Morgunblaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 23 DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR „Ég var sjómaður í tuttugu og sjö ár, fyrir þremur árum fór ég að hugsa um hvort ég ætti ekki að breyta til og gera eitthvað annað en að eyða ævinni um borð í togara,“ segir Auðunn Herlufsen sem stofnaði Drangabakst- ur fyrir rúmu ári síðan og hóf að selja land- anum kartöflukökur. „Ég var nú oft búinn að hugsa um þessa kartöfluköku sem ég ólst upp við, fór og spjallaði um þetta við mömmu og fékk blessun hennar um að fá ættaruppskrift- ina. Ég skráði mig svo á sýninguna Matur 2004, í raun áður en fyrirtækið var komið á fullt, keyrði allt af stað en fékk ekki tæki og aðstöðu fyrr en daginn fyrir sýningu. En ég mætti á sýninguna með kartöflukökuna og fékk verðlaun sem einyrki ársins á henni. Þá byrjaði boltinn að rúlla og kartöflukakan hef- ur rokið út eins og heitar lummur síðan.“ Auðunn er Hafnfirðingur og er með Drangabakstur til húsa þar í bæ. Ásamt því að baka kartöflukökur þá setti hann speltkökur nýverið á markaðinn. „Uppskriftinar að þessum kökum eru báðar komnar frá mömmu, sem fékk þær frá ömmu sem fékk þær frá langömmu og svo framvegis. Þetta eru uppskriftir sem hafa gengið í ætt- inni í yfir hundrað ár.“ Auðunn segir aðeins hann, mömmu sína og nokkur systkini hennar vita uppskriftina. „Mamma er frá Dröngum og merki fyrir- tækisins er af Drangaskörðunum. Auðvitað lét ég fyrirtækið heita í höfuðið á upprunastað uppskriftanna, af virðingu við fólkið og stað- inn. Þessar kökur skapast úr fátækt og eru frá þeim tíma þegar engu var hent og gerður mat- ur úr öllu.“ Kartöflukaka í öllum veislum Móðir Auðuns bakar kartöflukökur oft og borðaði hann mikið af þeim í æsku. Hann segir þær alltaf hafa verið á borðum á sínu heimili á jólum og páskum í staðinn fyrir laufabrauð eða flatkökur. „Mamma kom líka alltaf með kartöflukökur í veislur og þar fannst öllum þær rosalega góðar og margir höfðu á orði að við ættum að fara að framleiða þær. Því var ég lengi með þessa hugmynd á bak við eyrað áð- ur en ég framkvæmdi hana.“ Drangabakstur er sannkallað fjölskyldu- fyrirtæki því uppskriftirnar eru fjölskyldu- leyndarmál ásamt því að Auðunn vinnur þar ásamt tveimur börnum sínum. „Þegar maður er með svona lítið fyrirtæki þá þarf maður að geta gert allt sjálfur hvort sem það er að baka, sjá um fjármálin eða laga bílinn. Þetta hefst ekkert nema með því að leggja svolítið á sig,“ segir Auðunn sem er menntað- ur netagerðarmaður. Hann segist ekki vera hættur með nýjungarnar þrátt fyrir að spelt- kakan sé nýkomin á markað. „Ég stefni að því að koma með eina nýja köku á ári næstu ár. Það er ýmislegt sem ég er með handrað- anum.“  BAKSTUR | Auðunn Herlufsen bakar kartöflu- og speltkökur Aldagamlar fjölskylduuppskriftir Auðunn hjá Drangabakstri með speltbrauð Morgunblaðið/ÞÖK „Ég byrja að baka um klukkan eitt á nótt- unni og er að til klukkan níu á morgnana,“ segir Auðunn Herlufsen, eigandi Dranga- baksturs. Þegar búið er að velja ferskt græn- meti eftir kúnstarinnar reglum í matvörubúðinni þá er líka mik- ilvægt að geyma grænmetið á rétt- um stað.  Setjið rótargrænmeti eins og kartöflur og gulrófur á dimman og kaldan stað. Annað grænmeti á að fara í grænmetisskúffu í ísskáp.  Ekki þvo grænmeti áður en það er sett í geymslu. Það rýrir geymsluþolið.  Hendið grænmeti sem lyktar illa, er orðið slímugt eða myglað. Ef salat er orðið þreytulegt getur það orðið miklu lystugra ef því er stungið í kalt vatn í örskamma stund og svo þurrkað í „salatvindu" sem eru sérstök ílát til að þurrka í salat..  MATUR Svona á að geyma grænmeti Ásdís Ekki þvo grænmetið áður en það er sett í geymslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.