Morgunblaðið - 23.06.2005, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 23.06.2005, Qupperneq 19
Mýrdalur | Menn sem ráku fé með bóndanum á Ytri-Sólheimum yfir Sólheimajökul í beitilandið Hvítmögu í fyrradag urðu fyrir því að eitt lamb úr hópnum rann ofan í sprungu á jöklinum. Þurfti því að stöðva reksturinn á meðan lambinu var bjarg- að. Ragnar Sævar Þorsteinsson seig ofan í sprunguna og rétti Óskari bróður sínum lambið. Þorsteinn Björn Einarsson, frændi þeirra, hélt í bandið. Lambið reyndist óslasað og hljóp strax inn í hópinn, til móður sinnar. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Lambi bjargað úr jökulsprungu Rekstur Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Krem úr minkafitu | Else Möller, hjúkr- unarfræðingur á Akri í Vopnafirði, vinnur að tilraunum með framleiðslu á húðvörum úr minkafitu og villijurtum. Hefur hún fengið styrk frá félagsmálaráðuneytinu sem veittur er vegna atvinnumála kvenna til að kosta frekari rannsóknir. Vitað er að græðandi efni eru í minkafitu og hefur Else látið á það reyna. Fram kem- ur í Bændablaðinu að smyrsl frá henni hafa verið notuð á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri, á dvalarheimili aldraðra á Vopna- firði og víðar. Þá hefur Else fengið vini og vandamenn til að prófa húðvörurnar. Helsta vandamálið er að ekki hefur tekist að losna við minkalyktina. Else er gift Birni Halldórssyni loð- dýrabónda og er því auðvelt fyrir hana að nálgast hráefnið. Þá vaxa ýmsar villijurtir við húsvegginn.    Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Keppt í traktorstorfæru | Iðandi dagar verða haldnir á Flúðum og nágrenni á Jónsmessunni. Hátíðin hefst á föstudags- kvöld með golfmóti á Selsvelli og seinna um kvöldið verður farið í Jónsmessu- göngu. Eftir hádegið á laugardeginum verður meðal annars efnt til Heimsmeistaramóts í traktorstorfæru við Litlu-Laxá. Þá verður fjöltefli við félagsheimilið og keppt verður um Íslenska grænmetisbikarinn í knatt- spyrnu á sparkvellinum við Flúðaskóla. Um kvöldið verður varðeldur og brekku- söngur. Hátíðinni lýkur á sunnudag.    Fyrsta vegakirkjan | Þorgeirskirkja í Ljósavatnsskarði verður opin alla daga í sumar frá kl. 10 til 17 og verður „stað- arhaldari“ í kirkjunni, gestum til leið- sagnar. Um er að ræða samstarfsverk- efni sem Þjóðkirkjan og Þingeyskur sagnagarður standa saman að. „Stað- arhaldarinn“ er Guðmundur Örn Jóns- son, guðfræðingur, frá Illugastöðum í Fnjóskadal. Sérstök kyrrðarstund er haldin fyrir lokun kirkjunnar á hverjum degi. Að því aðstandendur verkefnisins telja er hér um að ræða fyrstu vega- kirkju á Íslandi. Verið er að undirbúa gerð bæklings fyrir verkefnið og upplýs- ingaskiltis sem komið verður fyrir við þjóðveg 1 þar sem ekið er að Þorgeirs- kirkju. Einnig verða lögð drög að göngu- leið frá kirkjunni yfir að Goðafossi í sumar. nemendur fá að fara með í hverja ferð og hafa færri komist að en sótt hafa um. Varðskipsnemar fá sér- stök einkennisföt og fá að kynnast öllum helstu störfum um borð í varð- skipunum. Á myndinni er Pálmi Jónsson, 2. stýrimaður á varðskipinu Óðni, að kenna þeim Rakel S. Jón- asdóttur og Kristjáni K. Landhelgisgæslanhefur í samstarfivið Samband ís- lenskra sveitarfélaga boðið nemendum úr 10. bekkjum grunnskólanna um land allt að fara með varðskipum Landhelg- isgæslunnar í nokkurs konar starfsnám yfir sumartímann. Nemendur geta sótt um að fá að vera varðskipsnemar í einni ferð með varðskipi. Sex Kristjánssyni nemum, leyndardóma siglinga- fræðinnar. Þau eru að handleika sextant en hann er notaður til að mæla hæð himintungla og einnig til að mæla lárétt horn, allt til að staðsetja skipin rétt í sjókortum. Sextantinn var mikið not- aður áður fyrr en nú hafa önnur tæki að mestu leyst hann af hólmi, til dæmis GPS-staðsetningartæki. Grunnskólanemar í starfsnámi Frá því var sagt íMinni stund í gær,að Heimir Bessa- son hefði keypt Sómabát úr Grímsey og ætti hann að heita Laugi. Hann