Morgunblaðið - 23.06.2005, Page 26

Morgunblaðið - 23.06.2005, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING „SÉRSTÆÐ blómamálverk lista- mannsins eru ólík öllum öðrum út- listunum á náttúru eða grasafræði. Í þeim er að finna ótrúlega ná- kvæmni og flókna innviði; þau eru nánast staðfræðileg í áþreifanleika sínum.“ Svo hljóðar umsögn dóm- nefndar Carnegie Art Award, einna stærstu myndlistarverðlauna sam- tímans, sem valið hefur Eggert Pétursson myndlistarmann sem handhafa annara verðlauna þeirra árið 2006. Þessi myndlistarverk Eggerts sem hlotið hafa þessa viðurkenn- ingu eru fínleg málverk af íslensk- um jarðargróðri. Það er líkt og að horfa ofan í íslenskan móa að sökkva sér í að horfa á mynd eftir hann – þar gefur að líta kunn- uglegan geldingahnapp og hunda- súru, baldursbrá og lambagras, svo eitthvað sé nefnt. Strigarnir eru misstórir, allt frá því að vera á stærð við venjulegt blað, upp í að vera mannhæðarháir og -breiðir og eru tvö slík verk af stærstu gerð hluti af Carnegie-sýningunni nú. Eggert segir náttúruna hafa fylgt sér lengi, frá barnæsku og inn í það starf sem síðan varð ævistarf hans – myndlistina. „Ég er alinn upp í sumarbústað á sumrin, og byrjaði þar að skoða náttúruna í kring um mig, þekkja nöfn, teg- undir, liti og afbrigði. Þetta rann svo saman við myndlistarsköpun mína; ég stundaði nám við nýlista- deild Myndlista- og handíðaskólans á sínum tíma, en hafði verið bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og á námskeiðum allt frá því að ég var unglingur – enda hafði ég alltaf ætlað mér að verða myndlistar- maður. Ég teiknaði mikið og reyndi oft að teikna blóm þegar ég var lít- ill,“ segir Eggert og dregur fram mynd sem hann teiknaði sex ára gamall með kúlupenna á blað. „Ég þekki nú þarna nokkur blóm. Þetta hefur ekki breyst mikið hjá mér,“ segir hann og bendir um leið á eitt af nýkláruðu málverkunum í vinnu- stofunni hjá sér. Grasafræðingur draumurinn Sé myndinni snúið við getur að líta mann með staf og bakpoka í út- færslu hins sex ára upprennandi myndlistarmanns. „Draumurinn var að verða grasafræðingur,“ segir Eggert og hlær. En þó að grasafræðingurinn hafi ekki orðið ofan á, heldur mynd- listarmaðurinn, fylgdu grösin hon- um engu að síður. Á fyrstu sýningu sinni eftir útskrift árið 1979 í Gall- eríi Suðurgötu 7 sýndi Eggert blómaþrykk, og árið 1983 var hann beðinn um að myndskreyta Ís- lenska flóru eftir Ágúst H. Bjarna- son. „Smátt og smátt fóru grösin að koma í auknum mæli inn í mynd- listina hjá mér og tóku að lokum al- veg yfir. Engu að síður myndi ég segja að verkin mín væru á mörk- um þess að vera abstrakt og ein- hvers sem fólk þekkir.“ Bara fólk sem deyr Carnegie Art Award eru til- einkuð norrænni samtímamálaralist og er sýningunni ætlað að endur- spegla það besta og áhugaverðasta sem þar gerist. Hugtakið málaralist er oft á tíðum túlkað mjög frjáls- lega, til að mynda hafa listamenn sem einkum fást við myndbönd og ljósmyndir hlotið verðlaunin, þó margir fáist við málverkið sem slíkt, eins og Eggert sjálfur. Aðspurður um stöðu málverksins, sem svo oft hefur verið sagt dautt, svarar hann að hlutir og hugmyndir geti ekki dáið. „Það er nú bara mannfólkið sem deyr. Þannig að mér finnst líkingin að vissu