Morgunblaðið - 23.06.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 25
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
Glöggur neytandi varð var við það
í einni verslunarferð sinni að
skyndiréttirnir 1944, sem Slátur-
félag Suðurlands framleiðir, höfðu
hækkað nokkuð í verði. Steinþór
Skúlason, forstjóri SS, segir verð-
hækkanir á réttunum hafa tekið
gildi 6. júní síðastliðinn. „Að und-
anförnu hafa orðið verðhækkanir
á öllum kjöttegundum og ekki
bara hjá okkur. Við erum að koma
úr tímabili þar sem það var of-
framboð á öllum kjöttegundum og
yfir í aðstæður þar sem það er
heldur knappt af kjöti og auðvitað
endurspeglast það í verðinu. Áður
var verið að selja margar kjötvör-
ur undir kostnaðarverði en núna
er komið meira jafnvægi, en þetta
er auðvitað alltaf í einhverjum
sveiflum.“
Hækkunin á 1944-réttunum var
á bilinu 8 til 11% en svo eru ein-
stakir réttir sem hafa hækkað
meira. „Mesta hækkunin er á fiski-
bollum, eða um 20%, en þar erum
við að kaupa bollurnar frá öðrum
og er hækkunin byggð á útreikn-
ingi á kostnaðarverði,“ segir Stein-
þór.
Annar fljótlegur matur hefur
ekki hækkað eins mikið og 1944-
réttirnir. Sóma samlokurnar hafa
ekkert hækkað í verði síðan í apríl
árið 2004 en Júmbó samlokur voru
hækkaðar um 6 til 7% í apríl síð-
astliðnum en þá hafði ekki orðið
hækkun á þeim síðan í júní árið
2002. Hækkunin var eingöngu
vegna verðhækkunar á hráefni.
VERÐHÆKKUN | Tilbúnir réttir hækka í verði um allt að 20%
Minna framboð af kjöti skýringin
Morgunblaðið/ÞÖK
Sykurminni mjólkurvörur
Nú eru komnir á markað jógúrt-
drykkir frá MS sem ætlað er að
koma til móts við óskir neytenda um
sykurminni mjólkurafurðir. Léttu
jógúrtdrykkirnir innihalda minni
sykur en sambærilegar vörur.
Drykkirnir eru sýrðir með lifandi
jógúrtgerlum og innihalda næringar-
efni mjólkur.
Þeir innihalda 0.8% fitu og eru
með fituminnstu jógúrtvörum á
markaði hérlendis. Hitaein-
ingainnihald er frá 37 kcal í 100 g.
Þeir fást í þremur bragðtegundum,
tveimur sykurskertum og einni án
viðbætts sykurs. Í fréttatilkynningu
frá Mjólkursamsölunni kemur fram
að flestir sem hafa mjólkursykurs-
óþol geti drukkið nýju jógúrtdrykk-
ina þar sem meira en 80% af mjólk-
ursykrinum hafa verið klofin.
Svalandi sumarkokteilar
Svokallaðar Dreams-kokteil-
blöndur frá Suður-Afríku eru nú fá-
anlegar hér á landi. Kokteilblönd-
urnar eru unnar úr freskum ávöxtum
og hægt er að nota þær til að blanda
bæði áfenga og óáfenga kokteila.
Fjölmargar uppskriftir fylgja hverri
flösku. Bragðtegundirnar eru fjórar:
Pina Colada, með ekta kókosmjólk
og ananas, Margarita með ferskum
lime- og sítrónusafa, Sweet ’n’ Sour
úr appelsínum, sítrónum og lime og
Strawberry úr ekta jarðarberjum og
sítrónusafa.
Kokteil-
blöndurnar
fást í versl-
uninni La
Vida á
Laugavegi
51. Þar fást
einnig sér-
stakar krapa-
blöndur frá Urban Thirst á Nýja-
Sjálandi til þess að gera frosna kok-
teila. Einnig selur La Vida kokteil-
hristara, ananas- og jarðarberjasyk-
ur og limesalt til að setja á
glasabrúnirnar.
NÝTT
Morgunblaðið/Jim Smart
Þegar bera á viðarvörn á tréverk á borð við
glugga, vindskeiðar, skjólveggi og timburhús
þarf að byrja á því að fjarlægja alla gamla
lausa málningu. Ef viðurinn er illa veðraður
á yfirborði er nauðsynlegt að slípa eða skafa
niður í þéttan og óskemmdan við. Ávallt skal
kappkosta að viðurinn sé vel þurr þegar
málað er. Ef gömul og gljáandi málning er
til staðar, skal matta hana vel með sand-
pappír fyrir málun og gott er að metta allan
beran við með því að mála blautt í blautt í
allt að þremur umferðum með til dæmis
Kjörvara 14 eða 16, hálfþekjandi eða þekj-
andi.
