leita að auðlindum í jörðu hvar sem er á landi án tillits til þess hvort landeig- andi hafi sjálfur hafið slíka rann- sókn. Ennfremur segir dómurinn að landeigendum hafi mátt vera ljóst, jafnvel áður en þeir hafi gert ráð- herra grein fyrir rannsóknafyrir- ætlunum sínum, að Landsvirkjun hafi haft hug á að gera rannsóknir á umræddum svæðum. Því fellst dóm- urinn ekki á að andmælaréttar landeigenda hafi ekki verið gætt eins og stefnandi hélt fram. Um meint vanhæfi Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðaráðherra sagði dómurinn að landeigendurnir byggðu kröfu sína ekki á því að sá einstaklingur er gegndi ráðherra- embætti er leyfið var veitt hefði verið í sérstökum tengslum við Landsvirkjun, en ákvæði stjórn- sýslulaga um hæfi stjórnvalds beri að skýra svo, að þau séu bundin við einstaklingana sem fara með emb- ættin hverju sinni. Því verði van- hæfi ráðherrans ekki reist á þessum lögum. Skúli Magnússon héraðsdómari dæmdi málið. Jónas Aðalsteinsson hrl. flutti málið fyrir stefnanda, Skarphéðinn Þórisson ríkislögmað- ur fyrir ríkið og Þórður Bogason hdl. fyrir Landsvirkjun. Ríkið og Landsvirkjun voru sýknuð af kröfu Mývetninga „ÉG ER búinn að vera með þetta á heilanum í mörg ár ef ekki áratugi,“ segir Pétur Pétursson þulur um leit sína að plakati eða „poster“ Roose- velts Bandaríkjaforseta með loforði um brottför Bandaríkjahers að styrjöld lokinni, en Pétur hlaut á dögunum 100 þúsund króna styrk úr Þjóðhátíðarsjóði til leitar sinnar. Að sögn Péturs voru plakötin hengd upp víða um land þegar Bandaríkja- her gekk á land 7. júlí 1941. „Á þessu plakati var mynd af Roosevelt forseta og bandaríska fán- anum, en þar á milli stóð: „Ég heiti því að bandaríski herinn fer héðan strax og núverandi styrjöld lýkur til þess að íslenska þjóðin geti búið frjáls og óháð í sínu eigin landi.“ Þetta er að mínu viti afar markvert og jafngildir Gamla sáttmála sem Jón Sigurðsson forseti byggði sjálf- stæðiskröfu Íslendinga á, því sam- kvæmt þessu er ljóst að Banda- ríkjaforseti lítur svo á að þjóð sé ekki frjáls ef hún er hersetin, jafn- vel þó að það sé með samningum við vinsamlega þjóð,“ segir Pét- ur. Að sögn hans eru heimildir fyrir því að eintak af plakatinu hafi enn hangið uppi við í Reykjavík tíu árum eftir að Banda- ríkjaher gekk á land. Bendir hann á að bæði íslensk söfn og bandarísk hafi geymsluskyldu á opinberum plöggum. „Plakötin héngu lengi uppi við víða um land, en svo skyndilega hurfu þau. Spurningin er hvort ís- lensk og bandarísk stjórnvöld hafi sameinast um að eyða þessu plak- ati,“ segir Pétur sem leggur nú drög að Ameríkuferð í því skyni að hafa uppi á plakatinu góða. „Þetta er ævinlegt sjálfstæðisplagg“ Pétur Pétursson Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Vestmannaeyjar | FIMM vísindamenn á tveimur bátum hófu í gær rann- sóknir á hafsbotninum milli lands og Eyja sem eiga að leiða í ljós hvort möguleiki sé á gerð jarð- ganga. Þeir hafa þegar lokið rann- sóknum í Krossfjöru og niðurstöður eiga að liggja fyrir í september næstkomandi. Karl Gunnarsson, Þorsteinn Eg- ilson og Gunnar Hilmarsson, allir jarðeðlisfræðingar hjá Íslenskum orkurannsóknum, sögðu að ennþá væri ekkert hægt að segja og það væri Vegagerðarinnar að greina frá niðurstöðum þegar þar að kæmi. „Tilgangurinn er að rann- saka möguleika á að gera bílagöng til Eyja og kanna hvað er langt nið- ur á fast berg og styrk þess og gæði,“ sagði Gunnar. Til þess eru notaðar bylgjubrots- mælingar sem eru gerðar með sprengingum. „Við erum á tveimur bátum, Friðrik Jessyni sem Hafró á og Lunda sem er í eigu Vals And- ersen. Við sprengjum af öðrum bátnum en hinn dregur á eftir sér 300 metra langan kapal sem nemur hljóðið frá sprengjunum. Út frá því getum við séð hvað djúpt er í gegn- um setlögin niður á fast berg og þéttleika þess.