var að koma úr róðri, hafði verið við Mánáreyjar, Há- ey og Lágey. Karl af Laugaveginum kvað: Mið og strauma þekkir þar þó hann fari að kula Heimir út við eyjarnar eltist við þann gula. Síðustu vikur hefur verið kaldranalegt á sjón- um fyrir norðan og veð- urfræðingar gefa þá skýringu, að það sé út af hafísnum. En það er svo sem ekki nýtt. Látra- Björg kvað til Stígs Þór- arinssonar, sem henni þótti linur ræðari: Róðu betur, kær minn karl, Kenndu ekki í brjóst um sjóinn. Harðara taktu herðafall hann er á morgun gróinn. Og enn kvað hún: Bið ég höddur blóðugar þó bregði upp faldi sínum Ránar dætur reisugar rassi að vægja mínum. Af skaki pebl@mbl.is Árnessýsla | Samstarfsnefnd um samein- ingu Ölfuss og Flóa hefur tekið til starfa. Nefndin vinnur að undirbúningi samein- ingarkosninga sem fram fara 8. október næstkomandi þar sem lagt er til að sveit- arfélögin Árborg, Hraungerðishreppur, Hveragerði, Gaulverjabæjarhreppur, Vill- ingaholtshreppur og Ölfus verði sameinuð. Tillöguna má rekja til samstarfsverkefnis Sambands íslenskra sveitarfélaga og fé- lagsmálaráðuneytisins um eflingu sveitar- stjórnarstigsins. Fram kemur í fréttatilkynningu að nefndin mun vinna samstiga og af heilum hug að því að undirbúa kosningar um sam- einingu. Markmið hennar er að koma af stað umræðu og leggja síðan tillöguna í dóm kjósenda á svæðinu í lýðræðislegum kosningum. Nefndin mun vinna ákveðna greiningu og hagkvæmniathugun þar sem dregnir verða fram kostir og gallar sam- einingar og sameiginleg framtíðarsýn nýs sveitarfélags. Nefndin mun halda úti heimasíðu, gefa út kynningarbækling og kynna niðurstöður sínar á opnum kynning- arfundum í öllum sveitarfélögunum í haust. Samstarfs- nefnd um sameiningu tekin til starfa ♦♦♦ FELLAHVARF 9 OPIÐ HÚS Í KVÖLD FRÁ KL. 19-21 UM ER AÐ RÆÐA FULLBÚIÐ RAÐHÚS Í NÝJU HVERFI FYRIR OFAN VATNSENDA MEÐ GLÆSILEGU ÚTSÝNI YFIR ELLIÐAVATN OG ALLAN FJALLAHRINGIN. LÝSING: Húsið skiptist í tvær hæðir og bílskúr. NEÐRI HÆÐ: Forstofa, stigahol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr sem er innangengt í úr íbúðinni. Gólfefni á neðri hæð eru svartur náttúrusteinn á forstofu, holi og baði sem held- ur áfram upp allan stigan og inn á efri hæðina. Her- bergin eru bæði með hnotu á gólfi. Þvottahúsið er flísalagt og einnig bílskúr og geymsla. Skápar eru í forstofu og í herbergjum. Falleg lýsing er í loftum. Baðher- bergið er með sturtu. Allur frágangur og stíll er glæsilegur. EFRI HÆÐ: Tvö herbergi, baðherbergi, eldhús, tvær stofur og svalir. Náttúruflísarnar halda áfram úr stiganum og skipta yfir í hnotuparket í stofunni en eru flæðandi inn í eldhúsið og inn á baðherbergið og upp með baðkarinu. Á báðum her- bergjunum er hnota. Hvíttaður askur er í öllum loftum á eftir hæð. Kirsuberjainnrétt- ingar eru í húsinu, einnig í eldhúsinu þar sem er gashelluborð, tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél sem fylgja. Svalirnar eru flísalagðar og er ómótstæðilegt útsýni af þeim yfir allan Bláfjallahringinn, Elliðavatn og Heiðmörkina. SÖLUMENN KLETTS FASTEIGNASÖLU TAKA Á MÓTI GESTUM. Kristján Ólafsson, hrl. og löggildur fasteignasali Keflavíkurflugvöllur | Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur sent frá sér athugasemdir við gjaldtöku á skamm- tímabílastæði við Flugstöð Leifs Eiríks- sonar á Keflavíkurflugvelli og hvernig staðið er að henni. Gjaldtakan var tekin upp í byrjun júní og þá voru jafnframt sett upp hlið og sjálfsalar. Í athugasemdum FÍB kemur fram að allmargir félagsmenn hafi snúið sér til félagsins vegna þessa. Einn hafi til dæmis orðið að bíða í biðröð í fimmtán mínútur til að komast inn á stæðin og jafnlengi til að komast aftur út eftir að náð hafði verið í farþega. Þá er gagnrýnt að gjaldið, sem nefnt er skattlagning ríkisstofnunar, sé einungis lagt á þá sem koma á einkabílum en ekki leigubílum eða rútum. Gagnrýna bílastæðagjöld við flugstöð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.