leyti ekki eiga við,“ segir hann en bætir við að málverkið sé nú til dags í allt annarri stöðu en það var áður fyrr. „Ég er einn af þeim sem hafa ekki alltaf séð þennan mun milli til- raunamyndlistar og hinnar hefð- bundnu. Ég lít til dæmis sjálfur á mig sem konseptlistamann – geri það af einhverri þrjósku. En fyrir mig persónulega hentar málverkið mjög vel. Með því móti hef ég get- að unnið heima, ég hef aldrei verið hrifinn af tækjum eða slíku, og mér myndi aldrei henta að hafa hundrað manns í vinnu fyrir mig. Mér hent- ar vel að geta unnið á þann hátt sem málverkið krefst, í kyrrþey.“ Ekki ljóst hvað breytist Aðspurður segist Eggert ekki vita á þessari stundu hverju Carn- egie-verðlaunin muni breyta fyrir hann, en það komi væntanlega í ljós þegar sýningin sjálf fer af stað. „Þetta eru auðvitað mjög þýðingar- mikil verðlaun. Bæði er upphæðin há og í þeim felst mikil viðurkenn- ing. En ég hugsa ekki að þau muni breyta verkunum sjálfum neitt, nema þá ef þau setja enn meiri pressu á mig. Það er alltaf mikil eftirspurn eftir verkunum mínum sem er erfitt að anna. Það skánar kannski ekki,“ segir hinn nýbakaði Carnegie-verðlaunahafi, Eggert Pétursson, að síðustu. Myndlist | Eggert Pétursson hlýtur önnur verðlaun Carnegie Art Award árið 2006 Lít á mig sem konsept- listamann Morgunblaðið/Árni Sæberg „Ég er einn af þeim sem hafa ekki alltaf séð þennan mun milli tilraunamyndlistar og hinnar hefðbundnu. Ég lít til dæmis sjálfur á mig sem konseptlistamann – geri það af einhverri þrjósku,“ segir Eggert. Í málverkum Eggerts koma fyrir íslenskar jurtir og blóm. Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is CARNEGIE Art Award eru ein stærstu myndlistarverðlaun sem veitt eru í dag. Til þeirra var stofnað árið 1998 af sænska fjárfestingarfélaginu D. Carnegie & Co., til að styðja framúrskarandi listamenn á Norðurlöndum og efla norræna samtíma- málaralist, en skilningur á því hugtaki er mjög breiður af hálfu þeirra sem veita verðlaunin. Í fyrstu voru verðlaunin veitt árlega, en frá árinu 2004 hafa þau verið veitt annað hvert ár. Carnegie Art Award er í raun þríþætt- ur viðburður, sem felur í sér farandsýn- ingu valinna listaverka, skráningu sýning- arinnar í bókarformi og afhendingu verðlaunanna sjálfra, sem veitt eru þrem- ur listamönnum er eiga verk á sýningunni ásamt styrk til yngri listamanns. Alls nemur verðlaunaféð í ár 2,1 milljón sænskra króna og voru 115 listamenn til- nefndir til verðlaunanna að þessu sinni, þar sem 21 komst í úrslit og taka þar með þátt í sýningunni og bókinni, en þar af eru valdir fjórir til að veita verðlaununum sjálfum viðtöku. Verðlaunaupphæðin sem fellur Eggerti Péturssyni í öðru sæti í skaut hljóðar upp á 600.000 sænskar krónur, tæpar 5,2 milljónir ísl. kr. Alls eiga fjórir íslenskir myndlistar- menn verk á Carnegie Art Award í ár; auk Eggerts þeir Steingrímur Eyfjörð, Finnbogi Pétursson og Jón Óskar Haf- steinsson. Aldrei hafa fleiri Íslendingar verið tilnefndir til verðlaunanna en nú, en Eggert og Steingrímur tóku ennfremur þátt árið 2004. Íslenskur myndlistarmaður hefur einu sinni áður hlotið verðlaunin, og lenti þá einnig í öðru sæti. Það var Hreinn Frið- finnsson, sem hlaut þau árið 2000. Frásagnarleg málverk Að þessu sinni er það