Morgunblaðið - 23.06.2005, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
Bónus
Gildir 23. júní – 26. júní verð nú verð áður mælie. verð
Thule í gleri 6*33 cl ............................. 399 0 201 kr. ltr
Túnfisksteikur 250 gr. ........................... 199 499 796 kr. kg
Bónuspylsur 10 stk. ............................. 499 599 50 kr. stk.
Heinz-tómatsósa 907 gr. ...................... 129 0 142 kr. kg
Bónus sætt sinnep 450 gr. ................... 99 0 220 kr. kg
Bónus remúlaði 400 gr......................... 99 129 247 kr. kg
Froson-jarðaber 750 gr......................... 159 399 212 kr. kg
Froson-hindber 300 gr. ........................ 129 299 430 kr. kg
KF-hrásalat 350 gr. .............................. 98 159 280 kr. kg
Bónus kaldar grillsósur 270 ml. ............ 139 0 515 kr. ltr
Fjarðarkaup
Gildir 23. júní – 25. júní verð nú verð áður mælie. verð
Kjöthúsið Grillsteik popparans Kjötb. ..... 1198 1399 1198 kr. kg
Móar Piri Piri læri/leggir........................ 418 599 418 kr. kg
FK. Ofnsteik......................................... 1267 1584 1267 kr. kg
Kjarnaf. Grill Lambaframpartssneiðar..... 798 998 798 kr. kg
Fjallalamb 1/2 grill-lambalæri .............. 989 1648 989 kr. kg
Grillhamborgarar m. brauði 2 stk. .......... 238 394 119 kr. stk.
FK. Kartöflusalat 320 gr........................ 88 149 275 kr. kg
FK. Hrásalat 320 gr. ............................. 88 149 275 kr. kg
SS. Gordon Bleu pr.pk.......................... 357 419 357 kr. stk.
Móar appelsínu læri/leggir ................... 418 599 418 kr. kg
Hagkaup
Gildir 22. júní – 22. júní verð nú verð áður mælie. verð
Holta kjúklingalæri í hvítl.kryddl............. 359 599 359 kr. kg
Grillsagaður lambaframpartur ............... 399 538 399 kr. kg
Holta kjúklingalæri & leggir í texaskr. ..... 359 599 359 kr. kg
Holta kjúklingavængir í mexicokryddl. .... 299 499 299 kr. kg
Krónan
Gildir 22. júní – 28. júní verð nú verð áður mælie. verð
Gourmet grísagrillsneiðar rauð. ............. 718 1025 718 kr. kg
Sorella pizzur 3 tegundir ....................... 99 199 396 kr. kg
Móa kjúklingavængir magnkaup............ 149 299 149 kr. kg
Móa kjúklingaleggir magnkaup.............. 389 599 389 kr. kg
Krónu krydduð lambasteik .................... 988 1098 988 kr. kg
GM Cheerios tvöfaldur 1050 gr ............. 499 0 475 kr. kg
Poco Loco Nacho cheese...................... 199 0 663 kr. kg
Persil þvottaefni 5,4 kg......................... 998 1198 184 kr. kg
SS Mexikópylsur .................................. 622 888 622 kr. kg
Jarðarber í boxi 200 gr ......................... 199 289 995 kr. kg
Nóatún
Gildir 22. júní – 29. júní verð nú verð áður mælie. verð
Boboli frosnir hraðréttir 4 tegundir ......... 199 249 995 kr. kg
Excact sjampó og hárnæring................. 329 439 822 kr. ltr
Lambaframhr. fille rib eye ..................... 1998 2998 1998 kr. kg
Grísafille ............................................. 1499 1998 1499 kr. kg
Bautab. svínakótilettur rauðvínsl. .......... 999 1539 999 kr. kg
Bláber box USA ................................... 199 299 1592 kr. kg
Kínakál ............................................... 149 199 149 kr. kg
Myllu samlokubrauð 2 fyrir 1................. 259 518 336 kr. kg
SS Grand orange helgarsteik ................ 995 1579 995 kr. kg
Nóatúns salernispappír 12 stk .............. 299 399 24 kr. stk.
