Morgunblaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 21
Hafnir | „Ég geri þetta til að
skapa mér vinnu og til að geta
unnið við það sem mér finnst
skemmtilegt,“ segir Kristín Jó-
hannsdóttir sem er að reisa ein-
angrunarstöð fyrir gæludýr í
Kirkjuvogshverfi í Höfnum.
Kristín hefur búið í fjórtán ár
í Höfnum og er ánægð með að fá
að byggja einangrunarstöðina
þar. „Ég var búin að hugsa um
þetta mál lengi og ákvað loks að
láta reyna á það. Nú er allt kom-
ið af stað,“ segir hún.
Áður en hægt var að hefjast
handa þurfti Kristín að afla sér
nauðsynlegra leyfa, meðal ann-
ars frá landbúnaðarráðuneytinu.
Húsið stendur nokkuð frá öðrum
mannvirkjum enda var það skil-
yrði fyrir leyfunum að ekki yrði
byggt þar í kring.
Minni ferðalög með dýrin
Kristín mun bjóðast til að taka
við hundum og köttum sem flutt-
ir eru til landsins og geyma þá í
einangrun í 28 daga undir eft-
þeim að fylgjast með dýrum sín-
um á þann hátt á meðan á vist-
inni stendur.
Kristín reiknar með að tveir
til þrír starfsmenn verði við ein-
angrunarstöðina. Sjálf hyggst
hún vinna þar mikið fyrstu árin,
á meðan mesti þunginn er í af-
borgunum af stofnkostnaði. Hún
kvíðir starfinu ekki enda segist
hún hafa óskaplega mikinn
áhuga á hundum og hafi haldið
hund allt frá táningsárunum.
Hún vann í mörg ár við hunda-
snyrtingu en starfar nú við far-
þegaþjónustu hjá IGS á Kefla-
víkurflugvelli. „Ég hlakka mikið
til að geta farið að vinna við
gæludýrin,“ segir Kristín Jó-
hannsdóttir.
Ný einangrunarstöð fyrir hunda og ketti er í byggingu í Höfnum
Vil vinna við það
sem mér finnst
skemmtilegt
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Upp úr jörðinni Kristín Jóhannsdóttir við grunn einangrunarstöðv-
arinnar ásamt syni sínum, Elíasi Kristjánssyni, og íslenska fjár-
hundinum Fljóta-Fróða. Stöðin verður opnuð í byrjun vetrar.
irliti dýralæknis eins og lög gera
ráð fyrir. Hún byggir hús með
búrum fyrir 26 hunda og 9 ketti.
Húsinu er skipt í tvö einangr-
unarhólf. Dýrunum er ekið inn í
bílskúr og þau færð í búrin. Úti-
svæði fylgir hverju búri þannig
að dýrin komast undir bert loft á
hverjum degi. „Þetta er glæsileg
aðstaða og umhverfið rólegt.
Dýrunum á að geta liðið vel
hérna hjá okkur,“ segir Kristín.
Verktakar vinna að byggingu
hússins og segir Kristín að Pét-
ur Jóhannsson, bróðir hennar,
hafi verið stoð hennar og stytta
við undirbúning fram-
kvæmdanna. Stefnt er að opnun
stöðvarinnar, sem heita mun
Einangrunarstöðin í Reykja-
nesbæ ehf., 1. desember næst-
komandi.
Hingað til hefur aðeins ein
einangrunarstöð fyrir gæludýr
verið á landinu og hún er í Hrís-
ey. Kristín segist fara út í sam-
keppnina full bjartsýni þótt hún
geri sér einnig grein fyrir áhætt-
unni. Staðsetningin sé góð í
Höfnum. Það sé aðeins fimmtán
mínútna akstur með dýrin frá
Keflavíkurflugvelli og stutt á
höfuðborgarsvæðið en flest dýr-
in fara til eigenda þar að lokinni
einangrun. „Fólk virðist ánægt
með þennan valmöguleika. Það
hefur hringt í mig fólk til að lýsa
ánægju sinni, sérstaklega vegna
þess hvað ferðalög dýranna sem
hingað koma styttast mikið,“
segir Kristín.