Á palla og aðra lárétta fleti, þar sem vatn
getur legið, er best að nota Kjörvara 12
pallaolíu sem er olíubundin viðarvörn með
gott veðrunarþol. Ef viðurinn er illa veðr-
aður á yfirborði þarf að kappkosta að slípa
eða skafa niður í þéttan og óskemmdan við-
inn, sem þarf að vera bæði þurr og mettaður
við áburð. Varast skal hins vegar að bera
svo mikið á flötinn að lakkhúð myndist.
Þetta eru meðal þeirra ráða sem húsamál-
ararnir Svanþór Þorbjörnsson og Óli Hvann-
dal mæla með að fólk tileinki sér við með-
höndlun á tréverki. Þeir voru í óðaönn að
ljúka við að fúaverja nýlegan golfskála Odd-
fellowa í Heiðmörk þegar Daglegt líf brá sér
í heimsókn og náði þeim í kaffipásu í vik-
unni. Ferðinni var síðan heitið í Grafarvog-
inn í meira tréverk.
Þeir félagar segjast nota nær einvörðungu
Kjörvara frá Málningu ehf. á allt tréverk,
jafnt í vinnunni sem heima þegar dytta þarf
að, því að öðrum efnum ólöstuðum, hafi þeir
einfaldlega mjög góða reynslu af þeirri af-
urð.
Grænt og gagnvarið
Viður á Íslandi er í ríkari mæli seldur
gagnvarinn, sem kallað er. Annars vegar er
um olíuvörn að ræða sem dregin er inn í við-
inn undir lofttæmi og hins vegar saltvörn,
þar sem söltum í vatnslausn er þrýst inn í
viðinn. Saltaðferðin er mun algengari, en
hún gerir viðinn grænleitan, sem margir
kæra sig ekkert um. Fólk getur á hinn bóg-
inn valið úr fjölmörgum litaafbrigðum af
fúavörn og pallaolíu auk glæra litarins.
Þegar talið berst að því hvort farsælla sé
að velja hálfþekjandi eða þekjandi efni á
palla og annað tréverk, svara þeir Svanþór
og Óli því til að líklega myndu þeir sjálfir
velja hálfþekjandi fúavörn á glænýtt timbur,
en það inniheldur meiri olíuefni en þekjandi
fúavörnin. „Hálfþekjandi efni flagnar ekki.
Það bara veðrast og því fylgir óneitanlega
minna viðhald en þekjandi efnum. Þekjandi
efni á hinn bóginn er til í mörgum viðarlík-
ingum, en þegar slík efni hafa einu sinni
verið borin á verður ekki aftur snúið nema
ef viðurinn er allur slípaður upp frá grunni.
Í því felst mikil þolinmæðisvinna. Þegar öllu
er á botninn hvolft snýst þetta auðvitað allt
um smekk hvers og eins, en við myndum
aldrei nota akrýlefni beint á timbur, eins og
sumar verslanir gefa sig út fyrir að bjóða.
Okkar reynsla af akrýlefnum á timbur er
ekki góð, en vilji menn fara þá leið er nauð-
synlegt að grunna með grunnfúavörn á
timbur áður en málað er með akrýlefnum.
Að öðrum kosti flettist málningin af innan
ekki langs tíma þegar viðurinn blotnar því
viðloðunin er þá engin.“
Gráminn í burtu
Þegar fagmennirnir eru að því spurðir
hver séu helstu mistökin, sem fólk geri í við-
haldi tréverks og palla, segja þeir að þau
felist einna helst í undirbúningsvinnunni.
„Lykilatriðið er að vanda allan undirbúning
mjög vel. Það þarf að hreinsa öll óhreinindi
vel og vandlega áður en hafist er handa með
pensilinn og slípa allan gráma í burtu úr
viðnum.“
VIÐARVÖRN|Hvernig er best að viðhalda tréverkinu?
Lykilatriði að vanda allan undirbúning
Morgunblaðið/Eyþór
Húsamálararnir Óli Hvanndal og Svanþór Þorbjörnsson segja að helstu mistökin sem fólk geri í viðhaldi tréverks felist í undirbúningsvinnunni.
Húsamálararnir Svanþór Þor-
björnsson og Óli Hvanndal
voru að fúaverja nýlegan golf-
skála Oddfellowa í Heiðmörk
þegar Jóhanna Ingvarsdóttir
spurði þá út í tæknina við góða
vörn.
join@mbl.is