Samkaup/Úrval
Gildir 23. júní – 26. júní verð nú verð áður mælie. verð
Helgargrís m. sólþ. tómötum/basil BK ... 1165 1665 1165 kr. kg
Grillpylsur Borgarneskjötv. .................... 692 989 692 kr. kg
Gourmet lambaframpartssneiðar........... 1119 1598 1119 kr. kg
Grillsagaður lambaframpartur Goði........ 479 639 479 kr. kg
Goða Ostapylsur .................................. 794 1134 794 kr. kg
Doritos snakk 200 gr............................ 149 249 745 kr. kg
Mix 2L ................................................ 99 219 49 kr. ltr
Vatnsmelónur ...................................... 75 159 75 kr. kg
Lambaframhryggjarsneiðar þurrkr. BK .... 1286 1864 1286 kr. kg
Spar, Bæjarlind
Gildir 22. júní – 28. júní verð nú verð áður mælie. verð
Vöffluduft 500 gr. Katla ........................ 299 386 598 kr. kg
Big kremkex 500 gr. ............................. 169 229 338 kr. kg
Lamba grill framhr. sneiðar, kryddað ...... 898 1498 898 kr. kg
Nautalundir New Zealand ..................... 2898 3898 2898 kr. kg
Kjúklingur BBQ læri/leggir .................... 398 499 398 kr. kg
T&K Java Mokka kaffi 400 gr................. 398 479 995 kr. kg
Lambasíðubitar ................................... 105 199 105 kr. kg
Murray sykurlaust kex Cremes 184gr...... 98 221 533 kr. kg
Jarðarber 200 gr. box ........................... 99 219 495 kr. kg
Vatnsmelónur ...................................... 99 149 99 kr. kg
HELGARTILBOÐ|neytendur@mbl.is
Vatnsmelónur og kjúklingur
Íþróttahjónin Erla Hendriksdóttir iðjuþjálfi
og Bragi Jónsson MBA rekstrarhagfræðingur
hafa búið í Kaupmannahöfn í sex ár. Þau fara
flestra sinna ferða á hjóli eins og algengt er í
gömlu höfuðborginni og þá er ágætt að hafa
fimm verslanir um að velja í nágrenninu. Erla
er landsliðsfyrirliði og þekkt knattspyrnukona
úr Breiðabliki og hefur spilað með danska lið-
inu Skovlunde undanfarið ár. Bragi er reynd-
ur handboltakappi og hefur verið hand-
boltaþjálfari undanfarin ár. Eins og
íþróttafólki sæmir hugsa þau Erla og Bragi
vel um heilsuna og borða mikið grænmeti og
ávexti. „Við borðum yfirleitt hollan mat,“ seg-
ir Bragi en Erla bætir við að þau séu nú ekk-
ert heilög. „Við leyfum okkur óhollustu stund-
um og borðum alveg nammi en reynum að
hafa sérstaka nammidaga til þess,“ segir Erla.
Ekkert sælgæti er keypt í þessari verslunar-
ferð í Føtex en hins vegar ratar einn poki af
frönskum kartöflum í innkaupakerruna en vel
að merkja fitusnauðari en venjulegar. Føtex
er ein af verslununum sem eru nálægt heimili
þeirra á Amager, stór verslun þar sem vöru-
úrval er gott en verðið í hærra lagi miðað við
Netto eða aðrar lágvöruverðsverslanir þar
sem þau kaupa yfirleitt nauðsynjarnar, en
fara t.d. í Føtex til að fá það sem upp á vantar.
Gott úrval af ostum
Erla og Bragi hafa búið alla sína sambúð í
Danmörku og hafa því litla reynslu af mat-
arinnkaupum á Íslandi. Erla segir að þeim
bregði stundum vegna verðsins þegar þau
komi heim í frí og fari út í búð. „Það er mikill
munur á verði á sumu eins og kjöti, grænmeti,
ávöxtum og svo léttvíni og bjór, segir hún.
„Það er æðislegt að geta keypt léttvín og bjór
úti í búð og ég skil ekkert í að það skuli ekki
vera leyft heima á Íslandi,“ segir Bragi.
Appelsínur, vínber, epli og kál fara ofan í
innkaupakerruna úr grænmetis- og ávaxta-
borðinu að þessu sinni. Ostaúrvalið er næst á
dagskrá og þar er erfitt að velja. „Það er mjög
gott úrval af ostum hérna og mikið af góðum
ostum,“ segir Bragi og skoðar. „Við kaupum
yfirleitt fituminni osta,“ segir Erla og velur
einn 17%. Fisk fá Erla og Bragi sendan frá Ís-
landi. „Við prófuðum að kaupa fisk hér þegar
við vorum nýflutt og það heppnaðist frekar
illa. Hráefnið var bara vont,“ segir Erla. „Við
erum góðu vön," segir Bragi. „Reyndar kaup-
um við norskan lax hér og hann er mjög góð-
ur. “
Heil önd fyrir hundraðkall
Kjúkling hafa þau oft í matinn, nautahakk
eða kalkún sem er vinsæll í Danmörku. Kæli-
kistan í Føtex er full af alls kyns kjötmeti í
pökkum, þ. á m. ýmsu sem sjaldan er að finna
í kælikistum íslenskra matvöruverslana eins
og andabringum og kalkúnahakki, sem Erla
og Bragi nota oft í staðinn fyrir nautahakk
þar sem það er fituminna. „Og við höfðum
aldrei smakkað önd fyrr en við fluttum til
Danmerkur og hún er alls ekki dýr. Við
keyptum heila önd um daginn fyrir innan við
100 danskar krónur,“ segir Bragi.