Hlakka til að byrja
Þá eiga eigendur dýra af höf-
uðborgarsvæðinu auðveldara
með að heimsækja þau á milli
þriðju og fjórðu viku einangr-
unarinnar eins og þeir eiga rétt
á. Þá hyggst Kristín bjóða eig-
endum upp á þá þjónustu að
senda þeim myndir og leyfa
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 21
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
AUSTURLAND
Reyðarfjörður | Reyðfirðingurinn
Miriam Fissers hélt nýlega helg-
arlanga málverkasýningu í Sunnu-
hvoli á Reyðarfirði. Um 80 manns
sóttu sýninguna og var Miriam
mjög ánægð með móttökurnar.
Hún fluttist árið 1982, þá 9 ára
gömul, frá Belgíu til Reyðarfjarðar
þar sem foreldrar hennar kenndu
við grunnskólann. Hún er stúdent
frá Menntaskólanum á Egils-
stöðum, stundaði jafnframt listnám
í Belgíu og síðastliðinn vetur var
hún við nám í Háskólanum í Ant-
werpen. Hún hefur áður haldið
einkasýningu á Café Nielsen á Eg-
ilsstöðum.
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
Seiður Miriam Fissers við eitt
verka sinna í Sunnuhvoli.
Straumar frá
Antwerpen
Vopnafjörður | Um helgina var opnuð sýning á nokkr-
um verkum Tolla í Kaupvangi á Vopnafirði. Um er að
ræða 34 verk sem unnin eru í olíu og striga á síðustu
tveimur árum. Listamaðurinn var viðstaddur opn-
unina og var mjög sáttur við hvað menningunni er
gert hátt undir höfði á Vopnafirði þrátt fyrir að sum-
ir vilji meina að þar eigi hjarinn upptök sín.
Menningin ríður ekki við einteyming á Vopnafirði,
því á laugardag var skáldakvöld í Miklagarði þar sem
kynnt voru verk Gunnars Gunnarssonar og Jóns Múla
og Jónasar Árnasona. M.a. fluttu þau Hilmir Snær
Guðnason, Guðrún Ásmundsdóttir, Gunnar Eyjólfsson,
Kristján Franklín Magnúss, Bjartur Aðalbjörnsson og
fleiri leiklestur úr Fjallkirkjunni eftir Gunnar skáld,
flutt var erindi um hann og leikin var írsk tónlist og
djass. Þótti dagskráin öll hin glæsilegasta og metn-
aðarfull eins og Vopnfirðinga er von og vísa. Það eiga
ekki allir eigin menningamálaráðherra en Vopnfirð-
ingar eru svo lánsamir að Sigríður Dóra Sverrisdóttir
sér um menningamálin á staðnum ásamt öðru dug-
legu fólki. Það er ekki síst henni að þakka hvað
menning er blómleg og fjölbreytt á Vopnafirði enda
hefur hún óbilandandi áhuga á listum og menningu
og trúir ekki á nein landamæri í þeim efnum. Tolli
opnaði sýninguna formlega með því að gefa Vopna-
fjarðarhreppi eitt verka sinna sem hann nefnir „Frá-
bært land“ sem á vel við myndefni það sem Tolli sýnir
á Vopnafirði.
Ljósmynd/Tryggvi Aðalbjörnsson
Fjallkirkjan leiklesin Bjartur Aðalbjörnsson með þeim Gunnari Eyjólfssyni og Guðrúnu Ásmundsdóttur.
Tolli opnar
sýningu á
Vopnafirði
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Opnaði sýningu Tolla lýst vel á hve menningunni er
gert hátt undir höfði á Vopnafirði.