“ Þetta er seinni hluti rannsókn- anna, fyrrihlutinn fór fram í Kross- fjöru. „Þar gerðum við fyrst flug- segulmælingar í þyrlu og svo bylgjubrotsmælingar, og tilgang- urinn er sá sami, að finna út hvað langt er niður á fast berg.“ Sprengingar áttu að hefjast eftir hádegi í gær. Jarðgangarannsóknir hafnar milli lands og Eyja Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Vísindamennirnir fóru á tveimur bátum frá Vestmannaeyjum í gær til rannsókna á hafsbotninum. ÚTHLUTAÐ var samtals 4,1 milljón króna úr Þjóðhátíðarsjóði við 28. út- hlutun sjóðsins fyrir skemmstu. Í skipulagsskrá sjóðsins er kveðið á um að hlutverk hans sé að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafi það verkefni að vinna að varð- veislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Samkvæmt upplýsingum frá sjóðnum bárust alls 111 umsóknir um styrki að fjárhæð um 62,6 millj- ónir króna. Alls kom 4,1 milljón til úthlutunar í ár og voru styrkþegar 32. Meirihluti styrkja nam á bilinu 100 til 150 þúsundum króna, en hæsti styrkurinn, að upphæð 250 þúsund krónur, féll í hlut Ríkisút- varpsins til afritunar og skráningar á elsta safnefni útvarpsins. Meðal annarra verkefna sem hlutu styrk má nefna að Hanna Dóra Sturludóttir óperusöngkona fékk 100 þúsund kr. til að hljóðrita á hljómdisk öll sönglög dr. Páls Ísólfs- sonar, Fuglaverndarfélag Íslands fékk 150 þúsund kr. til verndunar ís- lenska arnarins, Kammersveit Reykjavíkur hlaut 100 þúsund kr. til að ljúka frágangi á upptökum fimm verka eftir Þorkel Sigurbjörnsson tónskáld, Plús film hlaut 150 þúsund kr. til að ljúka við frágang kvik- myndar um sögu Þorfinns blinda og annarra vesturfara sem fluttu til Norður-Dakóta upp úr 1870 og fjalla um hvernig Íslendingabyggðir þró- uðust á sléttunum miklu, Smekk- leysa fékk 150 þúsund til að gefa út tvöfaldan geisladisk með þulum, barnagælum og öðru efni sem venjan var að fara með fyrir börn og Heim- ilisiðnaðarfélag Íslands fékk 100 þúsund kr. til að útbúa kynningar- myndbönd um selskinnsskógerð og íslenska þjóðbúninginn með sér- staka áherslu á faldbúninginn. 32 styrkir til ólíkra verkefna HITT HÚSIÐ og Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR) hafa tryggt Jafningja- fræðslunni það fjármagn sem hún þarf til að halda úti öflugu forvarnarstarfi í vetur og næsta sumar. Unnur Gísladóttir, starfsmaður Jafningjafræðsl- unnar, segir að verkefnið hafi fengið þær fjórar milljónir sem þurfti til að halda því áfram. Unnur bendir á að með þessu móti sé þó aðeins hægt að bjóða grunn- og framhaldsskólum í Reykjavík upp á fræðslu í vetur en vonast sé til að fá mennta- málaráðuneytið í samstarf til að hægt verði að heimsækja fram- haldsskóla á landsbyggðinni. Uppfull af hugmyndum um forvarnarstarfið Unnur og Jóhann Fjalar Skaptason munu vinna að því í sumar að móta starfið fyrir vet- urinn og næsta sumar en Unn- ur segir að þau séu uppfull af hugmyndum um hvernig megi halda úti öflugu forvarnar- starfi. „Það fer svo allt eftir því hversu mikil eftirspurnin verð- ur eftir fræðslu í vetur hversu marga starfsmenn við munum hafa,“ segir Unnur. Starfsem- in tryggð fram á næsta ár Jafningjafræðslan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.