Grænlenskar rækjur á wokpönnuna
„Af hverju ertu að spyrja að því,“ segir
Erla hlæjandi þegar spurt er hvort þeirra sjái
um eldamennskuna. Hún viðurkennir að
Bragi sé aðeins duglegri að elda. „Við eldum
yfirleitt fjórum til fimm sinnum í viku og þá er
það oftast eitthvað fljótlegt en hollt af því við
erum flest kvöld á æfingum, segir hann. „Svo
keyptum við kíló af grænlenskum rækjum um
daginn, þær eru mjög góðar, einmitt með
grænmeti á wok-pönnu til dæmis,“ segir
Bragi og grípur einn poka með frosnu græn-
meti. „Erla elskar síld,“ segir Bragi þar sem
þau standa fyrir framan síldarkrukkur af öllu
tagi. „Síld og rúgbrauð og danskt smörrebröd
finnst mér rosalega gott,“ segir Erla og velur
venjulega ediksmarineraða síld í kerruna. Það
er hægt að kaupa íslenska síld í dönskum
verslunum en Erlu finnst sú danska ekki síðri
auk þess sem hún er ódýrari.
Lokað á sunnudögum
Þau hjónin segjast hafa verið fljót að venj-
ast því að matvöruverslanir í Danmörku eru
alltaf lokaðar á sunnudögum og ekki eins
lengi fram eftir á virkum dögum og tíðkast á
Íslandi. Þetta er að hluta til bundið í lög í
Danmörku sem ætlað er að vernda kaup-
manninn á horninu. Í lögunum felst að ein-
ungis litlar verslanir með ákveðna hámarks-
veltu mega hafa opið á sunnudögum en ekki
stórmarkaðirnir og á að koma í veg fyrir að
þeir útrými litlum hverfisverslunum. Þetta
kemur sér einnig vel fyrir hjólreiðafólkið.
„Hér er hlutfallslega minna um stórmark-
aði þar sem margir eru bíllausir og því fleiri
litlar verslanir,“ segir Bragi um leið og hann
kemur öðrum innkaupapokanum úr versl-
unarferðinni fyrir í körfunni á hjólinu hennar
Erlu. Tveir innkaupapokar með kjúklingi,
grænmeti, ávaxtasafa, síld, ávöxtum, osti,
mjólkurvörum og frystivörum kosta tæpar
280 danskar krónur eða rétt rúmar 3.000 ís-
lenskar krónur. Erla og Bragi segjast fara
með um 2.500 danskar krónur í mat og drykk
á mánuði en það samsvarar um 27 þúsund ís-
lenskum krónum.
HVAÐ ER Í MATINN|Erla Hendriksdóttir og Bragi Jónsson kaupa í matinn í Kaupmannahöfn
Elda oftast
eitthvað fljót-
legt en hollt
Erla Hendriksdóttir og Bragi Jónsson segjast fara með um 2.500 danskar krónur í mat og
drykk á mánuði en það samsvarar um 27 þúsund íslenskum krónum.
Tveir innkaupapokar með kjúklingi, græn-
meti, ávaxtasafa, síld, ávöxtum, osti, mjólk-
urvörum og frystivörum kosta tæpar 280
danskar krónur eða rétt rúmar 3.000 íslensk-
ar krónur.
Fisk fá Erla Hendriksdóttir og
Bragi Jónsson sendan frá Ís-
landi. Þau sögðu Steingerði
Ólafsdóttur að þau hefðu próf-
að að kaupa fisk í Kaupmanna-
höfn en það hefði heppnast
frekar illa.
Danskur sítrónukjúklingur
1 kjúklingur
2 laukar
1 vorlaukur
2 stk. chili
2 hvítlauksrif
0,6 dl ólífuolía
0,6 dl sítrónusafi
Skerið kjúklinginn í tvennt. Hakkið
saman lauk, vorlauk, chili, hvítlauk, olíu
og sítrónusafa. Hellið blöndunni yfir
kjúklinginn og látið hann liggja í ísskáp
í a.m.k. klukkutíma (best yfir nótt) Hitið
ofninn í 180°C. Setjið kjúklinginn í ofn-
fast fat og steikið í 40 mínútur eða þar
til hann er steiktur í gegn. Smyrjið mar-
ineringunni yfir kjúklinginn öðru hvoru.
Berið fram með hrísgrjónum og
fersku grænmeti.
steingerdur@mbl.is