Morgunblaðið - 23.06.2005, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 23.06.2005, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 15 ERLENT                                              ! !   !      "" " #      LEIÐTOGAR áttatíu ríkja og al- þjóðastofnana lýstu í gær yfir stuðningi sínum við nýja stjórn í Írak, er lýtur forystu sjítans Ibra- hims al-Jaafaris, en sérstök ráð- stefna var haldin í Brussel í gær um málefni Íraks. Stuðningsyfir- lýsingunni fylgdu ekki bein fyr- irheit um tiltekna aukna aðstoð en engu að síður lýsti Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, því yfir að sú víðtæka stuðningsyfirlýsing sem Írakar hefðu fengið á fundinum markaði „þáttaskil“ í sögu Íraks. Í lokayfirlýsingu fundarins sagði að þátttakendur lýstu sem ein heild yfir stuðningi sínum við við- leitni bráðabirgðastjórnar Jaafaris til að búa til lýðræðislegt samfélag í Írak, þar sem réttindi allra hópa væru virt, vilji þjóðarinnar hafður í fyrirrúmi, sem og almenn mann- réttindi. Stjórnarinnar í Írak bíður hið vandasama verkefni að tryggja ör- yggi í landinu, en ódæðisverk og dauðsföll eru þar nánast daglegt brauð, blása lífi í efnahag þess og rita nýja stjórnarskrá. Gert er ráð fyrir að nýjar kosningar verði haldnar í desember og skal sú stjórn, sem mynduð verður í kjöl- farið, verða meira en bara til bráðabirgða eins og sú sem nú er. Leiðtogar írösku bráðabirgða- stjórnarinnar voru komnir til fund- arins í Brussel til að kynna fyrir þátttakendum hans áætlanir sínar um hvernig áðurnefndum mark- miðum verði náð. Hvatti Jaafari forsætisráðherra þá m.a. til að styðja Íraka bæði með sérfræði- kunnáttu, sem einstakar þjóðir kynnu yfir að ráða, og með fjár- framlögum. Slíkt væri til þess fall- ið að auka öryggi í landinu. Condoleezza Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, áréttaði hins vegar að Írakar yrðu sjálfir að leggja sitt af mörkum, stjórnin í Bagdad þyrfti að bæta öryggi borgara sinna, þróa efnahagskerfi sitt og „búa til þannig aðstæður í stjórnmálum landsins að fólk úr hverju horni samfélagsins er hafn- ar ofbeldi geti látið til sín taka“. Ráðstefnan í Brussel var haldin að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins. Geir H. Haarde fjármálaráð- herra sótti fundinn fyrir Íslands hönd í fjarveru Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra og í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kom fram að hann hefði í ræðu sinni lýst stuðningi íslenskra stjórnvalda við lýðræðisþróunina í Írak og lagt áherslu á mikilvægi þess að ný stjórnarskrá landsins tryggði rétt allra íraskra borgara án tillits til trúarbragða, kynþáttar eða kyn- ferðis. Þá áréttaði Geir einnig þann ávinning sem lýðræði og stöðugleiki í Írak myndi hafa á önnur ríki í þessum heimshluta. Leiðtogar Íraka fengu stuðningsyfirlýsingu THABO Mbeki, forseti Suður- Afríku, skipaði í gær Phumzile Mlambo-Ngcuka sem varaforseta í stað Jacobs Zuma, sem var vikið úr embætti í síðustu viku vegna spill- ingarmála. Mlambo-Ngcuka er fyrsta konan til að gegna svo valda- miklu embætti í Suður-Afríku. Zuma var rekinn úr embætti eft- ir að fjármálaráðgjafi hans var sak- felldur vegna spillingar og fjár- svika. Saksóknarar hafa síðan tilkynnt að Zuma verði sjálfur leiddur fyrir rétt. Hann neitar hins vegar allri sök. Um tíma var talið líklegt að Zuma tæki við af Mbeki sem forseti er hann sest í helgan stein 2009. Öflugur ráðherra Mlambo-Ngcuka var áður auð- linda- og orkumálaráðherra 1999 og þótti standa sig mjög vel. Hún er 49 ára gömul, gift Bulelani Ngcuka, fyrrum yfir- saksóknara. Það var rannsókn hans sem leiddi síðar til þess að Zuma var vikið úr embætti. Kemur fram á fréttavef BBC að sumir telji að út- nefning Mlambo- Ngcuka gæti af þessum sökum átt eftir að reynast umdeild. Mbeki sagði þegar hann tilkynnti um útnefningu Mlambo-Ngcuka að hann hefði litið á þetta sem gullið tækifæri til að auka hlut kvenna í stjórn landsins. Hann hefur áður sagt að hann vildi gjarnan að kona tæki við af honum sem forseti. Ekki er þó litið svo á að hægt sé að gefa sér að hún verði arftaki Mbek- is er fram líða stundir. Nýr varaforseti í Suður-Afríku Phumzile Mlambo-Ngcuka Fyrsta konan til að gegna svo valdamiklu embætti í stjórn landsins PAKISTANSKIR krakkar sjást hér að leik í svölu vatni en miklir hitar hafa geisað í Suðaustur-Asíu að undanförnu. Að minnsta kosti 375 manns hafa látist af völdum hitanna og stefnir í að þetta verði eitt heitasta sumar í þessum heimshluta frá því að mælingar hófust. Reuters Hitabylgja í Suðaustur-Asíu Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.