Reykjanesbær | Eitt hundrað færri nemendur
taka þátt í starfi Vinnuskóla Reykjanesbæjar í
sumar en í fyrra. Nú eru 294 nemendur úr 8. til
10. bekk í Vinnuskólanum en voru 394 á síðasta
ári. Árið þar á undan voru 420 nemendur í skól-
anum. Kemur þetta fram í fyrirspurn Árna Sig-
fússonar bæjarstjóra við fyrirspurn Kjartans Más
Kjartanssonar, bæjarfulltrúa Framsóknarflokks-
ins, sem lögð var fram í bæjarstjórn í vikunni.
Fram kemur í svarinu að aðsókn unglinga fer
oftast eftir atvinnuástandi á hverjum tíma. Segir
að í ár sé atvinna með besta móti og skýri það
meðal annars fækkunina. Þá kemur fram að
tímakaup unglinga í Vinnuskóla Reykjanesbæjar
er hærra en þekkist meðal nemenda í 8. til 9.
bekk á höfuðborgarsvæðinu og svipað hjá tíundu-
bekkingum.
Þá kemur fram í svari bæjarstjóra að sú vinna
sem staðið hefur einstökum árgöngum til boða
hefur minnkað mikið á undanförnum árum.
Hundrað færri unglingar
í Vinnuskóla Reykjanesbæjar
Sáð í Húshólma | Sjálfboðaliðar fara í Hús-
hólma í Ögmundarhrauni kvöld til að sá í gróð-
ursárin sem þar hafa myndast, hefta frekari
gróðureyðingu og vernda minjarnar. Haldið
verður af stað klukkan 18, frá Ísólfsskálavegi, við
vegvísinn niður í Húshólma.
Landhelgisgæslan hefur flutt fræ og áburð inn
í Húshólma að tilstuðlan Landgræðslu ríkisins og
Fornleifavernd ríkisins hefur samþykkt aðgerð-
ina fyrir sitt leyti. Þátttakendum verður boðið að
kynna sér minjarnar í fylgd kunnugra.
Skólastjóri í Sandgerði | Bæjarstjórn Sand-
gerðisbæjar hefur samþykkt að veita Guðjóni Þ.
Kristjánssyni, skólastjóra grunnskólans í Sand-
gerði, námsleyfi á komandi skólaári. Jafnframt
var ákveðið, að fenginni tillögu skólaráðs, að Pét-
ur Brynjarsson aðstoðarskólastjóri gegni störf-
um skólastjóra í námsleyfi Guðjóns og að Fanney
D. Halldórsdóttir verði aðstoðarskólastjóri næsta
skólaár.
Egilsstaðir | Kvenfélagið Bláklukk-
ur á Fljótsdalshéraði gaf Heilbrigð-
isstofnun Austurlands á Egils-
stöðum nýlega svokallaðan Holter,
eða hjartasírita. Tækið tekur upp
hjartsláttarstarfsemi einstaklings,
yfirleitt í einn sólarhring í senn.
Það er gert út af ýmsum einkenn-
um hjá sjúklingi, vegna hjartslátt-
artruflana eða annars. Tækið er
hengt á viðkomandi einstakling,
sem ber það á sér meðan á ritun
stendur og tölva les svo úr því. Pét-
ur Heimisson, yfirlæknir HSA á
Egilsstöðum, sagði við móttöku
tækisins að tæknin sem slík væri
ekki ný. „Byltingarkennd breyting
frá því sem við þekkjum áður er
hversu handhægt tækið er og auð-
velt og öruggt að lesa úr ritinu,
sem er stafrænt. Það er hlaðið inn í
tölvu eftir ritun og lesið úr því á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri.“ Tækið kostaði 465 þúsund
krónur og er góð viðbót við tækja-
kost heilsugæslunnar.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Væn gjöf Halla Eiríksdóttir, f.h. HSA, veitir hjartasírita viðtöku úr hendi
Gunnhildar Ingvarsdóttur f.h. Kvenfélagsins Bláklukkna.
Bláklukkur gefa hjartasírita