sænska listakon- an Karin Mamma Andersson sem hlýtur fyrstu verðlaun, eina milljón sænskra króna, fyrir frásagnarleg málverk sín. Ár- um saman fjallaði hún um norræna nátt- úru í verkum sínum og tefldi henni gegn þjóðsögum og goðsögnum, en í seinni tíð hefur landslagið vikið fyrir innanhús- senum, þar sem er enn er að finna ýmiss ummerki náttúrunnar. Karin Mamma Andersson tók einnig þátt í Carnegie- sýningunum árið 1998 og 2000. Finnska listakonan Petra Lindholm hlýtur þriðju verðlaun að upphæð 400.000 sænskar krónur fyrir ljóðrænt mynd- bandsverk sitt „Uns“. Með því að flétta saman hljóð og myndskeið „málar“ lista- konan eins konar draumsýn þar sem áhorfandinn fylgir í humátt á eftir ungri konu á ferð í gegnum borg að næturlagi. Styrk upp á 100.000 sænskar krónur hlýtur sænski listamaðurinn Sirous Nam- azi, sem er upprunalega frá Íran. Namazi hlýtur styrkinn fyrir verk sitt „Skilti“ sem vekur upp minningar um auglýsinga- skiltin sem standa meðfram þjóðvegunum, en bera engin skilaboð; þess í stað endur- speglar það væntingar áhorfandans sjálfs. Verk Namazis snúast um mannlega eigin- leika og uppruna. Dómnefnd Carnegie-verðlaunanna að þessu sinni skipa Lars Nittve frá Moderna Museet í Stokkhólmi, sem er formaður, Ina Blom frá Oslóarháskóla, Maaretta Jaukkuri frá háskólanum í Þrándheimi og Kiasma-listasafninu, Halldór Björn Run- ólfsson frá Listaháskóla Íslands, Poul Er- ik Töjner frá Louisiana-listasafninu og Suzanne Pagé frá Nútímalistasafni Parísarborgar. Til Íslands í júní 2006 Carnegie Art Award-sýningin verður formlega opnuð í Henie Onstad-lista- miðstöðinni í nágrenni Oslóar hinn 28. september 2005, þar sem verðlaunin verða ennfremur opinberlega afhent. Að venju mun sýningin verða sett upp í kjöl- farið í höfuðborgum allra Norður- landanna, auk Nice og Lundúna, og verð- ur hún opnuð á Íslandi í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, hinn 10. júní 2006, þar sem hún mun standa til 20. ágúst sama ár. Ein stærstu myndlistarverð- laun sem veitt eru HALLDÓR Björn Runólfsson, lektor við Listaháskóla Íslands, situr í dóm- nefnd Carnegie Art Award í ár. Hann segir Eggert Pétursson vel að öðru sætinu kominn. „Hann er það svo sannarlega, og þó fyrr hefði verið,“ segir hann og bætir við að þeir dómnefndarmenn sem mæltu með Eggerti í annað sætið hafi fengið óskiptan stuðning Suzanne Pagé frá Nútímalistasafni Parísarborgar, en í nefndinni situr jafnan einn utan- aðkomandi fulltrúi, sem ekki kemur frá Norðurlöndum. „Henni fannst hann al- veg einstakur, og hann er það líka. Ég veit ekki um nokkurn annan listamann sem er að gera verk eins og hann ger- ir. Og jafnvel þó að verksvið hans sé þröngt – hann fæst eingöngu við blóm, jurtir og grös í málverkum sínum – verða verkin hans aldrei leiðigjörn eða eins. Hann finnur sífellt nýjan flöt á þessu viðfangsefni sínu.“ Halldór Björn segir það mikið fagn- aðarefni að Eggert skuli hljóta verð- launin. „Og eins það, að við skulum eiga fjóra fulltrúa frá Íslandi. Það er í raun ótrúlegt, í ljósi þess hvað við er- um fámenn þjóð miðað við hin Norður- löndin. Það ber greinilega sterkri stöðu íslenskra myndlistarmanna vitni.“ Sterk staða íslenskra mynd- listarmanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.